Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 35

Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 35
hafa áhrif á hugsanagang hans. Fyrir þá sem upplifað hafa heima- vistardvöl í einangrun langt uppi í sveit kemur margt kunnuglega fyrir sjónir í skólalýsingunum og er sú frásögn hin líflegasta. Enn- fremur er umfjöllunin um hug- myndir Árna og kunningja hans á þessum tíma hin fróðlegasta. Frásögn Lenu er ekki eins breið, hún fjallar mest um sína nánustu og næsta umhverfi sitt. Öðru hvoru víkkar frásögnin þó út og verður magnþrungin t.d. þegar fjallað er um ógnir stríðsins og einnig þegar gyðingaofsóknir eru að hefjast aftur uppúr 1950. Öll er frásögn Lenu hófstillt og sterk, það hvílir ólíkt meiri alvara yfir uppvexti hennar en Árna, ná- lægðin við stríð og ógnir er miklu meiri. Blátt og rautt er skemmtileg bók aflestrar, hún er líka fróðleg vegna lýsingar á aðstæðum og hug- myndaheimi ungmenna á ólíkum stöðum og hún er síðast en ekki síst lærdómsrík vegna saman- burðarins á hinum tveimur heim- um sem fjallað er þar um. G.Ást. Baráttukona af Akranesi Elísabet Þorgeirsdóttir: í sannleika sagt — Lífssaga Bjarnfríðar Leós- dóttur (256 bls.) Forlagið 1986. Verð: kr. 1888. Bjarnfríður Leósdóttir hefur frá mörgu að segja frá viðburða- ríkri ævi. Frásögn hennar skiptist eiginlega í tvo hluta, annar hlutinn segir frá uppvexti hennar á Akra- nesi og ættmönnum og nágrönn- um á uppvaxtarskeiðinu, einnig teljast til þessa hluta frásagnar af einkalífi, erfiðri sambúð með drykkjumanni og erfiðleikum sem því fylgja. Hinn hlutinn fjallar um þátttöku hennar í opinberu lífi. Það líf skiptist eiginlega í þrjú svið, fyrst er þátttaka í leikféiagsstarf- semi á Akranesi, síðan þátttaka í verkalýðsbaráttu þar á staðnum og að lokum þátttaka í pólitík á landsvísu, bæði í verkalýðshreyf- ingunni og innan Alþýðubanda- lagsins. Var Bjarnfríður í ein þrjú kjörtímabil varaþingmaður, í stjórn Verkamannasambands ís- lands og einnig í stjórn ASÍ. í þeim hlutum sem snúa að einkalifinu er margt forvitniiegt og lærdómsríkt. Dregin er fram skýr mynd af stéttaskiptingu í litlu sjávarplássi og sýnt hvernig al- þýðufólk lifði á árunum á milli heimsstyrjaldanna. Annar athyglis- verður kafli er um menntun og menntadrauma. Kemur þar glöggt fram hvernig það var næstum óyf- irstíganlegt fyrir alþýðufólk að öðlast menntun aðra en þá sem boðið var uppá á staðnum sem víð- ast hvar var fremur takmörkuð. Það þurfti heila heimsstyrjöld til þess að breyta þessum aðstæðum og var þó ekki heiglum hent að fara í skóla í önnur pláss. Mætti þetta vera þeim áminning sem vilja miða hagkvæmni í skólahaldi að aðstæður á þéttbýlustu svæð- unum. Af opinberum afskiptum sínum af verkalýðsmálum og pólitík seg- ir Bjarnfríður margt fróðlegt. Frá- sagnir hennar af verkfallsátökum og samningum á Akranesi lýsa baráttu við andstæðinga í návígi og á vettvangi og veitir innsýn í þá erfiðleika sem við er að stríða í slíkri baráttu bæði innávið og útá- við. Þar verður hinsvegar mun þyngra í Bjarnfríði þegar hún fer að ræða um baráttu sína á lands- vísu. Minnir lýsing hennar á um- fjöllun Gríms Thomsen um svipað efni og eru víst orð að sönnu að Bjarnfríður hafi horfið úr þeim leik kalin á hjarta. Það er merki- legt einkenni á þeim átökum sem hún fjallar um, og ég held að sé oft einkennandi fyrir íslenska stjórn- málabaráttu, en það er að fjalla ekki um ágreiningsmálin sjálf og þau viðhorf sem þau byggja á heldur snúa skoðanaágreiningi upp í persónulegt skítkast og ráð- ast á persónu þeirra einstaklinga sem bera fram tilteknar skoðanir. Hefur þessi árátta verið til mikillar óþurftar fyrir íslenskt stjórnmála- líf bæði innan flokka og utan, og eru engin merki um að lát verði á því nú þegar stjórnmálabaráttan er nærri eingöngu farin að snúast um einstaklinga. Þó svo að þeir atburðir sem Bjarnfríður fjallar mest um í þessu samhengi séu svo tiltölulega ný- liðnir að erfitt er að sjá þá í sögu- legu samhengi og hún skoði þá fyrst og fremst út frá eigin persónu og tilfinningum, sem eru særðar, þá hefur frásögn hennar að mínu viti fyrst og fremst gildi vegna þess að hún segir hreinskilnislega frá eigin upplifun á þessum atburð- um. G.Ást. Lyklar að lífum Níu lyklar eftir Olaf Jóhann Ólafsson. Útg.: Vaka/Helgafell. Með níu nýjum smásögum kveður ungur rithöfundur sér hljóðs. Sögur hans berast okkur austur um haf þaðan sem hann dvelur við nám og störf, og efni- viður sumra sagnanna er einnig tekinn úr erlendu umhverfi hans, en annarra héðan af heimaslóð- um. Mannlífið í breytileik sínum er viðfangsefni Ólafs Jóhanns, mannlíf einstaklingsins. Sögur hans eru fámennar, myndbrot úr lífi einmana sálna á leið sinni um víðáttur hins fjölbyggða heims. íslendingur orðinn útigangs- maður í vesturheimskri stórborg sér fortíð sína líkamnast í leikhúsi þar sem gott er að leita skjóls fyrir kulda. Hjá ungu pari deyr ástin vegna mismunandi litarháttar og yfir þeim grætur himinninn. Gamall vísindamaður einn í læstu herbergi, kvalinn af því að frægð hans og árangur í vísindum stendur á grunni óheilinda. Ungur námsmaður hendir gam- an að einmana manni og ógæfu- samri portkonu — ólukkubörnum stórborganna — en týnir sjálfur heillafjöðrum sínum. í sögum þessum er fremur verið að lýsa og segja frá lífsmyndum en skrifa sögur af atburðum. Þetta eru fallegar sögur og skrifaðar af léttleika og hlýlegri gleði þó að mannlífsmyndir sagnanna séu oft- ar en ekki harmrænar. Ólafur Jó- hann skrifar sögur sínar í hinu hefðbundna smásagnaformi en efnistök hans eru hnitmiðuð og skýr, myndir eru dregnar hreinum dráttum, ekki er of eða van skrif- að. Frágangur bókarinnar er falleg- ur, skemmtilegur þykir mér mynd- hausinn við upphaf hverrar sögu en ég sakna þess að fá ekki að vita hver gerir hann og hina ágætu kápumynd. IÁ KVIKMYNDAHUSIN FJÓRIR Á FULLU (Hot Chili) 0 Fjórir vinir kynnast ýmiss konar kven- mönnum þegar þeir fá vinnu á hóteli í Mexíkó yfir sumarið. Bönnuð börnum innan 16. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. STELLA I ORLOFI ★★★ Léttgeggjuð ærsl a la Islanda. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. PURPURALITURINN (The Color Purple) ★★★ Manneskjulegur og hrífandi Spielberg. Sýnd kl. 9. Bönnuð börnum innan 12 RÁÐAGÓÐI RÓBÓTINN (Short Circuit) ★ ★★ Fjallar um róbót nr. 5 sem fer á flakk og lendir í hinum ýmsu ævintýrum. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. LÉTTLYNDAR LÖGGUR (Running Scared) ★★ Grínlöggumynd með Gregory Hines. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Aliens ★★★★ Splunkuný og spennandi spenna. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. STÓRVANDRÆÐI i LITLU KlNA (Big Trouble in Little China) ★★ Uppátækjasamt sprell og hrekkir. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 12 ára. MONA LISA ★★★ Elskuleg mynd, hörku drama og leikur. Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. Bönnuð börnum innan 16 ára. i HÆSTA GÍR (Maximum Overdrive) ★ Splunkuný, spennandi spennumynd með Emilio Estevez (úr Breakfast Club, og St. Elmo's Fire). Sýnd kl. 7 og 11. Bönnuð innan 16 ára. BÍÓHÚSIÐ „VITASKIPIÐ" (The Lightship) ★★★ Góð mynd leikstýrð af Jerzy Skoli- mowski (hann lék eitt aðalhlutverkið í White Nights, og leikstýrði The Shout). Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. LINK ★★ Ágæt spennumynd um prófessor sem þjálfað hefur apa með harðri hendi, en hætta er á að dýrin geri uppreisn og þá er voðinn vís. Sýnd kl. 5.10, 7.10 og 9.10. Bönnuð börnum innan 12 ára. LAUGARÁS B I O E.T. ★ ★★ Frábær fjölskyldumynd. Sal A kl. 5 og 7.05. Sal B kl. 9, 11.05. LAGAREFIR (Legal Eagles) ★ ★★ Mjúkt lögfræðidrama. Sal A kl. 9,11.15. Sal B kl. 5 og 7. EINKABÍLSTJÓRINN (My Chauffeur) ★ Unq stúlka gerist einkabílstjóri. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. IREGNBOGIINN GUÐFAÐIRINN (The Godfather Part II) ★★★★ Þrælmögnuð mafíumynd. Myndin hlaut6 óskarsverðlaun. Sýnd kl. 3,6.05 og 9.15. Bönnuð börnum innan 16 ára. AFTURISKÓLA (Back To School) ★ ★ Dillandi grín og hraði. Sýnd kl. 3.05, 5.05, 9.15 og 11.15. Abending Ráðagóði róbótinn er frábær fjölskyldu- mynd full af tæknibrellum og fjöri. Svo er það andstæðan Guðfaðirinn II, frá- bær spennumynd með úrvalsleikurum og frábærum leikstjóra, Francis Ford Coppola... Ekta Mafíumynd. Minnum llka á hlýlega snilld Skolimowski í Bíó- húsinu og orlofið hennar Stellu fyrir þá fáu sem ólokið eiga Austurbæjarferð í bíó. LÖGREGLUMAÐURINN (Ftolice) ★ Mynd um lögreglumann sem vill gera skyldu sína sem lögreglumaður en freistingarnar eru margar. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 7, 9 og 11.15. STRlÐSFANGAR (RO.W.) ★ Föngum bjargað í lok Víetnamstríðsins. Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15. Bönn- uð börnum innan 16 ára. SAN LORENZO NÓTTIN ★ ★★ Mynd Paolos og Vittorios Tavionis sem hlaut sérstök verðlaun í Cannes 1982. Barátta þorpsbúa á Italíu við Þjóðverja 1944. Sýnd kl. 7. GUOFAÐIRINN I ★★★★ Mafíumynd. Sýnd kl. 9. ÞEIR BESTU (Top Gun) ★★★ Strípur og stjörnur, mökkur af militar- isma. Sýnd kl. 3, 5 og 7. JÓLASVEINNINN ★★ Frábær jólamynd, fyrir alla fjölskyld- una. Sýnd kl. 3 og 5. JAKE SPEED ★ Spennandi, fyndin en leiðinleg mynd, um einkaspæjara í leit að stúlku hjá hvítum þrælasölum í Afríku. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Á YSTU NÖF (Out of Bounds) ★★ Léttur götutryllir. Sýnd kl. 5, 9 og 11. Bönnuð börnum innan 16 ára. ÞAÐ GERÐIST I GÆR (About Last Night) ★★ Hjartaknúsarinn Rob Lowe. Sýnd kl. 7. HEAT Ný Um hefnd vegna ástar. Með Burt Reyn- olds. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ mjög góö ★ ★ miölungs ★ þolanleg O ntjög vond MYNDBAND VIKUNNAR Gufubað Steaming ★★★ 77/ útleigu m.a. hjá Vídeóspól- unni. Leikstjóri Joseph Losey. Bresk. Árgerð 1984. Handrit: Patricia Losey eftir uerðlaunaleikriti Nell Dunn. Aðalleikarar: Vanessa Redgrave, Sarah Miles, Diana Dors, Patti Love, Brenda Bruce og fl. Lengd: 92 mín. Sá góði leikstjóri Joseph Losey (m.a. Servant 1963 og The Go- Between, 1970) lést skömmu eftir gerð myndarinnar Steaming. Og reyndar dó kynbomban gamla, Diana Dors, úr krabbameini nokkru síðar en hún fer með eitt aðalhlutverkið í myndinni og gerir vel. Steaming er gerð eftir verð- launaleikriti Nell Dunn og myndin ber þess nokkur merki að um sviðsverk er að ræða. Nokkrar konur á ýmsum aldri og úr mis- munandi stéttum koma inn úr vetrarkulda Lundúna einu sinni í viku til að hlýja sér í gufubaði og ræða um sorgir sínar, gleði, vonir og drauma. Þær varpa af sér ytri ham í bókstaflegri merkingu; bæði klæðum og daglegri grímu og Losey tekst að sýna hina innri manneskju kvennanna með lát- lausri og yfirvegaðri leikstjórn, og stjörnuleikur leikkvennanna er slíkur að undirritaður saup oft hveljur af aðdáun. Þetta er úrvals- mynd í listrænum gæðaflokki sem sérhver leiga getur verið stolt af. -IM HELGARPÖSTURINN 35

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.