Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 43

Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 43
Sagan af £>ví hvernig Arni Johnsen, Pétur Steinn og Páll Magnússon reyndu aö ganga hver af öörum dauðum — eða reyndi sitt besta til að stjórna — ferð þeirra um þrekæfingasalinn. Það verður eiginlega að segja eins og er, að galsi og gáski voru mjög við völd eftir að kvöl eróbikk-leik- fiminnar var að baki. Bæði Pétur Steinn og Árni hjóluðu og hjóluðu, til þess að verma vöðv- ana. „Á að fara langt?" kallaði ein- hver. „Til Hafnarfjarðar," svaraði þingmaðurinn. „Pá er þetta fyrst orðinn brandari." Þegar félagarnir tveir voru byrjaðir að lyfta lóðum og metast af kappi, mætti Páll Magnússon, glóðvolgur eftir tilraun til að „grilla" fjármála- ráðherra. Hann var enn með þykk- an, gulbrúnan andlitsfarða og fékk á sig vandlætingargusur frá Arna og Pétri Steini, sem kviðu eitthvað samanburðinum. „Bíðið þið bara þangað til þetta fer að leka í straum- um niður eftir andlitinu á mér,“ sagði Páll og flýtti sér inn í búnings- herbergið. Kona úr leikfimiliðinu kom út úr kvennaklefanum og hrópaði upp yfir sig. „Eruð þið enn að pína strák- ana!“ Ég er ekki frá því að örlítillar aðdáunar hafi gætt í röddinni. Hún hefur eflaust haldið að þeir væru búnir að vera eftir leikfimina. Þá steig Páll Magnússon, klæddur í hvítar stuttbuxar, treyju og glænýja íþróttaskó, út úr búningsklefanum og þögn sló á hópinn. Hann var jafnbrúnn á löppunum og hand- leggjunum og hann var í framan! Athyglisvert.. . „Djöfull. Þarft þú endilega að koma svona brúnn og sætur,“ tautaði einhver. KARLAGROBB OG METINGUR Metingurinn og karlagrobbið margfaldaðist við komu Páls og Ævar þjálfari þurfti að taka á hon- um stóra sínum við að stjórna þrí- eykinu. Allir vildu lyfta þyngri lóð- um en sá á undan, fara fleiri ferðir en hinir, og svo framvegis. Og skotin flugu á milli þeirra, bæði í gamni og alvöru. Ftíll: „Misstu þetta ekki ofan á þig, Árni.“ Árni: „Ég er rétt að byrja.“ Pétur: „Hann er búinn að segja þetta í klukkutíma." Árni: „Það verður gaman að sjá Palla í sjónvarpinu á morgun, mað- ur, alveg fastan í herðunum." Árni: „Mikið er þetta framsóknar- leg hreyfing hjá þér Páll. Svona klunnaleg." Ftíll: „Arni, af hverju ertu með gallann opinn niður á maga? Ftítur Steinn: (Þegar Árni og Páll fóru mjög frjálslega með tölur í eilíf- um samanburði sínum) „Læra menn ekki að telja í Vestmannaeyj- um, eða hvað?“ Árni: „Hvað á ég eiginlega að gera þetta oft? Tíu?” Ævar þjálíari: „Já, til klukkan tíu!“ Þegar hér var komið sögu, var kappið alveg að gera útaf við þre- menningana. Páll margítrekaði að hann vildi ekki láta sinn hlut vera eitthvað minni eða auðveldari, þó hann hefði komið seinna en hinir, og virtist hafa af þessu töluverðar áhyggjur. Að lokinni hringferð um æfinga- salinn í Rœktinni, eins og þessi heilsuræktarstaður í Vesturbænum heitir, stilltu þeir Páll, Árni og Pétur Steinn sér upp fyrir framan vegg- myndir af húðfiettum mannslíköm- um. Þar tók Jim af þeim fallega hóp- mynd, þrátt fyrir að erfitt væri að fá kappana til þess að standa kyrra eitt andartak. Páll átti að standa fyrir framan hina tvo, en hann lýsti því yf- ir, að hann óttaðist mikið að vöðv- arnir á handleggjum hans skyggðu á andlit Péturs Steins og Árna, ef hann „pósaði". Þetta var mikið mál, allt saman. ÁRNI OG PÁLL FÆRU SÉR AÐ VOÐA Áður en drengirnir skelltu sér í sturtu, var þeim boðið upp á hress- andi próteindrykk á heilsubarnum. Það bar ekki á öðru en þetta rynni ljúflega niður, þó Páll segði meira í gríni en alvöru: „Þetta væri ekkert gott, ef maður vissi ekki að það væri svona hollt!" Þegar þremenningarnir voru horfnir af barnum, spurði ég Ævar Agnarsson álits á líkamlegu ástandi þeirra. Dómur þjálfarans var eitt- hvað á þessa leið: „Árni er í ágætis ástandi, þó hann sé auðvitað dálítið þrekvaxinn. Hann færi sér hins vegar mjög fljót- lega að voða, ef hann fengi að ráða. Hann er allt of djarfur og ákafur! Páll Magnússon færi sér líka að voða í æfingunum, sérstaklega ef hann væri einhvers staðar nærri Árna Johnsen. Þeir æsa hvorn ann- an svo upp. Það þyrfti a.m.k. sterkan aga á þá. Pétur Steinn fór mun rólegar í þetta. Ég gæti trúað því að það þyrfti meira að ýta á hann, svo hann passi sig ekki of mikið. Þeir yrðu allir saman ágætir, ef þeir hefðu úthald til þess að æfa í einn og hálfan mánuð, án þess að gefast upp eða meiða sig. Ef þeir héldu út þetta tímabil, væru þeir koinnir með góða undirstöðu. Þeir eru allir nógu sterkir, en vöðvarnir eru ekki tilbúnir í neina keyrsiu. Mér fannst Páll ná þessu mjög fljótt og þeir raunar allir. Þetta voru ekkert einfaldar æfingar, en þeir voru strax með á nótunum. Það þyrfti auðvitað góðan tíma, en það væri hægt að gera alla þessa menn „myndarlega". Enginn þeirra er hins vegar í neinni æfingu fyrir þetta núna, þó það hafi verið gífurlegt fjör og stuð á þeim. Þeir hafa þetta samt í sér og það mætti ná því fram. En djúpt er á því!“ Ekki vildi Ævar gefa köppunum neina einkunn. Hann sagði, að það gæti „brotið einhvern niður", svo ég noti óbreytt orð þjálfarans. Að end- ingu lagði hann ítrekaða áherslu á þá skoðun sína, að þessi ákveðna þrenning væri stórhættuleg blanda. Þeir myndu fyrr drepast en gefast upp, eða geta minna en næsti mað- ur. „Þeir þyrftu alla vega mjög strangt eftirlit." Þar höfum við það og um leið og Ævar hafði sleppt orðinu, kom Pét- ur Steinn hlaupandi út úr búnings- herberginu og kallaði: „Ég var fyrst- ur að klæða mig!“ Það er þó nokkur vegalengd niður að iljum. „Sjáið þið hvað ég get, strákar!" „Ég get þetta Wsf." Þeir voru ekki allir festir á filmu kátbros- legir og stundum grát- broslegir tilburðir þremenninganna. Blaðamaður HP sá það allt — og hló. HELGARPÓSTURINN 43

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.