Helgarpósturinn - 18.12.1986, Side 23

Helgarpósturinn - 18.12.1986, Side 23
JOLAMATIIRINN Aldrei hefur verið fjölbreyttara úrval af kjötmeti á jólaborðið en einmitt nú. Verslanir eru yfirfullar af alls kyns góðmeti og það getur ver- ið höfuðverkur að ná samkomulagi innan fjölskyldunnar um hvaða rétt skuli velja á jólaborðið. Margir eru mjög fastheldnir og borða aðeins rjúpur á aðfangadagskvöld. Öðrum finnst jólin ekki komin nema steikt- ur sé svínahryggur og enn aðrir halda sig við lambasteikina. En nú á þessum síðustu og verstu tímum (sem sumir kalla góðæri) þarf að hafa í huga hvað pyngjan þolir áður en matseðillinn er settur sam- an og það jafnvel þó það séu jól. Það munar heilmiklu hjá stórri fjöl- skyldu hvort valið er það dýrasta eða það ódýrasta, jafnt í kjötmeti sem meðlæti. Við settum til gamans saman þrjá hátíðarmatseðla sem hér fylgja á eft- ir. Við fórum síðan í einn stórmark- aðinn í borginni og versluðum allt sem til þurfti. Gert var ráð fyrir 6 manns við matarborðið og innkaup- in miðuð í magni við þann fjölda. Eins og sjá má getur munað miklu í krónum talið. Inni í þessum tölum er ekki reiknað krydd og annað smá- ræði sem ætla má að til sé í eldhús- skápnum. Hins vegar fylgir þarna allt kjötmeti, meðlæti, egg og rjómi og svo hráefni í forrétti og ábæti. En lítum á útkomuna. FJALLALAMBIÐ DÝRT EN MEÐLÆTIÐ BÆTTI ÞAÐ UPP Á fyrsta matseðilinn settum við sveppasúpu í forrétt, lambaham- borgarhrygg með rauðvínssósu í aðalrétt og rifsberjaís í ábæti. Heild- arútkoman að meðtöldu rauðvíni í sósuna varð rétt rúmar 2400 krónur eða um 400 krónur á mann. Við gerðum ráð fyrir 1.8 kg af hryggn- um og kostaði hvert kíló 608 krónur, sem er með því hærra sem gerist á kjötmeti. Hér bætti upp að súpan var tiltölulega ódýr og einnig rifs- berjaísinn, sem þó er hið mesta lost- æti. RJÚPURNAR KOSTA SITT Næst völdum við reyktan lax með spergli og hollenskri sósu í forrétt, rjúpur í aðalrétt og banana- og val- hnetuábæti til að fullkomna seðil- inn. Heildarkostnaður hér varð um 3500 krónur eða tæplega 590 krón- ur á mann. Stykkið af rjúpunni (óhamflettri) kostaði 220 krónur og keyptum við 8 stk. til að vera örugg með magnið en ætla má rúmlega 1 rjúpu á hvern fullorðinn. Meðlæti er hér einnig vel úti látið og svo verður reykti laxinn hér að teljast munað- ur, sem lyftir heildarverðinu tölu- vert. KALKÚNAVEISLA FYRIR 500 KRÓNUR Síðast á dagskránni var svo kalkúni með rifsberjahlaupi í aðalrétt á eftir rækjuhlaupi í forrétt og létt og ljúf- fengt súkkulaðimauk i ábæti. Við gerðum ráð fyrir 3 'h kg af kalkúna fyrir 6 manns og kostaði kílóið 525 krónur. Heildarkostnaður varð kr. 2.940- eða rétt tæpar 500 krónur á mann. Hér er minna lagt í meðlætið en með rjúpunum og ábætisréttur- inn er tiltölulega ódýr. Það er því ljóst að fleira skiptir ediki og steyttum pipar. Kælið og hrærið síðan eggjablöndunni smátt og smátt saman við eggjarauðurnar og setjið aðeins meira vatn út i. Þeytið sósuna rækilega og bætið bræddu smjörinu út í smátt og smátt. Ef sósan verður of þykk, má þynna hana með meira vatni. Bragðbætið með salti, pipar og sítr- ónusafa. Haldið heitu í vatnsbaði. Sósan má alls ekki sjóða. Vefjið lax- inn í rúllur og raðið þeim á fat og skreytið með dilli. Hitið sperglana í soðinu og berið þá fram í djúpri skál og hellið sósunni yfir. Rjúpur 8 stk. rjúpur (ríflega ein á mann) salt og pipar 2 stk. einiber 'h b. lárviðarlauf rjómi 1 stk. Camembert rifsberjahlaup kjötkraftur smjörbolla (hveiti 100 g, smjör 75 g) Rjúpurnar eru hamflettar og hreinsaðar (ath. það má ekki skola þær í vatni), kryddaðar með salti og pipar og brúnaðar á pönnu. Soðnar í 30 mín. í vatni. Innmaturinn er brúnaður í potti og soðinn ásamt einiberjum og lárviðarlaufi í 60 mín. Soðið af innmatnum og rjúpunum er sigtað og soðið saman, bakað upp. Skánin er tekin af ostinum og honum bætt í sósuna, sem áfram er bragðbætt með kjötkrafti og rifs- berjahlaupi. Bætið í rjóma eftir smekk. Meðlæti: Sykurbrúnaðar kartöflur, rauðkál, gulrætur, rauðbeður og Waldorfsalat. Waldorf-salat: 2 dósir sýrður rjómi 70 g sellerí 300 g græn vínber 2 græn epli 50 g valhnetukjarnar Skerið selleríið í litlar þunnar ræm- ur, helmingið vínberin og fjarlægið steinana. Skerið eplin í litla teninga og saxið valhnetukjarnana. Blandið nú öllu í sýrða rómann, í þeirri röð sem talið er upp. Skreytið með val- hnetukjörnum og hálfum vínberj- um. Banana- og valhnetuábœtir: 7 stórir, þroskaðir bananar (1 til skrauts) 2 msk sítrónusafi 120 g sykur 150 g valhnetukjarnar 2 'h dl. kaffirjómi 2'h dl. rjómi Stappaðu 6 banana og hrærðu sam- an við sykur og 1 msk. sítrónusafa. Brytjaðu valhnetukjarnana (haltu 6 eftir til skreytingar) og bættu við banana. Þeyttu rjómann og kaffi- rjómann og hrærðu varlega saman við. Skammtaðu í ábætisskálar. Skerðu síðasta bananann í sneiðar, sáldraðu nokkrum dropum af sítr- ónusafa yfir og raðaðu bitunum of- an á ábætinn. Settu hálfan valhnetu- kjarna í miðjuna á hverri skál. Hátíðarmatseðill III Rœkjuhlaup meö sósu 1 kg rækjur 1 pk. fiskhlaup Raðið rækjunum í hringlaga mót. Leysið hlaupið upp í 5 dl. af sjóðandi HVAÐ K0STAR JÓLA- STEIK MEÐ ÖLLU? máli en kílóverðið á kjötin þegar verið er að versla fyrir jólamáltíð- ina. Hér sést að sá kjötréttur sem dýr- astur var miðað við kílóverð, reynd- ist ódýrastur þegar upp var staðið. Lambakjötið er einnig snöggtum drýgra en fuglakjötið, því þar fylgir hlutfallslega meira af beinum með. Einnig má stýra kostnaðinum með því að velja vandlega meðlætið. Ef kjötmetið sjálft er dýrt og mikill til- kostnaður fylgir sósugerð og ann- arri matreiðslu er einfalt að draga úr meðlætinu. En við látum þessar vangaveltur duga og leyfum uppskriftum að rétt- unum sem innkaupin voru miðuð við, að fljóta hér með. Hátíðarmatseðill I Sveppasúpa: 1 1. kjötsoð 1 tsk. soyasósa 10 græn piparkorn (mulin) 300 g sveppir Smjörbolla (75 g smjör, 100 g hveiti) 5 dl. rjómi Sherry Kjötsoðið, soyasósan og piparinn soðið saman í potti í ca. 5—10 mínút- ur. Bakað upp með smjörbollu í hæfilega þykkt og látið sjóða. Sveppirnir kraumaðir á pönnu og rjómanum síðan hellt yfir þá. Þessu er síðan blandað út í pottinn og bragðbætt með sherry (ca. 1—2 msk.) Lambahamborgarhryggur: Hryggurinn er soðinn í 35—45 mín. í vatni en ekki það miklu að yfir hann fljóti. Hann er síðan smurður með frönsku sinnepi og púðursykri og svo stungið inn í 200°C heitan ofn í 5—10 mínútur. Þá á sykurinn að vera vel bráðinn. Rauðvínssósa: 'h 1 rauðvín 6 stk. charlottulaukar (3 stk. venju- legir) Mulinn svartur pipar Timian Steinselja Laukar og steinselja er saxað fínt og kraumað í potti ásamt pipar og ca. 1 tsk timian. Rauðvíninu bætt saman við og soðið niður til helminga. 8 dl vatni bætt í og soðið í 10 mínútur. Jafnað með smjörbollu og bragð- bætt með kjötkrafti. Með hryggnum er upplagt að hafa bakaðar kartöflur, rósakál, spergil- kál, maískorn, og steikta ananas- hringi. Rifsberjaís: 700 g ný eða frosin rifsber 100 g sigtaður flórsykur 3 egg 2 'h dl rjómi Sigtaðu rifsberin eða merðu þau í þeytara. Sykraðu eftir smekk með flórsykri. Þeyttu eggjarauðurnar og 50 g af flórsykri, þar til blandan þykknar. Þeyttu eggjahvíturnar og 50 g af flórsykri, lítið í einu, uns þær eru orðnar stifar. Hrærðu smám saman eggjarauðunum út í. Hrærðu rifsberjamauki og rjóma saman við. Helltu í ísform og frystu, þar til ísinn stífnar. Borið fram í glösum eða skálum með ískexi. HátíðarmatseðiII II Reyktur lax m/sperglum og hollenskri sósu Reyktur lax í sneiðum (ca. 3—4 sneiðar á mann) 2 dósir af heilum spergli Hollensk eggjasósa: 300 g smjör 4 eggjarauður 5 msk vatn sítrónusafi salt og pipar Sjóðið 4 msk af vatni með 1 msk af HELGARPÖSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.