Helgarpósturinn - 18.12.1986, Qupperneq 26

Helgarpósturinn - 18.12.1986, Qupperneq 26
kaupa gamalt hangikj öt þegar þérbýöst nýtt Alltjólahangikjöt Sláturfélagsins ereingöngu unniö úrnýju og mögru fyrsta flokks hráefni. Síóan er því pakkað í lofttæmdar umbúðir og gæðin þannig innsigluð. Notaðu aðeins úrvals hangikjöt. Notaðu SS jólahangikjöt. SLÁTURFÉLAG 'fv*f SUÐURLANDS JÓLAF Danskurinn ku vera sérlega lag- inn við að útbúa skemmtileg hlað- borð á jólunum. Við gengum því í danska smiðju eftir uppskriftum að réttunum sem hér fylgja á eftir. Hlaðborð af þessu tagi er sérlega þægilegt ef bjóða á miklum fjölda til veislu. Réttina er alla hægt að útbúa með löngum eða skömmum fyrir- vara og suma má jafnvel frysta. A jólaborðinu okkar eru síldar- réttir, soðin nautabringa, saltfisks- kökur, lifrarkæfa, ostar og margt fleira. Og til að gera það nú örlítið þjóðlegra bætum við að sjálfsögðu gómsætu hangikjöti á borðið. En hérna koma nokkrar uppskriftir. Soðin nautabringa með 2 sósum Um l’Á kg nautabringa 2 laukar, 4 negulnaglar 2 gulrœtur, 1 bladlaukur 1 stilkur stöngulsellerí steinselja, timían salt, heil piparkorn l.Setjið kjötið í pott, hellið vatni yfir, komið upp suðu og fleytið vel. 2. Bætið í hreinsuðu grænmeti (laukarnir stungnir negulnögium), 2—3 tsk. af salti, 10—12 piparkorn- um og vendi úr blaðlaukstoppi, sell- eríblaði, 3 steinseljugreinum og 1 timíangrein. 3. Meyrsjóðið kjötið í luktum potti við mjög vægan hita, en ekki of lengi. Auðvelt á að vera að taka beinin úr. Kælið kjötið ögn í soðinu og setjið það undir létt farg. Berið það fram kalt og þunnskorið með brauði ásamt graslaukssósu og pip- arrótarsósu. Graslaukssósa Hrærið saman 3 msk. majónsósu og 2 dl sýrðan rjóma. Bragðbætið með mörðum hvítlauk, salti, pipar, sítr- ónusafa og graslauk. Piparrótarsósa Blandið 2 dl af þykku eplamauki við nýrifna piparrót, sítrónusafa, salt og svolítinn sykur. Nautabringu má sjóða 1—2 dögum 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.