Helgarpósturinn - 18.12.1986, Síða 28
JÓLABAKSTUR
sem geymist og geymist...
Þegar jólahátíðina ber upp á fimm
frídaga eins og nú gerist, er víst eins
gott á stóru heimili að eiga ýmislegt
matarkyns í fórum sínum til að
seðja svanga munna. Flestir eru
sjálfsagt búnir að baka smákökur og
piparkökur eins og þykir til hlýða.
Við sleppum þeim því alfarið í þetta
skiptið en látum hér fljóta uppskrift
að enskri jólaköku sem bæði er mat-
armikil og saðsöm. Það sama má
reyndar segja um brauðmetið sem á
eftir fylgir.
Ensk jólakaka:
250 g hveiti
'A tsk. salt
1 sléttfull tsk. brúnkökukrydd
340 g steinlausar rúsínur
340 g sultana-rúsínur
340 g kúrenur
60 g brytjad súkkat
80 g kokkteilkirsuber, skorin í fjórö-
unga
60 g möndlur, afhýddar og saxadar
230 g smjör
230 g púdursykur
4 hrœrd egg
V/2 tsk. dökkt síróp
2 msk. koníak
Klæddu hliðar og botn í kringlóttu
kökuformi með tvöföldu lagi af bök-
unarpappír. Taktu síðan ræmu af
þykkum pappír, sem nær tvisvar
sinnum utan um formið og nær svo
sem 2 sentimetra yfir barma þess.
Bittu fast utan um formið. Sigtaðu
saman hveiti, salt og krydd í stóra
skál. Hrærðu saman smjör og sykur,
uns blandan er ljós og létt. Hrærðu
eggjunum út í smám saman.
Hrærðu nú sírópinu saman við,
síðan hveiti, ávöxtunum, súkkati,
kirsuberjum og möndlum. Settu
þetta í formið og bakaðu í ofni við
150 gráðu hita i 3 klukkustundir.
Lækkaðu hitann um 10 gráður og
bakaðu kökuna í 1—1 '/2 klst. í við-
bót.
Láttu kökuna kólna í forminu í 10
mínútur, hvolfdu henni siðan úr því
á grind og fjarlægðu pappírinn. Þeg-
ar kakan er næstum kólnuð, er
henni snúið við. Þá er hún stungin
með prjóni og koníakinu dreypt yfir.
Þegar hún hefur kólnað til fulls, er
henni pakkað í smjörpappír og ái-
pappír eða komið fyrir í loftþéttri
dós.
Best er auðvitað að geyma kök-
una dálítið áður en hún er borðuð,
svo bragðið nái sem best að koma
fram.
Döðlubrauð:
150 g dödlur
100 g sykur
50 g smjörlíki
l3/ dl sjódandi vatn
1 egg
250 g hveiti
‘/ tsk. salt
1 tsk. natron
50 g saxadar hnetur
Döðlum, sykri, smjörlíki og vatni
blandað saman. Kæit. Þegar það er
orðið kalt, er afganginum af hráefn-
unum blandað vel saman við. Bakað
við ca. 180°C í 45 mínútur. Deigið
dugir í 1 meðalstórt kökuform.
Bananabrauð:
100 g smjörlíki
150 g sykur
2 egg
'/2 tsk. vanilludropar
170 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
salt á hnífsoddi
3 vel þroskaðir bananar
lá bolli muldir valhnetukjarnar
Smjörlíki og sykur er hrært saman
þangað til það er orðið ljóst og létt.
Eggin sett út í, eitt í einu og síðan
droparnir. Sigtið saman hveiti, lyfti-
duft og salt og blandið saman við.
Síðan eru bananarnir vandlega
marðir og settir út í ásamt hnetun-
um. Bakað í 1 klst. við 175°C. Dugir
í eitt stórt kökuform.
Að lokum ein dísæt og ómótstæði-
leg fyrir sælkerana og hreint augna-
yndi á jólaborðinu.
Jólaspes
Þetta er fallegur skrauthjúpur sem
setja má utan um uppáhaldstertuna.
/ möndlumassa:
340 g malaðar möndlur
170 g strásykur
170 g sigtaður flórsykur
3 eggjahvítur
nokkrir möndludropar
3 msk. síuð apríkósusulta
1 sykurhjúp:
900 g sigtaður flórsykur
4 tsk. sítrónusafi
2 tsk. glýserín
Blandaðu möndlunum og sykrinum
saman í skál, bættu svo eggjahvítun-
um og möndludropunum saman
við. Hrærðu úr þessu mjúkan
massa. Hnoðaðu hann, uns hann
hefur jafnast og skiptu svo í þrjá
jafna hluta. Stráðu sykri á borð og
flettu einn þriðjunginn í skífu svo
sem 22 sm í þvermál. Þriðjungarnir
sem eftir eru eru flattir með kefli og
mynduð úr þeim ræma, jafnbreið og
kakan er há og nógu löng til að ná
utan um hana. Penslaðu hliðar kök-
unnar með apríkósusultunni.
Legðu möndlumassaræmuna síð-
an utan um kökuna og þrýstu henni
vel að. Skífan sem gerð var úr
möndlumassanum, er síðan látin
ofan á kökuna. Þetta er látið þorna
í a.m.k. 3 daga, áður en hjúpurinn
er settur á.
Eggjahvíturnar eru þeyttar, þar til
þær eru froðukenndar. Bættu sykr-
inum í, einni matskeið í senn og
hrærðu vel á milli. Hrærðu loks
saman við sítrónusafa og glýseríni.
Legðu rakan klút yfir skálina þann-
ig að blandan stifni ekki.
Settu þykkt lag af blöndunni ofan
á kökuna og á hliðar hennar.
Mynstraðu hana síðan með teskeið-
arskafti. Láttu hana stífna í sólar-
hring og skreyttu síðan með öllu því
jólaskrauti sem þér dettur í hug.
28 HELGARPÓSTURINN