Helgarpósturinn - 18.12.1986, Síða 32
KVIKMYNDIR
Duvall í faðmi fjölskyldunnar: Sjaldan leikið betur.
Látlaus
snilld
Bíóhúsid
Vitaskipiö (Lightship):
★★★.
Bandarísk, árgerö 1986.
Leikstjórn og handrit: Jerzy
Skolimowski, byggt á sögu Sieg-
fried Lenz.
Kvikmyndun: Charley
Steinberger.
Tónlist: Stanley Meyer.
Aballeikarar: Robert Duuall,
Klaus Maria Brandauer og
Michael Lyndon.
Vitaskipið er látlaust og hlýtt
sniildarverk sem menn gera sér
fyrst grein fyrir hvað er gott þegar
efniviðurinn, túlkunin og fram-
setningin leitar á þá eftir á. Pólski
leikstjórinn og leikarinn Jerzy
Skolimowski sýnir hér að hann er
ekki eftirbátur lærifeðra sinna,
Polanski og þó einkum Wajda.
Hann á fáar en góðar myndir að
baki, svo sem Deep End og Moon-
lighting með Jeremy Irons, og
heilsar hér Bandaríkjunum í fyrsta
sinni eftir áralanga dvöl í Eng-
landi.
Vitaskipið er skrifað upp úr sam-
nefndri sögu Þjóðverjans Sieg-
fried Lenz. Dramað er óvenjuþétt,
hnýtt saman af sterkum persónum
í ónotalegu umhverfi; Ijótum og
litlum dalli á gráköldum sjónum
þangað sem þremur krimmum er
bjargað eftir vélarbilun í flótta-
legri trillu. Það er stutt milli hroka
og hógværðar, hörku og linkindar,
þors og dugleysis. Það sýna sam-
skiptin í þessari mynd, sem tekur
jafnframt á áttleysi manna og frels-
isútgjöldum. Þetta er dæmisaga
með augljósum tilvísunum.
Skolimowski gjörnýtir sögusvið-
ið, sjálft vitaskipið. Allar staðsetn-
ingar eru gaumgæfðar. Aherslan
er á nálægð manna og aukinheld-
ur varnarleysi gagnvart náttúru og
meðbræðrum. Andlit og augnatil-
lit segja meira en skrokkar og út-
limir. Það er stigið í ölduna í fleiri
en einum skilningi. Robert Duvall
hefur líkast til ekki leikið betur síð-
an í Apocalypse Now, Klaus Maria
Brandauer síðan í trúðsbúningi
Mephisto. Samleikur þessara
manna er engu lagi líkur. Vitaskip-
ið er nauðsynlegt umhugsunar-
efni.
-SER
Glettilega
kjarngott
Bíóhöllin: Short Circuit
(Ráöagóbi róbotinn)
irk-k
Bandarísk. Árgerb 1986.
Framleiðendur: David Foster,
Lawrence Turman.
Leikstjórn: John Badham.
Handrit: S.S. Wilson, Brent
Maddock.
Kvikmyndun: Nick McLean.
Aöalhlutverk: Ally Sheedy, Steve
Guttenberg, Fisher Stevens,
Austin Pendleton, G.W. Bailey og
Nr. 5.
Þá hefur John Badham (Satur-
day Night Fever, War Games, Blue
Thunder) enn heiðrað okkur með
nærveru sinni á hvíta tjaldinu. Líkt
og í fyrri myndum kappans er
það fyrst og fremst myndmáls-
notkun og yfirþyrmandi fagmann-
leg verkkunnátta hans á því sviði
sem heillar. Efnismeðferð Short
Circuit er á hinn bóginn engan
veginn að sama skapi svo ýkja
frumleg, því hér er gamla þemað
úr myndum á borð við E.T. og War
Gamesskrúfað upp á nýjan leik. . .
tiltölulega óbrenglað, en það þarf
þó í sjálfu sér ekki að koma að sök.
Hjá stórfyrirtækinu Nova Robot-
ics hafa menn nýverið lokið þróun
nýrrar tegundar vélmenna, sem
tæpast eiga sér hliðstæðu hvað
tæknilega fullkomnun varðar. Hér
er um að ræða nýja tegund fyrir-
ferðarlítilla, en vel vopnum bú-
inna hernaðarróbóta, sem hægt er
að láta síga niður í fallhlíf að baki
víglínunni, hvar þeim að sjálf-
sögðu er ætlað að valda ómæld-
um óskunda í röðum óvinarins.
Dag nokkurn, þegar verið er að
rafhlaða Nr. 5 veldur elding
skammhlaupi í rafhleðslukerfinu
með þeim afleiðingum að fyrir-
bærið öðlast líkt og skrímsli Dr.
Frankensteins á sínum tíma líf, og
eigin sjálfstæða meðvitund. Fyrir
hreina tilviljun og hermálayfir-
völdum til mikillar hrellingar lend-
ir róbót þessi síðan á vergangi. . .
fer á eigin vegum út í hinn stóra
heim að kanna umhverfi sitt og
njóta nýfengins frelsis.
Einkar hugljúf, afbragðsvel unn-
in og í alla staði bráðskemmtileg
afþreyingarmynd fyrir alla fjöl-
skylduna. Glettiiega vel skrifað
handrit, og tæknivinnsla myndar-
innar að sjálfsögðu til fyrirmyndar
eins og von er og vísa þar sem
John Badham er annarsvegar.
-Ó.A.
Hatur apa
Háskólabíó
Link:
★★
Ensk/bandarísk, árgerö 1986.
Framleibandi og leikstjóri:
Richard Franklin.
Kvikmyndun: Mike Malloy.
Handrit: Everett de Roche.
Tónlist: Jerry Goldsmith.
Aöalleikarar: Terence Stamp og
Elisabeth Shue, auk apanna.
Link sver sig í ætt við nokkrar
mynda Hitchcock, þar sem er fátt
fólk og einn furðulegur í stóru húsi
utan alfaraleiðar. I þetta skipti vís-
indamaður sem gruflar í öpum.
Link er einn þeirra, útbrunnið
sirkusfífl sem í meðförum manna
hefur byrgt inni hatur. Svo kemur
aðstoðarstúlka eitt sumarið...
Richard Franklin hefur svo sem
ekki langt að sækja Hitchcock-
taktana. Hann starfaði alllengi
með meistaranum á meðan hann
var að vinna sínar síðustu myndir
— og framhaldsvann síðan eina
frægustu mynd hans, Psycho, sem
Anthony Perkins hefur síðan aftur
bætt við. En það er langur vegur
milli þessara manna.
Kvikmyndinni um Link tekst illa
upp hvað varðar persónusköpun,
tengingar og tempó söguþráðar-
ins sem í reyndinni gefst upp á sjálf-
um sér undir lokin. Úthaldið vant-
ar — og undirölduna sem glæðir
plottið og gerir það trúverðugt.
Engu að síður kemst spenna til.
skila, mjög þokkaleg saga sem
hrífur best með sjálfa apana í
mynd.
-SER
UrrϚa-
laust
ævintýri
Stjörnubíó
Jake Speed:
★
Bandarísk, árgerö 1986.
Leikstjórn: Andrew Lane. Hand-
rit: Wayne Crawford og Andrew
Lane.
Tónlist: Mark Enow o.fl.
Aöalleikarar: John Hurt, Wayne
Crawford, Dennis Christopher og
Karen Kopkins.
John Hurt getur verið jafn hitt-
inn á vönduð hlutverk og óhittinn.
Það er eins og þessi snjalli leikari
hafi þörf á að létta sér upp erfiðis-
leikinn öðruhvoru með endemis
dellum og fíflagangi. í kvikmynd-
inni Jake Speed, þar sem sam-
nefnd aðalsöguhetja leitar uppi
hvíta þrælasölu í Afríku, leikur
Hurt skúrkinn og ferst það illa.
Kvikindislegur hláturinn er aldrei
sannfærandi.
Þetta er reyndar mjög ósann-
færandi mynd í það heila tekið.
Ævintýri Jake Speed, sem er á
mörkum þess að vera skáldsagna-
persóna og hversdagshetja, vantar
það sem góðri sögu er nauðsyn-
legt; úrræði og áhugaverðar per-
sónur. Og aðstæður sem menn
geta sett sig inn í. Leikurinn og
sviðsetningin er einatt með þeim
hætti að geispinn í sessunauti
manns verður tilþrifameiri í sam-
anburðinum. Og poppkornið efn-
ismeira.
-SER
Bras
Austurbœjarbíó
Fjórir á fullu (Hot Chili):
0
Bandarísk, árgerð 1985.
Framleiöendur: Golan & Globus.
Leikstjórn: William Sachs.
Handrit: Joseph Goldman og
Sachs.
Aðalleikarar: Charles Scillaci,
Chuck Hemingway, Joe Rubbo,
Allan Kayers og Victoria Barrett.
Hot Chili; nafnið eitt ætti að
vera næg viðvörun.
Þetta er bras, alltof vel úti látið;
hráefnið léttir gæjar, fitusnauðar
gellur, kryddaðar greddu og born-
ar fram með niðursoðnum fimm-
auarabröndurum á þunnu og ákaf-
lega notuðu fati.
Hot Chili er eín allra versta kvik-
mynd sem sýnd hefur verið hér-
lendis í ár. Eg ætla ekki að rök-
styðja það. En stundum finnst
manni Kvikmyndaeftirlitið eigi að
setja mörkin víðar en við ofbeldi
og klám.
-SER
Apinn og eldfærin: Hitchcocktaktar Franklin.
MYNDLIST Jóhanns G. Jó-
hannssonar á síðustu árum hefur
einatt einkennst af pensildýfingum í
vatn og mjúka tóna. A nýjustu sýn- •
ingu hans, sem stendur yfir í Menn-
ingarmiöstööinni Geröubergi, eru
samt vatnslitirnir ekki einasta áber-
andi, heldur blönduð tækni að auki.
Jóhann skýrir: „Olía, blek og vatn,
svona með ákveðnum núönsum."
En alltaf jafn heillaður af vatnslit-
um, eða hvað? ,,Já,“ brosir listamað-
urinn. „Kannski mestmegnis vegna
þess hvað vatnsliturinn er spontant
í eðli sínu. Mér finnst ég eiga svo
gott með að ná niður hughrifum og
stemmningu með notkun hans. Og
eins get ég klárað myndina í einni
atrennu, sem er atriði fyrir mig.“
Hann segist freistast til að grípa
augnablikið í myndum sínum, nefn-
ir íslensku birtuna, sem hann kveðst
heillaður af: ,,Ég hef sífellt færst nær
henni á undanförnum árum. Hún er
engu lagi lík.“ Hann minnist líka á
náttúrufar, landslag og veðurfar. Og
talandi um veður: Það hefur ekki
beinlínis leikið við sýningargesti Jó-
hanns að undanförnu, og síðustu
helgi, þegar sýningunni átti að
ljúka, vofði yfir henni dýpsta lægð í
manna minnum. Jóhann hefur því
framlengt yfir helgina, en lokar svo
á skemmsta degi. Síðan birtir 'ann
hægt og sígandi.
UNGLINGAbækur eftir ís-
lenska höfunda eru all margar á
þessari vertíð — og er þeim eins og
gengur misjafnlega hampað af út-
gefendum, auglýsendum og selj-
endum. Við heyrðum af líttkynntri
en lipurri unglingabók Rúnars
Ármanns Arthurssonar á dögunum,
en hún heitir Algjörir byrjendur, og
er reyndar frumraun Rúnars á þessu
sviði en hann á að baki viðtalsbók
við Jónas Arnason og eina ljóða-
bók. Starfsmaður Svarts á hvítu,
sem gefur verkið út, var staddur í
Bókaverslun Sigfúsar Eymundsson-
ar á dögunum og gáði hver salan
var í þessari unglingabók forlagsins.
Honum var tjáð að hún væri lítil
sem engin. Hann gerði sér því lítið
fyrir og hélt stutta tölu yfir sölufólk-
inu í búðinni, lýsti ágætum bókar-
innar, svo sem magnaðri frásögn,
skemmtilegum stíl og indælis per-
sónusköpun — og þetta taldi hann
allt vera framar öðrum unglinga-
bókum í útgáfunni fyrir jólin. Liðu
svo fáeinir dagar. Þá athugaði sami
maður frá Svart á hvítu sölu Al-
gjörra byrjenda í Eymundsson. Og
niðurstaðan: Nær uppseld..!
32 HELGARPÖSTURINN