Helgarpósturinn - 18.12.1986, Page 33
EGGleikhús Vidars Eggertssonar
heilsar nýju ári með einkar forvitni-
legu verkefni í samvinnu við Besta
vin Ijóösins. Það verður dagskrá úr
verkum Steinars Sigurjónssonar
skálds, einskonar ljóðleikur, þar
sem saman fara brot úr fyrri verkum
Steinars, einkum prósaverkum, og
nýtt verk eftir hann sem er á mörk-
um ljóðs og leikrits. Það fjallar um
andartakið í lífi tveggja einstakl-
inga; „andartak sem eiginlega er
þanið út í einar fjörutíu mínútur",
eins og Viðar kemst að orði. Steinar
er einmitt að leggja síðustu drög að
þessu verki. Frumsýningin er ráð-
gerð í janúar. Einar Melax frumsem-
ur tónlist fyrir þessa uppfærslu, sem
margir bíða að líkindum spenntir
eftir.
PINUlítið prógressívt popp, svarar
Egill Olafsson spurningu um hvers-
konar tónlist hljómsveitin Strax
spili. Hún hefur tekið við af Stud-
mönnum sem eru hættir, og gefið út
plötu í höfuðið á heiti sínu: Tíu lög,
sem flest hver koma fyrir í myndinni
Rocking China sem frumsýnd verð-
ur á fyrstu vikum nýárs. Kínaferð
Strax-manna er kunn, en nú hyggj-
ast þeir höggva strandir víðar: Auk
Nordurlandanna, þessi þýskumæl-
andi: Sviss, Austurríki og sjálft
POPP
eftir Ásgeir Tómasson
Innangarðsmaðurinn Megas
í GODRI TRÚ — Megas
Hitt leikhúsid
Loksins er biðin á enda. Þögnin
hefur að vísu nokkrum sinnum
verið rofin síðan '11. Til dæmis
með barnaplötu, hljómleikaplöt-
um og einstaka lögum á skífum
annarra. En Megas hefur ekki sent
frá sér sambærilega plötu við /
gódri trú síðan A bleikum náttkjól-
um kom út fyrir níu árum rúmum.
Áreiðanlega hefur fleirum en mér
þótt biðin orðin í það lengsta.
Margt breytist á níu árum. Til
dæmis eru viðhorf flestra til Meg-
asar allt önnur og jákvæðari en
áður. Að vísu leyfist blaðamönn-
um Moggans enn ekki að kalla
hann meistara á prenti en flestir —
ef ekki allir — aðrir geta óhræddir
og kinnroðalaust sæmt hann
þeirri nafnbót. Tónlist Megasar
með íkarusi og Bubba Morthens
hefur mælst vel fyrir. Fatlafólið sló
i gegn og ef eitthvert íslenskt lag
síðari ára hefur náð því að falla
undir skilgreininguna „anthem"
þá er það Krókódílamaðurinn.
Mér virðist Megas einnig hafa
breyst nokkuð á síðustu árum. Ef
textar hans eru skoðaðir þá er
helsti munurinn á þeim gömlu og
nýju sá að skáldið er ekki lengur
utangarðs heldur innan. Hann er
einnig mun jákvæðari en áður,
glettnin ekki eins bitur, mennirnir
ekki jafn miklir maðkar og svín og
stelpurnar minni merar en áður
var.
Ekki þori ég að fullyrða hér og
nú að í góðri trú sé besta plata
Megasar hingað til. Samstarf hans
og Spilverks þjóðanna á Náttkjól-
unum var slíkt að seint verður
jafnað. Þó hefur nýja platan ýmsa
kosti fram yfir eldri plötur. Megas
er til að mynda mun skýrmæltari
en nokkru sinni fyrr. Þökk sé
reglulegum svefntíma minnir mig
hann hafa sagt á blaðamanna-
fundi á rás tvö. Þá ber tónlist plöt-
unnar því ótvírætt vitni að yfir
henni hefur verið legið áður en til
hljóðritunar var gengið. Fyrstu
þrjár plöturnar voru meira happ-
ening. Þar var Megas á ferð ásamt
undirleikurum. Trúbadúrinn og
skáldið að koma frá sér ljóðum sín-
um. Nú fáum við allt í einum
pakka: tónlist og texta, hljóðfæra-
leik og söng. Þar skiptir án efa
mestu máli upptökustjórn Tómas-
ar Tómassonar.
Aðrir sem leggja hönd á plóginn
á í góðri trú eru Þorsteinn Magn-
ússon gítarleikari, Sigtryggur
Baldursson trommari, Guðmund-
ur Ingólfsson píanisti og Reynir
Jónasson sem leikur á harmón-
ikku. Bubbi raddar svo í einu lagi.
Saman mynda þessir piltar létta og
góða rokkhljómsveit sem eykur
gæði plötunnar að mun.
Megasi hefur síður en svo farið
aftur í textagerð með árunum.
Hann er auðmeltari ef nokkuð er.
Án þess þó að hann verði flokkað-
ur með léttmetisboltum. Sem bet-
ur fer skýtur hann enn að hlust-
endum textum sem þeir þurfa að
hafa dálítið fyrir. Rýnið til dæmis í
Löng eru þau lík.
Ahrif Dylans á Megas eru auð-
heyrð á nýju plötunni sem og þeim
eldri. Einnig komu Stones nokkr-
um sinnum upp í hugann saman-
bert Birta/Sister Morphine. Svona
má endalaust bera saman hlutina
en það hefur engan tilgang. Aðal-
atriðið er að í góðri trú er áheyri-
leg plata í alla staði. Megas er aftur
kominn á kreik af fullum krafti og
er auðheyrilega til alls vís í fram-
tíðinni.
JÓL ALLA DAGA
Steinar
Jólamúsíkin er sérstakt fyrir-
bæri. Sumir fá aldrei af henni nóg.
Aðrir þola hana ekki. Þeim síðar-
nefndu er svosem vorkunn að því
leytinu að jólalögin eru í rauninni
mjög fá. Menn eru sífellt að útsetja
White Christmas, Winter Wonder-
land, I Saw Mummy Kissin’ Santa
Claus, Jingle Bells og Little
Drummer Boy aftur og aftur vit-
andi það að upprunalegu útgáf-
urnar voru yfirleitt bestar.
Á hverju ári fæðast þó nokkur
ný jólalög. Sum verða vinsæl og
lifa lengur en eina aðventu. Önnur
fara til fjalla með jólasveinunum
og eru sennilega soðin og etin. Að
minnsta kosti koma þau ekki aftur.
Fyrir ári kom út í Bretlandi plat-
an Now — Christmas Album með
rjómanum af þeim jólalögum sem
heimspoppararnir hafa verið að
semja og fremja á síðastliðnum
hálfum öðrum áratug. Þarna er til
að mynda jólamúsík með Roy
Wood og Wizzard, Slade, Wham!,
Paul McCartney og fleirum og
fleirum. Platan Jól alla daga sver
sig dálítið í ætt við þessa bresku.
Enda er ein fimm lög að finna á
þeim báðum.
Höfuðkosturinn við Jól alla
daga er sá að þar er sleppt öllum
lögunum sem er búið að útsetja á
365 mismunandi máta. Gunnar
Þórðarson, verkstjóri plötunnar,
hefur og tekið þann kost að halda
útsetningunum ,,nýju“ jólalag-
anna sem líkustum þeim uppruna-
legu en ekki reynt að klæða þau í
nýjan búning sem jafnvel hefði
misheppnast.
Öll lögin á Jól alla daga hafa
fengið íslenskan texta. Jónatan
Garðarsson er afkastamesti texta-
smiðurinn. Hann er nokkuð mis-
jafn. Tekst vel upp sums staðar en
miður annars staðar. Auk hans á
Jóhanna G. Erlingsson einn texta,
Iðunn Steinsdóttir tvo og Ólafur
Haukur Símonarson einn við eina
íslenska lagið á plötunni: Stjarna
eftir Gunnar Þórðarson.
í mínum huga er eitt lag plöt-
unnar áberandi best. Það er Gest-
urinn (A Spaceman Came Travell-
ing) eftir Chris DeBurgh. Texti Jó-
hönnu G. er vel ortur og Jóhanna
Linnet syngur lagið listavel. Önn-
ur vel áheyrileg eru Vetrarsöngur
— gamalt Lindisfarnelag — sungið
af Eyjólfi Kristjánssyni og Stjarnan
sem áður var getið. Það er Diddú
sem flytur hana eins vel og hennar
er von og vísa. Önnur lög plötunn-
ar eru meira sjúddi ralli rei. Þolan-
leg í stuttan tima en verða ósköp
leiðigjörn til lengdar.
THROUGH THE BARRICADES -
Spandau Ballet
CBS/Steinar
Hver hefði trúað því fyrir fimm
árum að nýrómantíska diskósveit-
in Spandau Ballet ætti eftir að
vaxa og þróast og senda árið 1986
frá sér plötu sem væri meðal
þeirra bestu það árið? Jú, jú, þeir
voru svo sem þokkalegir í árdaga,
strákarnir, en lofuðu ekkert sér-
staklega góðu.
Ferill Spandau Ballet hefur verið
upp og niður. Platan True þótti
góð, annað var í meðallagi og
sumt neðan við það. Enda voru
liðsmenn hljómsveitarinnar orðn-
ir hálf vonlausir um framhaldið,
ásökuðu hljómplötuútgáfu sína
um áhugaleysi og nísku í auglýs-
inga- og kynningarmálum og
kvöddu með látum og málaferlum
fyrr á þessu ári. Stóru útgefend-
urnir sleiktu kampana, lofuðu
gulli og grænum skógum og á end-
anum hreppti CBS hnossið. Þar
núa menn sjálfsagt hendurnar af
ánægju þessa dagana.
Through The Barricades er
langbesta plata Spandau Ballet til
þessa. Gary Kemp er aðalmaður-
inn sem fyrr. Hann semur öll lög
plötunnar og virðist nú vera farinn
að vanda sig fyrir alvöru. Gítar-
leikur Garys fær einnig að njóta
sín. Að vísu er hann óravegu frá
því að vera í hópi heimsins snjöll-
ustu gítarista en hann kann að láta
hann hljóma á réttum stöðum.
Tony Hadley söngvari hefur ávallt
staðið sig vel á plötum hvað svo
sem segja má um hann á hljóm-
leikum. Á Through The Barri-
cades hljómar hann yfirvegaðari
og öruggari en á nokkurri eldri
platnanna.
Þegar hafa tvö lög Through The
Barricades slegið í gegn: Titillagið
og Fight For Ourselves. Ég heyri
ekki betur en nokkur lög til við-
bótar geti auðveldlega fylgt í kjöl-
farið.
FJÖLLIN FALLA íHAUGA -
Sniglabandid
Bifhjólasamtökin
LJONASKÓGAR — Rauðir fletir
Steinar
Án þessara tveggja platna hefði
jólaflóðið orðið fábreyttara. Báðar
eru þær mátulega hráar og hressi-
legar, skrifaðar á lítt þekktar
hljómsveitir sem vonandi eiga eft-
ir að láta að sér kveða i framtíð-
inni.
Sniglabandið kom mér rækilega
á óvart með tveggja laga plötu
sinni. Álfadansinn er á A-hliðinni,
gamalkunnur áramótabragur sem
er nú kominn með skemmtilega
stígandi. 750cc Blús er ekta mót-
orhjólabragur: í klofinu hestöflin
namast/kólnar líkaminn./l mag-
ann mætti nú lauma/Tequila vin-
ur minn.
Hljómsveitin Grafík náði ekki að
koma plötu sinni út fyrir jólin svo
að Ljónaskógar eru dálítil sárabót!
Því er ekki að neita að oft hvarflar
hugurinn til þeirrar ágætu sveitar
þegar hlustað er á Ljónaskóga.
Bubbi Morthens er einnig áhrifa-
valdur. En hljómsveitin er ung og
efnileg og á áreiðanlega eftir að
móta sinn eigin stíl þegar fram líða
stundir. Frumraunin lofar alltént
góðu. Sér i lagi þó lögin tvö á
A-hliðinni.
m W'/* "'S;
:gíú
Þýskaland. Þessi tilraun til útflutn-
ings á íslensku poppi, hefst með
sjónvarpspródúkti í beinni útsend-
ingu frá Múnchen þar sem Strax
spila um það bil stundarlangt. Á
næstu dögum þar á eftir er svo útlit
fyrir að Kinamyndinni verði sjón-
varpað á nálægum slóðum við tón-
leikahald grúppunnar um Evrópu.
,Við erum að skipta um formerki,”
segir Egill, „hætt að flengjast milli
stíltegunda i músíkinni og erum að
gera tilraun til að sérkenna okkur.
En hvort við komum aftur heim í fá-
mennið, sneypuleg — og allt farið í
hundana? Nei, er þetta nokkuð svo
alvarlegt? Við erum austurbæingar.
Og þetta er eins og að fara vestur
yfir læk, spila í Hagaskóla, sem þótti
nú svaka víkingur í gamla daga.
Fólk er allstaðar eins. Og það eitt
öðruvísi, að kröfur eru aðrar, meiri
og óvægnari í dag. Náttúrlega skipt-
ir heppni svo máli eins og ævin-
lega.”
MPnJ ’ f / ...
\
AURAxíí/ Molíére, jólaleikrit
Þjóðleikhússins, verður frumsýnt á
fyrirfram ákveðnum tíma, annan
dag jóla. Þeir sem séð hafa æfingar
á þessari uppfærslu Sveins Einars-
sonar á gamanleiknum, eru á einu
máli að þarna vinnist glæstur leik-
sigur. Bessi Bjarnason ku lifa sig inn
í nirfilshátt Harpagon með þeim
hætti að þegar er farið að tala um að
styrkja sætin í salnum; slík verði
bakföllin!
*
GALLERI Svart á hvítu hefur
opnað sölusýningu á smámyndum
eftir unga myndlistarmenn og
stendur hún að minnsta kosti fram á
aðfangadag jóla. í sýningarsalnum
við Oðinstorg gefur meðal annars
að líta olíumálverk, pastelmyndir,
teikningar, grafík, höggmyndir og
samlímingar. Starfsemi Gallerísins
er nú að aukast jafnt og þétt og leita
inn í aðra geira menningarinnar en
myndlistina. Á sunnudag verður til
dæmis boðið upp á upplestur rithöf-
undanna Thors Vilhjálmssonar og
Einars Más Guðmundssonar á nýj-
um verkum skáldanna; Grámosinn
glóir og Eftirmáli regndropanna.
Þeir Ijúka upp bókfellinu á fimmta
tímanum.
GRALLARAkarlinn Isaac
Bashevis Singer verður með í and-
lega sælgætispokanum að þessu
sinni, en Setberg gefur nú út í ís-
lenskri þýðingu Hjartar Pálssonar
„Ast og útlegð“ nóbelsverðlauna-
hafans. Frásagnargleði Singers er
söm við sig, en í þessari bók, sem
reyndar telur þrjár bækur í einni
ásamt ævisögulegum formála, rek-
ur Isaac ævi sína fram á miðjan fer-
tugsaldurinn. Setberg hefur áður
gefið út fjórar bækur Singers.
HELGARPÓSTURINN 33