Helgarpósturinn - 18.12.1986, Síða 45
lloksins hefur fyrsti sæmilega
ítarlegi bæklingurinn um eydni
verið settur saman á vegum land-
læknisembættisins og í hús bor-
inn til ungs fólks sem talið er vera í
meiri hættu gagnvart þessum far-
aldri en þeir sem eldri eru sökum
tíðra rekkjunautaskipta. Er
skemmst frá því að segja að bækl-
ingur þessi er að mörgu leyti afar
gallaður, bæði hvað varðar hönnun,
málfar, og síðast en ekki síst: upplýs-
ingar.
Auglýsingastofan Mídas sá um
hönnunina. Framan á bæklingnum
og inni í honum er eyðniveiran
holdgerð og útmáluð sem kjaftstórt
skrímsli rauðeygt, með vígtennur
og hala, eins konar sambland af
fornaldarófreskju og geimveru!
Kjörið til að magna upp ótta sem
slíkur bæklingur ætti einmitt ekki
að gera, heldur að útlista hvernig
megi lifa hættulausu kynlífi og hefta
þar með útbreiðslu sjúkdómsins.
Sá kafli, Hvernig smitast eyðni?
og ætti að vera meginuppistaða
bæklingsins, tekur aðeins yfir þrjá
fjórðu parta úr síðu. Upplýsingarnar
sem þar eru gefnar eru sumar alltof
ónákvæmar, aðrar beinlínis rangar.
Þar eru „djúpir og blautir kossar"
t.d. flokkaðir undir „hættulegt kyn-
líf“ sem er í hróplegu ósamræmi við
það sem sérfræðingar halda fram,
nú síðast Sigurður Guðmundsson
smitsjúkdómalæknir á borgara-
fundinum um eyðni á Hótel Borg
sl. laugardag og Kristján Erlends-
son ónæmisfræðingur í þriggja
tíma beinni útsendingu á Bylgj-
unni sl. þriðjudagskvöld. Þessar
ónákvæmu upplýsingar í bæklingn-
um eru því í heild fremur til þess
fallnar að grafa undan hættulausu
kynlífi en stuðla að því.
Málfar er sem fyrr segir víða óná-
VERJUMS I EYÐNI
NOTUM SMOKKINN
kvæmt et ekki beinlínis villandi.
Þannig er t.d. feitletrað að „náttúr-
an geri sjaldnast löng boð á undan
sér“ (hvað þýðir það?), talað er um
„kynferðisleg samskipti" sem er
orðatiltæki sem engum manni er
tungutamt og virðist vera hrá þýð-
ing á „sexual relations". Þannig
mætti lengi telja. . .
Kerti
íslendingum hefur tekist að framleiða
gæðakerti. Þau jafnast á við það sem
best gerist á Norðurlöndunum. Kertin
eru framleidd úr bestu fáanlegu hrá-
efnum undir ströngu eftirliti færustu
meistara.
Látum hin hreina loga Heimaeyjar-
kertanna veita birtu og yl.
HEIMAEY
KERTAVERKSMIÐJA
Faxastíg 46,
900 Vestmannaeyjum.
Sími 98-2905.
1 DAIHATSU ROCKY
3 DAIHATSU CHARADE
10 DAIHATSU CUORE /
8 VIDEOTOKUVELAR
JVC GR-CZ
75 UTVORP
JVC RC-W40,
75 REIÐHJOL
BMXLUXUS
HELGARPÓSTURINN 45