Helgarpósturinn - 15.10.1987, Side 40
SÍinn munu nokkrir mánuðir
líða áður en eftirstöðvar Útvegs-
bankans verða gerðar upp í fjár-
málaráðuneytinu. Þar eru menn
að vinna við uppgjör á þeim skuld-
um sem hlutafélagabankinn hafn-
aði og ríkið tók á sig. Lífeyrisskuld-
bindingar starfsmannanna munu
sömuleiðis verða ríkinu þung byrði.
Sjöstjarnan í Keflavík kom fyrst
fram í dagsljósið af þessum slæmu
fyrirtækjum Útvegsbankans. Það
var sent í gjaidþrot fyrir skömmu.
Annað slæmt fyrirtæki, sem á nú í
greiðsluerfiðleikum, er NESCO. í
síðasta Helgarpósti var viðtal við
Óla Anton Bieldtvedt, forstjóra
NESCO, og hafði hann mikla trú á
því að fyrirtækinu tækist að vinna
sig út úr þessum skuldum. í fjár-
málaráðuneytinu urðu menn ekki
ýkja hrifnir af því hve kokhraustur
Óli var. Þar eru menn að glíma við
tæplega eitt hundrað milljóna króna
skuld NESCO, sem Útvegsbankinn
hf. hafnaði og henti aftur í ríkið
vegna ónógra trygginga. . .
Þ
að virðist litlu máli skipta fyr-
ir landbúnaðarráðuneytið þótt
dýralæknar komist að því að slátur-
hús uppfylla ekki þær kröfur sem
gerðar eru til fyrirtækja í matvæla-
iðnaði. Þannig hefur Jón Helgason
ráðherra veitt sláturhúsinu á Vík
undanþágu um sláturleyfi, þrátt fyr-
ir það mat þriggja dýralækna að
það standist ekki þessar kröfur. Það
var í kjölfar afskipta Eggerts Hauk-
dal af þessu máli að Jón lét undan,
sjálfsagt ekki treglega, þar sem slát-
urhúsið er í hans kjördæmi. Það
verður því slátrað í nafni byggða-
stefnu á Vík í haust og skiptir þá
engu þótt reglur um hollustuhætti
séu þverbrotnar. Að sama skapi
veigrar Matkaup sér ekki við að
selja kjöt sem slátrað er í þessu húsi
í verslunum sínum; Fjarðarkaup
og Matkaup...
Þ
eim sem eiga hagsmuna að
gæta í blaðaútgáfu hefur löngum
gengið erfiðlega að koma sér sáman
um einhvers konar upplagseftirlit,
sem gæfi raunhæfa mynd af út-
breiðslu blaða og tímarita hér á
Góða
helgi!
Þúátt
þaö skilid
SS þizzahlsi ð
Grensásvegi 10, 108 R.
S: 39933
landi. En nú hafa, eins og kunnugt
er, verslunarráðið og Samband
íslenskra auglýsingastofa tekið
af skarið og ætla að efna til gríðar-
mikillar lesendakönnunar sem
framkvæmd verður af svokallaðri
Félagsvísindastofnun Háskól-
ans. I byrjun næsta mánaðar hefjast
miklar símahringingar á vegum
þessara aðila og verða landsmenn
spurðir hvaða tímarit þeir hafi
„lesið eða skoðað" síðustu tólf mán-
uðina. Mánuði síðar verður svo gerð
könnun á dagblaðalestri. í nefnd-
inni sem skipuleggur tímaritakönn-
unina eiga líka sæti tveir umsvifa-
miklir tímaritsútgefendur, þeir
Þórarinn Jón Magnússon frá
Sam-útgáfunni og Magnús
Hreggviðsson frá Frjálsu fram-
taki. En nú ber svo viö að síðar-
nefndi nefndarmaðurinn hefur haf-
ið gríðarmikið átak til að koma
tímaritum sínum í hendur og fyrir
augu landsmanna. Linnir ekki sím-
hringingum frá fólki sem býður
áskrift að þeim ótölulega fjölda
timarita sem Frjálst framtak gefur
út, en þeim sem ekki vilja áskrift í
fyrstu atrennu er boðið upp á mikið
kostatilboð, segja heimildir Helgar-
póstsins — eina bók á þúsund krón-
ur og í kaupbæti sjö tímarit gratís. Er
sagt að runnið hafi tvær grimur á
verslunarráðsmenn þegar þeir
fréttu af þessari athafnasemi nefnd-
armannsins Magnúsar, svona rétt
fyrir lesendakönnun, þar sem spurt
er hvaða tímarit menn hafi lesið eða
skoðað síðasta árið...
G.*,
lög til æðstu stjórnar ríkisins þeg-
ar fjárlög 1988 eru skoðuð og niður-
skurðar leitað. Framlög til opin-
berra heimsókna forseta íslands
hækka úr 4,3 milljónum í 8 milljónir,
enda vafalaust góð fjárfesting!
Þingmönnum hefur fjölgað um 3
eða um 5%, en launaliður þing-
manna hækkar um 68% og ætti
kaupmátturinn því að aukast eitt-
hvað á þeim bæ. Og ráðherrum
hefur fjölgað um 1 og aðstoðarráð-
herrum um 2 frá því síðast og því
ofur eðlilegt að launagjöldin hækki
milli ára um 92%, þótt í fjárlaga-
frumvarpinu sé reyndar reiknað
með því að meðalhækkun launa
einstaklinga verði 16—17% ...
||
Bugsanleg hlutdeild erlendra
banka í Útvegsbankanum hf.
hleypti örlitlum lífsanda í viðræður
Jóns Sigurðssonar viðskiptaráð-
herra og Sambandsmanna um dag-
inn. Annar þessara banka er franski
bankinn Banque Indosuez, sem á
stóran hlut í Lind, kaupleigufyrir-
tæki Sambandsins. Hinn mun vera
Skandinaviska Enskilda bank-
en, sænski Sambandsbankinn...
Háir vextir
Grunnvextir á Kjörbók
eru nú 27% á árí og leggjast þeir viö
höfuðstól tvisvar á ári.
Ef innstæða, eða hluti hennar,
hefurlegið óhreyfð í 16 mánuði
hækka vextir í 28,4%
og í 29% eftir 24 mánuði.
Þrepahækkun þessi er afturvirk,
hámarks ársávöxtun er því allt að
31,1%án verðtryggingar.
Verðtrygging
Á 3ja mánaða fresti er ávöxtun
Kjörbókarinnar borin saman við
ávöxtun 6 mánaða bundinna
verðtryggðra reikninga.
Reynist ávöxtun verðtryggðu
reikninganna hærri er greidd uppbót
á Kjörbókina sem því nemur.
Örugg
og óbundin
Þráttfyrirháa vexti og verðtryggingu
er innstæða Kjörbókar alltaf laus.
Vaxtaleiðrétting við úttekt er 0,8%,
en reiknastþó ekkiafvöxtum tveggja
síðustu vaxtatímabila.
Kjörbókin er bæði einfalt og öruggt
sparnaðarform.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
40 HELGARPÓSTURINN