Helgarpósturinn - 12.11.1987, Blaðsíða 2
Gulnar línan?
Árni Zóphaníasson
starfsmaöur Miðlunar
„Þessi spurning kemur flatt upp á mig, eins og sjálfsagt
fleiri sem svara þessum spurningum hjá ykkur. Þessi lína
gulnar ekki því hér erum viö aö leggja af staö meö línu sem
á mikla framtíð fyrir sér en er ekki á visnunarleiðinni. Því til
sönnunar viljum viö draga þjónustu sem Póstur og sími
veitir í gegnum 03, þar sem hringja þúsundir á hverjum
degi. Við vitum þaö aö eftir nokkur ár verður Gula línan
jafngróin í þjóöarsálinni og 03 hjá Pósti og síma, þannig aö
hún gulnar ekki."
— Hvaða þjónustu veitið þið?
„Við erum meö á skrá hjá okkur fyrirtæki og einstaklinga
sem selja vörur eöa veita þjónustu. Aö því leyti er þetta líkt
hefðbundnum upplýsingaskrám eins og t.d. gulu síöunum
í símaskránni. En við notum nýjan miðil sem er síminn og
þetta er miðill sem er til á hverju einasta heimili, allir kunna
aö nota og nota í síauknum mæli, fólk er farið aö kaupa
þetta tæki í bílinn og bílskúrinn. Þannig að þetta er byggt
á hefðbundnum grunni en notuð ný leið til að miöla upp-
lýsingunum."
— Þannig að ef mann vantar einhverja vöru getur mað-
ur hringt í ykkur og fengið upplýsingar um hver selur
hana?
„Já, einmitt, þaö ér galdurinn. Ef þig vantar einhverja
vöru eöa þjónustu, pípulagningarmann, blómaskreyting-
armann eöa einhverja tiltekna vöru, regnhlíf eða skó, þá
hringirðu í Gulu línuna."
— Er þetta mikið notað?
„Það eru á annað hundrað manns sem hringja á hverjum
degi."
— Og hverjum þjónið þið helst, fyrirtækjum eða ein-
staklingum?
„Við þjónum mönnum eins og mér og þér, einstaklingum
sem eiga í einhverjum vanda varðandi bílinn sinn, heimilið
eða vinnuna."
— Og þetta kostar ekkert eöa hvað?
„Nei, þetta kostar ekkert fyrir þá sem hringja i okkur,
heldur greiða fyrirtækin sem setja þjónustu sína á skrá."
— Rekið þið þetta á þeim peningum?
„Já."
— Svo eruð þið að fara af stað með þjónustu í turnin-
um í Lækjargötu, hvað ætlið þið að hafa þar?
„Það er nákvæmlega sama kerfið, nema þangað kemur
fólk í heimsókn til að spyrja okkur. Eftir sem áður þarf ekk-
ert að greiða fyrir það og við gerum ráð fyrir að svara þar
fyrst og fremst spurningum varðandi þjónustu í miðbæn-
um. Við getum þannig vísaö fólki á það sem það veit ekki
hvar er, t.d. hver selur ferðir til Thailands eða hvar er hægt
að kaupa einhverja tiltekna vöru. Hins vegar er þetta byggt
á sama gagnagrunni og símaþjónustan svo við getum
svarað öllum almennum spurningum."
— Eruð þið með eigin upplýsingabanka?
„Já."
— Er það ekki mikið fyrirtæki að hafa?
„Jú, það er töluvert mikið af upplýsingum sem þarna er.
Núna eru þarna tæplega 600 fyrirtæki og allt upp í nokkra
tugi af leitarorðum fyrir hvert fyrirtæki, þannig að þetta er
umtalsvert magn af upplýsingum."
— Eru svona fyrirtæki ekki óhagkvæm til lengdar fyrir
þjóðfélagið, er þetta nokkuð annað en tilfærsla á fjár-
munum?
„Þeir sem trúa þessu, þeir trúa greinilega ekki á mátt
þessarar byltingar sem okkar tímar eru kenndir við, upplýs-
ingabyltingarinnar. Það er hægt að tiltaka fjölmörg dæmi
um það að upplýsingar spara mönnum tíma, fé og fyrir-
höfn."
— Sækið þið fyrirmyndir út í heim, eða er þetta frá
ykkur sjálfum komið?
„Við höfum fengið nákvæma fyrirmynd að utan. Þjón-
usta eins og þessi, þar sem síminn er notaður sem upplýs-
ingamiðill, er samt mjög vinsæl erlendis, en við eigum eng-
ar beinar fyrirmyndir."
— Af hverju heitir þetta Gula línan?
„Þetta nafn er fengið úr alþjóðaheiti, samanber Vellow
pages, sem er nafn yfir erlendar uppflettiskrár. Hins vegar
á ég enga skýringu á upphaflegu nafngiftinni, ég geri ráð
fyrir að það hafi verið notaður gulur pappír í þessar skrár
og þannig hafi þetta orðið til."
Ami Zóphaníasson er starfsmaöur Miölunar. Aö undanförnu
hefur Miðlun verið aö auglýsa nýtt fyrirtæki, þjónustufyrirtæki
sem á að þjóna öllum almenningi. Þessi þjónusta hefur hlotiö
nafniö Gula línan.
FYRST OG FREMST
ÞAÐ hefur víst eitthvað farið
fyrir brjóstið á einhverjum bæjar-
fulltrúum á Akureyri hver kostn-
aðurinn var við 125 ára afmæli
bæjarins. Bæjarstjórinn hefur fyrir
sitt leyti gefið vilyrði fyrir því að
fulltrúarnir megi skoða reikning-
ana ef þeir telja að eitthvað sé á
því að græða, hann telur svo ekki
vera sjálfur. En það eru fleiri en
bæjarfulltrúarnir sem ekki eru
ánægðir með framkvæmd í
kringum afmælið; einhverjir
bæjarstarfsmenn þykjast hafa
verið sniðgengnir þegar öðrum
var boðið á skemmtikvöld með
þeim eina sanna Ingimari Eydal.
Þeir sem ekki fóru þangað fengu,
að því er segir í Degi, lapþunnt
hvítvín og eina eða tvær snittur á
skrifstofunni og urðu að láta sér
það duga meðan aðrir gæddu sér
á krásum í Sjallanum...
GUÐMUNDUR Sæmundsson
hefur nú tekið að sér að ritstýra
Stúdentablaðinu og fer mikinn um
ritvöllinn. Hann hefur þegar í
öðru tölublaði lagt niður leiðara
blaðsins og breytt honum í það
sem hann kallar dálk ritstjórans.
Hann hótar að fylla þennan dálk
af allskyns flími, orðavali, teikn-
ingum, myndum og hverju sem er
og klykkir síðan út með að hóta
að skrifa um málfræði ef honum
hitnar í hamsi. Guðmundur tekur
hressilega á málum eins og
honum er tamt, hvort sem hann
talar í útvarp, skrifar bækur um
kvennaframboð, þýðir Morgan
Kane eða keyrir öskubíl norður á
Akureyri. Guðmundur endar síðan
á því í dálkinum sínum að birta
mynd af nýfæddum syni sínum
sem hann segir vera fimmta barn
sitt og bætir svo við: „Engin
meðaltöl þar maður minn...!“
Enginn meðalmaður, Guðmundur.
I Degi á þriðjudag er grein um
menningarviðburði helgarinnar,
þar sem greinarhöfundur rekur
sorgarsögu menningarviðburða á
Akureyri. Hann segir aö menn þar
þurfi hreint ekki að kvarta yfir
framboðinu en hitt sé undarlegt
hvað Akureyringar eru daprir í
aðsókninni. Akureyringar hafa
heyrt þennan tón áður, líklega
hundrað sinnum, enda eru þeir
með endemum slappir þegar
menningin er annars vegar. Sagan
segir reyndar að þeir fari helst
ekki í leikhús nema gegnum
helgarpakka til Reykjavíkur og
tónleika sækja þeir alls ekki nema
Kristjún Jóhannsson mæti á
heimaslóðir. Þá er yfirleitt allt fullt
út úr dyrum og menn belgja sig í
einhverjum rembingi og ættjarðar-
ást. Þetta ástand er undarlegt, í
Reykjavík er fullt á menninguna
alls staðar og alltaf, á Akureyri er
alltaf tómt. Kannski það þurfi
byggðastefnu í fleiru en atvinnu-
málum.
MEÐALALDUR leigubílstjóra
í Reykjavík er með hæsta móti,
a.m.k. ef borið er saman við bíl-
stjóra í öðrum borgum. Og í
sumum tilvikum eru bílstjórar
háaldraðir við akstur. Ekki alls
fyrir löngu leigði kunningi okkar
sér bíl hjá BSR og lenti þá með
öldruðum bílstjóra og miðaði hægt
í fimmumferðinni. Það er út af
fyrir sig ekki fréttnæmt heldur hitt
að þegar á leiðarenda kom og
vinurinn ætlaði að fara að borga
veitti hann því eftirtekt að bíl-
stjórinn dró fram stækkunargler til
að geta lesið af gjaldmælinum og
brá óneitanlega í brún . ..
KRINGLAN yfirtekin af einni
fjölskyldu? Það mætti ætla. Við
opnun Kringlunnar ráku mæðgur
þar verslanir sínar, móðirin Bára
verslunina Lilju og samnefnda
dóttirin Lilja verslunina Cosmo.
Og nú hefur sonurinn Hrafn keypt
verslunina California og hafið
rekstur verslunarinnar Jazz. Bára
á að minnsta kosti tvö önnur börn
og plássið er svo sem nóg . . .
SAMRÆMD tollskrá tekur gildi
um næstu áramót og má fræðast um
hana í nýjustu Stjórnartídindum.
Yfirleitt eru tollar 0—40%, en
undantekningarnar eru athyglis-
verðar þegar litið er á hæstu toll-
flokkana. Hæsta hlutfallið, 90%,
gildir um fjórhjólin alræmdu og
80% tollur er á bifhjólum. Sama
hlutfall gildir um hreinlætis- og
snyrtivörur eins og baðker,
salerni, rakvélablöð, hárlakk,
sjampó, varalit og svitalyktareyði,
sem og búsáhöld og skrautmuni.
En það er ekki nema 60% tollur á
hernaðarvopnum, skammbyssum,
sprengjum, tundurduflum, flug-
skeytum og tundurskeytum. Og af
einhverjum ástæðum er „aðeins"
45% tollur á skriddrekum og
„öðrum brynvörðum stríðs-
vögnum“ . . .
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Ólafur Rex
I kútinn tókst ekki að kveð'ann,
né kom'onum burtu héðan.
Það er Ijótt, en mér finnst
sem þeir láti af minnst,
sem hafa heyrt'ann og séð'ann.
Niðri
„Pad verdur ad fara voöalega varlega
med kjötid í refinn því þad er eins og hann
sé vidkvœmari en við mennirnir."
HALLDÓR SIGURÐSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI, (
DV 11 NÓVEMBER VEGNA UMRÆÐNA UM
NAUTAKJÖT í REFAFÓÐUR.
2 HELGARPÓSTURINN