Helgarpósturinn - 12.11.1987, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 12.11.1987, Blaðsíða 26
„Þeir eru orðnir hálförvænt- ingarfullir á Wall Street“ Litast um í kauphöllinni þremur vikum eftir hrunid í strekkingnum fyrir framan kauphöllina í Wall Street lagði maður skutbíl síðastliðinn föstudagsmorgun. Opn- aði að aftan og tók að selja skyrtuboli með áletruninni „Eg lifði hrunið af“. Kauphallarljónin þustu strax að. Fljótlega voru bolirnir uppseldir og farandsalinn ók á brott eftir fleiri bolum. „Það er ágætt ef einhver getur grætt á hruninu," sagði einn af hlutabréfasölunum á leiðinni inn. EFTIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON Á gangstéttinni fyrir utan kaup- höllina var löng biðröð ferðalanga sem voru komnir til að skoða stærsta hlutabréfamarkað heims. Hann er jafnframt annar tveggja vinsælustu viðkomustaða ferða- manna í New York. Og einn fárra sem ekki krefjast aðgangseyris. Eftir um tveggja tíma bið í ísköld- um strekkingnum er ferðamönnun- um boðið upp á sögu markaðarins af veggspjöldum og myndböndum. Síðan útsýni yfir sjálfan markaðs- salinn. VEGGUR TIL VARNAR MENNINGUNNI Wall Street er neðst á Manhattan. Við þessa götu og í næsta nágrenni eru höfuðstöðvar allra stærstu fjár- málafyrirtækja borgarinnar. Þar býr enginn og á næturnar er þetta hverfi eins og dauðs manns gröf. Á daginn iðar hins vegar allt af fólki þó það sé fátt aðlaðandi á eða við göturnar. í sýningarsal Sjónmenntaskólans í New York hangir uppi sýning nem- enda á verkum er öll voru unnin út frá sömu forsendu; einni mílu. Einn nemendanna hafði notað sína mílu til þess að draga ferhyrning utan um Wall Street-hverfið á korti af Man- hattan. I skýringartexta greindi hann frá því að þessi gata drægi nafn sitt af vegg er Hollendingar hefðu reist neðst á Manhattan til varnar óvin- um sínum. Honum fannst því ráð að reisa nú nýjan vegg, í þetta sinn í kringum allt hverfið. Tilgangurinn með þessum nýja vegg væri þó ekki sá að halda fólki frá hverfinu, heldur að halda þeim inni er ynnu þar, og líklega einnig áhrifunum af vinnu þeirra. PYLSUÁT í KAUPHÖLLINNI „Þetta hefur verið frekar rólegur morgunn," hafði einn af sölumönn- unum sagt mér niðri í anddyrinu. Þegar litið var yfir salinn af svöl- um í gegnum skothelt gler kom í ljós að það hafði ekki breyst. Flestir þeirra sem voru í salnum — og þeir voru ekki margir — vöfruðu um eins og þeir væru að bíða eftir að eitt- hvað gerðist. Nokkrir hölluðu sér upp að borðum fyrir neðan tölvu- skjái, sem mynduðu áttstrenda hringi í loftinu. Eftir skjánum runnu tölur og á gólfinu lá pappírsrusl. Þegar sendisveinar frá matsölum komu klyfjaðir kössum að dyrunum að salnum kom í ljós eftir hverju þeir sem ráfuðu um salina voru að bíða. Þeir þustu að sendisveinunum og gripu hamborgara, samlokur og jafnvel pylsur upp úr kössunum. Það var rólegur dagur í kauphöll- inni — þremur vikum eftir hrunið mikla. FLEST Á NIÐURLEIÐ í AMERÍKU Enda gerðist fátt markvert. Dow Jones-vísitalan féll niður um rétt rúm tvö prósent. Önnur vísitala hnökraðist lítið eitt til. Verðgildi hlutabréfa í einstökum fyrirtækjum breyttist lítið — flest lækkuðu. Einu hlutabréf stærri fyr- irtækjanna sem hækkuðu í verði voru hlutabréf í fyrirtækjum af evr- ópskum uppruna og hlutabréf í amerískum bílaverksmiðjum. Stuttu áður hafði komið fram að sala á amerískum bílum hafði aukist um tíund. Hlutabréfamarkaðurinn í Wall Street bjó því ekki til fréttirnar þennan dag. Fall dollarans, fjárlaga- og viðskiptahallinn og bið eftir að- gerðum frá stjórninni í Washington fylltu viðskiptasíður dagblaðanna daginn eftir. Þegar litið var yfir þær virtist flest á niðurleið í Ameriku. Fréttir af tveggja prósenta falli Dow Jones neðst á síðunum töldust ekki til stórtíðinda. Það er orðin við- urkennd skoðun að hrunið þann 19. október hafi verið leiðrétting á of hátt metnum hlutabréfum. VINNUDÝR Á ÍSSALAJÖKKUM Hlutabréfasalarnir sem átu ham- borgarana sína niðri á gólfinu í kauphöllinni í Wall Street litu heldur ekki út fyrir að geta steypt veröld- inni í glötun. Hvað þá bjargað henni. Þó álita mætti að menn sem eru við þessa vinnu breyttu mat sín- um í taugaveiklun mátti sjá á mörg- um að þeir breyttu matnum í fitu eins og svo margir aðrir. Þeir sem voru að kaupa og selja hlutabréf í markaðssalnum litu flest- ir út eins og hverjir aðrir sölumenn. Þeir gátu allt eins verið að selja teppi eða bíla. Þeir sem voru niðri á gólfinu voru klæddir denimjökkum í ýmsum lit- um — gráum, bláum, grænum. Þess- ir jakkar eru einstaklega álappaleg- ir í sniðinu. Verri en Gefjun hefur sent frá sér í áraraðir. Það leit í raun frekar út fyrir að þarna væri þing íssölumanna en að á þessum stað hefði verðgildi bandarískra fyrir- tækja fallið í verði um fimmtung á einum degi. Þessir menn voru vinnudýrin. í bakherbergjum voru stærri spá- menn, en þeir stærstu létu sér nægja að fylgjast með tíðindum úr kauphöllinni í gegnum tölvufjar- skipti. SYNGJANDI FASTEIGNASALAR Á leiðinni heim frá kauphöllinni hitti ég kunningja mína á bar á West Broadway. Þar sem við sátum og sötruðum drykkina lagði gamall sendibíll, kyrfilega merktur fast- eignamiðlun, upp að gangstéttinni fyrir utan gluggann á barnum. Út úr bílnum steig rakarakvartett, hóf að syngja og dreifa bæklingum. Þessir menn voru að vekja athygli á því að fasteignamiðlunin væri flutt í nýtt húsnæði í Wall Street-hverfinu. „Þetta er einkennileg borg," sagði kunningi minn. „Einu óvæntu uppá- komurnar á götunum eru til þess að selja fasteignir." Við hlýddum á sönginn um stund. Þegar barstúlkan kom með nýja drykki staldraði hún við og fylgdist með skemmtuninni. Þetta var auð- sjáanlega í fyrsta skipti sem þessi kvartett skemmti á götum úti. Fast- eignasalarnir, sem dubbaðir höfðu verið upp í blaser-jakka og stráhatta með flötum kolli, gutu augunum hver til annars í hughreystingar- skyni. „Þeir eru orðnir hálförvæntingar- fullir niðri í Wall Street," sagði bar- stúlkan og sneri aftur til vinnu sinnar. RUNNI 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.