Helgarpósturinn - 12.11.1987, Side 5
Beiðni Enteks um undanþágu frá reglum um eignarhlut erlendra
fyrirtækja hér á landi verður væntanlega tekin til afgreiðslu hjá
dómsmálaráðuneytinu bráðlega. Karland corp. vill kaupa 50%
hlutafjár i Entek, en reglur leyfa aðeins minnihlutaaðild erlendra
fyrirtækja í islenskum.
SLÖN6UVERKSMWJU
BJARGAD Á ELLEFTU STUNDU
Fyrirtœkiö Entek á íslandi hf. í Hveragerði, framleiöandi
áveituslangna, stendur nú á tímamótum. Það er á bjarg-
brún, efsvo má að orði komast. Spurningin er hvort það
hefur sig til flugs með stórum samningi við bandaríska
fyrirtœkið Karland corp. eða tekur dýfuna niður á við.
EFTIR PÁL H. HANNESSON MYNDIR JIM SMART
Fyrirtækið var stofnað 27. ágúst
1983 og var Þorsteinn Pálsson, nú-
verandi forsætisráðherra, fyrsti for-
maður stjórnar þess og átti auk þess
1% hlutabréfa. í október var Þor-
steinn hins vegar kosinn formaður
Sjálfstæðisflokksins og sagði þá af
sér formennsku og seldi sinn hlut.
Þann 22. nóvember sama ár var síð-
an formlega tilkynnt um stjórnar-
skipti og settist þá Ingvar J. Karlsson
í sæti Þorsteins Pálssonar. Reyndar
mun seta Þorsteins t formannssæt-
inu aðeins hafa staðið í nokkra daga
og Jón Gunnar Zoéga, sem sæti á í
stjórn Enteks, sagði í samtali við
Helgarpóstinn að áhugi Þorsteins
hefði fyrst og fremst komið til vegna
þess að hann vildi fá fyrirtækið til
starfa í sínu kjördæmi.
Rekstur Enteks hefur löngum
gengið erfiðlega. Velta fyrirtækisins
fyrsta starfsárið var samkvæmt upp-
lýsingum Jóns Gunnars um
1.200.000 $ en sé miðað við álögð
aðstöðugjöld á þessu ári var velta
fyrirtækisins í fyrra nálægt 625 þús-
undum, og hefur því dregist saman
um nánast helming. Álögð aðstöðu-
gjöid í ár voru samkvæmt upplýs-
ingum Hverageröishrepps 250 þús-
und krónur, en þau hafa ekki verið
greidd og er sú skuld komin í hend-
urnar á lögfræðingi. Þá skuldar fyr-
irtækið Hveragerðishreppi um 750
þúsund krónur frá fyrri árum. Þá er
í Lögbirtingi frá 30. október birt
krafa um uppboð á Sunnumörk 4,
eign Enteks. Kröfurnar eru frá
nokkrum aðilum, samtals um 22
milljónir króna, og er þar krafa iðn-
lánasjóðs langstærst, eða um 19
milljónir króna. Þessar upphæðir
eru þó misvísandi, þvi þó t.d. iðn-
lánasjóður geri kröfu upp á 19 millj-
ónir króna er alls ekki öll sú upp-
hæð gjaldfallin, heldur aðeins af-
borgun þessa árs, sem reyndar átti
að greiða í aprílmánuði síðastliðn-
um.
Fyrirtækið hefur því átt í erfiðleik-
um með rekstrarfé, eins og sést
kannski best á því að það hefur
fengið pantanir upp á eina milljón
dollara, en hefur ekki haft nægilegt
fjármagn til að geta keypt hráefni
svo framleiða megi upp í þá pöntun.
En nú er hins vegar útlit fyrir betri
tíma þar sem bandaríska fyrirtækið
Karland corp. hefur áhuga á kaup-
um á hlutabréfum í Entek á íslandi.
Karland corp. hefur þegar keypt
móðurfyrirtæki Enteks í Bandaríkj-
unum og hefur staðið í nokkurn
tíma í samningaviðræðum við
Entek á íslandi. Að sögn Jóns Gunn-
ars Zoéga eru samningar að mestu
frágengnir, enn á þó eftir að semja
um hvernig staðið verður að greiðsl-
um. Áhugi Karland corp. á samning-
um við Entek á íslandi skýrist aðal-
lega af þeirri staðreynd að Entek á
Islandi hefur einkamarkaðsrétt á
slönguframleiðslu sinni í Evrópu,
Afríku, Asíu og Ástralíu. Karland
hefur hins vegar söluréttinn í
Ameríkunum en vill nú samræma
söluátak um allan heim.
Því vill fyrirtækið eignast helm-
ing hlutafjár í Entek á Islandi, með
þeim atkvæðisrétti sem þeirri eign
fylgir. Segjast forráðamenn Enteks
ekki hafa áhyggjur af því þó lögum
samkvæmt megi erlendir aðilar að-
eins eiga 49% hlut í atvinnurekstri.
Undanþágur hafi oft verið veittar og
eflaust fari svo nú.
Hlutafé Enteks var upphaflega 4
milljónir króna, en var síðan hækk-
að í 14 milljónir. Fyrirtækið á ónýtta
þriggja ára jöfnunarheimild, þannig
að hlutaféð er í dag metið á um 20
milljónir króna. Verði af kaupum
Karland corp. verður hlutaféð því
hækkað í 40 milljónir króna. Kar-
land mun hins vegar borga gott bet-
ur fyrir þessar 20 milljónir í hlutafé,
eða 80 milljónir króna — og er þar
i raun og veru verið að borga fyrir
aðgang að mörkuðum þeim sem
Entek á íslandi hefur hingað til eitt
haft aðgang að. Entek á Islandi mun
þó halda öllum sínum réttindum og
framleiðsluleyfum óbreyttum.
Hér er þó ekki öll sagan sögð, því
Entek-menn standa nú í samningum
um að fá aðgang að markaðsfyrir-
tæki í Bandaríkjunum sem Karland
hyggst stofnsetja, og nefndi Jón
Gunnar að þar með'fengi Entek á
íslandi allt að jafnvirði 160 milljóna
króna út úr þessum samningum.
Sagði Jón Gunnar að samningarnir
gerðu gott betur en að losa fyrirtæk-
ið út úr skuldum, því þeir tryggðu
framtíð þess einnig þar sem Karland
tryggði þeim sölusamning að upp-
hæð 800 þúsund dollarar, 32 millj-
ónir króna með bankatryggingum,
við undirskrift samnings.
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
NEITAR AFSKIPTIIM
,,Eg vard raunverulega aldrei
hluthafi, þad stóð til þegar þetta
var á undirbúningsstigi og þá tók
ég þá ákvörðun að fara inn í
stjórn, en það gekk nú aldrei svo
langt að ég fengi hlutabréfí hend-
ur né sœkti fundi í því góða félagi,"
sagði Þorsteinn Pálsson í samtali
við Helgarpóstinn.
„Þegar ég var kjörinn formaður
Sjálfstæðisflokksins, tveimur eða
þremur vikum seinna, tók ég þá
ákvörðun að vera ekki í neinu
slíku félagi. Ég var í upphafi skráð-
ur fyrir hlut í fyrirtækinu, en það
kom aldrei til framkvæmda.
Hvorki fékk ég né keypti þau
hlutabréf né tók sæti í stjórninni.
Ég var reyndar skráður formaður
í félaginu í einhverjar vikur, en
það kom aldrei til að það yrði
haldinn stjórnarfundur þar til ég
ákvað að segja af mér. En upphaf-
lega ætlaði ég mér að vera með í
þessu," sagði Þorsteinn Pálsson.
HELGARPÓSTURINN 5