Helgarpósturinn - 12.11.1987, Qupperneq 15
EFTIR JÓNÍNU leósdóttur mynd jim smart
reynd, sem vert er að viðurkenna.
Ég held, að persónulega geri ég
mig alvarlega sekan um að
mismuna mínum börnum. Bæði í
umhyggju, en þó aðallega hvað
varðar tíma. Þó hef ég ekkert
meiri tíma núna en oftast áður. En
ég finn mér hann betur en fyrr,
kannski vegna aukins þroska og
skilnings á því að það er „now or
never", eins og Eluis sagði. Fyrir
nú utan það — svo ég geri alvöru-
játningu — að allar líkur eru á því
að barni, sem kemur svona í lok
barnauppeldistímabils hjóna, verði
gjörspillt. Ég tel t.d. að í því efni
sé ákaflega litlum vörnum komið
við á mínu heimili."
— Þú mœlir þá med þessu?
,,Ég mæli hiklaust með þessu og
leyfi mér í því sambandi að vitna í
margfaldan afa, sem ég þekki.
Hann sagði einu sinni við mig:
„Það sem situr eftir, þegar menn
eru komnir á eliiheimilið, er
tvímælalaust ekki afreksskráin í
starfi, ekki heiðursmerkin á
veggnum eða greinarnar í blöð-
unum, né heldur húsið, sundlaugin
og fíni bíllinn... heidur börnin! Þau
eru númer eitt, tvö, þrjú og fjögur.
Og „creme de la creme“: barna-
börnin." “
„MIKIÐ ER PABBI ÞINN
DUGLEGUR AÐ FARA
MEÐ ÞIG ÚT"
Næsti faðir, sem tekinn var tali,
reyndist líka eiga tvö börn. Þau
eru hins vegar fimm og átta ára
og faðirinn um þrítugt. Hann er
sem sagt á „streðtímabilinu",
þegar koma þarf þaki yfir höfuðið,
og vinnur því mikið. Hefur hann
haft tíma tii að taka þátt í uppeldi
barnanna?
„Já, ég tel að maður hljóti að
gera það. Ég vinn að vísu það
mikið, að ég er frekar lítið heima
hjá mér. En þegar maður er
heima, reynir maður náttúrulega
að nota tímann í annað tveggja:
að taka þátt í heimilisstörfum eða
vera með börnunum. Það er orð-
inn svo miklu minni munur á
móður- og föðurhiutverkinu núna
en áður."
— Er þetta kvöb eða finnst þér
raunverulega ad þú eigir ad sinna
börnunum og heimilinu?
„Mér finnst þetta ekki vera nein
kvöð. Mig langar til að gera þetta
og um leið finnst manni líka, að
maður eigi að gera það. Án þess
að finnast það vera kvöð, sjáðu til!
Það þarf ekki að vera leiðinlegt,
þó maður eigi að gera það...
Kannski finnst manni stundum,
að maður sé alltof lítið með fjöl-
skyldunni og þjóðfélagið, eins og
það er í dag, bjóði ekki upp á að
heimilismenn séu jafnmikið saman
og þeir ættu að vera; Það er
a.m.k. mín skoðun. Ég vildi óska
þess, að fjölskyldur gætu notið
fleiri samverustunda, því manni
finnst maður í raun vera að missa
af einhverju.
Oft finnur maður svo greinilega
fyrir því, hvað maður þyrfti að
vera meira heima. T.d. þegar eldra
barnið á í vandræðum í skólanum
eða við sambærilegar aðstæður.
Börnin þurfa mikið á manni að
halda og það er sárt að geta ekki
alltaf komið til móts við þær
þarfir."
— Hvaöa vidbrögd fœrdu frá
eldri karlmönnum, þegar þú hefur
börnin med þér á fundi eda í
einhverjar útréttingar?
„Ég finn nú ekkert neikvætt í
því sambandi, enda eiga margir
þessara eldri manna barnabörn og
krakkarnir vekja með þeim afatil-
finningar. Það er frekar að það
andi köldu frá eldri kvenmönnum,
þegar maður er með börnin með
sér á fundum eða öðrum manna-
mótum fyrir fullorðna. Þeim finnst
líklega, að mamman eigi bara að
vera heima og passa börnin. Þær
segja líka við krakkana „Mikið er
pabbi þinn duglegur að fara með
þig svona út,“ eða eitthvað álíka
fáránlegt, sem aldrei er sagt við
mæðurnar. Pabbinn er hins vegar
auðvitað ekkert duglegri en
mamman, þó hann fari út með
börnin. Þetta er hlutverk beggja,
þegar þau á annað borð eiga frían
tíma.
En viðbröð af þessu tagi fæ ég
oftast frá fullorðnum konum og
það finnst mér merkilegt. Þar að
auki er það líka gjarnan kvenfólk,
sem spyr eiginkonu mína að því
hvort ég ætli að passa fyrir hana.
Hugsaðu þér bara!"
ÖRVERPI VERÐA
SVOLITLAR
DEKURDULLUR
— Þarf konan þín að biðja þig
sérstaklega um að gœta bús og
barrja, þegar hún bregður sér frá?
„Ég verð nú að viðurkenna það,
að það er frekar að hún spyr mig
„verður þú heima á fimmtudags-
kvöldið" eða „stendur eitthvað til
hjá þér um helgina", frekar en að
ég spyrji hana áður en ég geri
mínar ráðstafanir. Hlutverka-
skipanin hefur bara orðið þannig,
vegna þess að það er frekar ég,
sem fer út á kvöldin og um helgar
og snapa upp einhverja vinnu. Ég
er þá kannski búinn að ráðstafa
helginni í aukavinnu..."
— Finnst þér karlmenn, sem
eignast börn tiltölulega seint á
lífsleiðinni, hegða sér öðruvísi í
föðurhlutverkinu en þið ungu
mennirnir?
„Ja, örverpi verða oft svolitlar
dekurdúllur, sem menn finna meiri
tíma til að sinna. Mér hefur virst
það. Svo er líka annað, sem ég
veit ekki hvort er staðreynd. Þ.e.
hvort feður gefa dætrum sínum
meiri tíma en sonunum. Ég er
ekki alveg frá því, að þetta geti
verið rétt.
Sjálfur eignaðist ég son, þegar
ég var mjög ungur og enn í skóla,
og þá sinnti ég honum mikið.
Nokkrum árum seinna eignuð-
umst við síðan dóttur og núna,
þegar ég er einn heima með
krökkunum, sný ég mér af ein-
hverjum ástæðum meira að henni.
Ja, hún hefur meira yfir mér að
segja. Kannski er það bara vegna
þess að hún er yngri og kemst
upp með að fá stærri skammt af
athygli."
FULLKOMIÐ FRELSI FRÁ
UMHVERFINU AÐ VERA
ÁNÆGÐUR í TRABANT
Síðasti viðmælandinn var rúm-
lega fertugur lögmaður, sem á
bæði uppkomið barn og örverpi.
Hann hefur tekið þá ákvörðun að
draga úr vinnu til þess m.a. að
geta verið meira með yngra
barninu. Hvers vegna?
„Ég vaknaði allt í einu upp við
það að hafa misst af eldra barn-
inu. Það er komið yfir tvítugt, í
háskólanámi og þarf lítið á mér að
halda lengur. Við erum kannski að
mynda meiri tengsl núna en áður
— og öðruvísi — en uppvöxtur
hans fór algjörlega framhjá mér.
Yngra barnið er nýbyrjað í barna-
skóla og ég hef, af ýmsum
orsökum, að verulegu leyti tapað
fyrstu árum þess líka.
Það sækir þess vegna meira og
meira að mér núna, af hverju í
ósköpunum ég er að vinna í
16—18 tíma á sólarhring og allar
helgar, þegar ég þarf í raun ekkert
á því að halda. Nú er maður
kominn í þá stöðu að þurfa ekki
meira. Ég get í raun dregið veru-
lega við mig vinnu, en menn
komast inn í einhverja hringiðu og
geta ekkert hætt þessu helvítis
bulli. Maður gefur sjálfum sér ekki
tíma né tækifæri til að gera þá
hluti, sem gefa lífinu þó mest gildi.
Ég er hreinlega að hugsa um að
gera mjög róttækar breytingar í
sambandi við starfið, til þess að
geta sinnt áhugamálum mínum,
eins og t.d. börnunum. Slíkar
hugsanir sækja örugglega á marga
feður, sem eins er ástatt með og
mig, en menn láta ekkert verða úr
framkvæmdinni. Þetta er hluti af
þjóðfélagsmunstrinu — kapp-
hlaupinu, sem við erum öll í. Fólk
vill dýrari bíla, stærra hús, meira
af þessu og meira af hinu o.s.frv.
Mönnum finnst alltaf að þeir séu
að missa af einhverju, ef þeir
halda ekki áfram í ruglinu.
Ég held líka, að karlmenn telji
sig setja eitthvað ofan i þjóðfé-
laginu, ef þeir láta það eftir sér að
vera eins og menn og sinna t.d.
börnunum sínum. Ég gæti trúað
því, að innst inni væri þetta
hræðsla við að færast neðar í
almenningsálitinu. En lífsfyllingin
fæst ekki í glæsikerrum og stórum
húsum. Kannski jafnvel enn
síður... Ég held, að menn hafi ekki
öðlast frelsi frá umhverfinu fyrr en
þeir geta verið ánægðir í
Trabant!"
ÍSLANDS
27644 box 1464 121 Reykjavík
Handmenntaskóli (slands hefur kennt yfir 1250 (slending-
um bæði heima og erlendis á síðastliðnum sex árum. Hjá
okkur getur þú lært teikningu, litameðferð og skrautskrift
- fyrir fullorðna - og föndur og teikningu fyrir börn í
bréfaskólafomi. Þú færð send verkfæri frá okkur, sendir
okkur úrlausnir þinar og þær eru sendar leiðréttar til baka.
Þeim, sem minni tíma hafa, bjóðum við uppá stutt
hæfileikapróf á þessum sviðum. - Biddu um kynningu
skólans með því að snda nafn og heimilisfang til okkareða
hringdu í síma 27644 núna strax, símsvari tekur við
pöntun þinni á nóttu sem degi. - Tímalengd námskeið-
anna stjórnar þú sjálf(ur) og getur því hafið nám þitt,
hvenær sem er, og verið viss um framhaldið. Hér er
tækifærið, sem þú hefur beðið eftir til þess að læra teiknun
og skrautskrift á auðveldan og skemmtilegan hátt. Þú
getur þetta líka.
BILEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
ÖDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL.
AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING
STAÐNUM.
Á FLEST-
FÆST Á
BÍLPLAST
VhgnhöfM 19, •Imi 688233.
Póstsendum.
Ódýrir tturtubofnar.
Tökum að okkur trefjaplattvinnu.
VWjtö l«l#n*kt.
ÁTT ÞÚ í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ.
LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU-
MEISTARANUM.
SPURÐU HANN UM KERASTASE.
FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM.
KÉRASIASE
'FRÁ L’ORÉAL PARÍS
HELGARPÓSTURINN 15