Helgarpósturinn - 12.11.1987, Side 17
ÍEikki alls fyrir löngu mætti
Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur í
menningarþátt í sjónvarpinu, þar
sem hann og Pétur Gunnarsson
rithöfundur ræddu um íslensku-
nám og -kennslu í Menntaskólan-
um í Reykjavík. Báðir voru þeir í
skóla þar í gamla daga. í þættinum
lagði Þorgeir mikla áherslu á það,
að hann hefði hreint ekkert lært í
móðurmálinu í þessari stofnun og
sagði frá því með nokkrum gorgeir,
að hann hefði aldrei fengið meira en
1 í stíl í MR. Sannleikurinn mun hins
vegar sá, að Þorgeir var hinn prýði-
legasti nemandi, stílhæfni hans
metin að verðleikum og hann fékk
ávallt yfir 7 í stíl, sem er meira en
sumir aðrir stórrithöfundar þessar-
ar aldar geta stært sig af. . .
s
Æ^Pmáfréttaritara okkar varð
heldur betur á í messunni í síðasta
tölublaði Helgarpóstsins í frásögn af
kapalvæðingu á Höfn í Horna-
firði. Þar var sagt, að eitthvað stæði
á þvi, að Hallgrímur Guðmunds-
son sveitarstjóri beitti sér fyrir
greftri fyrir sjónvarpsköplum!
Þarna var hlutunum aldeilis snúið
við, því málinu er akkúrat öfugt far-
ið. Það er Sjónvarpsfélag Horn-
firðinga, sem vill grafa, en má ekki
nema að uppfylltum ákvæðum
samnings, sem félagið gerði við Hall-
grím sveitarstjóra. Þennan samning
brutu þeir sjónvarpsmenn með því
að hefja gröft án samráðs við Hall-
grím. Og einn af forsprökkum sjón-
varpsfélagsins er Páll Björnsson
sýslumaður þeirra Austur-Skaftfell-
inga (ekki Björgvinsson). Þannig
stendur sveitarstjórinn frammi fyrir
því vandamáli að þurfa e.t.v. að
kæra sjálfan sýslumanninn, sem er
bæði æðsta lögreglu- og dómsvald í
sýslunni. Svona geta nú hlutirnir
brenglast á leið sinni um símalínur
landsins og biðjum við röggsaman
sveitarstjóra þeirra Hornfirðinga
velvirðingar á „umsnúningnum",
sem varð hjá smáfréttaskrásetjara
vorum í HP. . .
FISHER
1o^-
BORGARTUNI 16
REYKJAVÍK. SÍMI 622555
SJÓNVARPSBÚÐIN
Hvaðfá
fyrrverandi
þingmenn
aðgera?
NOVEMBER 1987
ÞJÓÐLÍF ER VÆNTANLEGT!
SYKURMOLARNIR „ÞETTA ER SLYS" SEGIR BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR UM
VELGENGNI HLJÓMSVEITARINNAR. FENGU ÞAU VINNU? ÞJÓÐLÍF LEITAR UPPI
FYRRVERANDI ÞINGMENN. LEYNIST METSÖLUBÓKIN í ÞJÓÐLÍFI? 16
SÍÐNA VEGLEG BÓKAKYNNING. UNGIR HEIMSPEKINGAR Á NÁMSKEIÐI í
REYKJAVÍK. ÍSLENDINGURINN ÓLAFUR INGÓLFSSON VERÐUR MEÐ SÆNSK-
UM VÍSINDALEIÐANGRI ÁSUÐURSKAUTSLANDIÍVETUR. BRETUM ERSAMAUM
KJARNORKUNA. ÁSGEIR FRIÐGEIRSSON í LUNDÚNUM. GRÆNINGJAR í
KREPPU. ARTHÚR BJÖRGVIN BOLLASON RÆÐIR VIÐ OTTO SCHILY, TALSMANN
GRÆNINGJA í ÞÝSKALANDI. ÞJÓÐLÍF FYRIR ÞÁ SEM VILJA FYLGJAST MEÐ!
HELGARPÓSTURINN 17