Helgarpósturinn - 12.11.1987, Blaðsíða 28
sem krotinu veldur og öllu saman
heldur? Hvað semi símamálum líður
þá er sýningin í FÍM-sal skemmtileg
aflestrar og greinilegt að Guðjón
Ketilsson er á góðri leið með að
móta sérstakan myndheim þar sem
barnsleg einlægni virðist vandlega
falin á bakvið farða veraldarvanans
og fótleggi í þversum kruss. Slíkar
hugmyndir voru uppi meðal
klumbustílsmanna bæði í París
tuttugustu aldar og í Aþenu fyrir
Krist þar sem Talía gekk ljósum log-
um með framlengda útlimi og
magnara á höfði.
Snemma á fjórða áratugnum
smíðaði súrrealíski teiknarinn Hans
Bellmer ,,hina algeru leikbrúðu"
sem var einnig í anda þessarar hug-
myndar. Sú brúða varð að hlíta öll-
um duttlungum meistara síns og
hafði lengst af hvorki höfuð né
hendur, heldur fimm fótleggi. Brúð-
ur Guðjóns hafa bæði höfuð og limi
en aðrir líkamshlutar eru ekki eins
áberandi. Ahrif frá súrrealisma birt-
ast í eldri verkum Guðjóns á sýn-
ingunni, t.a.m. í „Draumi" og
,,Bráð“. Sjálfur segir Guðjón þessar
myndir að nokkru unnar eins og
ósjálfrátt símakrot. Dulrænt yfir-
bragð þessara mynda minnir á de
Chirico og jafnvel á ýmsa nítjándu
aldar rómantíkera. Hið óbeislaða
undirvitundarfljót kallar gjarna á
virkjunarframkvæmdir og áveitu-
skurði út í úthverfin. Mér sýnist
Guðjón Ketilsson vera á þeim nót'-
um og litanotkun vera orðin hnit-
miðaðri í nýrri verkunum sem
hefðu að ósekju mátt vera fleiri á
kostnað eldri verka. Sömuleiðis
mættu formin vera ögn liðugri í
klumbudansinum fyrst á annð borð
er farið út í þá sálma. Það skortir
e.t.v. smádrauma í leikhús Guðjóns.
En allt um það þá stendur síminn
ávallt fyrir sínu og krot bætir ugg-
laust heilsuna burtséð frá virkjunar-
framkvæmdum.
Ólafur Engilbertsson
TÖNLIST
Hjardforinginn
Herman fallinn
frá
Dauði hljómsveitarstjórans
Woodys Herman í síðasta mánuði
kom engum á óvárt er til þekkti.
Hann hafði um skeið verið alvar-
lega veikur þó hann héldi áfram að
blása í klarinettið og altóinn og
stjórna stórsveit sinni. Er hann kom
síðast fram opinberlega í mars sl.
spurði Leonard Feather hann hvers
vegna hann héldi áfram að spila^
Herman svaraði að sjálfsögðu: ,,í
fyrsta lagi af því ég elska tónlist."
Hann hefði trúlega getað bætt við;
„og af því ég hef ekki efni á öðru“.
Síðastliðin tuttugu ár hefur hann
verið hundeltur af bandarískum
skattayfirvöldum er héldu því fram
að hann skuldaði vel hálfa aðra
milljón dala í skatt eða um 66 millj-
ónir íslenskar. I sumar var hús hans
selt á nauðungaruppboði, en það
hafði Humphrey Bogart áður átt.
Reynt var að bera Woody út, en vin-
um hans, Frank Sinatra, Peggy Lee
og Clint Eastwood, tókst að koma í
veg fyrir það með því að borga leigu
fyrir hann — og í villu sinni bjó hann
þar til hann var fluttur í sjúkrahús
þann 1. október — og þaðan átti
hann ekki afturkvæmt.
Ég hlustaði á Woody Herman og
sveifluhjörðina hans eitt sumar-
Barna-
myndatökur
í myndatökunum eru 12 til 14 stk.,
9x12 sm myndir.
Sértilhod
fram til jóla. 15 stk. jólakort
innifalin í myndatökunni.
Pantið tíma strax.
LIÓSMYNDASTOFA REYKIAVIKUR
HVERFISGÖTU 105,2. HÆÐ, RÉTT VH) HLEMM. SlMI 621166.
INHUðHBnnBnMMBniaSESffi&iQB
„Það segir sína sögu um bandaríska menn-
ingu að einn virtasti hljómsveitarstjóri þjóÖ-
arinnar skyldi deyja öreigi — hundeltur af
yfirvöldum. Og það er skarð fyrir skildi í
stórsveitaheiminum.“
Sjá: Hjarðforinginn Herman fallinn frá.
kvöld í Holstebro á Jótlandi. Þar var
haldin mikil djasshátíð og var
Herman-bandið hápunkturinn og
lokaatriðið. Bandið kom í rútu en
Woody í hvítum kádilják. Eftir
nokkur lög kom svo lögreglan á
staðinn og stöðvaði hljómleikana.
Kvartanir höfðu borist frá geldum
borgurum í villuhverfinu í nágrenn-
inu um hávaða. Lækka varð í hljóð-
kerfinu, en slíkt kom sem betur fer
ekki að sök, því sautján manna stór-
sveitin þurfti ekki á slíku að halda.
Allir gömlu ópusarnir hljómuðu og
nýir líka og eftir að Woody hafði
blásið og sungið Caledoniu gátum
við íslendingarnir þrammað glaðir í
sinni með tjald og svefnpoka niður
á lestarstöð. Þó við ættum aðeins fá-
einar krónur og yrðum að drekka
blávatn á Stórabeltisferjunni á leið
til Kaupmannahafnar var gleði ríkj-
andi: Caledonia, what make you big
head so hot!
Woody fæddist fyrir sjötíu og fjór-
um árum og byrjaði átta ára gamall
að koma fram sem söngvari og
dansari. Frá sautján ára aldri lék
hann á klarinett og altósax í ýmsum
dansböndum, frægast þeirra band
fshams Jones. Þegar sú sveit hætti
árið 1936 stofnaði Woody eigin
hljómsveit og helstu hljóðfæraleik-
arar Jones fengu sæti þar. Hljóm-
sveitin var þekkt sem bandið sem
spilaði blúsinn. Woody sló í gegn
með At the Woodchopper’s Ball,
1939, og síðan hefur hann verið á
fullu. Ralph Burns og Neal Hefti út-
settu fyrir hann og Bill Harris,
Candolin-bræður og Flip Philips
blésu helstu sólóana. Ryþmasveit-
ina skipuðu Billy Bauer, Chubby
Jackson og Dave Tough. Svo komu
bræðurnir fjórir: Stan Getz, Zoot
Sims, Herbie Stewart og Sergie
Chaloff. Og nýjar hjarðir og nýir ein-
leikarar — en alltaf var Woody
Herman-bandið eitt hið besta í
djassi. Hann spilaði líka fyrir dansi
og söng, gaf meira að segja út Al
Jolson-albúm. Svo fékk Frank Sin-
atra hann til að leika undir hjá sér á
tónleikum eins og í Madison Square-
garðinum 1974 og ekki má gleyma
að Igor Stravinski skrifaði Ebony-
konsertinn fyrir Woody Herman og
hjörð hans.
Það segir sína sögu um banda-
ríska menningu að einn virtasti
hljómsveitarstjóri þjóðarinnar
skyldi deyja öreigi — hundeltur af
yfirvöldum. Og það er skarð fyrir
skildi í stórsveitaheiminum. Þrír af
stórsnillingum þess listforms horfnir
á skömmum tíma: Thad Jones,
Buddy Riche og Woody Herman.
Þeirra líkar koma ekki aftur —
sveiflusveitirnar eru brátt veröld
sem var.
Það er heldur ekki heiglum hent
að vera á flakki um heiminn í hálfa
öld og búa í ferðatösku með pen-
ingaáhyggjur. Slíkt gerði Woody alla
tíð; sex eða sjö kvöld lék hann á
viku, 48 vikur á ári. Og það var fjör
á sviðinu þegar Apple Honey var á
dagskrá og Pete Candolin kom svíf-
andi úr himinhæðum til að blása sig
þangað upp aftur í einum frægasta
háasésóló sögunnar!
Vernharður Linnet
Höfum á boðstólum borðbúnað fyrir
hótel og veitingasali. COMENDA upp-
þvottavélar af ýmsum stærðum. Einnig
ALUMINOX rafmagns- og gaseldunar-
tæki.
Síðast en ekki síst MELITTA kaffivélar
sem kallaðar hafa verið „Rolls Royce"
kaffivélanna, en þær eru nú í notkun á
mörgum stöðum, þ.á.m. ESJUBERGI.
PTTFTIVT kARsnesbraut ioe HSkLen
DUJJIIN sími 91-641418 : |p indretning aps
28 HELGARPÓSTURINN