Helgarpósturinn - 12.11.1987, Page 39
FRETTAPOSTUR
Ólafur Ragnar formaður Allaballa
Ólafur Ragnar Grímsson var um síðustu helgi kjörinn for-
maður Alþýðubandalagsins, sigraði Sigríði Stefánsdóttur
nokkuð örugglega (60%—40%) í slagnum um stól Svavars
Gestssonar á landsfundi flokksins. Mikil harka var í for-
mannskjörinu og í kjörinu til framkvæmda- og miðstjórna
flokksins. Stuðningsmenn Ólafs sváfu á verðinum i kjörinu
til framkvæmdastjórnar, þar sem í meirihluta sitja and-
stæðingar hans. Varaformaður var kjörin Svanfríður
Jónasdóttir, ritari er Björn Grétar Sveinsson og gjaldkeri
Bjargey Einarsdóttir. Af ályktunum landsfundarins vakti
mestu athyglina verkalýðsmálaályktunin, þar sem Birna
Þórðardóttir og fleiri fengu samþykktar viðbótartillögur
sem gengu á skjön við fyrri drög og fólu í sér alvarlega gagn-
rýni á flokkinn og verkalýðshreyfinguna, þótt um leið væri
í fyrsta skiptið ítrekað að flokkur er eitt en hreyfingin ann-
að og engin forskrift þar á milli. Meðal þess sem Birna fékk
framgengt sem stefnu flokksins var að stöðva bæri samstarf
vinstri manna og sjálfstæðismanna í æðstu stjórn ASÍ. For-
seti ASÍ kallar ályktunina einföld mistök og varaforseti ASÍ,
sjálfstæðismaðurinn Björn Þórhallsson, kallar hana rugl.
Enn usli kratanna í stjórninni
Nýrri sprengju hefur verið varpað inn í stjórnarheimilið
og enn eru það kratar sem uslanum valda. í þetta sinn var
það Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sem tók þá ákvörðun
að veita sex fyrirtækjum leyfi til að selja frystan fisk til
Bandaríkjanna næstu mánuðina. 4 samtök höfðu leyfi
fyrir, aðallega þó Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og SÍS,
sem brugðist hafa ókvæða við því að einokun þeirra sé ógn-
að. Þorsteinn Pálsson og Steingrímur Hermannsson hafa
tekið upp hanskann fyrir þessi samtök og bent á að til stæði
að svið þetta félli brátt undir utanrikisráðherra. Mogginn
hins vegar furðar sig á afstöðu Þorsteins, formanns Sjálf-
stæðisflokksins, „þess stjórnmálaafls sem helst hefur
barist fyrir viðskiptafrelsi og afnámi hafta“, og telur Jón
ganga of skammt. Steingrímur varar aðilana 6 við því að
nýta sér leyfið og hótar afturköllun þeirra.
Hæstiréttur vilhallur stjórnvöldum?
Einn reyndasti hæstaréttarlögmaður landsins, Jón
Steinar Gunnlaugsson, heldur því fram í nýrri bók, Deilt á
dómarann, að Hæstiréttur sé helst til vilhallur stjórnvöld-
um i dómum sinum, láti það að mestu vera að rökstyðja
dóma sína og taki sér þar með óeðlilegt vald í túlkun á mann-
réttindum. I bókinni fjallar Jón um 6 nýleg mál, þeirra á
meðal frjálst útvarp í Valhöll og upptöku á eintökum Speg-
ilsins án dómsúrskurðar. Magnús Thoroddsen, forseti
Hæstaréttar, vísar gagnrýni Jóns á bug og segir hana ekki
eiga við rök að styðjast. Bendir hann á að ekkert sé nýtt við
það að menn greini á um dóma og bendir hann á að sjálfur
hafi Jón flutt 3 af þessum málum og tapað þeim. Að ekki sé
alltaf þörf á því að rökstyðja dóma í löngu máli. Um að
Hæstiréttur sé vilhallur stjórnvöldum segir Magnús órétt-
mætt að miða eingöngu við þessi einstöku mál á takmörkuð-
um tíma, réttara væri að fara yfir alla áratugasögu Hæsta-
réttar.
Fréttapunktar
• Ný samtök, Tjörnin lifir, hafa verið stofnuð til að sporna
gegn hugmyndum um ráðhúsbyggingu út í Tjörnina og sam-
farandi flutningi á húsi af svæðinu.
• Sildarverksmiðjur rikisins töpuðu nálægt 100 milljónum
króna á síðasta reikningsári og þar sem vertíðin hefur ekki
farið vel af stað er útlitið framundan slæmt.
• Fallið hefur verið frá frjálsu fiskverði í Verðlagsráði sjáv-
arútvegsins, sjómönnum til mikilla vonbrigða. Töldu þeir að
aðeins nokkurra mánaða reynsla væri ekki nóg til aftur-
hvarfs.
• Fyrsta verslunin í Kringlunni hefur verið seld. Verslunin
California, sem Ásgeir Ebenezerson átti, heitir nú Jazz og er
í eig_u Hrafns Haukssonar.
• ,,Ég vil að vísu breyta Framsóknarflokknum, gera hann
opnari og nútímalegri, og neita því ekki, að menn eins og
Páll Pétursson vilja standa í vegi fyrir því,“ segir Stein-
grímur Hermannsson í Heimsmynd.
• Fyrsta umræðan á þingi um bjórfrumvarpið nýja hefur
farið fram. Eru bjórsinnar nokkuð bjartsýnir að þessu
sinni um framgang málsins, eru taldir í vænum meirihluta.
• 41 árs maður lést um helgina eftir átök við annan mann,
um þrítugt, og hefur sá játað í yfirheyrslum og verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 6. febrúar.
• Mikla athygli hefur vakið vægur dómur yfir kynferðis-
afbrotamanni. Hinn dæmdi var í Sakadómi Reykjavikur
fundinn sekur um kynferðismök önnur en samræði við
ungan dreng og fékk 2ja mánaða dóm.
• Ný útvarpsstöð hefur hafið útsendingar á FM 95,7. Það er
Ljósvakinn, í eigu sömu manna og Bylgjan.
BÖN- OG ÞVOTTASTÖÐIN ÖS
veitir eftirtalda þjónustu:
tjöruþvott, djúphreinsun teppa og
sœta, mótorþvott. Mössum lökk, '
bónum og límum ö rendur.
Opið virka daga kl. 8—19.
Opið laugardaga kl.
10-16.
Bón- og þvottastööin Ós, Langholtsvegi 109 Sími 688177
LÉLEGASTA
BÚDIN i B4NUM
Nei, nei,
þetta er bara smágrín
viö erum ágœt
VÖRULOFTIÐ SKIPHOLTI 33
FISLÉTTIR - MJÚKIR OG ÓTRÚLEGA ÞÆGILEGIR KULDASKÓR
ÚR VATNSHELDU EFNI SEM HLEYPIR RAKA FRÁ HÚÐENNI
FAST HJÁ:
Reykjavík: Axel Ó., Laugavegi 11 - Hvannbergsbræðrum, Laugavegi 71 - Rímu, Laugavegi 89 - Rímu, Aust-
urstræti 6 - Skóbæ, Laugavegi 69 - Skóvali, Óðinstorgi - Skóversl. Helga, Völvufelli 19 - Steinari Waage,
Kringlunni, Egilsgötu 3 - Toppskónum, Veltusundi - Skóversl. Kópavogs, Hamraborg 3 - Skóhöliinni, Hafnar-
firði.
Staðarfelli, Akranesi - Kaupfél. Borgfiröinga, Borgarnesi - Skóbúð Leós, ísafirði - Óskalandi, Blönduósi -
Kaupfél. Skagfirðinga, Sauðárkróki - Skótiskunni, Akureyri - Skóbuð Húsavíkur - KASK, Höfn, Hornafiröi -
Skóbúð Selfoss - Fatavali, Keflavik - Skóbúð Keflavikur - Axel Ö„ Vestmannaeyjum.
HVAÐER \á
TOP DRY? %((
VATNSHELT EFNI
SEM HLEYPIR RAKA
FRÁ HÚÐINNI
Gore-tex er hið dýrmæta
efni sem er notað innan á
hlaupaskó, safariskó,
göngu- og fjallaskó og
nýtískulega útivistarskó.
HELGARPÓSTURINN 39