Morgunblaðið - 01.12.1985, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. DESEMBER1985
2 B
SVIPMYNDÁ SUNNUDEGI / GARRETT FITZGERALD FORSÆTISRÁÐHERRA ÍRLANDS:
Nafn hans verður skráð
á spjöld sögunnar
KVÖLD EITT í síðustu viku gekk
Garrett FitzGeraid, forsætisráðherra
írlands, inn á hótel í Dvflinni til
þess að efna gamalt loforð ura að
afhenda verðlaun fyrir beztu dag-
blaðaauglýsingar ársins. Stjórnmála-
menn kippa sér ekki upp við athöfn
af þessu tagi, enda oft til kallaðir,
en vart hafði hann stigið inn í gest-
amóttökuna er hótelgestir og veg-
farendur streymdu þar inn og hylltu
leiðtoga sinn með langvarandi lófa-
taki.
Frá því FitzGerald undirritaði
samkomulag við brezku stjórnina
um Norður-lrland hefur sól hans
hækkað. Menn, sem málum eru
kunnugir, telja hins vegar ólíklegt
að auknar persónuvinsældir hans
eigi eftir að koma ríkisstjórninni
til góða. Hún hefur tekizt á við
mikla efnahagsörðugleika og sýna
skoðanakannanir að undanförnu
að kjósendum þykir hún ekki hafa
spjarað sig, þvi stjórnin hefur
komið illa út úr könnunum.
FitzGerald er sagður vera um-
burðarlyndur venju fremur, mót-
tækilegur fyrir hugmyndum ann-
arra og opinn fyrir skynsamlegum
rökum. Hann er hreinskilinn og
þolgóður, en umfram allt orðvar
og tillitssamur. Á sama tíma og
landsmenn hans fagna samningn-
um við Breta velta þeir vöngum
yfir því hvernig honum tókst að
ná fram niðurstöðu í máli þessu,
minnugir marggefinna yfirlýsinga
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, í tilefni samn-
ingagerðarinnar um hversu brezkt
Norður-írland væri. Þótti hún
jafnvel hafa niðurlægt FitzGerald
með yfirlýsingum sínum og allt
þar til í nóvemberbyrjun áttu
fæstir von á að af samningum yrði.
Það kom því á óvart er FitzGerald
sneri heim með samning undir
höndum um miðjan mánuðinn.
Gefur samningurinn mönnum von,
en veika þó, að friður náist í Norð-
ur-írlandi. Það kemur þó ekki í
ljós fyrr en á reynir samninginn,
en gerð hans markar engu að síður
tímamót.
Snjall samningamaður
Garrett FitzGerald þykir snjall
samningamaður og hefur tekizt vel
til þegar Norður-írland hefur
verið annars vegar. Hann hefur
sýnt Norður-frlandi sérstakan
áhuga því móðir hans, sem var
kalvínstrúar, er þaðan. Tók hún
þátt í baráttu þjóðernissinna er
hún var við háskólanám í Belfast.
Síðar starfaði hún í London sem
ritari George Bernard Shaw og það
var þá sem leiðir hennar og írska
ljóðskáldsins Desmond FitzGerald
lágu saman. Gengu þau í hjóna-
band og sneru til Irlands 1913. Þau
tóku þátt í Páskauppreisninni 1916
og voru einnig virk í sjálfstæðis-
baráttu fra. Þegar henni lauk og
írar fengu sjálfstæði frá Bretum
varð Desmond FitzGerald ráð-
herra í fyrstu ríkisstjórn frska
fríríkisins. Sonur hans, Garrett,
stýrir nú flokknum, Fine Gael, sem
myndaði þá stjórn.
Fáir gera sér betur grein fyrir
því en FitzGerald hvaða klofningi
þjóðernisstefna getur valdið I
írsku samfélagi. Móðir hans, sem
hafði mikil áhrif á hann, var mjög
andvíg samningnum við Breta á
sínum tíma, þar sem frar viður-
kenndu skiptingu landsins, og dró
sig í hié frá stjórnmálum. Skömmu
seinna, eða árið 1926, fæddist þeim
hjónum sonur, sem skírður var
Garrett. Fer ekki milli mála að
Garrett hefur samúð með málstað
mótmælenda á Norður-frlandi og
samverkamönnum hans hefur
meir að segja á stundum þótt hann
biðla einum um of til þeirra. Minna
þeir í þessu sambandi á orð Thatc-
her eftir fund þeirra í Hillsbor-
ough fyrir ári þar sem hún sagði
Garrett hvort tveggja í senn þjóð-
ernissinna og lýðveldissinna.
Fannst ýmsum það niðurlægjandi
ummæli, en FitzGerald kippti sér
ekki upp við þau. Hann var þess
fullviss að hann væri um það bil
að tryggja kaþólikkum á Norður-
Garrett Fitzgerald
írlandi stóraukinn rétt en á sama
tíma vildi hann halda útréttri sátt-
arhönd að sambandssinnum.
Binda menn vonir við að mót-
mælendur á Norður-írlandi sýni
meiri hófsemi þegar frá líður. Er
FitzGerald sagður sá stjórnmála-
maður í írska lýðveldinu sem bezt-
an skilning hefur á ótta þeirra og
efasemdum vegna nýgerðs samn-
ings við Breta.
Þiggur kvennaráö
Önnur kona hefur haft og hefuf
enn mikil áhrif á Garrett Fitz-
Gerald, pólitísk sem persónuleg,
en það er kona hans Joan. Þau
kynntust er bæði voru við nám í
háskólanum í Dyflinni. Börn
þeirra eru þrjú og öll uppkomin,
tveir synir og dóttir. Joan er nú
meira og minna bækluð. Hún þjá-
ist af mjög sársaukafullri liða-
gigtsö , einnig af ættgengri eitla-
bólgu, sem veldur mikilli bólgu í
höndum og fótum. Af þessum
sökum á hún erfitt með hreyfingar
allar og heldur sig mest heima við.
Joan FitzGerald er hispursiaus
kona og hefur látið að sér kveða á
ýmsum sviðum. Hún er kunn fyrir
afstöðu sína, sem að ýmsu gengur
á skjön við stefnu hins opinbera-
Hún mælir t.d. með getnaðarvörn-
um og segir að búa verði svo um
hnútana að skilnaður hjóna sé
mögulegur. Efast menn ekki um
að FitzGerald hafi fyrst og fremst
orðið fyrir áhrifum konu sinnar
Garrett Fitzgerald ásamt Geir Hallgrfmssyni. Myndin var tekin í heimsókn
Fitzgeralds til íslands í maí 1977. Hann var þá utanríkisráðherra íslands
og Geir forsætisráðherra fslands. Nú situr Fitzgerald í stóli forsætisráðherra
í Irlandi en Geir Hallgrímsson í stóli utanríkisráðherra.
MÖGNUÐ SPENNUSAGA
DflVID OSBORN
SAMSÆRIÐ
,,ÞAÐ VERÐUR EKKI GEFIN ÚT BETRI BÓK í ÁR ...
/n ••• •
profkjon
loknu
Egfœri öllum þeim sem veittu mér stuðning í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 24. og 25.
nóvember síðastliðinn, bestu þakkir.
Einnig vil égfyrir mitt leyti koma á framfœri
þakklœti tilþeirra sem lögðu á sig mikið starf
við undirbúning ogframkvœmd prófkjörsins.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi