Morgunblaðið - 01.12.1985, Qupperneq 12
n b
MQRfiyN^LAPID, ^UNflþlDAQUR V PKSEMBER1935
Bladburöarfólk
óskast!
Vesturbær
Faxaskjól
Skerjafjörður
Gnitanes
Hörpugataog Fossagata
fyrir noröan flugvöllinn.
Grunnskóli Eskifjarðar:
Fékk þrjár
tölvur að
gjöf
Eskifirði, 27. nóvember.
GRUNNSKÓLANUM á Eskifirði
barst nýlega höfðingleg gjöf. Voru
þad þrjár tölvur af BBC-gerð ásamt
mörgum fylgihlutum. Arnþór Jensen,
fyrrverandi framkvæmdastjóri pönt-
unarfélags Eskfirðinga, gaf skólan-
um tölvurnar, en þær eru hinar fyrstu
sem skólinn eignast. Jón Ingi Einars-
son, skólastjóri Grunnskólans, segir
að mikill fengur sé að gjöf Arnþórs
og kunni allir aðstandendur skólans
honum bestur þakkir.
Sem fyrr segir gaf Arnþór skól-
anum þrjár tölvur af BBC-gerð,
þar af eina með litaskjá.
Ævar
Jón Ingi Einarsson, skólastjóri, með tölvurnar góðu. Morgunbiaðií/Ævar
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
kynnir borgarbúum starfsemi
sína.
Nú eru ánægjuleg tímamót í starfsemi
sveitarinnar. Ný björgunarstöð við
Snorrabraut verðurvígð í dag.
Eins og flestum er kunnugt, er hið um-
fangsmikla hjálpar- og björgunarstarf
H.S.S.R. rækilega stutt af borgarbúum
sjálfum með árlegum flugeldakaupum
þeirra.
Það er sveitinni því sérstakt ánægju-
efni að efna til þessarar kynningar.
Margt verður sér til gamans gert í tilefni
dagsins.
• Húsið verður opnað klukkan 14 við undir-
leik Lúðrasveitar verkalýðsins. Siðan
verður stanslaus dagskrá til klukkan 18.
• Sýndur verður gamall og nýr búnaður
sveitarinnar, m.a. sett upp sérstakt sjúkra-
tjald með öllum búnaði.
• Litskyggnusýning úr starfi sveitarinnar fyrr
ognú.
• Myndbandasyning frá æfingu á Gígjökli.
• Sérstök sýning með Ijósmyndum og ágrip
úr sögu sveitarinnar.
• Véltækjafloti sveitarinnar sýndur, bílar,
vélsleðar og splunkunýr snjóbíll sem nýkom-
inn er til landsins.
• Sig- og klifuratriði sýnd á útisvæði. Einnig
verður reynt að gefa gestum færi á að
spreyta sig í íþróttinni.
• Skátabúðin, sem er í eign sveitarinnar verð-
ur opin til kynningar og ýmis búnaður sýndur.
• Verðlaunagetraun. Börnum og unglingum
verður boðin ókeypis þátttaka. 100 verðlaun
(flugetdar í fjölskyldupoka) verða dregin út
og vinningsnöfn síðan birt á flugeldamörk-
uðum fyrir næstu áramót.
• Jón Páll mætir á svæðið og keppir i trukka-
drætti við stjórn H.S.S.R. Hann mun líka
keppa við börn í reiptogi.
• Þyrluflug. Ef aðstæður leyfa verður sýnt
þyrluflug.
Gestum okkar er boðið upp á
kaffiveitingar eða Svala.
Aðgangur er að sjálfsögðu
ókeypis og öllum opinn.
Komið, - kynnist kröftugu
starfi Hjálparsveitarinnar.
-Okkareránægjan.