Morgunblaðið - 01.12.1985, Page 20
20 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. DESEMBER1985
Peningapennmn
Mario Puzo
— guðfaðir vasabrotsbókanna
Rithöfundarferill Marios Puzo er lýsandi
dæmi um mann sem ætlaði sér stóra hluti sem
listamaður í heimi bókmenntanna, en lét undan
kröfum markaðarins og fór að skrifa bækur
eftir formúlum vinsældalistans. Snemma á þessu
ári sendi hann frá sér nýja bók, Sikileyinginn
(The Sicilian); Puzo er enn við sama heygarðs-
hornið, hann heldur sig við mafíuna sem gerði
hann frægan — og ríkan.
Mario Puzo með vindil við gömlu ritvélina sína.
I.
Það er svo sem engin nýlunda
að rithöfundar, meira að segja
af merkari sortinni, falli fyrir
freistingum peninganna. Balzac
og Dickens skrifuðu reiðinnar
býsn til að borga skuldir, enda
lifðu þeir hátt: og Þórbergur
sagðist sjálfur hafa gefið út
Hálfa skósóla því hann vantaði
peninga.
Hin nýja bók Marios Puzo, Sik-
ileyingurinn, er óbeint framhald
af Guðföðurnum, bókinni sem
gerði hann frægan. Óbeint, því
Michael Corleone, einni aðalper-
sónunni í Guðföðurnum, rétt
bregður fyrir; hlutverk hans er
eiginlega svo lítið að honum hefði
mátt sleppa. En sagan snýst um
sannsögulega persónu, Salvatore
Guiliano, ungan Sikileying sem
blöskrar óréttlætið og tekur það
í sínar hendur. Hann segir Don
Croce, áhrifamesta glæpamann-
inum á Sikiley, stríð á hendur
og lifir ekki ósvipuðu lífi og Hrói
höttur. Guiliano er af fátæku
fólki, hann rænir hina ríku og
gefur fátækum. Traustasti vinur
hans og félagi er Aspanu Pisc-
iotta, og í sameiningu ógna þeir
ríkisstjórninni ítölsku og Don
Croce svo hriktir í þjóðfélaginu.
Hlutverk Michaels Corleone er
að koma Guiliano vestur um haf,
sem, eins og kunnugt er af
mannkynssögubókum, tekst ekki,
því Guiliano er svikinn af þeim
er standa honum næst.
Það er að ég held samdóma álit
Marlo Brando í hlutverki frægustu
persónu sem Mario Puzo hefur
skapað, Don Corleone, úr Guð-
föðurnum.
A1 Pacino lék Michael Corleone í
Guðföðurnum. Michael kemur
einnig við sögu í Sikileyingnum,
nýjustu bók Puzos.
flestra sem þekkja bækur Puzos
að Sikileyingurinn sé ein best
skrifaða bók hans. Bókin kom út
fyrr á þessu ári, hlaut þokkalega
gagnrýni, þótt ekki væri henni
mikið hampað, og seldist bæri-
lega, þó ekki nóg að mati út-
gefandans sem greiddi Puzo tvær
milljónir dollara fyrir útgáfu-
réttinn.
II.
En sjálfur en Puzo ekki frá því
að tvær fyrstu bækur hans séu
betri. Hann var þrítugur þegar
hann lauk við The Dark Arena
árið 1955. Puzo hafði unnið við
hitt og þetta árin á undan, en
fékk köllun til skáldskapar eftir
að hann las Karamazov-bræð-
urna eftir Dostoevski. Hann var
kvæntur og átti börn; en enga
peninga. Hann taldi öruggt að
fyrsta bókin gerði hann ríkan.
En það varð eitthvað annað;
hann fékk 3.500 dollara, og gat
varla framfleytt fjölskyldunni.
Puzo hellti sér í blaðamennsku
og fleira næstu tíu árin þar til
önnur bók hans, The Fortunate
Pilgrim, kom út. Sjálfur segir
Puzo að hún sé best bóka sinna,
en hann fékk aðeins 3.000 dollara
fyrir hana. Enn versnaði fjár-
hagurinn. Útgefandi hans var
orðinn þreyttur á þessum höf-
undi sem ekki seldist.
Það var þá sem Puzo ákvað að
skrifa eitthvað um mafíuna,
harðsoðna skáldsögu til að raka
inn peningum. Puzo segir í „The
Godfather Papers and other Con-
fessions", að í 45 ár hafi hann
litið á listina sem sitt goð — en
fjárhagslegur þrýstingur hafi
drepið þá trú. Puzo vildi gera
allt til að lifa á skrifum sínum.
Hann samdi við Putnam-útgáf-
una um litla sögu sem hann
kailaði einfaldlega Guðföðurinn.
Puzo, sem þekkti mafíuna aðeins
af afspurn og rannsóknum sín-
um, lauk við söguna 1969 og hún
sló öll fyrri sölumet.
Vita ekki allir hvað gerðist
svo: Fawcett-útgáfan keypti
vasabrotsréttinn fyrir 410.000
dali (met) og Paramount-filmu-
félagið fékk kvikmyndaréttinn
fyrir 12.000 dollara, því útsend-
arar félagsins fundu lyktina af
komandi vinsældum handritsins.
Myndin var gerð tveimur árum
síðar og naut engu minni vin-
sælda en bókin. Mario Puzo var
loks orðinn þekktur — og ríkur.
III.
Don Corleone í bókarformi fór
vel í fólk, engu síður en Marlon
Brando. Bókin seldist í næstum
13 milljón eintökum og hefur
engin önnur bók selst jafn mikið.
Þær sem á eftir komu eru: The
Exorcist (11 milljónir), Love
Story (10 milljónir), Jaws (9
milljónir), Jónatan Livingston
máfur (7 milljónir), I Never
Promised You a Rose Garden og
Rich Man; Poor Man (6,5 milljón-
ir hvor).
En hvað gerir maður/skáld
sem skyndilega nær slíkum vin-
sældum? Svarið er einfalt: hann
sest að í Hollywood. Puzo skrif-
aði kvikmyndahandritið að Guð-
föðurnum ásamt leikstjóranum
Coppola, og eftir að myndin var
frumsýnd óð Puzo í tilboðum sem
hann gat ekki hafnað. Hann
skrifaði nokkrar kvikmyndir:
Guðföðurinn annan hluta, stór-
slysamyndina Earthquake og
nokkrum árum síðar Superman
I og II. Hann átti nokkrar setn-
ingar í Cotton Club, en hann
hefur smám saman dregið sig út
úr kvikmyndaheiminum.
Það liðu tæp tíu ár frá því
Puzo kláraði Guðföðurinn þar til
hann sendi frá sér nýja skáld-
sögu. Fools Die kom út 1978 og
markaði hún tímamót hjá út-
gáfufyrirtækjunum, sem voru
auðvitað sólgin í nýja bók eftir
þennan metsöluhöfund. Útgáfu-
fyrirtækin yfirbuðu hvert annað,
TRIUMPH TRD 7020
Tölvuprentari meft
leturkrónu
fyrir ritvinnslu
TRD 7020
Vestur-þýzk
gæðaframleiðsla.
i Prenthraði 20 stafir á sekúndu
i Prentar í báðar áttir • 55 stýritákn
Grafískir möguleikar Minni 1500 tákn
RS 232 raðtenging • Viðbótarbúnaður:
Pinnabelti fyrir samhangandi form • Arkamatarar
Stækkun á minni í 3500 tákn • Tengisnúrur fyrir t. d. Apple, BBC
Verð aðeins kr.
16.800.-
Einar J. Skúiason hf.
SKRIFSTOFUVÉLAVERSLUN OG VERKSTÆOI
HVERFISGÖTU 89 - SÍMI 24130
PÓSTHÓLF 1427 - REYKJAVÍK
„Geimstríð IIIU
íRegnboganum
REGNBOGINN hefur tekið til sýn-
inga kvikmyndina „Geimstríð III:
Leitin að Spock“ sem gerð er eftir
sjónvarpsþáttunum Star Trek eftir
Gene Roddcnberry.
Myndin gerist á 23. öldinni er
ferðir um óravíddir geimsins eru
leikur einn. Fjallað er um átök
manna á milli og baráttu þeirra
við náttúruöfl á reikistjörnunni
Genesis sem eldist með þeim hætti
að eldsumbrot og jarðskjálftar
breyta jarðskorpunni á mínútna
fresti.
Leikstjóri er Leonard Nimoy en
með aðalhlutverk fara William
Shatner, Leonard Nimoy og De-
ForestKelley.
KrútUtilkynning
/\uglýsinga-
siminn er 2 24 80
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. DESEMBER1985
B 21
allt þar til mælirinn fylltist og
New American Library (NAL)
fékk nýju bókina fyrir algert
met, 2,2 milljónir dollara, og
350.000 að auki fyrir aukaútgáfu
á Guðföðurnum. Gamla metið
átti Colleen McCullough, 1,9
milljónir dollara fyrir Þyrnifugl-
ana. Puzo sjálfur spilaði tennis
og át pizzur meðan útgáfurnar
buðu og buðu. En þessi tala (sam-
tals 2.550.000 dollara) rann ekki
öll til rithöfundarins; þegar
skattar og allt hvað eina höfðu
verið dregnir frá stóð Puzo uppi
með 500.000 handa sjálfqm sér.
Mikið vatn og blóð var því
runnið til sjávar og grafar frá
þeim tíma er Puzo fékk 6.500
dollara fyrir tvær fyrstu bæk-
urnar. En Puzo kann að fara með
féð, segir hann sjálfur, þar sem
hann náði vinsældum tiltölulega
seint á ævinni og vissi hvað var
að líða hungur. Puzo, sem er
sykursjúklingur, segist hefðu
hreinlega dáið ef hann hefði ekki
hagnast á Guðföðurnum, því
erfiðisvinnu þyldu hann ekki til
lengdar.
Dæmi um hvernig Puzo fór
með fyrstu fúlgurnar: Hann fékk
410.000 fyrir Guðföðurinn árið
1969. Puzo lét bróður sinn, sem
hafði framfleytt Puzo og konu
og börnum á erfiðum tímum í
næstum tuttugu ár, fá helming-
inn. Puzo-hjónin eiga fimm börn
og meirihluti tekna þeirra fór í
menntun barnanna og, eftir að
þau komust á fullorðinsár, hefur
Puzo haldið áfram að hjálpa
þeim.
Næstu fjögur árin vann Puzo
að óbeinu framhaldi af Guð-
föðurnum. Ekki er nokkur vafi á
að Puzo fékk meiri pening fyrir
að skrifa þetta „framhald", en
sjálfstæða sögu. En staðreyndin
er að þáttur Michaels Corleone
er óþarfur, enda stendur harm-
sagan um Salvatore Guiliano án
þesskonar aðstoðar. En Puzo
fékk um það bil 2 milljónir doll-
ara fyrir bókina og svo gott sem
loforð um kvikmynd, þrátt fyrir
að Fools Die hafi valdið miklum
vonbrigðum.
Balzac, Dickens, Dostoevski og
Puzo eiga margt sameiginlegt.
Þeir sömdu skáldsögur í kappi
við tímann til að fá peninga, með
ærið misjöfnum árangri, en hver
veit nema Balzac, Dickens og
Dostoevski, sem sífellt voru
blankir, hefðu farið vestur um
haf og reynt fyrir sér í höfuðborg
kvikmyndanna, eins og rithöf-
undarnir bandarísku F. Scott
Fitzgerald, Nathanael West og
William Faulkner gerðu, ef þeir
lifðu á okkur dögum. f,
Bygging brúar
áLeirur
boðin út
Á næstunni verður boðin út bygg-
ing brúar á Norðurlandsvegi um
Eyjafjarðarleirur. •
Guðmundur Arason deildar-
verkfræðingur hjá brúadeild
Vegagerðar ríkisins sagði að á
undanförnum árum hefði smíði
brúa oft verið boðin út, yfirleitt
þeirra smærri. Bygging brúarinn-
ar á Eyjafjarðarleirum væri hins
vegar stærsta verkefnið í brúagerð
hjá Vegagerðinni á næsta ári og
markaði þetta útboð tímamót að
því leyti.
Vegurinn er lagður norðan við
flugvöllinn á Akureyri. Leiðin yfir
fjörðinn er um 2 km og verður
vegurinn lagður á uppfyllingu,
nema hvað brúin verður 140 metra
iöng. Þegar er komin uppfylling
að austanverðu. Vegagerðin hefur
undirbúið brúargerðina með því
að reka niður staura og stálþil
undir stöpla hennar. Brúargerð-
inni á að ljúka fyrir lok næsta árs.
Noregur:
Sýking í laxeldisstöðvum
veldur gífurlegum skaða
Allur fískur í 25 stöðvum verður drepinn
Osló, 29. nóvember. Krá Jan Krik Laure, fréttariiara Morgunblaósins.
Landbúnaðarráðuneytið í Noregi hefur ákveðið hvernig skuli staðið að
baráttunni við laxasjúkdóminn „furunkulose'*. í þeim eldisstöðvum þar sem
sjúkdómsins hefur orðið vart skal drepa allan fisk fyrir 1. júní á næsta ári.
Auk þess mun nokkur tími verða að líða áður en starfsemi verður aftur
hafin í stöðvunum með nýjum seiðum og bannað verður að flytja fisk til
eða frá sýktu svæðunum.
Mönnum stafar engin hætta af hans fyrst vart í júní sl. í seiðum,
þessum sjúkdómi en laxinn dregur sem flutt voru inn frá Skotlandi,
hann hins vegar til dauða. Varð og herjar nú á 25 eldisstöðvar, á
24 í Ytri-Namdal og á eina í Hitru
í Norður-Þrændalögum. Keyptu
þær allar skosku seiðin. Fjár-
hagslegar afleiðingar sjúkdómsins
eru skelfilegar og ekkert vafamál,
að margar stöðvanna munu verða
gjaldþrota. Annar sjúkdómur,
Hitra-sýkin svokallaða, hefur
kostað laxeldið í Noregi yfir 800
millj. ísl. kr. og búist er við, að
sjúkdómurinn „furunkulose" verði
atvinnugreininni jafnvel enn
þyngri í skauti.
Við laxadrápið verður að gæta
mikillar varúðar til að engin hætta
sé á frekara smiti. Var byrjað á
drápinu fyrir nokkru en nú hefur
það verið stöðvað þar sem ekki
þótti tryggt, að nógu vel væri að
því staðið. Hefur verið ákveðið að
koma upp fáum sótthreinsuðum
sláturstöðvum og verður allur lax
fluttur þangað.
j^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
HANf)J GILDIR
VIÐA
VINNINGSMIÐINN
í LANDAPARÍS
VANDINN ERAÐVEL/A.
HUÓMLEIKAR - SÖNGLEIKIR
- ÓPERUR - LEIKSÝNINGAR
n
Hljómleikar með Dire Straifs eða
Diönu Ross í London.
Söngleikurinn Cats í New York
eða Starlight Exprés í London.
Sýning í Konunglega leikhúsinu
í Kaupmannahöfn.
Sýning hjá Leikfélagi Akureyrar eða
í íslensku óperunni.
KVÖLDVERÐIR
SKEMMTANIR
Rauða myllan í París. Ögleymanlegt
œvintýri.
Lídó í Amsterdam. Kvöldverður og
skemmtun við allra hæfi.
La Cocotte, hinn rómaði franski
veitingastaður í Kaupmannahöfn.
Arnarhóll í Reykjavík
Einstakf kvöld fyrir fjóra.
Hinn víðfrœgi Sjalli á Akureyri.
Kvöldskemmfun fyrir fjóra.
SIGLINGAR
- SKOÐUNARFERÐIR
Dagsferð frá Amsferdam til Brússel
eða Antwerpen.
Skoðunarferð frá París til Versala,
hallar Sólkonungsins.
Sigling umhverfis Manhaftan,
eyju þeirra New York búa.
Kvöldsigling um síki Amsterdam við
kertaljós og Ijúfar veigar.
Bílaleigubíll í viku á Akureyri eða í
Reykjavík 700 km aksfur innifalinn.
SÓL OG SJÓR - SKÍÐI OG SNJÓR ^
Blikandi haf og sólríkar strendur
umhverfis Kanaríeyjarnar.
FLUG
Á 9 ÁFANGASTAÐI
Fannhvítar skíðabrekkur í austurrísku
Ölpunum og skíðakennsla fyrir þá
sem vilja.
GISTING Á FYRSTA FLOKKS HÓTELUM
París - London - New York -
Amsferdam - Kaupmannahöfn -
Ausfurríki - Kanaríeyjar með viðkomu
í Amsterdam - Reykjavík - Akureyri.
UJMAR ÞU A VINNINGSMIÐA?
GÆTTU ÞESSÞÁAÐ GREJDA HANN.
niaMiniÐiiHiHmrainn
8 HKH IAI UmI &m£ IttS BJH IIII BmI HJB
pire
1045
StoASTEN EKKJSIST:
VINNINGSHAFAR VELJA SfÁLFIR
MILLIÁFANGASTAÐA.
GYLMIR/SÍA