Morgunblaðið - 01.12.1985, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. DESEMBER1985
B 25
'*>> 'MkWkitl
*t*í >*ffi
’ * - * á iííi *if f
* + * > * *ii* •
svarað „Polite, polite", sem einnig
þýðir kurteist, háttprútt.
Talsmenn leiðtoganna gátu ekki
svarað málefnalegum spurningum
eftir að fréttabann var sett á eftir
fyrsta fundinn. Spurningarnar á
fundum með þeim voru því af ýmsu
tagi. Sovétmenn hrukku alltaf í
baklás og fóru í varnarstöðu þegar
minnst var á mannréttindamál en
voru hins vegar tilbúnir að svara
spurningum um Afganistan. Þeir
voru heldur stirðir og kaldranaleg-
ir í upphafi fundarins en þegar á
leið liðkaðist um málbeinið á þeim
og þeir urðu sjálfsöruggari.
Frammistaða þeirra var mun betri
en á fréttamannafundi í Genf fyrir
tæpu ári en þeir standa Banda-
ríkjamönnum enn ansi langt að
baki í samskiptum við fjölmiðla.
Larry Speakes, talsmaður Reag-
ans, fékk nokkuð ólíkari spurning-
ar en Leonid M. Zamyatin, tals-
maður Gorbachevs. Hann var ekki
spurður pólitískra spurninga,
kannski vegna þess að hann hélt
fundi sína í bækistöðvum frétta-
manna úr Hvíta húsinu í Inter-
continental hótelinu, en þurfti
hins vegar að svara því hvort
Reagan hefði verið í síðum nær-
buxum þegar hann gekk út með
Gorbachev. Hann var það ekki. Það
lá yfirleitt vel á honum og hann
spurði fullorðna, gráhærða blaða-
konu úr Hvíta húsinu hvort hún
hefði enn einu sinni verið úti að
skemmta sér með Gromyko þegar
hún spurði hvort það væri rétt að
Andrei Gromyko, forseti Sovét-
ríkjanna, væri staddur í Genf.
Hann var ekki í borginni.
Fréttabanninu af fundinum var
komið á fyrir tilstilli George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna. Það kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti en hefði ekki átt
að koma neinum á óvart. Svipað
fréttabann ríkti á fundi Shultz
með Gromyko, sem þá var utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna, í
Genf í janúar og þótti takast vel.
Shultz veit af fyrri raun að Sovét-
menn geta verið harðir í horn að
taka og fallast helst ekki á neitt
Raisa og Nancy takast í hendur
í Genf.
fyrr en í fulla hnefana. Eilífar
fréttir af þrasi og ósamkomulagi
hefðu ekki gefið góða mynd af
fundinum. Hann þótti hafa tekist
vel þegar leiðtogarnir kvöddust
þótt ekkert hefði miðað í sam-
komulagsátt um geimvarnarkerfi
Bandaríkjamanna eða vígbúnaðar-
mál yfirleitt. Sama ályktun hefði
varla verið dregin ef það hefði
verið vitað að Reagan stakk upp á
að þeir Gorbachev gengju út og
fengju sér frískt loft á þriðjudegin-
um #ftir að Gorbachev talaði sig
Raisa fékk bara Ijósrit
Báðir leiðtogarnir voru ánægðir
eftir fundinn. Þeir gáfu út sameig-
inlega yfirlýsingu sem var mjög
erfitt að komast að samkomulagi
um. Shultz, sem þykir með rólegri
og yfirvegaðri mönnum, missti
þolinmæðina lokakvöldið og benti
á Kornienko, varautanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, og sagði að
það væri ómögulegt að vinna með
þessum manni. Reagan sagði þá
við Gorbachev: „Til andskotans
með það sem þeir eru að gera. Þú
og ég munum segja: „Við ætlum
að vinna saman“,“ og þeir tókust
í hendur upp á það.
Reagan benti Gorbachev á að
þeir væru af svipuðum uppruna á
fyrsta fundi þeirra. Báðir eru
komnir af alþýðufólki í dreifbýli
og hafa unnið sig upp. „Og nú
stöndum við hér og heimurinn
væntir mjög mikils af okkur,“
sagði Reagan. Þeir gátu verið
ánægðir með fundinn. Konur
þeirra höfðu staðið sig vel og vakið
upp í æsing um geimvarnarkerfið.
Hann neitaði að trúa að Banda-
ríkjamenn ætluðu ekki að nota það
til að geta skotið fyrsta kjarnorku-
skoti á Sovétríkin án þess að þurfa
að óttast skot á móti. Hann vildi
fá Reagan til að semja um að
geimvarnarkerfi yrðu ekki byggð
áður en það yrði um seinan. Sam-
ræðurnar voru komnar í hnút og
þá stakk Reagan upp á gönguferð-
inni.
Kveikt upp f arninum
Nancy Reagan hafði komið auga
á húsið í garðinum skammt frá
Fleur d’Eau, þar sem fyrri fundur
leiðtoganna fór fram. Hún hafði
bent Reagan á að það gæti verið
gott að fá Gorbachev út í stuttan
göngutúr ef viðræðurnar gengju
illa og þess vegna var kveikt upp
í arninum í garðhúsinu til vonar
og vara. Reagan talaði um geim-
varnarkerfið svo lengi að Gorba-
chev þurfti að benda honum á að
leyfa túlkunum að komast að til
Úr veizlu Bandaríkjaforseta fyrir
rússnesku gestina í Genf.
að þýða orðaflauminn yfir á rússn-
esku. Gorbachev sagði Reagan á
leiðinni niður að húsinu að hann
hefði horft á nokkrar kvikmyndir
með honum og sér þætti mest varið
í „King’s Row“. Reagan var mjög
ánægður með það, hann leikur
ungan mann sem missir báða
fæturna í myndinni.
Gorbachev sannaði á fundi með
fréttamönnum að hann getur talað
ansi lengi sjálfur án þess að leyfa
öðrum að komast að. Hann er
augsýnilega ákveðinn maður og
veit hvað hann vill. Hann er fljótur
að taka ákvarðanir og hefur ekki
fyrir því að ráðfæra sig við ráð-
gjafa sína í tíma og ótíma. Það var
t.d. verið að taka myndir af honum
með Reagan þegar Zamyatin, tals-
maður hans, agði honum á rússn-
esku frá tillögu Bandaríkjamanna
um fréttabannið. Gorbachev hafði
ekki einu sinni fyrir því að líta á
Zamyatin en svaraði strax: „Við
göngum að því.“ Eitt sinn þegar
hann var búinn að tala lengi um
geimvarnarmálin við Reagan
klykkti hann út með að benda á
forsetann og segja: ISvaraðu, svar-
aðu, svaraðu." Reagan var hinn
rólegasti og svaraði á föðurlegan
hátt: „Ég skal gera það ef þú leyfir
mér að komast að.“
Villa Saussure — dvalarstaður
Reaganhjónanna í Genf.
mikla athygli. Nancy Reagan
heimsótti heimili fyrir eiturlyfja-
neytendur og kvaddi unga heimil-
ismenn á svo hjartnæman hátt að
þeir sem sáu til fengu næstum því
tár í augun. Raisa Gorbachev
skoðaði sig um í Genf og þótti
horfa all græðgislega á gamlar
verðmætar klukkur á klukkusafni.
Hún skoðaði háskólabókasafnið og
sagðist vilja eignast gömul bréf
og minnisnótur sem Lenin skrifaði
og eru í eigu safnsins. Hún tók því
miður vel þegar henni var sagt að
hún gæti aðeins fengið Ijósrit af
bréfunum en ekki frumritin. Leið-
togafrúrnar brostu sætt hvor til
annarrar. Raisa svaraði spurning-
um fréttamanna góðlátlega en
Nancy virtist pirruð á frekjunni í
þeim, þær sumbluðu te og voru
eiginmönnum sínum til sóma.
Leiðtogarnir ætla að hittast að
nýju í Washington á næsta ári.
Heimurinn, sem væntir svo mikils
af þeim, sættir sig þá varla við það
eitt að þeir geti talað saman. Þeir
verða þá væntanlega að komast
að samkomulagi um eitthvað bita-
stætt til að fundurinn þyki takast.
ab
BJARNi LARENTStNUSSON. TENÖR
NJALL ÞORGC3RSSON, BARlltVN
JÓHANNA CUÐMUNÓSDÖmR. PlANÓ
Gömlu góöu lögin
á nýrri hljómplötu
17 úrvals sönglög
M.a. í fyrsta sinn ég sá þig,
Ég er hinn frjáisi förusveinn,
Svanasöngur á heiöi, Þú komst
íhlaöiö, Enn syngur vornóttin.
Ég vildi aö ung ég værirós
Útgefandi:
FERMATA
Dreifing:
FÁLKINN
Hugheilar þakkir til Skipaútgerdar ríkisins,-
skipshafna hennar og annarra samstarfs-
manna og vina til lands og sjávar er glöddu
mig meö gjöfum og hamingjuóskum á sjötugs-
afmæli mínu.
Bogi Einarsson.
Öllum þeim sem heimsóttu mig ogfaeröu mér-
gjafir og heillaóskir í tilefni af 95 ára afmœli
mínu þann 26. nóvember síöastliöinn, færi ég
mínar innilegustu þakkir.
Guðjón Benediktsson, vélstjóri,
Hrafnistu, Hafnarfírði.