Morgunblaðið - 01.12.1985, Qupperneq 28
28 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. DESEMBER1985
Hjálparsveit skáta Reykjavík stendur á
tímamótum. Nýtt húsnæði sveitarinnar á
Snorrabraut veröur vígt og formlega tekið í
notkun í dag sunnudag, og er þar fullkomin
aðstaða fyrir fjölþætta starfsemi hennar.
„Vissulega erum við skuldugir eins og aðrir
húsbyggjendur,“ segja þeir Jón Baldursson,
sveitarforingi og Kristinn Ólafsson í stjórn
HSSR. „Okkur leiddist hins vegar barlómur,
auk þess sem hann fer með móralinn meðal
félaganna. Menn eru hér vegna félagsskapar
ins og meðan þeir koma hans vegna erum
við ánægðir.“ Til að fullkomna afneitun sína
á barlómi og til að sýna þakklæti sitt fyrir
veittan stuðning borgarbúa þótti félögum
sveitarinnar vel við hæfi að halda upp á
tímamótin með hátíð fyrir almenning við
skátahúsið í dag.
Hjálparsveitin æfir mikið á jöklum uppi.
Ljósmynd/HB.
Nú förum við að
rækta rósagarðinn
Tímamót í starfi
Hjálparsveitar skáta
Rætt við sveitarfor-
ingjana Jón Baldurs-
son og Kristin
Ólafsson
Ekki er að ástæðu-
lausu sem félagar
sveitarinnar fagna
þessum tímamót-
um því breytingin
á aðstöðunni er
nánast bylting.
Sveitin hafði aður aðsetur í knappt
mannhæðarháum kjallara undir
Ármúlaskóla og var á hrakhólum
með bíla sína. Nýja húsnæðið er
rúmgott og sérsniðið að þórfum
hjálparsveitarinnar. Inn í það var
flutt fyrir tveimur árum, en aðeins
eru liðnar nokkrar vikur frá því
lokið var við helstu innréttingar.
Ein meginástæðan fyrir hve rólega
hefur gengið með framkvæmdir
er að samhliða þeim hefur tækja-
Ljósmynd/KMB.
Á leið á æfingu með Hjálparsveitinni í Vestmannaeyjum. Félagar í Hafnarfirði og Reykjavík fóru þangað á slöngu-
bátum.
kosturinn verið endurnýjaður og
hefur Hjálparsveit skáta Reykja-
vík aldrei verið jafn vel búin til
að mæta neyðarútköllum og sinna
björgunarstörfum og nú.
Starfað nánast
öllum stundum
Hjálparsveitin vinnur eftir
starfsáætlun sem samþykkt er á
sveitarfundum og hafa því allir
félagar atkvæðisrétt um hana.
Hefð er komin á að nota þriðju-
dagskvöldin fyrir stuttar æfingar
og fræðslu, en auk þess eru 2—3
helgar í mánuði notaðar fyrir ferð-
ir og lengri námskeið.
Sveitinni er skipt í fjóra al-
menna flokka og skipta þeir með
sér umsjón á starfsáætlun eru
starfandi bílaflokkur, beltatækja-
flokkur, fjallaflokkur, varamanna-
flokkur og nýliðaflokkur, en í
honum starfa nýir félagar í eitt ár
áður en þeir verða fullgildir, það
er ef þeir hafa staðist settar kröf-
ur.
„Meðan við vorum inni í Ármúla
voru þeir áhugasömustu oft eitt-
hvað að sýsla, en eftir að við flutt-
um hingað úr þrengslunum eru
menn að nánast öllum stundum,"
segir Jón Baldursson um hvort
aðstæðurnar hafi ekki breytt
starfinu.
Erfiðari ferðir á
óskalistanum
Rjóminn af starfsáætluninni eru
lengri ferðirnar eins og hin árlega
Vatnajökulsferð að mati þeirra
félaga Jóns og Kristins. „Ég vildi
geta gert meira fyrir mannskap-
inn,“ segir Jón og á óskalistanum