Morgunblaðið - 02.10.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2, OKTÓBER 1986
Lágt verð á
ferskum karfa
VERÐ á ísfiski hcfur verið frem-
ur lágt eriendis í þessari viku,
einkum verð á karfa í Þýzkal-
andi vegna mikils framboðs. Á
hinn bóginn hefur framboð á
ísfiski héðan í Bretlandi verið
Menntaskólinn
í Reykjavík:
Starfað í
Reykjavík
í 140 ár
með minna móti. Alls hafa verið
seldar um 500 lestir af fiski héð-
an úr gámum í Bretlandi i
vikunni og fiskiskip hafa landað
um 665 lestum, mest karfa í
Þýzkalandi. Tvö skip selja afla
sinn í Bretlandi í dag og eitt í
Þýzkalandi.
Á mánudag seldi Dagrún ÍS 204
lestir, mest karfa í Bremerhaven.
Heildarverð var 8.156.000 krónur,
meðalverð 39,98. Á mánudag og
þriðjudag seldi Júlíus Geirmundsson
IS 220,4 lestir af karfa í Cux-
haven. Heildarverð var 7.940.300
krónur, meðalverð 36,03. Loks seldi
Viðey RE 240,3 lestir af karfa í
Bremerhaven á þriðjudag og mið-
vikudag. Heildarverð var 10.039.
000 krónur, meðalverð 41,78.
LIÐIN eru 140 ár frá því að
Menntaskólinn í Reykjavík
flutti frá Bessastöðum tíl borg-
arinnar, 1. október 1846.
Skólinn er elsti starfandi skóli
í Reykjavík.
Fyrsti rektor Menntaskólans
eftir að hann flutti til Reykjavíkur
var Sveinbjöm Egilsson skáld, en
hann hafði verið kennari Bessa-
staðarskóla. Sveinbjöm var rektor
fyrstu fímm árin eða fram til 1851
og voru sextíu nemendur við skól-
ann fyrsta árið, fímm fastakennar-
ar og einn stundakennari. Á þeim
fímm árum sem Sveinbjöm var
rektor útskrifuðust fjörtíu og þrír
stúdentar. Nemendur skólans í
vetur eru rúmlega átta hundruð
að sögn Guðna Guðmundssonar
rektors og kennarar vel yfír sextíu.
Á mánudag vom seldar 353 lest-
ir af físki úr gámum, mest þorskur.
Heildarverð var 20.934.800 krónur,
meðalverð 59,31. Á þriðjudag var
seld 97,1 lest úr gámum. Heildar-
verð var 5.844.200 krónur, meðal-
verð 60,19. Á miðvikudag vom svo
seldar 74 lestir úr gámum. Heildar-
verð var 3.916.300 krónur, meðal-
verð 53,10.
Morgunblaðið/ Amór Ragnarsson
Áreksturinn á Reykjanesbraut í gœr var mjög harður, eins og sést á þessari mynd af fólksbifreiðinni.
Reykjanesbraut:
Þrír í slysadeild
HARÐUR árekstur varð á
Reykjanesbraut um 4 kílómetra
innan við Vogaafleggjara í
gærmorgun. Voru þrir fluttir á
slysadeild og munu meiðsli
tveggja vera alvarleg.
Lögreglunni í Keflavík barst
tilkynning um slysið klukkan 7:30
í gær. Varð áreksturinn með þeim
hætti að jeppabifreið, sem var
ekið í átt til Reykjavíkur, snerist
á brautinni vegna mikillar hálku.
Fólksbifreið, sem kom úr gagn-
stæðri átt, skall á jeppanum, sem
valt út af veginum. Ökumenn
beggja bifreiðanna og farþegi í
jeppanum vom fluttir á slysadeild.
Lögreglan í Keflavík beinir
þeim tilmælum til ökumanna að
þeir aki varlega um Reykjanes-
braut, nú þegar frysta tekur.
Arðsemi hlutabréfa allt
að 25% umfram verðbólgu
r
Morgunblaðið/Július
Flaggað var við Menntaskólann
í Reykjavík í gær í tilefni þess
að 140 ár voru liðin frá þvi skól-
inn var fyrst settur í Reykjavík.
EIGIÐ fé allra hlutafélagabanka
hér á landi jókst á árunum 1983
til 1985. Þetta kemur fram í
tímaritinu Vísbendingsem kom
út í gær, en þar er að finna nýja
samantekt um hag nokkurra
hlutafélaga. í sama hefti tíma-
ritsins er bent á að arðsemi
hlutabréfa geti orðið allt að 25%
umfram verðbólgu.
Hlutafélögin sem Vísbending
flallar um em 14 að tölu og flest
uppfylla nú þegar skilyrði ríkis-
skattsstjóra til að einstaklingar
megi draga kaup á hlutabréfum
þeirra í ár frá skatti á næsta ári.
í viðskiptablaði Morgunblaðsins
í dag er birt yfírlit yfír afkomu og
helstu kennitölur úr ársreikningi.
Það kemur fram að afkoma fyrir-
tækjanna var yfírleitt góð og hafa
þau skilað arði auk þess sem gefín
hafa verið út jöfnunarhlutabréf.
Þannig ættu kaup á hlutabréfum
fyrirtælq'anna að vera góður kost-
ur, sérstaklega fyrir þá einstaklinga
sem greiða skatt í hæsta þrepi og
geta nýtt sér skattfrádráttinn.
í yfírliti sem birtist í sama hefti
Vísbendingar er bent á að ávöxtun
á hlutabréfum getur orðið allt frá
8,1% til 15,2% á ári umfram verð-
bólgu, eftir því hvaða verðbólgufor-
sendur em gefnar. Þá er reiknað
með að skattfrádráttur nýtist að
fullu, greiddur sé 5% arður af hlut-
afé og söluverð sé 75% af kaupverði
með fullum verðbótum. Sé hins veg-
ar miðað við að söluverð sé 100%
af kaupverði með verðbótum, getur
arðsemi hlutabréfa verið allt að
SEXTÁN flugmenn Amarflugs
hættu störfum S gær. Þá átti að
25%. Yfírlit yfír arðsemi hlutabréfa
er birt á blaðsíðu 2 í viðskiptablaði.
Sjá einnig B-6
greiða þeim laun samkvæmt
samningi Félags Sslenskra at-
vinnuflugmanna við félagið frá
20 júli sl., en af þvi varð ekki.
Að sögn Skúla Guðjónssonar
formanns Félags Islenskra atvinnu-
flugmanna, kærði félagið Amarflug
til rannsóknarlögreglunnar fyrir
fjárdrátt sl. vor. Eftir að samkomu-
lag tókst við félagið 20. júlí um
lausn á ágreiningnum, þ.e. að gert
yrði upp við þá starfsmenn sem
létu af störfum hjá félaginu, var
fallið frá kærunni. Ekki hefur verið
staðið við samkomulagið til þessa
en á fundi sem haldinn var með
stjómarformanni og framkvæmda-
stjóra félagsins sl. þriðjudag, var á
ný undirritaður samningur um fyrra
samkomulag frá því I júlí.
„í dag reyndi á samninginn þeg-
ar 16 flugmenn létu af störfum.
Þá virtist samkomulag sem fram-
kvæmdastjóri og stjómarformaður
undirrituðu tólf tímum áður ekki
vera pappírsins virði. Það er ekkert
á þessa menn að treysta," sagði
Skúli. „Þessi deila gæti endað með
því að við bönnum öllum félögum
I Félagi íslenskra atvinnuflug-
manna að fljúga fyrir félagið."
Edward J. Derwinski, aðalsamningamaður Bandaríkjastjómar:
Engir baksamningar gerð-
ir við Rainbow Navigation
BÚIST er við því, að utanríkis-
málanefnd öldungadeildar
Bandarikjaþings afgreiði f dag
lagafrumvarpið til lausnar Ra-
inbow Navigation-deilunni. Það
verður síðan hlutskipti for-
manna þingfiokka demókrata
og repúblikana í deildinni, að
ákveða hvenær umræður og
atkvæðagreiðsla um frumvarp-
ið fara fram. Þetta kom fram
á símafundi íslenskra blaða-
manna með Edward J. Derw-
inski, aðalsamningamanni
Bandaríkjastjórnar f málinu, f
gær.
Derwinski sagði, að frumvarpið
nyti stuðnings helstu áhrífamanna
I báðum flokkunum og taldi að
ekki yrði um neina markverða
andstöðu gegn því að ræða. And-
staða hefði heldur ekki komið frá
hagsmunaðilum. Forráðamenn
Rainbow Navigation-skipafélags-
ins styddu samninginn og gerðu
sér grein fyrir því, að hann væri
allra hagur.
Derwinski kvaðst ekki geta
svarað því, hvort það mat Mark
Younge, forstjóra Rainbow Nav-
igation, að félagið hefði sömu
tekjur af siglingunum til fslands
eftir samkomulagið og fyrir það,
væri rétt. Hann kvaðst eingöngu
hafa haft með samninginn við
íslendinga að gera og I honum
væri ekkert um þetta atriði að
fínna. Hann neitaði því hins vegar
eindregið, að gerðir hefðu verið
baksamningur við fyrirtækið. Hið
eina, sem samið hefði verið um,
væri að finna I lagafrumvarpinu
og viðaukum þess og þar væri
skipafélagið sjálft ekki einu sinni
neftit á nafn.
Arnarflug:
16 flugrnenn
hættu í gær