Morgunblaðið - 02.10.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986
STÁLVÍRAR
GRANNIR - SVERIR -
MARGAR GERÐIR
KAÐLAR
LANDFESTARTÓG
FISKIHNÍFAR
STÁLBRÝNI
FÓTREIPISKEÐJA OG ALLS
KONAR KEÐJUR
AKKERIOG DREKAR
BJARGHRINGIR OG VESTI
SKOÐUNARBÚNAÐUR
ÍÖLLSKIPOG BÁTA
☆
BRUNATENGI
BRUNASLÖNGUR
ABA-SLÖNGUKLEMMUR
VERKFÆRA-
ÚRVALFRÁ
4
FLAGGSTANGIR -
8METRA
FLAGGLÍNUR OG
HÚNAR
ÍSLENSKiR FÁNAR
FLESTIR ÞJÓÐFÁNAR
☆
STILL-LONGS
ULLARNÆRFÖT
NÆLONSTYRKT
DÖKKBLÁ FYRIR
BÖRN OG FULLORÐNA
SOKKAR
MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI
REGNFATNAÐUR
KULDAFATNAÐUR
VINNUFATNAÐUR
VINNUHANSKAR
111-1; I r|
/Mcuidin*
OLÍUOFNAR
BORÐLAMPAR
HENGILAMPAR
VEGGLAMPAR
GASLUKTIR
OLÍUHANDLUKTIR
OLÍULAMPAR
KONGSBERG
RECORD
MÚRARAVERKFÆRI
BORAR ALLSKONAR
SMERGELSKÍFUR
BRÝNI
SMUROLÍUKÖNNUR
ÁHELUNGARKÖNNUR
TRÉSMÍÐAVERKFÆRI
RÖRLAGNA-
VERKFÆRI
☆
MÁLNING OG LÖKK
ALLIR LITIR OG ÁFERÐIR Á
VEGGI, GÓLF, GLUGGA,
VINNUVÉLAR OG SKIP.
HITAÞOLINN LAKKÚÐI,
MARGIR LITIR.
BLAKKFERNIS.
HRÁTJARA - CARBOLÍN
GÚMMÍSLÖNGUR
V*—2“
PLASTSLÖNGUR
GLÆRARMEÐOGÁN
INNLEGGS
Vw“-1V«“
SLÖNGUKLEMMUR
BRUNASLÖNGUR
SLÖNGUTENGI
BÓMULLARGARN
HVÍTT í RÚLLUM
FLEIRISVERLEIKAR
NÆLONGARN
FLEIRISVERL.
SNÚRUR
FLÉTTAÐAR
•
INDVERSKAR
KÓKOSDYRA
MOTTUR
5 STÆRÐIR
GÚMMÍMOTTUR
MOTTUGÚMM
NETDÚKUR
UNDIR MOTTUR
POLYFILLA
FYLLINGAREFNI
MÁLNINGARAHÖLD
RÚLLUR, PENSLAR, MÁLNINGARBAKKAR OG
SKÖFUR - OG ALLT ANNAÐ SEM TIL ÞARF
M.A. ÁLTROPPUR OG STIGAR, MARGAR
STÆRÐIR
Ánanaustum, GrandagarAi 2, sfmi 28855.
Skemmtikraft-
ur Kölska
eftir Harald Blöndal
„Guði sé lof það var bara arsenik. Stjórnin.“
(Halldór Laxness, Guðsgjafaþula).
Árni Einarsson heitir starfsmað-
ur Áfengisvamaráðs. Hann ritaði
grein í Morgunblaðið þriðjudaginn
23. september um bjór og er þeirri
kenningu trúr, að bjór sé sá drykk-
ur, sem mestri ógæfu hafi valdið í
siðmenntuðum heimi. Ámi má hafa
þessa skoðun mín vegna. Ég hef
hins vegar aldrei skilið, að mörk
gæfu og ógæfu séu fólgin í því að
drekka bjór, sem er veikari en
2,25% að styrkleika miðað við rúm-
mál.
Í þessari grein sinni segir Ámi
m.a.:
„Saman hefur farið aukin heild-
ameysla áfengis, fjölgun fullorð-
inna neytenda, aukin og almennari
áfengisneysla meðal bama og ungl-
inga og aukin neysla annarra
vímuefna. En neysla þeirra efna er
nátengd áfengisneyslunni og bar-
átta gegn þeim er hjóm eitt ef
áfengi er undanskilið.“
Hér lýgur Ámi Einarsson og
hann veit það vel. Þessi ummæli
hans skýra hins vegar vel, af hveiju
böm og unglingar líta á Áfengis-
vamaráð sem stofnun skrípakalla
og vitleysinga, og eru að því leyti
til sammála flestu fullorðnu fólki í
landinu.
Ámi Einarsson heldur fram í til-
vitnuðum orðum, að útilokað sé að
beijast gegn ávana- og fíkniefnum
nema með því að beijast gegn
áfengi. Þetta er rangt. Langstærst-
ur hluti íslendinga notar áfengi, og
áfengi er hluti af neyzluvörum
þeirra. Þessu fólki þykir sjálfsagt
að nota vín með mat, bjóða kunn-
ingjum áfengi, skála fyrir nýju ári.
Böm þessa fólks alast upp við, að
notkun áfengis áe sjálfsögð og eðli-
leg.
Ég fullyrði, að það heyrir til
hreinna undantekninga, ef böm al-
ast upp við það að líta áfengi sömu
augum og ávana- og fíkniefni.
Afengi er löglegt í landinu og
það er öllum refsilaust að drekka
það, — þótt það sé refsivert að veita
unglingum innan 18 ára aldurs
áfengi.
Á hinn bóginn er öll meðferð
ávana- og fíkniefna bönnuð í
landinu. Það er refsivert að hafa
slík efni undir höndum og varðar
allt að 10 ára fangelsi. Neyzla þess-
ara efna er refsiverð með sama
hætti. Þannig hefur Alþingi gert
skýran greinarmun á áfengi annars
Haraldur Blöndal
Þannig hefur Alþingi
gert skýran greinar-
mun á áfengi annars
vegar og ávana- og
fíkniefnum hins vegar.
Þessi sami munur er
gerður um allan heim.
Engum heilvita manni
dettur í hug að leggja
neyzlu ávana- og f íkni-
efna og áfengisneyzlu
aðjöfnu.
Sekt — eða
sakleysi?
eftir Lilju S. Kristjánsdóttur
Gamall málsháttur segir að svo
megi brýna deigt jám, að það bíti.
Svo er mér farið nú.
Sjaldan birti ég í blöðum skoðan-
ir mínar á hinum ýmsu málefnum
þjóðfélagsins. En nú ofbýður mér
svo hvemig fjölmiðlar fjalla um
Hjálparstofnun kirkjunnar og
starfsmenn hennar, að ég get ekki
orða bundist.
Mér er þó ekki málið skylt að
öðru leyti en því að ég er meðlimur
þjóðkirkjunnar og hef árlega lagt
fram skerf minn til hjálparstarfs-
ins. Mig hefur langað að liðsinna
meðbræðrum í neyð hvar sem þeir
em og hvaða litarhátt sem þeir
hafa. Þegar fregnir hafa borist af
góðum árangri starfsins, oft björg-
un margra mannslífa, hefur það
glatt mig að geta verið þátttakandi
í slíku verki. Þær góðu fréttir virð-
ast víða gleymdar nú. En látum það
. liggja milli hluta.
Hitt undrar mig meira að §allað
er um þetta mál eins og sekt þeirra
manna, sem borið hafa ábyrgð á
starfi og fjármálum stofnunarinnar,
sé sönnuð.
í bemsku var mér innrætt að
trúa ekki að óreyndu illmælgi um
náungann og taka aldrei þátt í
slíkum söguburði. Skóli lífsins hefur
einnig kennt mér að engan megi
dæma sekan fyrr en sekt hans er
sönnuð. Mannlegt eðli er þannig,
að flestum virðist auðveldara að
trúa illum sögum en góðum um
náungann. Þó að sakleysi hans komi
síðar í ljós, er oft búið að sverta
mannorð hans þannig, að margir
efast um sannleiksgildið. Skuggi
tortiyggni og vantrausts getur
þannig fylgt heiðvirðum manni um
langa ævi og verið honum sjálfum
og vandamönnum hans sífelld þján-
ing.
Þess vegna vil ég mælast til þess,
að þeir Qölmiðlar sem eru hér á
heimilinu, heimilisvinir mínir, fjalli
um mál Hjálparstofnunar kirkjunn-
Lilja S. Kristjánsdóttir
ar á hlutlausan hátt uns búið er
að rannsaka það til hlítar. Biðtíminn
ætti varla að verða mjög langur.
En blöðin, sem virðast helst lifa
á því að smjatta á ávirðingum ná-
ungans, hvort sem þær eru sannar
eða lognar, get ég forðast og geri
það.
Hveijir skyldu annars verða fyrir
árás næst?
Höfundur er húsmóðir í
Reykjavík.
Lionsklúbburinn Týr;
Kvennakvöld
áSögu
LIONSKLÚBBURINN Tfyr held-
ur árlegt kvennakvöld i Átthaga-
sal Hótel Sögu föstudaginn 3.
október. Þetta er þriðja árið í
röð, sem klúbburinn stendur fyr-
ir kvennakvöldi og rennur aUur
ágóði af skemmtuninni til grein-
ingarstöðvar fyrir fjölfötluð
börn I Kjarvalshúsi.
í frettatilkynningu frá Lions-
klúbbnum segir að gestir á kvenna-
kvöldinu muni mæta til leiks kl.
19:00 en borðhald heflist kl. 19:30.
Meðal skemmtiatriða verður tísku-
sýningu, sem aðstandendur kvenna-
kvöldsins fullyrða að verði fremur
sérstæð. Ræðumaður kvöldsins er
Kristín S. Kvaran, alþingismaður
og fóstra. Aðgöngumiðamir gilda
einnig sem happdrættismiðar.
Seltjamamesi sl. laugardag.
Kvöldskemmtunin er opin öllum
konum, en talið er vissara að panta
borð í tíma.
Lionsklúbburinn Týr hefur um
árabil aðstoðað við starfsemina í
Kjarvalshúsi, m.a með tækjagjöfum
og sjálfboðavinnu við lóðafram-
kvæmdir o.fl.