Morgunblaðið - 02.10.1986, Síða 27

Morgunblaðið - 02.10.1986, Síða 27
GOTT FOLK / SÍA MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986 27 ORÐSENDING TIL EIGENDA INN- LEYSANLEGRA SPARISKÍRTEINA Ýmsir keppast nú við að bjóða eigendum spariskírteina betri kjör en ríkissjóður. Áður en þú lætur gylliboð þeirra freista þín skaltu staldra við og velta fyrir þér nokkrum mikilvægum atriðum. Vaxtaloforð verðbréfasjóðanna geta ekki talist traust- •vekjandi, því þar er reiknað með sömu verðbólgu og vöxtum og voru í gildi á síðustu misserum. Þetta er loforð sem erfitt getur reynst að standa við. Auk þess er ekki getið um kostnaðarliði s.s. stimpilgjald sem er 0,5% og innlausnargjald sem er jafnvel allt að 3,0%. Hjá ríkissjóði eru þér tryggðir 6,5% ársvextir umfram verðbólgu og að auki eru skiptiskírteinin eignaskatts- frjáls, en eignaskattur er núna 1,20% á ári. Skipti- skírteinin eru stimpilgjaldsfrjáls og innlausnargjald er ekkert. - Allt þetta hefur áhrif á raunverulega ávöxtun sparifjár þíns. En fleira skiptir máli við fjárfestingu en Verðbréfasalar bjóða þér skírteini með „lágmarks- áhættu“ eða „dálítið meiri áhættu“. Reynslan hefur sýnt að gengi einstakra fyrirtækja getur verið fallvalt og því vafasamt að fjárfesta í skuldabréfum þeirra þótt vextir sýnist álitlegir. Ríkissjóður er traustasti bakhjarl sem völ er á þegar þú vilt ávaxta fé þitt. Á bak við hann stendur öll þjóðin. Spariskírteinin eru algjörlega áhættulaus fjárfesting. í auglýsingum verðbréfasjóða er gjarnan talað um „innlausn daglega“, sem er fullyrðing sem ekki fær staðist. Ef betur er að gáð kemur í ljós að þeir áskilja sér rétt til að fresta innlausn telji þeir ástæðu til. Binditími skiptiskírteinanna er aðeins rúmlega 2 ár en Verðbréfaþing íslands sér til þess að þú getir losað fé þitt þótt binditíminn sé ekki útrunninn, þannig getur þú innleyst spariskírteini þín hvenær sem er. Spariskírteini ríkissjóðs eru innlent lánsfé allra lands- manna. Þau eru hemill á erlendar lántökur og skila þér og þjóðarbúinu í heild góðum arði. Pau stuðla ekki eingöngu að hagnaði einstakra seljenda - heldur þjóðar- innar allrar. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.