Morgunblaðið - 02.10.1986, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986
^■1 LEIÐTOGAFUNDURINN í REYKJAVÍK
Viðbrögðin í Svíþjóð:
Anægja með norrænt
land sem fundarstað
Stokkhólmi, frá Erík Liden, fréttarítara Morgunblaösins.
INGVAR Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, lét í gær í ljós
mikla ánægju með, að væntan-
legan fund þeirra Ronalds
Reagan, Bandaríkjaforseta, og
Mikhails Gorbachev, leiðtoga
Sovétríkianna, skyldi eiga að
halda á Islandi.
„Það er mjög ánægjulegt, að leið-
togar stórveldanna skuli hafa vajið
norrænt land fyrir fund sinn. Ég
vil bara láta í ljós von um, að á
fundinum í Reykjavík verði stigið
skref í átt til afvopnunar og friðar
á jörðu," sagði Carlsson.
Öll stærstu blöðin í Svíþjóð helga
leiðara sína fundinum í Reykjavík.
Expressen, sem er stærsta dagblað
Vladimir Ashkenazy:
Fundirnir koma
Sovétmönnum vel
Ziirich, frá önnu Bjaraadóttur, fréttarítara Morgunblaðsins
„Það kom mér skemmtilega á
óvart þegar ég heyrði að leið-
togar risaveldanna hefðu valið
ísland sem fundarstað," sagði
Vladimir Ashkenazy, þegar
Morgunblaðið náði tali af honum
í Tessín í Sviss á miðvikudag.
„Landið er lítið og rólegt og
tilvalið fyrir þá að hittast þar
miðja vegu milli Sovétríkjanna
og Bandaríkjanna."
„Landfræðilegir þættir hafa
ávallt haft áhrif á hugsunarhátt
Sovétmanna, en ég tel að þeir líti
einnig á íslendinga sem vinaþjóð.
Þeir ógna engum og landið á sér
því sess í hópi hlutlausra þjóða,
þótt það sé í Atlantshafsbandalag-
inu.“
Ashkenazy kom á óvart að hann
skyldi spurður álits á leiðtogafund-
inum. „Eg er ekki pólitískur frétta-
skýrandi," sagði hann, „en hef
auðvitað mínar skoðanir sem al-
mennur borgari. Ég er persónulega
sammála þeim sem telja að leið-
togafundir þjóni litlum tilgangi
nema þeir séu mjög vel undirbúnir
og leiðtogamir komist að samkomu-
lagi um ákveðna hluti og skrifí
undir. Annars eru fundimir lítið
annað en innantóm sýning.
Ég veit af eigin reynslu að fund-
ir sem þessir skipta miklu máli fyrir
sovéskan almenning, eða gerðu það
þegar ég bjó þar fyrir tæpum 25
ámm. Almenningur verður upp-
veðraður af því einu að leiðtogar
tveggja stærstu þjóðanna hittast
en hugsar ekki út í hvaða gagn er
af fundunum. Sovéska stjómin og
kommúnistaflokkurinn hafa gagn
af svona fundum. Auðvitað em
margir á sama máli og ég og sjá í
gegnum sýninguna en þeirra raddir
heyrast ekki opinberlega."
Vladimir Ashkenasy
Norsku dagblöðin:
„Næsta handaband
verður í Reykjavík"
Óaló, frá Jan Erík Laure, fréttarítara Morgunblaðsins.
NORSKU dagblöðin gerðu í gær
mikið úr hinni óvæntu tilkynn-
ingu um fund þeirra Reagans og
Gorbachevs og voru ýmsar bolla-
leggingar um Reykjavíkurfund-
inn og afleiðingar hans.
Aftenposten, stærsta morgun-
blaðið í Noregi, er með fyrirsögnina
„Næsta handaband verður í
Reykjavík" yfír þvera forsíðu og
litmynd af þeim leiðtogunum þar
sem þeir takast í hendur á fundinum
í Genf. Inni í blaðinu var einnig
mikið gert úr fundinum.
I stærsta blaðinu Noregs, síðdeg-
isblaðinu Verdens Gang, reyndist
ekki pláss fyrir fréttina á forsíðu
og hún helguð æsifrétt. Inni í blað-
inu var þó sagt frá leiðtogafundin-
um. I Dagbladet, helsta keppinauti
Verdens Gang, var fréttinni hins
vegar gerð góð skil á forsíðunni
undir fyrirsögninni „fsinn brotinn"
og þannig var það einnig með flest
önnur blöð í Noregi.
Nú þegar em norskir blaðamenn
teknir að streyma til íslands og
má ætla að þeim fari ört fjölgandi
á næstunni.
Leiðtogafundur?
Hártoganir og orðaleikir í samskiptum stórveldanna
MANNKYNSAGAN mun að öll-
um líkindum fjalla um
Reykjavikurfundinn sem ieið-
togafund, en stjómarerindrek-
ar Bandaríkjanna og Sovétrílq-
anna eru síst sáttir um hvað
kalla beri fundinn. Helst er
deilt um orðið „summit“, sem
þýðir ekkert annað en „fundur
þjóðhöfðingja“, en af pólítísk-
um ástæðum hafa báðir aðilar
forðast að nota það orð. Sagt
er að Gorbachev hafi viljað
millispil til að þurfa ekki að
fara beint til Bandaríkjanna
eftir Daniloff-deiluna og brott-
rekstur sovéskra starfsmanna
Sameinuðu þjóðanna.
Hvað er leiðtogafundur? Winst-
on Churchill notaði orðið fyrstur
manna í núverandi merkingu,
þegar hann reyndi að fá leiðtoga
stórveldanna til þess að hittast,
svo binda mætti enda á kalda
stríðið.
Embættismönnum ber hins
vegar ekki alveg sama um hvað
sé leiðtogafundur og hvað ekki.
Shultz hélt því t.a.m. fram á
þriðjudag að ekki væri endilega
um leiðtogafund að ræða þó að
tveir þjóðhöfðingjar kæmu saman
til skrafs og ráðagerða. Einnig
má minna á að Robert McFarl-
ane, þáverandi öryggismálafull-
trúi Reagan, sagði á sínum tíma
að leiðtogafundurinn í Genf væri
ekki leiðtogafundur, heldur ein-
ungis „fundur".
Varaforseti Bandaríkjanna,
George Bush, sagði í sjónvarps-
viðtali fyrir Genfarfundinn að
Reagan hefði gert Gorbachev það
ljóst að hann vildi eiga með honum
venjulegan fund, ekki leiðtoga-
fund. Leiðtogafundur þyrfti
mikinn undirbúning og fæli í sér
að í raun væri búið að ganga frá
flestum endum fyrir fundinn. En
þegar leiðtogamir hittust í Genf
í nóvember sl. kölluðu nær allir
það ieiðtogafund.
Loks má benda á að þegar
fréttamenn spurðu Shultz nánar
um fundinn kallaði einn þeirra til
hans: „en þrátt fyrir allt og allt
er þetta leiðtogafundur". „Mig
minnir að forsetinn hafí kallað
þetta fund“, sagði Shultz, „en það
eruð þið sem gefíð hlutunum nöfíi.
Sé eitthvert mark takandi á
mannkynssögunni, þá munu flest-
ir [ykkar] kalla atburðina á íslandi
hinn 11. og 12. október leiðtoga-
fund“. Og svo mörg voru þau orð.
Þá má benda á það að á banda-
rísku sjónvarpsstöðinni ABC, var
tekin sú ákvörðun að ætíð skyldi
rætt um „leiðtogafund" og ekkert
annað.
á Norðurlöndum, segir t.d., að fund-
urinn í Reykjavík sé til marks um
góðan vilja leiðtoganna og að gleði-
legast sé, að allur aðdragandinn
bendi til þess, að þeir hafí ekki ta-
lið sig geta undan honum vikist. I
leiðara Svenska Dagbladet er því
fagnað, að ísland skuli hafa orðið
fyrir valinu og sagt, að vonandi
muni vingjamlegt viðmót lands-
manna og landsins sjálfs verða gott
vegamesti fyrir fundinn í Banda-
ríkjunum.
Aftonbladet segir undir fyrir-
sögninni „Leiðtogafundur eftir
fangaskipti", að Reykjavík, höfuð-
staður norræns lands, hafí fengið
þann heiður að vera gestgjafí leið-
toga stórveldanna. Er því spáð, að
til tíðinda kunni að draga í af-
vopnunarmálunum þvf að ella hefðu
hvorki Reagan né Gorbachev kært
sig um fund á þessum tíma.
Leiðtogar sænsku stjómmála-
fíokkanna hafa allir tekið undir með
Ingvari Carlsson, forsætisráðherra,
og lýst mikilli ánægju með fundinn
í Reykjavík.
Gro Harlem Brundtland
Fréttiniii
fagnað um
allan heim
Ósló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara
Morgunbladsins.
NORSKIR stjóramálamenn hafa
fagnað væntanlegum leiðtoga-
fundi í Reykjavík og kemur það
fram hjá þeim öllum, að vonandi
muni hann ryðja brautina fyrir
samningum og bæta samskiptin
milli stórveldanna.
„Fréttinni um fund Reagans og
Gorbachevs í Reykjavík hefur verið
tekið með fögnuði og vongleði um
allan heim,“ sagði Gro Harlem
Brundtland, forsætisráðherra.
„Einlægar viðræður em skilyrði
fyrir auknu trausti milli austurs og
vesturs og sambúð stórveldanna
hefur áhrif á öryggi og framtíð
okkar og allra þjóða. Efnahagsmál-
in, samskipti norðurs og suðurs,
verslunarviðskipti og umhverfísmál
koma hér öll við sögu." Brundtland
kvaðst vona, að fundurinn í
Reykjavík ýrði árangursríkur og
sérstaklega hvað varðaði afvopnun-
armálin.
Káre Willoch, fyrrum forsætis-
ráðherra, sagði, að hann hefði orðið
feginn fréttinni um leiðtogafundinn
og kvaðst hann vona, að í Reykjavík
yrðu stigin skref til nýrra samninga
um afvopnunarmál og annarra
deilumála stórþjóðanna í milli.
Anatoly Scharansky
Antatoly
Shcharansky:
Gorbachev
valdi einu
borgina án
gyðinga
London, AP.
„SEM kunnugt er, þá ætluð-
um við gyðingar að efna til
mikils mótmælaf undar í
Washington, þegar Gorb-
achev kæmi. Hann valdi hins
vegar einu höfuðborgina á
Vesturlöndum, þar sem eng-
ir gyðingar eru. Hann valdi
einnig laugardag og Yom
Kippur-hátíðina, en þá er
ókleift fyrir gyðinga að
ferðast." Þetta var haft eft-
ir sovézka andófsmanninum
og gyðingnum Anatoly
Scharansky í Hollandi í gær.
„Ég hef alltaf sagt, að
Gorbachev þekkti Vesturlönd
vel. En ég vanmat það, að
hann hefði jafn góða ráðgjafa,
sem þekkja almanak gyðinga
jafnvel. Engu að síður vona
ég, að við gyðingar eigum eft-
ir að gera þeim Reagan og
Gorbachev það ljóst, hver af-
staða okkar er og að Reagan
muni vetja mannréttindi af
mikilli einurð," sagði Shchar-
ansky ennfremur.
Laugardagar eru helgidag-
ar gyðinga og Yom Kippur,
sem er dagur friðþægingarinn-
ar, er mesta trúarhátíð ársins
hjá gyðingum.
Shcharansky kvaðst hins
vegar fagna því mjög, að
sovézki andófsmaðurinn Yuri
Orlov fengi senn að fara fíjáls
ferða sinna frá Sovétríkjunum.
Hann lét hins vegar í ljós kvíða
yfír því, að svo virtist, sem það
samkomulag, sem Bandaríkja-
stjóm hefði gert við Sovét-
stjómina, léti þeirri síðar-
nefndu í té nýtt vopn til að
vemda njósnara sína.
Með því að „hagnýta sér
aðferðir hryðjuverkamanna og
ræna gíslum, með þvf að nota
bandaríska blaðamenn sem
gísla, getur Sovétstjómin
vemdað njósnara sína,“ sagði
Shcharansky.