Morgunblaðið - 02.10.1986, Page 65
Hjólhestaspyrna Platinis
yljaði áhorfendum í nepjunni
HJÓLHESTASPYRNA Platinis er
hann skoraði fjórða mark Juvent-
us yljaði áhorfendum óneitanlega
í nepjunni í Laugardalnum f gœr-
kvöldi er Valsmenn máttu þola
0:4 tap gegn fyrrum Evrópumeist-
urum Juventus f seinni leik
þessara liða f Evrópukeppni
meistaraliða í knattapyrnu. Þrátt
fyrir þessi úrslit fengu Valsmenn
mörg góð marktœkifœri f leiknum
en það var eins og þeir gœtu
ekki skorað gegn Juventus -
kannski hafa þeir borið of mikla
virðingu fyrir þeim upp við mark-
ið og hreinlega ekki trúað þvf að
þeir gætu skorað. Veðrið meðan
á leiknum stóð var ekki eíns og
knattspyrnuveður gerast best,
hiti um frostmark, norðan gola
og völlurinn mjög blautur og
þungur eftir slydduél fyrr um dag-
inn.
Michel Platini, sem var fyrirliði
Juventus í þessum leik, gaf tóninn
er hann skoraði fyrsta markið strax
á 10. mínútu. Hann fékk þá knött-
inn einn og óvaldaður fyrir mark
Vals, eftir varnarmistök, og skoraði
af öryggi efst í bláhornið, óverjandi
fyrir Guðmund, markvörð. Vals-
menn fengu síðan kjörið marktæki-
færi til að jafna leikinn á 25. mínútu
er Valur Valsson lék laglega upp
að endamörkum, gaf fyrir markið
og þar kom Jón Grétar á fullri ferð
en Tacconi, markvörður, bjargaði
með úthlaupi á síðustu stundu.
• Michael Laudrup skoraðl tvö mörk fyrir Juventus gegn Val f gœrkvöldl. Hér skorar hann fyrra mark sitt f leiknum. Magni Pétursson (nr. 4)
og Bergþór Magnússon reyna að koma vömum við og Hllmar Sighvatsson fylgist með fyrir aftan Laudrup.
Þáttur Laudrups
Michael Laudrup fékk svo
tvívegis dauðafæri áður en hann
skoraði annað markið. Fyrst bjarg-
aði Þorgrímur Þráinsson og síðan
Hilmar Sighvatsson á línu. En
Laudrup átti eftir að koma knettin-
um í netiö og það gerði hann á
31. mínútu. Solda lék þá upp að
endamörkum, gaf fyrir á Briachi
sem framlengdi hann fyrir markið
og þar stóö Laudrup á markteig
og sendi knöttinn rakfeiðis upp í
þaknetið. Laudrup var svo aftur á
ferðinni er hann skoraði laglegt
mark eftir glæsilega stungusend-
ingu frá Platini sem var við
miövallarlínu hægra megin og
staöan orðin 0:3.
Besta marktækifæri Valsmanna
„ÉG ER ánægður með leikinn, en
óánægður með veðrið. Sérstak-
lega vindinn sem gerði okkur
mjög erfitt um vik,u sagði hinn
stórsnjalli sóknarmaður Michael
Laudrup er blaðamaður Morgun-
blaðsins hitti hann að máli í
búningsklefum Juventus-manna
að lelkslokum.
í þessum tveimur leikjum hefur
Laudrup komið boltanum fimm
sinnum í net Valsmanna, en hvaða
mark skyldi honum þykja best af
„fimmunni"?
„Fyrsta markið í fyrri leiknum,"
svarar hann að bragði. „Það var
eitt af skemmtilegustu mörkum
sem óg hef skorað. Fyrri leikurinn
var að mínu mati betri en þessi,
enda segja úrslitin sitt í því sam-
bandi. Ég held að kuldinn og
vindurinn hafi haft mikil áhrif á leik
okkar, enda er alltaf erfitt að leika
í roki, rigningu, kulda og snjó. Þeg-
ar leikið er í slæmri veðráttu er
leikurinn alltaf erfiður og ekki eins
skemmtilegur. Við gerðum samt
okkar besta og ég er ánægður
með sigurinn."
Hvaða leikmaður Vals þótti þér
bestur í þessum leik?
í hálfleiknum fékk Sigurjón Krist-
jánsson er hann fékk knöttinn einn
við vítateig Juventus og Tacconi,
markvörður, varði vel skot hans.
Seinni hálfleikurinn var slakari
að hálfu Juventus sem virtust gera
sig ánægða með þessi þrjú mörk
og Valsmenn komust þá meira inn
í leikinn. Bæði Valur Valsson og
Sigurjón áttu skot í upphafi seinni
hálfleiks sem Bodini, varamark-
vörður, sem kom inná í hálfleik,
átti auðvelt með að verja. Hilmar
fékk svo sannkallað dauðafæri og
besta marktækifæri Vals á 61.
mínútu. Jón Grétar þjarmaöi þá að
varnarmanni Juventus upp við
markteig, sem sá sig knúinn til að
gefa á markvörðinn en þar komst
Amundi á milli og gaf út á Hilmar
„Sigurjón Kristjánsson, Valur
Valsson og Jón Grétar Jónsson.
Einnig fannst mér Guðni Bergsson
leika mjög vel í kvöld."
Er eitthvað sérstakt sem hefur
vakið sérstaka athygli þína hér á
landi?
„[ heild finnst mér ísland
skemmtilegt land, en ég hef því
miður ekki séð mikið af landinu
og því get ég ekki gert upp á milli
þess sem ég hef séð," sagði hinn
viðkunnanlegi danski leikmaður að
lokum og gekk út í mannþröngina
sem beið með blað og penna í von
um eiginhandaráritun eins snjall-
asta leikmannsins um þessar
mundir.
Btom.
sem var einn og óvaldaður á víta-
punkti, en hitti ekki knöttinn.
Guðmundur varði víti
Vítaspyrna var dæmd á Vals-
menn á 78. mín. er brotiö var á
Massimo Briachi innan vítateigs.
Hann tók vítið sjálfur en Guðmund-
ur gerði sér lítið fyrir og varði
meistaralega fast skot hans.
Franski landsliðsmaðurinn Platini
átti svo síðasta orðið er hann skor-
aði fjórða markið með hjólhesta-
spyrnu. Vignola hafði þá átt
hörkuskot að marki sem Guð-
mundur varði en missti boltann frá
sér og þar fylgdi Platini vel á eftir,
snéri sér við er hann sá að Guð-
mundur hélt ekki knettinum og
vippaði knettinum laglega í hornið
fjær með hjólhestaspyrnu. Platini
sagði eftir leikinn að þetta hafi
verið í fyrsta skiptið sem hann
hafi skorað mark með hjólhesta-
spyrnu.
Liðin
Valsmenn léku mjög vel út á
vellinum en er nálgaðist vítateig
andstæðinganna þá var eins og
allur vindur væri úr þeim og var
þeim fyrirmunað að skora þrátt
fyrir mörg hættuleg marktækifæri.
Þeir báru greinilega of mikla virð-
ingu fyrir ítölsku meisturunum og
skorti sjálfstraust. Valur Valsson
og Sigurjón Kristjánsson stóðu sig
best Valsmanna og gáfu Juventus-
leikmönnunum lítið eftir. Guð-
mundur Hreiðarsson verður ekki
sakaður um mörkin og varði hann
oft vel. Vörnin var taugaóstyrk í
fyrri hálfleik en óx ásmegin í seinni.
Jón Grétar og Ámundi börðust vel
í framiínunni en hefðu getað nýtt
færin betur.
Juventusliðið lék vel í fyrri hálf-
leik og sýndi þá oft sínar bestu
hliðar. í seinni hálfleik léku þeir á
hálfri ferð og hóldu fengnum hlut
án þess að taka neina áhættu.
Platini sýndi ekki sínar bestu hliöar
en það sem hann gerði var vel
hugsað, mörkin og sendingarnar.
Laudrup náði sér ekki vel á strik
en það dylst engum að hann er
knattspyrnumaður í fremstu röð.
Það var helst að leikmennirnir, Pi-
oli (nr.3), Soldda (nr.6), Mauro
(nr.7) og Briachi (nr.9), sem hafa
ekki verið fastamenn í liðinu,
reyndu að sýna sitt besta.
Llðln voru þannlg sklpuð:
Valun Guömudnur Hreiðarsson, Bergþór
Magnússon, Þorgrimur Þráinsson, Guðni
Bergsson, Magni Pótursson, Sigurjón Krist-
jánsson, Hilmar Sighvatsson, Valur Valsson,
Jón Grétar Jónsson og Ámundi Sigmundsson,
vm Anthony Karl Gregory.
Juventus: Tacconi, Caricola, Pioli, Manfredon-
ia, Favero, Solda, Mauro, Bonetti, Briachi,
Platini og Laudrup. Vm. Bodlni og Vignola.
Áhorfendun 6.055.
Valur- Juventus
0:4
Þjálfari óskast
til 2. deildar liðs í Færeyjum keppnistímabilið
1987. Þarf að geta spilað með.
Upplýsingar í síma 71604, Sveinbjörn.
Pllii' Jogginggallar
með endurskinsmerkjum
Litir: grátt/rautt, blátt/rautt
Stærðir: 3—8
Verð kr.
•Sendunií•
PÓSTKRÖFU
SP0RTV0WERSLUN
JNGOIFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 40.
Á nom KlAPmsnGS
og mmsGöTu
S.117S3
Michael Laudrup:
Kuldinn hafði
áhrif á leik okkar