Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 28
ffl '$
jwmmwD MIIVINIJUGAil slWHqiÆlltfi mrwwmmi
» *
+
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
ELÍNBORG GUÐJÓNSDÓTTIR,
lést á heimili sínu föstudaginn 6. september sl.
Helga, Kristján og Elinborg.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON,
Sólvallagötu 36,
Keflavík,
lést aðfaranótt föstudags 6. september.
Magnús Þórðarson, Bára Björnsdóttir,
Emil Þórðarson,
. Auður Þórðardóttir,
Guðmundur Kr. Þórðarson, Lára Axelsdóttir
og barnabörn.
+
Systir okkar,
JÓHANNA JÓNSDÓTTIR
frá Skógi, Rauðasandi,
lést á elliheimilinu Grund þann 26. ágúst sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum starfsfólki Grundar og öðrum þeim, sem sýndu henni
alúö og umhyggju.
Halldór G. Jónsson,
Trausti Jónsson,
Þorbjörg V. Jónsdóttir.
+
AXEL HAFSTEINN ÞÓRODDSSON
leigubílstjóri,
Melhaga 6,
Reykjavík,
sem lést 1. september, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudag-
inn 10. september kl. 13.30.
Þorgrfmur Ólafsson.
+
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
HELGA SÆMUNDSDÓTTIR,
Miðbraut 26,
Seltjarnarnesi,
sem lést 2. september sl., verður jarðsett frá Seltjarnarneskirkju
þriðjudaginn 10. september kl. 15.00.
Karl Þórðarson,
Guðný Kristjánsdóttir, Páll Kristjánsson,
Kristjana Kristjánsdóttir, Bjarni Þór Kristjánsson,
Gunnar Kristjánsson, Anna Katrín Kristjánsdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir og sonur,
LÁRUS HJALTESTED,
Kríunesi v/Vatnsenda,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 10. september kl. 13.30.
Gróa Sigurjónsdóttir,
Georg Pétur Hjaltested,
Magnús Jens Hjaltested,
Arnar Jónsson,
Guðrún og Pétur Hjaltested.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, sonur minn, tengdasonur og bróðir
okkar,
STURLA SIGFÚSSON
vélstjóri,
Frostafold 105,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 9. september
kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hans, eru
beðnir að láta Minningargjafasjóð Landspítala íslands njóta þess.
Anna Soffía Guðmundsdóttir,
Guðmundur Gisli Víglundsson,
Sigfús Sturluson,
Valborg Sturludóttir,
Guðlaug Pétursdóttir,
Valborg Sigurðardóttir
og systkini hins látna.
Valur Kr. Jóns-
son - Minning
Þegar ég fékk þær fregnir
fimmtudaginn 29. ágúst að vinur
minn og vinnufélagi, Valur Kristinn
Jónsson, hefði látist var eins og
allt stansaði augnablik og ég starði
á viðkomandi sem sagði mér fregn-
ina. Þó svo að maður hefði átt von
4 þessu, þá vonaði ég að það yrði
ekki núna, heldur bara seinna,
miklu seinna. Kallið kemur alltaf
að óvörum. Enginn veit sín örlög.
Það var í ágúst 1950, sem ég
kynntist Val á Hótel Borg. Þá var
hann nýútskrifaður framleiðslu-
maður og ég að byrja nám, þá tæp-
lega 16 ára. Ég man hvað ég leit
upp til þessara stráka sem voru
búnir að læra og komnir í sína ein-
kennisbúninga. Hvað þeir voru fínir
og fullorðinslegir. Valur og félagar
hans, sem vóru nýbúnir að ljúka
námi, voru samt ekki nema þremur
árum eldri en ég, en á þessum árum
munar miklu um hvert ár.
Um þetta leyti réðst Valur til
starfa á farþegaskipið Gullfoss sem
þá var splunkunýtt skip, sem alla
langaði til að starfa á, og ekki síst
mér. Það var ekki fyrr en 1955 sem
ég hitti Val aftur. Hann var þá
nýráðinn í Þjóðleikhúskjallarann,
en ég að koma frá námi í Svíþjóð
og farinn að vinna á Hótel Borg. Á
árshátið Félags framleiðslumanna
1959, sem haldin var á Borginni,
kom Valur til mín og spurði mig
Minning
Semjum minningargreinar,
afmælisgreinar,
tækifærisgreinar.
Önnumst milligöngu
við útfararstofnanir.
Sími 91-677585.
Fax 91-677586.
Blómastofa
fíiðfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöid
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
hvort ég vildi taka að mér barinn
á Lídó, sem var nýr skemmtistað-
ur, en hann var yfírframreiðslumað-
ur þar. Valur sá um ráðningu á
framreiðslumönnum á þann stað.
Ég fékk umhugsunarfrest í nokkra
daga, en ákvað þá að taka boðinu.
Við Valur störfuðum saman í Lídó
og tókst með okkur góður vinskap-
ur.
Á þessum árum kynntist Valur
Jónu Lóu Sigþórsdóttur, sem varð
eiginkona hans, sem við kölluðum
alltaf Jónsu. Urðu þau hjónin mikl-
ir vinir mínir og konu minnar.
Árið 1963 var opnaður nýr veit-
ingastaður, þ.e. Hótel Saga. Valur
var ráðinn yfirframreiðslumaður
þar, en ég tók að mér barinn. Þá
störfuðum við saman í stjórn Félags
framreiðslumanna í mörg ár. Valur
var þar í mörgum trúnaðarstörfum
fýrir félagið, aðallega sem gjaldkeri
þess. Einnig átti hann sæti í nefnd
sem sá um að kaupa land undir
sumarhús félagsmanna. Vann Val-
ur þar ómældan tíma við skipulagn-
ingu og byggingu sumarhúsanna.
Má nefna að þegar ég byggði bú-
staðinn minn var hann þar alltaf
boðinn og búinn til að hjálpa til við
verkið. Við áttum þar margar góðar
stundir. Þau hjónin höfðu þá eign-
ast dóttur, Kristínu, sem nú er gift
Jóni Ögmundssyni framreiðslu-
manni, en hann lærði það starf með
okkur á Hótel Sögu. Það var oft
glatt á hjalla í bústaðnum hjá okk-
ur. Oft var tekið í spil. Valur var
svo innilega skemmtilega stríðinn.
Hann gat platað okkur í spilum svo
að við urðum orðlaus. Ef einhver
fór að bera á hann platið, þá sagði
hann: „Horfðu í augun á mér. Þessi
augu skrökva ekki“. Allir hlógu.
Hann hafði gott lag á krökkunum,
glettist við þau í stríðnistón, eða
Eggert Ellerts-
son - Minning
Fæddur 1. september 1928
Dáinn 8. ágúst 1991
Ég hef augu mín til fjallanna
þaðan kemur mér hjálp.
(Úr Biblíunni)
Eftir að við fréttum lát vinar
okkar og mágs, Eggerts Ellertsson-
ar, hafa þessi orð margoft komið
upp í hugann. Það er ósköp eðlilegt
að hugsað sé til fjalla því við minn-
umst hans best eins og hann var
þegar við vorum að ferðast saman.
Þægilegri mann var vart hægt
að hugsa sér sem ferðafélaga, alltaf
í góðu skapi, alltaf gat hann séð
jákvæðu hliðamar á málunum og
var sérstaklega útsjónarsamur við
að sjá út fallega staði í náttúrunni
og finna góð tjaldstæði. Eitt það
síðasta sem hann ræddi við okkur
þegar við heimsóttum hann í sumar-
bústaðinn í Kjósinni í júlílok, þá
orðinn helsjúkur, var að hann hefði
fundið alveg einstakt tjaldstæði á
leiðinni út á Borgarfjörð eystri, sem
við ættum eftir að koma á.
Hann hafði verið með áætlun um
að komast í Fjörðurnar í sumar, en
það var búinn að vera draumur
okkar í nokkur ár, en veikindin settu
þar strik í reikninginn. En ef við
hin eigum eftir að fara þangað ein-
hvern tíma þá er það víst að hans
verður minnst og helst sett saman
vísa, en í þeirri iðju var hann vel
liðtækur. Það sýndi sig best í fyrstu
ferðinni sem við fómm með þeim
hjónum, en þá höfðum við þann sið
að setja saman vísu um hvern stað
sem við höfðum næturdvöl á, og
er sá bragur í rauninni ferðasaga
okkar í hnotskurn.
Eggert var fæddur á Meðalfelli
í Kjós 1. september 1928 og var
því tæplega 63 ára þegar hann lést
eftir stutt en erfíð veikindi. Hann
kvæntist árið 1955 Sigríði E. Sæ-
mundsdóttur frá Egilsstöðum í
Vopnafirði og eignuðust þau þrjá
mannvænlega syni sem allir eru
komnir með fjölskyldur.
Hann starfaði lengst af sem bif-
reiðarstjóri, fyrst sem mjólkurbíl-
stjóri í Kjósinni, síðan á leigubíl hjá
BSR. Um tíma annaðist hann vöru-
flutninga til Vopnafjarðar í sam-
vinnu við mág sinn Steingrím.
Síðast vann hann hjá Álverinu í
Straumsvík.
Þau hjónin voru miklir félagar,
og áttu sér sameiginlegt áhugamál
en það var hestamennska. Einnig
voru þau búin að koma sér upp
fallegum sumarbústað í landi Með-
alfells og þar höfðu þau hestana
sína og gátu notið þar samvista við
þá, á milli þess sem staðið var í
ýmsum framkvæmdum við bústað-
inn.
Eggert var svaramaður þegar við
giftum okkur og þegar húsbóndinn
dvaldi langdvölum við vinnu á
Grænlandi, þá átti hann það til að
#
ífflGC
Groníl
HELLUHRAUNI 14 -220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 652707
OPIÐ 9-18. LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-15.
BLOM
SEGJA AILT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
■
Legsteinar
Framieiöuni aiíar stærdtr Sg-gSs'ðir 6* isgsteinum,
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
__________um gerð og val legsteina._
Ifi S.HELGASON HF
IsrEiNssnifyA
■ SKEMMUVB3I 48-SlMI 76677
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.