Morgunblaðið - 21.01.1994, Síða 9
9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1994
Ný sending frá Frakklandi
Utsalan áfram á haustvörum.
TESS
IMt
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opiðvirkadaga
kl.9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆDISFLOKKSINS 30.0G 31. JANÚAR
Kjósum f %
Hilmar f «s; !
Guðlaugsson
í 4. sæti
Símarstuðningsmanna eru i. ,
68 42- 86 - 68 42 87 - 68 42 88 illjliÉ
Hæfar konur til forystu Guðrúnu Zoéqa borgarfulltrúa í 3. sæti í prófkjöri 30. og 31. janúar nk. Skrifstofa stuðningsmanna er í Síðumúla 8., 2. hæð. Opið kl. 14-22 virka daga og 13-18 um helgar. Símar 684490 og 684491. - veljun áSi n l
Studningsmenn Vilhjálms Þ. Vilhjáli borgarfulltrúa og varaformanní hafa opnaó kosningaskrifstofu í Skeifunni 11,3. hæð (sama hús og Fönn). Opið alla daga frá kl. 13-21. Símar 68 21 25 og 68 25 12. Verid velkomin. mssona borgarráð f ■ .jí ^"7 \ r s
SOLARKAFFI
ÍSFIRÐINGA-
FÉLAGSINS
Isfirðingafélagið gengst fyrir sínu árlega
SÓLARKAFFI föstudagskvöldið 21. janúar
nk. að veitingahúsinu Hótel Islandi,
Armúla 9, Reykjavík.
Húsið opnar kl. 20.00, en kl. 20.30 hefst
hefðbundin hátíðar- og skemmtidagskrá
með kaffi og rjómapönnukökum.
Borgardætur^Villi Valli & Co. og Lúdó og
Stefán ásamt Isfirðingnum Kolbrúnu Svein-
bjarnardóttir leika fyrir dansi til kl. 3 e.m.
Abgangseyrir kr. 1.800,-
Miða- og borðapantanir í síma 91-687111
dagana 17.—21. janúar milli kl. 14 og 18
eða við innganginn.
Greiðslukortaþ j ónusta.
cS*
7
~ Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar
„Tónlist Wagners er
betri en hún hljómar“!
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar, vitnar til frægra orða Marks
Twains, „Tónlist Wagners er betri en hún
hljómar", þegar hann lýsir þjóðarbú-
skapnum á áramótum í Dalabyggð, hér-
aðsblaði Dalamanna.
Sex ára efna-
hagslægð
Þórður Friðjónsson,
forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar, skrifar pistil um
þjóðarbúskapinn í Dala-
byggð, héraðsblað Dala-
manna, fyrir áramótin.
Þar segir m.a.:
„Fréttir af þróun inn-
lendra efnahagsmála
hafa að jafnaði látið frem-
ur illa í eyrum. Þjóðarbú-
skapurinn hefur verið í
lægð í sex ár. Hagvaxtar-
leysi hefur ekki áður var-
að svo lengi frá stofnun
lýðveldisins.
Eins og við var að bú-
ast við slíkar aðstæður
hefur fátt verið til upp-
örvunar af vettvangi
efnahagsmála. Atviimu-
leysi hefur aukizt og
kreppt hefur að efnahag
heimila og fyrirtækja.
Lífskjör hafa einfaldlega
versnað."
Þrennt vegur
þyngst
„Að baki þessum erfið-
leikum liggja margar
ástæður. Þreimt vegur þó
þyngst:
* I fyrsta lagi hefur
fiskafli dregizt saniaii,
ekki sízt þorskafli, verð-
mætasta fisktegundin.
* I annan stað hefur
verð sjávarafurða verið
lágt, einkum á síðastliðn-
um tveimur árum.
* I þriðja lagi hefur
framvinda efnahagsmála
á alþjóðavettvangi verið
óhagstæð. Það hefur
dregið úr eftirspurn eftir
íslenzkum vörum erlendis
og jafnframt leitt til
minni ljárfestinga í at-
vinnulífi hér á landi.“
Helztu vanda-
mál hagstjórn-
ar aðbaki
„Ekki er þó allt á sömu
bókina lært í þessum efn-
um. Þótt ótíðindi hafi ver-
ið áberandi hefur náðst
mikilsverður árangur á
ýmsum sviðum. Mestu
máli skiptir tvennt:
* Annars vegar hefur
verðbólga nú hjaðnað nið-
ur á sama stig og í nálæg-
um löndum.
* Hins vegar hefur við-
unandi jafnvægi komizt á
í viðskiptum við önnur
lönd.
Þetta er ekki lítill
árangur í ljósi þess að
verðbólga og viðskipta-
halli hafa verið helztu
vandamál hagstjómar
hér á landi um áratuga-
skeið.“
Síðasta
slaka árið?
„En við hveiju er að
búast á komandi árum?
Verður kreppan viðvar-
andi eða hillir undir lang-
þráðan bata?
Þessum spurningum er
auðvitað erfitt að svara
með vissu. Flest bendir
þó til að næsta ár [1994]
verði erfitt ár í efnaliags-
legu tilliti. I því sambandi
nægir að benda á að
ákveðið hefur verið að
draga verulega saman
þorskafla frá því á þessu
ári. Þetta er gert í því
skyni að efla þorskstofn-
inn. Jafnframt er spáð að
efnahagur í mikilvægum
viðskiptalöndum íslend-
inga verði bágborinn á
næsta ári, að minnsta
kosti franian af árinu,
ekki sízt á meginlandi
Evrópu og í Japan.“
Batateikn
álofti
„Þegar Utið er fiam
yfir næsta ár [1994] em
horfumar hins vegar
betri. Þannig er m.a. talið
að ekki þurfi að koma til
frekari skerðingar
fiskafla en nú er stefnt
að og spáð er bata í al-
þjóðaefnahagsmálum.
Þjóðhagsstofnun spáir að
hagvöxtur á íslandi glæð-
ist efir næsta ár [1994]
og verði um 1-2% hvort
árið 1995 og 1996. Við
þetta má bæta að fyrr en
síðar munu aðstæður
skapast til að nýta hm-
lendar orkulindir betur
en nú er gert og þegar
þorskstofninn nær sér á
strik mun verðmæti út-
fluttra sjávarafurða stór-
aukast."
Framtíðin
hljómar betur
„Að öUu samanlögðu
má ef til viU hafa svipuð
orð um þjóðarbúskapinn
og Mark Twain viðhafði
um tónUst Wagners þegar
hann var eitt sinn spurður
um skoðun sína á henni:
„Tónlist Wagners er betri
en hún hljómar.““
Ný þjónusta Sorpu
Húsbúnaður
endumýttur
NÝTT skref verður stigið í
þjónustu Sorpu á næstunni þeg-
ar t.ilraun verður gerð um end-
urnýtingu húsbúnaðar. Er
markmiðið að koma sem mestu
af hlutum sem fólk vill losa sig
við til notkunar að nýju og er
fólk beðið um að reyna að koma
í veg fyrir að hlutir eyðileggist
í flutningum. Þetta verður gert
í samvinnu við Gámaþjónustuna
hf., Hirði - umhverfisþjónustu,
Hreinsun og flutning, Islands-
banka, Rauða krossinn, Hjálp-
arstofnun kirkjunnar, Hjálp-
ræðisherinn og Mæðrastyrks-
nefnd.
Borið hefur á því að sögn starfs-
manna Sorpu að mikið af nýtileg-
um húsbúnaði berist til þeirra og
er talið brýnt að koma í veg fyrir
að verðmæti fari í súginn. Fólk sem
vill losa sig við nytjahluti er beðið
um að láta starfsmenn Sorpu vita
og munu þeir þá koma þeim fyrir
í lokuðum geymslugámum og síðan
flytja í lagerhúsnæði. íslandsbanki
mun leggja til húsnæðið og verða
hlutirnir teknir til skráningar, próf-
unar og lagfæringar ef með þarf.
Líknarfélögin sem greint er frá
í upphafi rnunu sjá um dreifingu
hlutanna til þeirra sem með þurfa
og eru þeir sem vilja nýta sér þjón-
ustuna beðnir um að setja sig í
samband við þau. Árangur tilraun-
arinnar verður metinn eftir hálft
ár og þá verður ákvörðun tekin
um framhaldið.
+ ••
UTSALAA DOMUULPUM
ski
Klassískar,
gæðaúlpur,
með ekta
á dömur og
Símar 19800 og 13072