Morgunblaðið - 21.01.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1994
11
mísk hlutverk eins og í Toscu, en
yfirspennt drama eins og í Luciu de
Lammermoor finnst mér lítið
skemmtilegt.“
Guðjón tekur sér ársleyfi frá Ósló-
aróperunni næsta starfár. Hann fer
með fjölskyldunni til Englands í
sumar og syngur í Don Giovanni á
Glyndebourne-hátíðinni fram á
haust. Þá fer hann til Miinchen og
syngur þar í Bayerischer Staatsoper
þangað til í nóvember. Þaðan liggur
leiðin beint til Frankfurt og áfram
halda ferðalögin eftir áramót. Er
þetta ekki ótrúlegt líf?
„Eg gæti ekki hugsað mér lengur
að stunda mína gömlu vinnu,“ svar-
ar Guðjón, „þetta er spennandi líf,
en veistu, aðeins að vissu marki. Það
verður þreytandi að búa einhVers-
staðar á hanabjálka í burtu frá sínu
fólki þótt vitanlega sé skemmtilegt
að koma á nýjar slóðir. Nú fer ég
að velta því fyrir mér hvað við taki;
hvort ég verði áfram í örugginu í
Óslóaróperunni eða skelli mér í
lausamennsku. Þar er margt fleira
að _spá í en eiginn nafli.
Ég hef enga stjörnuglýju í augun-
um, segist ekki endilega stefna á
toppinn eins og tenórarnir. Mér
fínnst einfaldlega stórkostlegt að
geta séð mér og mínum farborða
með söngnum. Vitaskuld vil ég
þroskast og verða betri söngvari.
Til þess hef ég langa starfsævi."
Viðtal: Þórunn Þórsdóttir
Leiklestur
úr Tsjekhov
í LISTAKLÚBBI Leikhús-
kjallarans mánudaginn 24. jan-
úar verða leiknar senur úr leik-
riti Antons Tsjekhovs, „Þrjár
systur“. Við sögu koma systurn-
ar þijár og bróðir þeirra, hið
ástfangna prófessorsefni og
fiðlusnillingurinn Andrej.
I fréttatilkynningu Listaklúbbs-
ins segir að markmiðið með þess-
ari dagskrá verði fyrst og fremst
að rannsaka hin ýmsu form leik-
hússins með það fyrir augum að
komast sem næst inntaki textans
og finna honum búning sem okkur
finnst skemmtilegur og spennandi.
Þátttakendur í þessum leiklestri
verða Hjalti Rögnvaldsson, Anna
Kristín Arngrímsdóttir, Guðrún
Gísladóttir og Edda Heiðmn Back-
man. Dagskrárstjóri er Ásdís Þór-
hallsdóttir.
Ennfremur segir í tilkynningu
að allir séu velkomnir, sérstaklega
þeir sem vilja nota tækifærið til
að kíkja inn fyrir hefðbundinn
ramma milli leikarans og áhorf-
andans.
Leiklesturinn hefst kl. 20.30.
og er aðgangseyrir 300 krónur.
Finnbogi Pétursson
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Hið framandi er örugglega
einn merkasti þáttur myndlistar-
innar á hveijum tíma. Hið kunn-
uglega er ef til vill öruggast og
þægilegast þegar gengið er á vit
listarinnar, því þar hefur sýning-
argesturinn sín haldreipi, sína
viðmiðun. En í slíkum sýningar-
ferðum gerist sjaldan mikið hið
innra með gestinum; allt er slétt
og fágað, fellur að stöfum. Þegar
sýningargestir kynnast einhveiju
nýju ber hins vegar annað við;
það sem fólki finnst framandi,
vekur áhuga og leiðir til umhugs-
unar, allt þar til viðkomandi
kémst að niðurstöðu um hið nýja
áreiti.
Svonefndir hljóðskúlptúrar eru
slíkt framandi áreiti S hugum
margra, þó þessi grein myndlist-
arinnar sé engan veginn ný af
nálinni nú undir lok aldarinnar.
Undir þessu heiti hafa listamenn
leitast við að sameina hina sjón-
rænu og byggingarlegu þætti
höggmyndalistarinnar og hljóðið,
hvort sem það er í flóknu formi
talaðs máls eða fjölbreytilegum
útgáfum rafrænna tónaraða. Ár-
angurinn er oft óvæntur og for-
vitnilegur, eins og sést best á
tveim ólíkum sýningum hljóð-
skúlptúra sem nú er hægt að
kynna sér í Reykjavík — annars
vegar sýningu Magnúsar Páls-
sonar í Nýlistasafninu og hins
vegar sýningu á verki Finnboga
Péturssonar í miðrými Kjarvals-
staða.
Það er vel við hæfi að menn-
ingarmálanefnd Reykjavíkur-
borgar bjóði Finnboga Péturssyni
til sýningar, en hann hefur á
undanförnum árum skapað nokk-
ur eftirminnileg hljóðverk á sýn-
ingum hér á landi. Er þar
skemmst að minnast sýningar
hans í Nýlistasafninu 1991, þar
sem verk hans „Hringur" batt
saman hljóð, vatn, ljós og skugga
á afar sérstæðan hátt; verkið
„Pendúlar" var eitt sterkasta
verkið á sýningunni Borealis VI
í Listasafni Islands síðastliðið
sumar, og staðbundið verk hans
á opnunarsýningu Listasafnsins
á Akureyri er einnig minnisstætt.
Finnbogi vinnur sína hljóð-
skúlptúra á þann hátt að þeir
hljóta ætíð að markast mikið af
því umhverfi, sem þeim er ætlað,
og svo er einnig að þessu sinni.
Látlaust yfirbragð verksins
„Móttaka" ber við fyrstu sýn
ekki með sér þá möguleika sem
í því búa, en formgerð þess fellur
afar vel að miðrými Kjarvals-
staða, svo að við fyrstu sýn er
jafnlíklegt að menn gangi fram-
hjá.
Verkið samanstendur af
tveimur röðum af sjö mislöngum
rörum úr hörðu plasti (sem frá
verksmiðjunni eru ætluð utan um
jarðstrengi), sem helst minna á
risavaxnar panflautur. í ytri enda
röranna eru tengdir hátalarar,
og í gegnum þá er varpað rafp-
úlsum, sem mynda þá taktföstu
hljóma, sem berast eftir og út frá
verkinu. Þessir seiðandi hljómar
minna um sumt á framandi hljóð-
færi, en einnig á þá rafrænu tón-
list, sem ýmsir kannast við; það
eru hins vegar heildarhrif heyrn-
ar og sjónar sem skipta mestu
um áhrif verksins í rýminu, sem
sjajdan hefur notið sín betur.
I tilefni sýningarinnar hefur
verið gefin út vegleg sýningar-
skrá, þar sem er að finna mynd-
ir af ýmsum eldri verkum Finn-
boga, auk fróðlegra hugleiðinga
Halldórs Björns Runólfssonar
listfræðings um listamanninn og
listræna samsvörun verka hans
í gegnum tíðina. Það er mikill
fengur að skránni, sem ætti að
vera mörgum ágæt kynning á
þessari vaxandi grein myndlistar-
innar. Sýningin á verki Finn-
boga Péturssonar í miðrými
Kjarvalsstaða stendur til 13.
febrúar líkt og aðrar sýningar á
staðnum, og ættu gestir hússins
að gefa sér góðan tíma til að
kynnast þessu verki.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.^ J
Kopavogi, sími
571800
Opið sunnudaga
kl. 13-18.
MMC Pajero langur DT ’92, 5 g.f ek. 73
þ., sóllúga, álfelgur, rafm. í rúðum, centr-
al lœs., 33" dekk, uppbækkaður o.fl.
V. 3.2 millj., sk. á ód.
Einnig: MMC Pajero V-6 '91, grár/blár,
sjálfsk., ek. 52 þ., sóllúga, álfelgur, rafm.
í öllu o.fl. V. 2.2. millj., sk. á ód.
Toyota Douple Cap diesel '92, 5 g., ek.
46 þ., rauður, upphækkaður, 33“ dekk,
lengri skúffa. V. 1890 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla GTi ’88, hvítur, 5 g., ek.
78 þ., sóllúga, rafm. í rúðum, spoiler.
V. 690 þús.
Honda Civic GL Sedan '88, sjálfsk., ke.
75 þ., grár. V. 630 þús.
Volvo 440 GLT '89, svartur, 5 g., ek. 80
þ., álfelgur, rafm. í rúðum, spoiler o.fl.
V. 830 þús., sk. á ód.
Toyota 4Runner EFi '85, rauður, 5 g., ek.
113 þ., sérskoðaður, 35“ dekk, 4:10 hlut-
föll, sóllúga o.fl. Gott eintak. V. 1080 þús.
Ford Orion CIX '92, hvítur, 5 g., ek. 35
þ. V. 870 þús.
Toyota Carina XL ’91, rauður, sjálfsk.,
m/overdrive, ek. 46 þ. V. 1120 þús.
MMC Pajero langur, bensín '88, 5 g., ek.
102 þ., rafm. í rúðum, álfelgur o.fl.
V. 1390 þús., sk. á ód.
Nissan Sunny Coupe 1500 SGX '88, rauð-
ur, 5 g., ek. 104 þ., álfelgur. V. 590 þús.
Mazda 323 1500 GLX Sedan '87, 5 g.,
Toyota Hi Lux 2.4 EFi '90, rauður, 5 g.,
ek. 29 þ. mílur, upphækkaður. V. 1290
þús.
Subaru Legacy station '90, brúnsans, 5
g., ek. 55 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 1270
þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLXi '93, hvítur, sjálfsk.,
ek. 15 þ., rafm. í rúðum, hiti í sætum,
dráttarkúla o.fl. Sem nýr. V. 1300 þús.
ek. 97 þ. v. 420 þús.
REYKJAVÍKUR
Laugavegi 96 - Sími: 600935
afsláttur
S-K-l-F-A-N
KRINGLUNNI SÍMI: 600930
STÓRVERSLUN LAUGAVEGI26 SÍMI: 600926
LAUGAVEGI96 SÍMI: 600934
SKÍFAN/BOGART