Morgunblaðið - 21.01.1994, Qupperneq 13
m’«h AAíiviAi, is syoAcr 'T;a) i (iiciA.m/uofloi/ SL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1994 13
Iþróttaborgin
Reykjavík
eftir Svein Andra
Sveinsson
Það hefur verið hornsteinn í starf-
semi Reykjavíkurborgar að hlú vel
að allri íþróttastarfsemi, hvort sem
um er að ræða keppnisíþróttir eða
almenningsíþróttir og útivist. Horn-
steinn þessi hefur verið lagður af
meirihluta sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn Reykjavíkurborgar oft í
andstöðu við vinstriflokkana í borg-
arstjórn. Þessi áhersla borgaryfir-
valda kemur fram með ýmsum hætti,
bæði með uppbyggingu mannvirkja
og styrkjum til íþróttafélaga.
Mikil verkefni framundan
Það er skoðun mín að á næstu
árum verði Reykjavíkurborg að
leggja enn meiri áherslu á íþrótta-
mál en áður. Á þetta bæði við um
almenningsíþróttir og keppnisíþrótt-
ir. Af mörgu er að taka þegar horft
er á verkefnin framundan.
Einna mest áríðandi er yfirbygg-
ing á skautasvellinu í Laugardal, en
mikil aðsókn þar og takmarkaður
opnunartími vegna umhleypinga-
samrar veðráttu gerir aðstöðuna
þar, þó glæsileg sé, alveg ófullnægj-
andi. Skautahöll í Reykjavík myndi
hleypa fjörkipp í skautaíþróttina á
landinu.
Byggja þarf almenningssund-
laug í Grafarvogi á næstu íjórum
árum.
Ófullnægjandi keppnis- og æf-
ingaaðstaða hefur staðið sundíþrótt-
inni fyrir þrifum. í tengslum við við-
hald Laugardalslaugarinnar er skyn-
samlegt að taka í notkun 50 metra
keppnislaug innanhúss á svæði laug-
arinnar. Með slíku yrði yrði einnig
rýmra um almenna sundgesti.
Ráðast þarf í byggingu nýrrar
stúku á Laugardalsvelli, gegnt þeirri
sem nú er. Með því móti uppfyllir
leikvangurinn þær kröfur sem gerð-
ar eru til slíks mannvirkis af hálfu
Alþjóðaknattspyrnusambandsins að
pláss sé fyrir lágmark 6.000 manns
í sæti.
Af mannvirkjum á vegum
íþróttafélaganna sem fyrirsjáanlegt
er að Reykjavíkurborg taki þátt í,
má nefna nýtt íþróttahús fyrir KR,
vallaaðstöðu Fjölnis, nýtt íþrótta-
svæði Ármanns í Grafarvogi o.fl.
Næsta stórverkefni Reykjavík-
urborgar á sviði íþróttamála er að
mínu mati yfirbyggður knattspyrnu-
völlur, með notkunarmöguleika fyrir
aðrar íþróttagreinar. Það yrði gríð-
arleg lyftistöng fyrir reykvísk knatt-
spyrnulið að geta æft árið um kring
á grasi. Ég er þeirrar skoðunar að
Reykjavíkurborg eigi ein að standa
að slíku stórvirki og að aðstaðan
verði einungis hugsuð fyrir reykvísk
knattspyrnulið, enda fyrirséð að slíkt
hús yrði fullnýtt af þeim.
Aukið samstarf við
íþróttafélögin
Reykjavíkurborg hefur undanfar-
ið átt mikið og gott samstarf við
íþróttafélögin um ýmis mál. Það er
hins vegar skoðun mín að stórauka
beri þetta samstarf og það verði
helst gert með því að auka ábyrgð
einstakra íþróttafélaga og íþrótta-
hreyfingarinnar í Reykjavík.
íþróttafélögin þurfa í auknum
Sveinn Andri Sveinsson
„Það er skoðun mín að
á næstu árum verði
Reykjavíkurborg að
leggja enn meiri
áherslu á íþróttamál en
áður. A þetta bæði við
um almenningsíþróttir
og keppnisíþróttir. Af
mörgu er að taka þegar
horft er á verkefnin
framundan.“
mæli að koma inn í einstök verkefni
á vegum borgaryfirvalda; t.d. starf-
semi félagsmiðstöðvar, rekstur
mannvirkja, íþróttir fyrir aldraða,
íþrótta- og leikjanámskeið fyrir börn
og unglinga o.s.frv. Stórauka þarf
samstarf bæði grunnskóla og leik-
skóla við íþróttafélögin; hefur
reynsla af slíku samstarfi reynst vel
í heilsdagsskóla Reykjavíkurborgar.
Aukin völd íþróttafélaganna
Varðandi þau mannvirki íþrótta-
félaganna sem Reykjavíkurborg
styrkir (80%), er ég þeirrar skoðunar
að félögin sjálf eigi á vettvangi
íþróttabandalags Reykjavíkur að
leggja til forgangsröðun mannvirkja,
varðandi styrkveitingar frá borginni,
en íþrótta- og tómstundaráð Reykja-
víkur eigi fyrst og fremst að hafa
með höndum tillögur um heildarfjár-
veitingar borgarinnar en að jafnaði
fara eftir tillögum félaganna.
Reykjavíkurborg þyrfti hins vegar
að gæta þess að við fjárveitingar
væri gætt eðlilegrar uppbyggingar
í nýjum hverfum.
Innan íþróttahreyfingarinnar býr
mun meiri þekking á þeim þörfum
sem fyrir hendi eru en hjá pólitísku
ráði eins og ÍTR og því eðliiegt að
fela samtökum íþróttafélaganna að
hafa hönd í bagga með uppbyggingu
íþróttamannvirkja í borginni.
Höfundur er borgarfulltrúi og
fulltrúi fyrír Sjálfstæðisflokkinn í
íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur.
- Frumkvæði - Framkvæmdavilji - Áiangur -
Svein Andra
i 5. sæti
Kosningaskrifstofa
Sveins Andra Sveinssonar,
borgarfulltrúa, Suðurgötu 7, er opin
á milli kl. 9.00 og 24.00.
Sjálfstæðismenn velkomnir.
Stuóningsmenn.
• GÆÐIN ERU HJA OKKUR!*
3
*
X
O
"9
X
D
Q
*
<9
3
X
*
O
'<
Q
m
o
D
X
X
O
<
o
<9
NOATUN
í dag
er bóndadagur
og Þorri aö byrja:
Ljúffengur
Þorramatur:
• Lundabaggar • Nýreyktur
• Hrútspungar rauðmagi
• Bringur • Harðfiskur
• Magáll. í úrvali
• Vestfirskur • Rófustappa
gæöahákarl • Kartöflusalat
• Nýtt slátur • Flatkökur
Blóðmör • Rúgbrauð
Lifrarpylsa • Ný sviðasulta
• Marineruð sild • Súr sviðasulta
• Kryddsíld • Ný svinasulta
• Reyktsild • Soðið hangikjöt
• Graflax • Pressað og
• Reyktur lax súrsað ^ 9 ^ heilagfiski.'^Q
• Taöreyktur silungur
Gerið
bóndanum
glaðan dag
með
Þorramat!
Sviðasulta
og rófustappa
389kr. pr. bakki.
ca. 400 gr.
Frá Húsavík:
Taðreyktur
rauðmagi og
frábæra
hangikjötið
Kynnum
þorramat og
hákarl
Þotrabakkuua
gómsæti
2 stærðir PILSNER
Þorrasíldin vinsæla
bætt með Grand Mariner
eða ísl. brennivíni.
ICEFOOD
ÍSLENSK
MATVÆLI
329.
pr.krukka
‘í__^
PWH. —
Svið, óhreinsuð ^ AÐEINS 1 9! J prAg.
Kindahakk 44! ÍJ pr.kg.
PRIMA PIZZUR
269, pr.stk.
Lambalifur 189.”-' 58.’-
Lambaframpartar OIIO
niðursagaðir O «1
pr.kg.
NOATUN
Nóatún 17 - S. 617000, Rofabæ 39 - S. 671200, Laugavegi 116 - S. 23456,
Hamraborg 14, Kóp. - 43888, Furugrund 3, Kóp. - S.42062, Þverholti 6, Mos. - S 666656,
JL-húsinu vestur i bæ - S. 28511, Kleifarseli 18 - S. 670900
•GÆÐIN ERU HJA OKKUR!*
• GÆÐIN ERU HJÁ OKKUR!* •GÆÐIN ERU HJÁ OKKUR!* •GÆÐIN ERU HJÁ OKKUR!*