Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994
Útvegsmenn Norðurlandíl
Útvegsmannafélag Norðurlands boðar
til fundar á Hótel KEA föstudaginn
8. apríl nk. kl. 13.30.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Ráðstefna Barnaheilla
á Norðulandi eystra
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju 16. aprfl 1994
Viðmót gagnvart bömum og unglingum
09.30 Skráning og gögn afhent. Morgunkaffi.
10.00 Ráðstefnan sett: Kristín AAalsteinsdóttir,
formaður Bamaheilla á Norðuriandi eystra.
10.15 Einar Gyifi Jónsson, sálfræðingur. Samskipti unglinga og fullorö-
inna - harkan 6 eða „vorum við nokkuð skárri sjálf?“
11.00 Margrét Pála Ólafsdóttir, leikskólastjóri: Samskiptaþjálfun og
hegðunarkennsla í stað valdaátaka, sektarkenndar og vantrúar.
„Það sem þér viljið að aðrir..."
12.00 Umræður.
12.15 Hádegisverður á Hótel KEA.
13.30 Karólina Stefánsdóttir, félagsráðgjafi: Hið fyrsta viðmót.
13.45 Helga Magnúsdóttir, fóstra: Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
14.00 Guðmundur Sigvaldason, varaformaður Heimilis og skóla:
Viðhorf foreldra gagnvart bömum sínum.
14.15 Umræður.
14.30 Hörður Flóki Óiafsson og Vilhelm Jónsson, nemar.
Unglingar í samfélagi Mammons.
14.45 Sigríður Traustadóttir, kennari: Orð/athöfn - gleði/hryggð.
15.00 Páll Tryggvason, barnageðlæknir: Slys: - Viðhorf til bama
og forgangsröðun.
15.15 Umræður.
15.30 Kaffihlé.
16.00 Diljá Óladóttir, nemi: Það hefur lika áhrif.
16.15 Guðný Bergvinsdóttir, hjúkrunarfr.: Gagnkvæm virðing - traust.
16.30 Geir Friðgeirsson, bamalæknir: Veikum bömum mætt.
16.45 Umræður.
17.00 Svanhildur Hermannsdóttir, skólastjóri: Njóta muntu ef þú nemur.
17.15 Þórhallur Höskuldssor,, sóknarprestun „Nema þér snúið við...“
17.30 Umræður.
17.45 Samantekt: Helga Ágústsdóttir, kennari.
18.00 Ráðstefnuslit.
Móttaka í boði Bæjarstjómar Akureyrar í Listasafni Akureyrar.
Ráðstefnustjórar Ingibjörg Auöunsdóttir og Benedikt Sigurðsson.
Ráðstefnugjald er kr. 1.500. Innifalinn er hádegisverður og kaffi.
\f/ RÁÐSTEFNAN ER OPIN ÖLLUM
I Rtirn'ilioill Nauðsynlegt er að skrá þátttöku
■ UtU IlciIieiiI fyrir 14. april í síma (96)-2 46 55.
Einsetinn skóli og/eða
„heilsdagsvistunf<
í grunnskólum
Opinn fræðsiu- og umræðufundur
laugardaginn 9. apríl 1994
Fundurinn verður í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
og hefst ki. 13.30.
Fundarstjóri verður Jón Björnsson, félagsmálastjóri.
DAGSKRÁ:
13.30: Setning og kynning.
Sigríður Stefánsdóttir, formaður skólanefndar.
Tilraunastarf með einsetningu f Fossvogsskóla
og úttekt á „heilsdagsvistun" í grunnskólunum
f Reykjavík.
Kári Arnórsson, fv. skóiastjóri Fossvogsskóla.
Viðhorf og reynsla Kennarasambands íslands
af tilraunum með aukin þjónustutilboð og
áætlanir um einsetningu í grunnskólum.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Kennarasambandi íslands.
Upplýsingar um önnur svæði á SV-landi, sem bjóða
upp á einsetinn skóla og/eða „heilsdags-
vistunartilboð".
Ingólfur Ármannsson, skólafulltrúi.
Skóla- og vistunarmál f Noregi.
Erla Hrönn Jónsdóttir, félagsráðgjafi, starfar við rann-
sóknastofnun Háskólans á Akureyri.
Kaffihlé.
Einsetinn skóli - allra hagur.
Guðmundur Sigvaldason, formaður Foreldra- og kenn-
arafélags Síðuskóla.
Heilsdagsskóli - vistun.
Tómas Lárus Vilbergsson, kennari við Glerárskóla.
Vistunartilboð fyrir grunnskólanema á Akureyri.
Hugrún Sigmundsdóttir, íorstöðumaður skóladag-
heimilisins í Brekkukoti, Akureyri.
Námskeiðatilboð til grunnskólanema á Akureyri.
Hermann Sigtryggsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.
Umræður og fyrirspurnir.
17.00-18.00 Fundarlok.
Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir.
Undirbúningnefnd á vegum skólanefndar.
Stjórnir þrennra samtaka sjómanna á Norðurlandi
Mótmæla frumvarpi
um stjórn fiskveiða
STJÓRNIR þrennra samtaka,
Skipsljóra- og stýrimannafélags
Norðlendinga, Sjómannafélags
Eyjafjarðar og Vélsljórafélags
Islands mótmæla harðlega fram-
komnu frumvarpi til laga um
stjórn fiskveiða sem feli í sér
stóraukna hlutdeild krókaleyfis-
báta í heildarafia flotans. Þetta
kemur fram í ályktun sem stórn-
ir félaganna hafa sent sjávarút-
vegsnefnd Alþingis.
„Það er með öllu óviðunandi að
útgerðaraðilum og sjómönnum sé
mismunað eins gróflega og frum-
varpið gerir ráð fyrir,“ segir í álykt-
uninni og á það er bent að á fysta
ári kvótakerfisins 1984 hafi hlutur
smábáta verið um 5,6% af heildar-
þorskaflanum, en á fískveiðiárinu
1992-1993 hafí hlutur smábáta
aukist í 16,8%. Sem hlutfall af heild-
arþorskveiðinni frá árinu 1984 hafí
hlutur smábáta aukist um 300%.
Smábátum hafí á sama tíma fjölgað
um 42%.
Allir jafnir fyrir lögum
„í fylgiriti með frumvarpinu seg-
ir að því sé ætlað að festa kvóta-
kerfíð í sessi. Því er það eðlilegt
að koma öllum sem stunda veiðar
í atvinnuskyni undir sama hatt
þannig að allir séu jafnir fyrir lög-
um,“ segir í ályktun félaganna og
einnig að verði frumvarpið að lögum
sé verið að ganga freklega á hlut
þeirra sem stunda sjó á skipum sem
físka samkvæmt úthlutuðu afla-
marki og rýra hlut þeirra um a.m.k.
10%. Þá segir að þau rpistök hafí
verið gerð í lögum um stjórn fisk-
veiða frá 1990 að smábátum var
gert kleift að afla utan kerfísins
en með því hafí þeir átt að ná sér
í aflareynslu til úthlutunar á kvóta.
Lögin hafí leitt af sér mikla fjölgun
smábáta og algjör sprenging orðið
í aflahlutdeild þeirra. Stjórnir félag-
anna þriggja mótmæla einnig því
ákvæði harðlega að heimilt verði
að skrá veiðirétt á fískvinnslustöð,
með því aukist enn það misrétti sem
fylgt hefur sölu á veiðirétti.
„Það getur ekki verið ásættan-
legt fyrir útgerðaraðila og sjómenn
sem verið hafa á aflamarki að hluti
smábátaflotans verði utan kvóta-
kerfísins. Krafan hlýtur að vera sú
að allir sem stunda sjó taki þátt
með sama hætti í þeim samdrætti
sem orðið hefur í fískveiðum íslend-
inga.“
Lepja dauðann úr skel
Stjórnir félaganna þriggja hafa
einnig sent stjóm Útvegsmannafé-
lags Norðurlands bréf þar sem fram
kemur að stjórnir félaganna leggi
ríka áherslu á að það sé með öllu
óviðunandi fyrir sjómenn að út-
gerðaraðilar krefjist aukinna afla-
heimilda fyrir skip sín en láti síðan
önnur skip og báta veiða upp í kvóta
eigin skips fyrir smánarverð. „Á
sama tíma er því skipi sem afla-
heimildirnar hefur ætlað að liggja
í skrapi og lepja dauðann úr skel,“
segir í bréfi formanna félaganna
þriggja til Útvegsmannafélags
Norðurlands.
Morgunblaðið/Rúnar Þúr
í sólbaði
BLÍÐVIÐRÍ var á Akureyri í gær og notuðu vinkonumar Stína, Ragn-
heiður og Heiða tækifærið eftir páskahretið og sleiktu sólina á Ráðhús-
torgi.
einbýlishúsið EKRA
í landi Ytri-Varðgjár.
Stærð ásamt
bílskúr 220,5 fm.
7.000 fm lóð.
Dýrðlegt útsýni.
Húsið er ekki alveg
fullgert.
Nánari upplýsingar gefur
Fasteigna- og skipasala Norðurlands
Sími 96-11500 - Fax 96-27533
Listi Framsóknar á Dalvík
Kristján
Olafsson
efstur
DaJvík.
LISTI Framsóknarflokksins
vegna bæjarstjórnarkosning-
anna á Dalvík hefur verið ákveð-
inn.
Kristján Ólafsson deildarstjóri er
í 1. sæti, Katrín Siguijónsdóttir,
ritari, í 2. sæti, Stefán Gunnarsson,
bakari, í 3. sæti, Helga Björg Ei-
ríksdóttir, bankastarfsmaður, í 4.
sæti, Sigurlaug Stefánsdóttir, skrif-
stofumaður, í 5. sæti, Brynjar Aðal-
steinsson, bifvélavirki, í 6. sæti,
Ragnheiður Valdimarsdóttir, af-
greiðslumaður, í 7. sæti, Daníel
Hilmarsson, framkvæmdastjóri, í
8. sæti, Valgerður Guðmundsdóttir,
skrifstofumaður, í 9. sæti og í 10.
sæti er Einar Arngrímsson, málara-
meistari.
HG