Morgunblaðið - 18.05.1999, Síða 8

Morgunblaðið - 18.05.1999, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þingflokkur Samfylkingarinnar kom saman til fundar f gær Bjóða Halldóri að vera í forsæti vinstristjórnar MARGRÉT Frímannsdóttir, tals- maður Samfylkingarinnar, segir Ringfloklm- c—*-V]' MÆTTUM við segja eitt orð við nýja sægreifann, herra? Morgunblaðið/Kristinn Brauð kynnt með markaðsátaki BRAUÐ í öll mál er nafn á markaðsátaki Lands- sambands bakarameistara og Samtaka iðnaðarins sem hófst síðastliðinn laugardag og stendur út mánuðinn. Er markmið þess að kynna neytendum mikilvægi brauðs í hverri máltíð. Gefinn hefur ver- ið út litprentaður uppskriftabæklingur eftir Sigga Hall matreiðslumeistara og eru þar settar fram til- lögur að brauði sem gott þykir að hafa með réttun- um. Siggi Hall var í bakanlnu „Hjá Jóa Fel, brauð og kökulist" við opnun átaksins. Þar var einnig Þórarinn Þórhallsson, ostameistari frá Ostahúsinu í Hafnarfirði, sem sjá má hér kynna osta og brauð. VAL TILL K0SNINGAR EUROPAPARLAMENTET TIL EVRÓPUÞINGSINS Röstning kan ske 20 maj-10 juni pá Sveriges Ambassad, Lágmúla 7, 4tr Hægt er að kjósa í sendiráði Svíþjóðar, Lágmúla 7, 4. hæð, frá 20. maí-10. júní á eftirfarandi tímum: mándag-fredag 9.00-13.00 Mánud.-föstudaga frá kl. 9.00-13.00. söndag 6 juni 12.00-15.00 Sunnud. 6. júní frákl. 12.00-15.00. mándag 7 juni áven 16.30-20.00 Mánud. 7. júní einnig frákl. 16.30-20.00. Medtag legitimation! Takið með skilríki! Ráðstefna um lausnamiðaða meðferð Svarið er hjá fólkinu sjálfu Helga Þórðardóttir Hinn 25. og 26. maí nk. verður haldin námstefha um lausnamiðuð meðferðar- störf í Norræna húsinu sem fagfólk í fjölskyldu- meðferð mun standa fyr- ir. Fyrirlesari verður finnski geðlæknirinn Ben Furman. Helga Þórðar- dóttir starfar sem fjöl- skyldufræðingur eftir hugmyndafræðinni um lausnamiðaða fjölskyldu- merðferð. Hún var spurð í hverju þessi meðferð fælist? Þetta á að vera skammtímameðferð þar sem reynt er að finna lausnir í stað þess að horfa á vandamáhn og leita að orsökum þeirra. - Dugir þetta ekki skammt? Nei, þegar fólk er að reyna að breyta lífi sínu, sem það er ósátt við, þá krefst það heilmikiUar vinnu af því sjálfii. Vinnan felst í því að hjálpa skjólstæðingum að finna sínar eigin lausnir vegna þess að við teljum að lausnin sé hjá honum sjálfum. - Hvenær hófst svona meðferð á íslandi? Eftir því sem ég best veit þá erum við, á Sólvallagötu 10, frumkvöðlar í þessari vinnu og höfum unnið á þennan veg frá 1995. í upphafi var þetta fjöl- skyldumeðferðarheimiU þar sem fólk flutti inn með sínar fjölskyld- ur en fyrir rúmu ári var heimil- inu breytt í dagdeild, þar sem hver fjölskylda setur sér mark- mið til að vinna að og það er svo sett inn í sérstakt meðferðarpró- gramm. Vandamálin eru ólík og meðferðin því ólík. -Hvað er helst að hjá þeim fjöiskyldum sem leita tii ykkar? Það sem fólk er aðaUega að fást við er að bæta samskiptin í fjölskyldunni, að læra að setja bömum sínum mörk. Nýjar og aðrar leiðir í uppeldi eru kynntar og fólk er að fást að við að bæta sína félagslegu stöðu, svo sem losna úr einangrun og loks síðast en ekki síst að auka sjálfstraust sitt. - Um hvað mun Ben Furman einkum fjalla í fyrirlestri sínum? Þessi ráðstefna er fyrir fagfólk og hann mun tala um það hvað það merkir að vinna á þennan lausnamiðaða hátt, hvað það þýð- ir. Hvernig unnt er að breyta við- horfum skjólstæðinga frá því að einblína á vandann í það að leita að lausnum. Hvernig hægt er að finna bjargráð þegar erfitt er að koma auga á þau. - Er þessi maður mjög þekkt- urísínu fagi? Já, hann hefur skrifað margar bækur og sú nýjasta heitir It’s never too late to have a happy childhood, en sú bók varð met- sölubók í Finnlandi. Ég hef hlust- ► Helga Þórðardóttir er fædd í Reykjavík 1953. Hún lauk kennaraprófí 1973 og sér- kennaraprófi frá Kennarahá- skólanum 1975. Prófi í félags- ráðgjöf lauk Helga frá Lund- arháskóla 1981 og fjölskyldu- fræðingur varð hún 1992 frá Háskóla fslands. Mastersprófi í félagsvísindum lauk hún frá háskólanum i Amsterdam í Hollandi. Hún hefur starfað við ýmsa kennslu og sem fé- lagsráðgjafi frá 1981. Núna er hún forstöðumaður á Sólvalla- götu 10, það er lausnamiðuð Qölskyldumeðferðarstofnun. Hún er gift Kristjáni Guð- mundssyni hagfræðingi og eiga þau samanlagt fimm börn og eitt bamabarn. manneskja orðið t.d. fyrir ofbeldi, að vera stöðugt að tala um þá slæmu reynslu. Þetta viðhorf er það sem skilur á milli hefðbund- innar meðferðar og þeirrar sem við beitum. Við reynum að horfa til framtíðar en ekki að „velta okkur upp úr“ fortiðinni. -Sjáið þið einhvern árangur eftir þessi fjögur ár sem þið hafíð starfað eftir þessari hugmynda- fræði? Já, við hjálpum oft fólki sem er mjög illa statt og ósátt við líf sitt. Við sjáum að þegar það vill getur það komið auga á og lært að fara nýjar leiðir. -Hvaðan kemur þessi hug- myndafræði? Hún er angi út úr þeirri hefð- bundnu fjölskyldumeðferð sem hefur verið beitt í mörg ár. Við höfum stuðst aðallega við kenn- ingar Insoo Kinberg, en hún rek- ur meðferðarstöð ásamt manni sínum, Steve de Shazer, í Milwaukee í Bandaríkjunum. Þessi hugmyndafræði hefur verið að breiðast út um Bandaríkin og Evrópu og er ekki bara notuð í meðferðarvinnu heldur einnig til þess að auka afköst í fyrirtækj- um og vellíðan starfsfólks. að á hann bæði á ráð- stefnu í Bremen í Þýskalandi og í Gautaborg og fannst hann bæði skemmti- legur og áheyrilegur. - Er hægt að breyta viðhorfum fólks til æsku sinnar? Já, ég vil trúa því. Maður breytir að vísu ekki því sem orðið er en hægt er að draga út það sem gott er og jákvætt fyrir mann og reyna að gera meira úr því en láta hið slæma þá frekar liggja milli hluta. Við teljum ekki að það sé leið til árangurs, hafi Reynt er að finna lausnir -Er þetta ekki í takt við það sem kall- aðist að vera ráðhoil- ur hér áður fyrr? Það má segja það að vissu leyti, en reyndar byggist meðferð okkar á að spyrja fólkið og spyrja þar til það kemur sjálft með svarið. Við spyrjum lausnamiðaðra spum- inga í stað þess að ráðleggja - svarið er hjá fólkinu sjálfu, það þarf aðeins að finna sitt svar því okkar ráð duga ekki endilega öðrum vegna þess að við miðum út frá okkur sjálfum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.