Morgunblaðið - 18.05.1999, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Halldór Jakobsson, starfsmaður íslandsbanka við Suðurlandsbraut.
Halldór Jakobsson,
+
starfsmaður Islandsbanka
Þetta var allt
í hæsta máta
óeðlilegt
Þjóðhagsstofnun um verðlagshækkanir síðustu þriggja mánaða
__
Ymis þenslumerki
farin að sjást
HALLDÓRI Jakobssyni, starfs-
tnanni hjá Islandsbanka, Suður-
landsbraut, barst á miðvikudag-
inn í siðustu viku beiðni um að
millifæra 318 þúsund Banda-
ríkjadali, um 23,5 milljónir
króna. Beiðnin var að mörgn
leyti óvenjuleg og- Halldór af-
greiddi hana ekki. í ljós kom að
um var að ræða tilraun erlendra
fjársvikara til að hafa fé af
bankanum.
„Það hringdi hingað útlend-
ingur, talaði ensku og kynnti sig
sem Jonni eða Jóhannes, starfs-
mann hjá ÁTVR. Hann sagðist
þurfa að millifæra af reikningi
ÁTVR á bankareikning erlendis
318 þúsund dollara. Ég óskaði
eftir að fá þessa beiðni senda á
faxi til mín,“ sagði Halldór í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Strax eftir samtalið vöknuðu
grunsemdir hjá mér um að þetta
væri ekki í lagi. Svo kom beiðn-
in. Hún var líka á ensku og þeg-
ar ég fékk hana hringdi ég í
ÁTVR og sendi þeim beiðnina á
faxi. Þar kannaðist enginn neitt
við neitt.“
Röndin afmáð af faxinu
Halldór sagði að á faxinu
hefði verið búið að afmá röndina
efst á skjalinu um hvaðan faxið
var sent. Á skjalinu voru upplýs-
ingar um að ef frekari upplýs-
inga væri óskað ætti að hringja í
tiltekið símanúmer eða faxnúm-
er en þegar Halldór lét athuga
hvaða númer þetta væru kom í
ljós að þau voru skráð á Hótel
Borg.
Faxið barst klukkan 15.39,
um 20 minútum fyrir lok af-
greiðslutíma, daginn fyrir upp-
stigningardag. „Þeir láta víst
helst til skarar skriða í lok
dags þegar það er frídagur
daginn eftir,“ sagði Halldór.
„Maðurinn var mjög ýtinn,
sagði að það væri mikilvægt að
þetta gengi í gegn sem fyrst og
spurði á hvaða gengi hann
fengi þetta. Ég hélt honum í
símanum meðan ég var að tala
við þá í ÁTVR og sagði honum
að ég væri að bíða frekari fyr-
irmæla. Hann spurði hvort
hann mætti hafa samband við
mig aftur en siðan hef ég ekk-
ert heyrt af honum.“
Halldór sagði að það væri al-
vanalegt að bankamenn fengju
í hendur beiðnir af þessu tagi
með óskum um millifærslu
vegna millilandaviðskipta. Þær
beiðnir koma oft með faxi eða i
gegnum skjálínu. í þessu tilviki
hefðu grunsemdir vaknað strax
og því hefði hann lagt áherslu á
að fá millifærslubeiðnina senda
með faxi svo hægt yrði að rekja
viðskiptin og hafa uppi á mann-
inum. „Það eru margir áhættu-
þættir í sambandi við þessi er-
lendu viðskipti og það er nauð-
synlegt að vera á varðbergi,“
segir Halldór. „Oft eru þetta
minni pantanir frá aðilum, sem
við gjörþekkjum en þetta var
allt í hæsta máta óeðlilegt."
FRIÐRIK M. Baldursson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, segir að ástæða
sé til þess að hafa áhyggjur af verð-
lagshækkunum undanfarinna mán-
aða og bregðast verði við þeim með
aðhaldsaðgerðum. Vísitala neyslu-
verðs hefur hækkað um hálft pró-
sentustig á mánuði síðustu þrjá mán-
uði, en það jafngildir 6,2% verðbólgu-
hraða umreiknað til árshækkunar.
Friðrik sagði að þótt ýmsar skýr-
ingar væru á hækkun vísitölunnar
undanfarið væri ekki hægt að líta
framhjá því að mikil þensla væri í
efnahagslífinu og ýmis merki væru
um að hennar væri farið að gæta í
verðlagshækkunum.
„Ég held að þegar það er komin
þriggja mánaða hækkun af þessari
stærðargráðu sé alveg orðið tíma-
bært að fara að hafa áhyggjur. Við
höfum ítrekað varað við þenslunni og
þeim afleiðingum sem hún kynni að
hafa á verðlag," sagði Friðrik.
Hann sagðist telja að við værum
ISLANDSFLUG tók nýlega
Boeing 737-300-þotu á leigu til
þriggja ára og er það þriðja þotan
sem félagið tekur í reksturinn. Þot-
an er nú í verkefnum fyrir DHL-
hraðflutningafyrirtækið í Frakk-
landi en kemur til Islands í lok mán-
aðarins og sinnir í sumar farþega-
og fraktflugi frá íslandi.
Ómar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri íslandsflugs, segir
737-300-þotuna með sama sniði og
737-200-þotan sem félagið hefur
notað jöfnum höndum til farþega-
flugs fyrir ferðaskrifstofur og frakt-
flugs milli íslands og Brussel.
Þriðja þotan sem íslandsflug rekur
er um þessar mundir í verkefnum í
Karabíska hafinu, flýgur milli borga
þar og á Flórída í Bandaríkjunum.
Nýja 737-300-þotan mun frá og
með næstu mánaðamótum annast
leiguflug frá íslandi fyrir ferða-
skrifstofumar Samvinnuferðir-
Landsýn og Hekla rejser í Dan-
mörku. Segir Ómar verða famar
tvær ferðir vikulega til Kaup-
mannahafnar og eina ferð í viku til
Rimini, Gautaborgar og Madrid.
Þotan mun síðan að næturlagi ann-
ast fraktflugið milli Keflavíkur og
Bmssel með viðkomu í Englandi. I
nálægt ystu mörkum þess sem efna-
hagslífið þyldi í þessum efnum. Bæði
vinnumarkaður og vörumarkaðir
sýndu hvað eftirspurnin væri mikil.
„Við getum ekki gengið öllu lengra
án þess að þessi þensla fari að segja
til sín í verðbólguþrýstingi og það
era ákveðin merki um að það sé farið
að gerast," sagði Friðrik.
Erlendar vörur lækkuðu um 3%
Hann sagði að sjá hefði mátt merki
um þetta strax á síðasta ári, en þá
hefði ýmislegt stuðlað að því að halda
verðbólgunni niðri. Á síðarihluta árs-
ins hefði verðbólga þannig farið hratt
lækkandi í velflestum viðsldptalönd-
um okkar en hefði hins vegar haldist
nokkuð stöðug hér. Innlendir þættir
vísitölunnar hefðu hækkað töluvert
meira en þeir erlendu. Innflutnings-
verðlag hefði verið lágt og sama gilti
um olíuverð, auk þess sem hækkun
gengisins hefði hjálpað til í þessum
efnum. Þá hefði árangurinn hér inn-
stað nýju þotunnar mun 737-200-
þotan annast verkefnið í Frakklandi
í sumar.
Þúsundir tillagna um
nafn á ensku
Nýlega efndi íslandsflug til sam-
keppni um enskt nafn fyrir félagið
og bárast uppástungur frá þúsund-
anlands verið mjög góður og merki-
lega lítil verðbólga, sem hins vegar
hefði orðið töluvert mehi ef þessir
erlendu þættir hefðu ekki þróast með
jafn hagstæðum hætti og raun bæri
vitni. Svo dæmi væra tekin hefði
þjónusta hækkað um rúmlega 3%
innan ársins, húsnæði um rúmlega
6% og innlendar vörur hefðu hækkað
um rúmlega 2% í verði. Erlendu vör-
unar hefðu hins vegar lækkað um ná-
lægt 3% á síðasta ári.
„Þegar þetta gengur til baka segir
það auðvitað til sín, þannig að það er
að sumu leyti að koma fram undir-
liggjandi verðbólga sem hefur í sjálfu
sér verið í einhverjum mæli. Það er
auðvitað óskaplega mikilvægt að
okkar mati að missa alls ekki verð-
lagið úr böndunum og ég tel að það
eigi að beita öllum ráðum til þess,
bæði peningamálunum og einnig op-
inberu fjármálunum þegar maður
horfir til aðeins lengri tíma,“ sagði
Friðrik að lokum.
um landsmanna. Ómar segir hafa
verið unnið úr nöfnunum og þeim
fækkað í 8-10 sem verið sé að full-
reyna. Úrslit keppninnar verða til-
kynnt í lok mánaðarins þegar nýja
þotan kemur til íslands í fyrsta
sinn.
B 737-300-þotan tekur 142 farþega
en 200-gerðin tekur 115 farþega.
Islandsflug tekur
þriðju þotuna í notkun
NÝJA B 737-300-þotan sem íslandsflug hefur tekið á leigu til þriggja
ára hefur verið máluð í litum félagsins. Þotan er leigð af bandariska
fyrirtækinu Internationnl Aviation Investors.
Náttúruskoðun í
Biskupstungum
Tvö vinnu-
>
slys í Os-
landi ehf.
TVÖ vinnuslys urðu með stuttu
millibili í gær í loðnubræðslunni
Óslandi ehf. á Höfn í Homafirði
er verið var að vinna við ný-
byggingu við bræðsluna. Hið
fyrra varð um klukkan 16 er
starfsmaður loðnubræðslunnar
rak höfuð í beittan jámbita svo
sauma varð 15 spor í höfuð
hans á Heilsugæslustöðinni á
Homafirði. Klukkustund síðar
slettist sýra í auga starfsmanns
vélsmiðjunnar Héðins hf. sem
vann við rafsuðu í bræðslunni.
Skolað var úr auga hans á
Heilsugæslustöðinni.
Fulltrúar Vinnueftirlits ríkis-
ins verða boðaðir á vettvang til
að kanna aðstæður á slysstað.
UMHVERFISNEFND Biskups-
tungna bauð á dögunum kennur-
um við skóla hreppsins, leik-
skólakennurum, fólki í ferðaþjón-
ustu og fleirum í náttúruskoðun-
arferð um sveitarfélagið. Til-
gangurinn var að vekja athygli á
náttúrufari og sögu Biskups-
tungna og kynnast náttúruperl-
um sem ekki blasa við alla daga.
Leiðsögumenn voru Haukur Jó-
hannesson jarðfræðingur og Sig-
urður Magnússon grasafræðing-
ur, báðir starfsmenn Náttúru-
fræðistofnunar. Sögðu þeir frá
jarðfræði svæðisins og gróðri.
Meðal annars voru skoðaðar 10
þúsund ára gamlar sjávarmiiyar
á Spóastöðum frá þeim tíma sem
sjór náði 100 metra yfir núver-
andi sjávarmál á þessu svæði,
jarðsaga og gróður í Úthlíð,
væntanleg Geysisstofa við Geysi
og fuglalíf og gróður á Höfða en
þar sagði Sigurður Magnússon
þátttakendum frá gróðurfari
svæðisins. Haukur sagði meðal
annars frá Þrælagarði sem gerð-
ur var um árið 900 og liggur
þvert yfir tunguna, milli Brúarár
og Tungufljóts, og er um 7 km
langur. Einnig frá hugmyndum
um endurgerð „Biskupaleiðar"
milli Skálholts og Þingvalla. Er
þetta um 33 km leið eða þægileg
tveggja daga ganga, að sögn
Hauks, leið sem hefur boðskap
og tengir okkur við rætur okkar.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
STALDRAÐ var á Höfða í náttúruskoðunarferð Umhverfisnefndar
Biskupstungna. Sigurður Magnússon grasafræðingur sagði kennurum
og öðrum þátttakendum frá gróðurfari svæðisins.