Morgunblaðið - 18.05.1999, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999 13
Viðbót við flugreglur JAA tekur gildi 1. október
Ná nú einnig til
minni flugrekenda
VIÐBÓT við reglur JAA Flugöiygg-
issamtaka Evrópu, svonefndar JAR
OPS 1 reglur, eiga að taka gildi hér-
lendis 1. júní samkvæmt ákvörðun
Flugmálastjórnar. Pétur K. Maack,
framkvæmdastjóri flugöryggissviðs
Flugmálastjómar, segir hér um
minni háttar viðbætur að ræða en að-
albreytingin verður frá og með 1.
október þegar JAR OPS reglumar
eiga að ná til þeirra sem starfrækja
minni loftför.
JAR OPS 1 reglumar tóku fyrst
gildi hérlendis 1. aprfl 1998. Ná þær
til flugrekenda sem reka flugvélar í
atvinnuskyni með heildarflugtaks-
þyngd meiri en 10 tonn og/eða eru
ætlaðar til flutnings 20 farþega eða
fleiri. I reglunum er kveðið á um hina
fjölmörgu þætti flugrekstrar, svo sem
verklagsreglur í flugi, mælitæki og
búnað, viðhald, þjálfun og próf flugá-
hafna, handbækur og fleira.
Pétur K. Maack segir að þegar
reglumar ná frá 1. október yfir hina
minni flugrekendur megi segja að
verið sé að koma á meiri aga og festu
í rekstri minni fyrirtækjanna. Verið
sé að staðfesta með reglum og skrán-
ingu verklag og aðferðir sem félögin
hafi í raun unnið eftir síðustu árin.
Þannig verði rekstur fyrirtækjanna
formlegri án þess að nokkur sýnileg
breyting verði í sjálfu sér í daglegum
rekstri þeirra. Meðal ákvæða em að
kröfur til flugrekstrarhandbóka
minni félaganna verða hinar sömu og
þeirra stærri. I flugrekstrarhandbók-
um á að koma fram hvemig háttað sé
framkvæmd flugrekstursins, samn-
ingum um viðhald og fleira. Pétur
segir að nýju reglumar þýði aukna
vinnu fyrir þessi fyrirtæld, einkum í
byrjun þegar skrifa þarf nauðsynleg-
ar handbækur.
Gefin út á nokkurra ára fresti
JAR OPS 1 reglurnar um flug-
rekstur voru upphaflega birtar í
mars 1998 í Stjómartíðindum. Við-
bætumar við JAR OPS 1 reglumar
em hins vegar eingöngu til á ensku
og ákvörðun um að þær tækju gildi
var birt í flugmálahandbók og kynnt
í upplýsingabréfi til flugrekenda.
Pétur segir að búast megi við smá-
vægilegum breytingum og viðbótum
við reglugerðir eins og JAR OPS
einu sinni til tvisvar á ári og það sé
mjög kostnaðarsamt ef birta eigi
reglugerðina í heiid sinni í hvert sinn
sem breytingar verða. Því hafi ekki
verið tahð nauðsynlegt að gefa við-
bótina út sem reglugerð að sinni
heldur verið ákveðið að birta hana
sem reglur á ensku með útgáfu upp-
lýsingabréfs. Gera má þó ráð fyrir að
á þriggja ára fresti verði gefin út
heilsteypt útgáfa af reglugerðinni á
íslensku.
Heimilt er að birta í upplýsinga-
bréfi eða flugmálahandbók ákvarðan-
ir Flugmálastjómar og skulu þær
vera á ensku eða íslensku eftir því
sem við á. Samgönguráðherra er
heimilt að höfðu samráði við íslenska
málnefnd að kveða nánar á um útgáfu
þeirra með reglugerð.
NAFIJE Tora og mágkona hennar Zymrie Beciri taka til hendinni að
loknum kaffitfma á Eiðum.
Konurnar í hópi flóttamannanna frá Kosovo
Tilbúnar að
greiða með
skartgripum
Tal undir-
býr útleigu
GSM-síma
TAL hf. hyggst hefja útleigu á GSM-
símum með 1.900 megariða tíðni sem
hægt er að nota í Bandaríkjunum og
Kanada. GSM-símar fyrir Vestur-
Evrópu em gerðir ýmist fyrir 900
eða 1.800 megarið og era því ekki
nothæfir vestanhafs. Tal gerði nýlega
samning við símafyrirtæki í Kanada.
Kort frá Tali sem stungið er í
1.900 megariða GSM-síma virkar nú
í Kanada í kjölfar samningsins og
einnig hefur fyrirtækið samninga við
tvö fyrirtæki í Bandaríkjunum sem
nær til stærstu borga í Bandaríkjun-
um.
Þórólfur Árnason, forstjóri Tals,
segir að Tal sé nú komið með 50
samninga á einu ári í um 35 löndum.
Þórólfur var spurður hvort þess
væri langt að bíða að allir GSM-sím-
ar verði gjaldgengir hvar sem er í
heiminum: „Ég býst við því að fram-
leiðendur leggi aukna áherslu að
símar þeirra innihaldi öll tíðnisviðin.
Ericsson og Bosch hafa þegar fram-
leitt slíkan heimssíma. Þessir símar
eru töluvert dýrari. En þegar farið
er til Bandaríkjanna er auðvelt að
leigja bandarískan GSM-síma og það
er auðvitað ódýrara en að kaupa slík-
an síma. Við emm núna að undirbúa
það að leigja út síma til ferðalanga
sem eru að fara til Kanada eða
Bandaríkjanna,“ sagði Þórólfur.
---------------
Pólverjar í
Norðurlanda-
samstarfí?
MÖGULEIKAR á því að opna Pól-
verjum aðgang að norrænum sam-
starfsverkefnum, til dæmis á sviði
ungmenna- og vinnuskipta, voru
ræddir í heimsókn forsætisnefndar
Norðurlandaráðs til pólska þingsins
fyrir skömmu.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá Alþingi að heimsóknin fór fram
10.-12. maí sl. og var Rannveig Guð-
mundsdóttir alþingismaður fulltrúi
Islendinga. Tilgangur heimsóknar-
innar var að efla tengsl ráðsins við
þjóðþing Póllands og styrkja þannig
samvinnu við pólsk stjómvöld í milli-
ríkjasamstarfi við Eystrasaltið.
I heimsókninni var meðal annars
rætt við forseta og varaforseta þings-
ins, Jan Kristó, umhverfisráðherra
Póllands, og Andrzej Ananicz, að-
stoðamtanríkisráðherra.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
BJARNI Arnþórsson starfmaður Landgræðslunnar jafnar fræi í sán-
ingarvélina á Mýrdalssandi.
MÆÐURNAR sem komu frá
Kosovo fyrir tíu dögum hafa
verið duglegar að taka til
hendinni á Eiðum, þar sem þær
búa fyrst um sinn ásamt fjöl-
skyldum sfnum, og eru þær
þegar farnar að taka þátt í
eldamennsku og uppvaski. Þeg-
ar blaðamaður Morgunblaðsins
hitti þær í liðinni viku yfir
kaffíbolla varð honum starsýnt
á gyllt armbönd, eyrnalokka,
hringi á fingrum og hálsmen
sem margar þeirra báru. Þegar
hann spurði út í hvers vegna
þær skörtuðu svo miklu gulli
kom f ljós að á flóttanum frá
Kosovo hafði gullið mikilvægan
tilgang.
„Við vorum heima þegar Ser-
barnir komu og ráku okkur út.
Þeir gáfu okkur tíu mínútur til
þess að fara og svo kveiktu þeir
í húsunum okkar. Uti á götun-
um varð ég svo vitni að því
þegar þeir skutu þrjá menn til
bana,“ segir Nafíje Tora, 27
ára hárgreiðslukona frá Prist-
ina. „Áður en ég fór að heiman
hlóð ég á mig skartgripum úr
gulli til þess að geta borgað
með ef ég myndi lenda í her-
mönnum eða lögreglunni. Þeir
vilja ekki silfur, bara gull, svo
ég var heppin að hafa smekk
fyrir gulli. Ég tók gullið í þeirri
von að geta greitt fyrir líf
mitt,“ segir Nafije.
fslenskukennsla að hefjast
Mágkona Nafije, hin 23 ára
gamla Halide Tora, hefur sömu
sögu að segja. Hún og eigin-
maður hennar Muhamet eiga
eins árs gamlan son. „Eigin-
maður minn sagði mér að setja
á mig gullið mitt áður en við
fórum í þeirri von að ég gæti
greitt með því ef þeir vildu
taka son okkar,“ segir Halide
og fleiri konur í hópnum taka
undir með henni.
Seinni hópur flóttamanna frá
Kosovo sem kom hingað til
landsins hefur nú verið í viku
hér á landi. Hópurinn hefur
ýmislegt fyrir stafni og hefur
Rauði krossinn á Egilsstöðum
staðið fyrir ýmiss konar
dægradvöl á hveijum degi, svo
sem gönguferðum og sundi. Þá
er í'slenskukennsla einnig að
heíjast en hópurinn hefur þeg-
ar lagt sig fram við að læra
nauðsynlegustu orðin í ís-
lensku.
Vorverkin haf-
in hjá Land-
græðslunni
Fagradal-Vorverkin eru hafin hjá
Landgræðslu Ríkisins á Mýrdals-
sandi. Að sögn Sveins Runólfssonar
Landgræðslustjóra hefur Land-
græðslan og Vegagerð ríkisins haft
með sér samstarf um uppgræðslu á
Mýrdalssandi með það að markmiði
að hefta sandfok á þjóðvegi 1 um
Mýrdalssand. Sveinn sagði að þetta
samstarf hefði staðið frá árinu 1987
og að nú í vor yrði að mestu sáð
melgresi sem var skorið í Áltaver-
inu síðastliðið haust, einnig ber-
ingspunti og túnvingli. Sáð er í
röndum sem eru allt að sex km.
langar og fjörutíu metra breiðar og
eru þær um allan Mýrdalssand, en
búið að sá i mörg hundruð hektara
á sandinum á þessum tíma og er
Mýrdalssandur orðinn einn stærsti
fræbanki landsins hjá landgræðsl-
unni. Sveinn sagði að Iandgræðslan
væri búin að semja við Salvar Júlí-
usson bónda í Jórvík í Álftaveri um
verktöku á dreifingu á áburði á
Mýrdalssandi. En það er stórt sam-
göngumál fyrir íbúa austan Mýr-
dalssands að Mýrdalssandur verði
ekki ófær vegna sandfoks.
Félag íslenskra leikskólakennara á leið út úr BSRB
Atkvæðagreiðsla
um úrsögn í haust
FULLTRÚARÁÐSÞING Félags
íslenskra leikskólakennara sam-
þykkti samliljóða ályktun um að láta
fara fram allsheijaratkvæðagreiðslu
í félaginu um úrsögn úr BSRB og
inngöngu í nýtt kennarafélag sem
áformað er að stofna í haust.
90% vilja úr BSRB
í vetur fór fram skoðanakönnun
innan Félags leikskólakennara þar
sem 90% félagsmanna lýstu yfir
vilja til að segja sig úr BSRB.
Reiknað er með að allsherjarat-
kvæðagreiðslan fari fram í haust.
Áformað er að boða til stofnfundar
nýs kennarafélags í nóvember og að
það tald formlega til starfa 1. janúar
nk. Á fulltrúaráðsfundinum var
ákveðið að skipa þriggja manna
nefnd sem fær það verkefni að ræða
viðKÍ og HÍK um sameiningu.
I kjaramálaályktun fundarins er
lögð áhersla á þrjú atriði. í fyrsta
lagi verulega hækkun grunnlauna
og endurskoðun á röðun launa;
flokka og starfsaldurshækkanir. í
öðru lagi undirbúningstíma fyrir
SLOKKVILIÐ Reykjavíkur var
kallað að Suðurlandsbraut 12 kl.
4:05 aðfaranótt mánudags vegna
elds sem kom upp í skrifstofu-
rými á 3. hæð.
Að sögn aðalvarðstjóra
Slökkviliðsins var talsverður eld-
ur inni og mikill reykur þegar að
leikskólakennara með deildarstjórn
og í þriðja lagi aukið framlag í
starfsmenntasjóð. Að auki er lögð
áhersla á styttingu vinnuvikunnai-.
Stjóm félagsins var endurkosin á
fundinum. Formaður er Björg
Bjarnadóttir og varaformaður er
Þröstur Brynjarsson.
var komið. Slökkvistarf gekk vel
og var lokið kl. 4:40. Fólk var í
sjálfheldu á 4. hæð en ekki í
hættu.
Töluverðar skemmdir urðu af
völdum eldsins í rýminu þar sem
kviknaði í en aðrir hlutar hússins
eru óskemmdir.
Eldur í skrifstofurými