Morgunblaðið - 18.05.1999, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 18.05.1999, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ 25 ár frá brautskrán- ingu fyrstu stúdent- anna á ísafírði Holl- vina- samtök FVÍ/MÍ stofnuð ísafirði - Hollvinasamtök Framhaldsskóla Vestfjarða verða stofnuð við athöfn á sal skólans kl. 11.00-12.30 á laug- ardaginn, 15. maí. Vettvangur fyrir velunnara skólans Samtökin eru hugsuð sem vettvangur fyrir alla þá sem vilja skólanum vel og sjá nauðsyn þess að hann fái vax- ið og dafnað. Einnig er þess vænst, að þau geti orðið mikil- vægur tengiliður skólans við fyrrverandi nemendur, for- eldra nemenda, fyrirtæki og stofnanir. A stofnfundinum verða kynntar nánar hug- myndir um starf samtakanna og þeim kosin stjóm, en þeg- ar hafa níu manns gefið kost á sér. Fyrstu stúdentarnir brautskráðust Samtökin eru stofnuð á þeim tímamótum þegar 25 ár eru liðin frá því að fyrstu stúdentarnir brautskráðust frá Menntaskólanum á Isa- firði, sem nú heitir Fram- haldsskóli Vestfjarða. Þeir sem unnið hafa að undirbún- ingi bjóða alla velunnara skól- ans velkomna á stofnfundinn, hlýða þar á tónlist og þiggja léttar vestfirskar veitingar, en þar má nefna harðfisk og mysu. Góð rekstrarafkoma Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki Aðalfundur ákveður hlutafj árlækkun Hlustuðu á tónlist og þágu vöfflur Egilsstöðum - Fjölskyldurnar frá Kosovo sem dvelja nú í Al- þýðuskólanum á Eiðum brugðu sér á tónleika hjá Tón- listarskólanum á Eiðum sem haldnir voru í Kirkjumiðstöð- inni á Eiðum. Þetta var í fyrsta sinn sem fólkið fór á mannamót eftir að það kom til landsins síðast- liðinn laugardag. Það voru nemendur skólans á öllum aldri sem fluttu tónlist en þetta voru vortónleikar skól- ans. I kaffíhléi var öllum boðið upp á vöfflur með rjóma. Sauðárkróki - Aðalfundur Steinullar- verksmiðjunnar hf. á Sauðárkróki var haldinn fyrrihluta maímánaðar. I ársyfirliti framkvæmdastjóra, Einars Einarssonar, kom fram að rekstur verksmiðjunnar hefur gengið mjög vel, framleidd voru 7.380 tonn af steinull, og nam steinullarsala á inn- anlandsmarkaði 99.397 rúmmetrum, sem er 4,2% aukning mUli ára, eri út voru fluttir 55.273 rúmmetrar, sem er nánast sama magn og á síðasta ári. Framleitt var á þrískiptum vöktum allt árið og voru framleiðsluvikur 49 og framleiðslustundir 5.046 og námu því meðalafköst 1.462 kg á klukku- stund. Afkoma fyrirtækisins var góð og nam söluverðmæti afurða á innan- landsmarkaði 392,1 rmlljón en verð- mæti útflutnings var 210,1 milljón. Aðrar tekjur, svo sem af umboðssölu- vöru, voru 18,7 mUljónir. Rekstrargjöld námu 453,9 mUlj. og varð hagnaður fyrir fjármagnsliði því 106,3 mUlj. sem er 7,1 mUlj. betri af- koma en árið áður og skýrist fyrst og fremst af verulegri lækkun afskrifta, en afskriftum stofnfjárfestinga lauk á árinu. Fjármagnskostnaður nam 7,7 miEj., sem er ríflega helmings- lækkun frá fyrra ári, og nam hagnað- ur af reglulegri starfsemi því 98,6 millj. Einar sagði greiðslustöðu fyrir- tækisins trausta og nam veltufé frá rekstri 160,1 millj. og handbært fé í árslok því um 101 mUljón, og var veltufjárhlutfaU í árslok 2,28. Efnahagur fyrirtækisins lækkaði verulega á milli ára, þar sem greitt var að fullu ríflega 212 milljóna lán fyi'irtækisins hjá Norræna fjárfest- ingarbankanum. Eigið fé fyrirtækis- ins jókst um 102 milljónir milli ára og nam í árslok 459 millj. og hækkaði eiginfjárhlutfall úr 42,4% í 66,15% mUU ára. Þá nam arðsemi eigin fjár 27,5% og óráðstafað eigið fé fyrir- tækisins er í fyrsta sinn jákvætt um 4,3 mUljónir. Á fundinum var lögð fram tillaga stjórnai- um lækkun hlutafjár félags- ins um 35% og nemur sú lækkun kr. 148.558.970, og skal hluthöfum greitt í peningum fyrii- 1. september þessa árs, og var tiUaga þessi samþykkt samhljóða. Kennarar í Vestur- byg-g-ð fá kaupauka Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir Vesturbyggð - Bæjarstjórn Vest- urbyggðar hefur samþykkt kaupauka til kennara og leiðbein- enda við grunnskólana í Vestur- byggð. Kennarar og leiðbeinendur fá kaupauka frá 1. maí sl. til 31. desem- ber 2000, 8.500 krónur á mánuði. Kennarar og leiðbeinendur fá stað- aruppbót 1. sept. nk., 60.000 kr.- 1. apríl 2000, 40.000 kr. og 1. sept. 2000, 40.000 kr. Ofangreint miðast við 100% starf og greiðist hlutfallslega miðað við lægra starfshlutfall. Staðaruppbótin kemur í stað húsa- leigufríðinda sem falla úr gildi 1. ágúst nk. Þar með er öllum kennur- um gert jafnt undir höfði hvort sem þeir búa í eigin húsnæði eða leigu- húsnæði. Greiðslumar ná ekki til skóla- stjórnenda, þar með talið aðstoðar- skólastjóra, né stundakennara. * Lionsklúbbarnir í Olafsvík Gáfu kvikmyndasýningar- vélar og ræðupúlt Ólafsvík - Um þessar mundir er að ljúka starfsárinu hjá Lionsklúbbunum í landinu, en í Snæfellsbæ eru starfandi fjórir klúbbar, þar af tveir í Ólafs- vík, Lionsklúbbur Ólafsvíkur, sem er karlaklúbbur og Lions- klúbburinn Rán, sem er kvennaklúbbur, en báðir þessir klúbbar hafa látið til sín taka svo um munar í samfélaginu. Að sögn Jóns Guðmundsson- ar, formanns Lionsklúbbs Ólafsvíkur, ber hæst í starfí klúbbsins á starfsárinu af- hendingu kvikmyndasýningar- véla sem klúbburinn hefur gefíð félagsheimilinu á Klifí. Munu klúbbfélagar annast sýningar fyrst um sinn í sjálf- boðavinnu. Frumsýning var hinn 18 apríl sl. og mættu um 450 manns á bíó þann dag. Fékk klúbburinn sérstaka við- urkenningu frá Framfarafé- lagi Snæfellsbæjar fyrir þetta glæsilega framtak. Jón kveðst hafa lagt áherslu á samstarf við aðra klúbba á starfsárinu, en Lionsklúbbur Ólafsvíkur ásamt nágranna- klúbbnum Þernum á Hell- issandi stóð fyrir skemmtun fyrir eldri borgara hinn 24. apríl í tilefni árs aldraðra. Um 135 eldri borgarar af öllu Snæ- fellsnesi sóttu skemmtunina, borðuðu saman og dönsuðu við undirleik „Þotuliðsins“ úr Borgarnesi. Þessar sameigin- legu skemmtanir eldri borgara hafa eflt kynni og verið mikill gleðigjafí. Samstarf Ólafsvíkur- klúbbanna náið Að sögn Bjarneyjar Jörgen- sen, formanns Lionsklúbbsins Ránar, hafa lionskonur heim- sótt eldri borgara á dvalar- heimilinu Jaðri og gengist fyr- ir fjölskyldubingói, en sam- starf Ólafsvíkurklúbbanna er náið og hafa klúbbarnir saman gefíð Olafsvíkurkirkju ræðupúlt og nú síðast leikskól- anum Krfiakoti endurskins- vesti til að færa börnin í þegar farið er út af leikskólalóðinni. Einnig nýtur Grunnskólinn góðs af starfínu, en Lions- klúbburinn Rán ætlar að gefa sérdeild skólans fullkominn tölvubúnað með hugbúnaði og prentara, en Lionsklúbbur Ólafsvíkur hefur styrkt ný- sköpunarsjóð grunnskólans með fjárframlagi. Á vímuvarnadegi Lions- hreyfingarinnar gengust klúb- barnir fyrir skemmtiskokki og buðu síðan upp á hressingu og sund, auk hinnar hefðbundnu merkjasölu. Verkefnið „rauð fjöður“ er í samvinnu allra klúbbanna fjögurra í Snæfells- bæ. Að sögn Jóns Guðmundsson- ar er ólokið einu af vorverkum Lionsklúbbs Ólafsvíkur, en það er að mála „Tindinn" og gera hann kláran fyrir ferðamanna- vertíðina, en „Tindurinn“ er 36 tonna eikarbátur sem kom- ið hefur verið smekklega fyrir við veginn þar sem ekið er inn í Ólafsvflí að sunnan. Að mati formannanna hafa sameiginleg ferðalög og skemmtanir styrkt innviði klúbbanna og eflt vináttu og góðan starfsanda með félögun- um. Á nýafstöðnu Lionsþingi var Jón Guðmundsson kjörinn varaumdæmisstjóri í umdæmi 109B. Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar JÓN Guðmundsson, formaður Lionsklúbbs Ólafsvíkur og sýningar- stjóri, við hinar nýju sýningarvélar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.