Morgunblaðið - 18.05.1999, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Árvakur hf. skilaði 93 milljónum króna í hagnað á síðastliðnu ári
Metár hvað
auglýsinga-
magn varðar
Árvakur hf. úr ársn ðikningi 1998
I Rekstrarreikningur Miiijónirkróna 1998 1997 Breyting
Rekstrartekjur 2.565 2.170 +18,2%
Rekstrargjöld 2.408 2.040 +18,0%
Hagnaður án fjármagnsliða 157 139 +12,9%
Fjármagnsliðir, nettó -19 -18 +5,6%
Óreglulegir liðir -10
Hagnaður af reglul. starfsemi 139 112 +24,1%
Tekju- og eignarskattur -46 -28 +64,3%
Hagnaður ársins 93 74 +25,7%
Efnahagsreikningur Miiijónir kmna 31/12*98 31/12 '97 Breytíng
| Elgnlr: \
Fastafjármunir 1.084 1.001 +8,3%
Veltufjármunir 645 460 +40,2%
Eignir samtals 1.729 1.461 +18,3%
| Skuldir og eiglð fé: |
Eigið fé 751 670 +12,1%
Langtímaskuldir 436 364 +19,8%
Skammtímaskuldir 473 343 +37,9%
Skuldir og eigið fé samt. 1.729 1.480 +18,3%
Sjóðstreymi og kennitölur 1998 1997 Breyting
Handbærtfé Milljónir króna 210 83 +153,0%
Veltufé f rá rekstri Milljónir króna 215 181 +18,8%
Veltufjárhlutfall 1,36 1,34
Hagnaður sem hlutf. af rekstrartekjum 3,60% 3,40%
Eigið fé sem hlutf. af heildareignum 43,4% 45,8%
Arðsemi eigin fjár 13,9% 12,1%
ÁRVAKUR hf., sem gefur út Morg-
unblaðið, skilaði 93 milljónum króna
í hagnað á síðastliðnu ári, samanbor-
ið við 74 milljónir árið 1997, og nem-
ur aukningin milli ára 25,7%. Velta
félagsins jókst um 18,2% milli ára,
en hún nam 2.565 milljónum króna í
fyrra, samanborið við 2.170 milljónir
árið áður.
Aðalfundur Árvakurs hf. var hald-
inn síðastliðinn laugardag og í
skýrslu stjómar félagsins, sem Hall-
grímur B. Geirsson, framkvæmda-
stjóri Arvakurs hf., flutti, kom m.a.
fram að meðalupplag Morgunblaðs-
ins á síðasta ári var 53.982 eintök á
móti 52.760 eintökum árið 1997. Út-
komudagar á síðasta ári voru alls
297 og blaðsíðufjöldi var 28.924 á
móti 26.672 árið 1997, eða 2.252 blað-
síðum fleiri. Það er 8,4% aukning
milli ára og jafnframt mesta blað-
síðutal frá upphafi.
Hvað auglýsingamagn varðar var
síðastliðið ár metár frá upphafi.
Aukning í auglýsingamagni var
18,3% milli ára, og vora auglýsingar
36,11% af heildarblaðsíðufjölda á
móti 33,09% árið 1997.
Fjárfest fyrir 214,5
milljónir króna
Arvakur hf. fjárfesti á síðastliðnu
ári fyrir alls 214,5 milljónir króna á
móti 123,7 milljónum árið á undan,
en líkt og árið áður var mikill meiri-
hluti fjárfestinga ársins til kaupa og
endurnýjunar véla og áhalda.
Stjóm félagsins tók þá ákvörðun á
haustdögum 1997 að festa kaup á
svokölluðum innsetningar- og pökk-
unarbúnaði fyrir sem svaraði 140
milljónum króna. I máli Hallgríms B.
Geirssonar kom fram að tilgangur
fjárfestingarinnar hafi einkum verið
þríþættur. I fyrsta lagi að mæta
auknum kröfum mai'kaðarins um lit-
prentun án þess að þurfa að stækka
eða endumýja prentvél, í öðru lagi að
auðvelda pökkun og dreifingu sam-
fara ört stækkandi blaði, og í þriðja
lagi væri unnt með þessum búnaði að
bjóða nýja þjónustu, þ.e. dreifingu
ýmist á efni sem prentað yrði í prent-
smiðju Morgunblaðsins eða annars
staðar. Tækjabúnaðurinn var tekinn í
notkun í apríl í fyrra og nema beinar
tekjur af dreifingarstarfsemi á síð-
astliðnu ári 15,5 milljónum króna
þann tíma sem búnaðurinn hefur ver-
ið starfræktur, en þá er ótalinn
ávinningur af aukinni litprentun og
hagræði við pökkun og dreifingu.
I árslok 1997 tók stjóm Árvakurs
hf. ákvörðun um kaup á framleiðslu-
og ritstjómarkerfi frá danska fyrir-
tækinu CCI fyrir um 140 milljónir
króna og hefur verið unnið að skipu-
lagi og uppsetningu kerfisins allt síð-
astliðið ár, auk þjálfunar starfsmanna
á þessu ári. Sagði Hallgrímur að búist
væri við að áætlanir stæðust og kerfið
yrði tekið í notkun í áfóngum upp úr
miðju þessu ári. Sagði hann ástæðu til
að ætla, eins og til hafi verið stofnað,
að nýja ritstjómar- og framleiðslu-
kerfið auki öryggi og flýti framleiðslu
og vinnslu Morgunblaðsins.
Síðastliðið haust samþykkti stjórn
Arvakurs hf. heimild til fjármögnun-
ar og kaupa á tveimur Ágfa Polaris
CTP vélum og tilheyrandi búnaði
fyrir allt að 50 milljónum króna, en
vélbúnaði þessum er ætlað að leysa
af hólmi ljóssetningarvélar sem
Morgunblaðið hefur til skamms tíma
verið keyrt út á í filmum. Sagði Hall-
grímur að tilgangur fjárfestingar-
innar væri fyrst og fremst að tryggja
framleiðsluöryggi blaðsins, en kostir
þessarar nýju tækni væm einkum
aukin gæði, tímasparnaður og hag-
ræðing í vinnslu, og síðast en ekki
síst umhverfisvænni framleiðsla þar
sem úr sögunni yrði að mestu leyti
filmuvinnsla með tOheyrandi spilli-
efnum. Gert er ráð fyrir að vélbún-
aðurinn verði tekinn í notkun í
áfóngum á þessu ári og er starf-
ræksla hans þegar hafin.
I máli Hallgríms kom fram að allt
síðastliðið ár hafi markvisst verið unn-
ið að því að taka upp umhverfisstjóm-
unarkerfi í allri starfsemi Arvakurs
hf. í samræmi við alþjóðastaðalinn
ISO 14001. Hafa starfsmenn félagsins
frá öllum deildum komið að starfinu
undir stjóm umhverfisráðs félagsins
sem Haraldur Sveinsson stjómarfor-
maður Árvakurs hf. veitir forstöðu.
Sagði Hallgrímur að uppbygging um-
hverfísstjómunarkerfis hefði þegar
skapað skilyrði til markvissari nýting-
ar á aðfóngum og orkuspamaði.
Óhjákvæmilegt að huga
að húsnæðismálum
Fram kom í skýrslu stjórnar Ár-
vakurs hf. að að óbreyttum rekstrar-
umsvifum og rekstrarumhverfi sé nú
orðið óhjákvæmilegt að huga að hús-
næðismálum félagsins, sem aftur
verði ekki gert án tillits til stækkun-
ar eða eftir atvikum endurnýjunar
prentvélar. Þótt byggt hafi verið vel
við vöxt og rými mikið þegar flutt
var inn í seinni áfanga húsbyggingar
árið 1993 sé svo komið að víða þrengi
alvarlega að deildum auk pappírs-
geymslu prentsmiðju.
Arvakur hf. á byggingarrétt norð-
an og vestan við núverandi bygging-
ar félagsins, en fram kom í máli
Hallgríms að það lægi ekki í augum
uppi með hvaða hætti nýbygging
nýttist best framtíðarstarfsemi fé-
lagsins. Af þeim sökum hafi Emi Jó-
hannssyni skrifstofustjóra og Helgu
Gunnarsdóttur ai'kitekt verið falið að
hafa forystu um þarfagreiningu á
starfsemi félagsins svo stjóm þess
geti tekið ákvörðun um næstu skref.
Sagði Hallgrímur að ef að líkum léti
væm hér í uppsiglingu stærstu við-
fangsefni félagsins á næstu ámm.
Stjóm og varastjórn Arvakurs hf.
var endurkjörin á aðalfundinum.
Fundur Verslunarráös og Amerísk-íslenska verslunarráðsins
Þriðjudaginn 18. maí 1999, kl. 12:00 - 13:30 í Skála, Hótel Sögu
I __________________________________
HADEGISVERÐARFUNDUR
MEÐ DAVID FRIEDMAN
RÖKIN MEÐ OG Á MÓTI RÍKISVALDI
- SJÓNARMIÐ HAGFRÆÐINGS
Dr. David Friedman hefur á undanfömum árum stundað kennslu við hagfræði-
og lagadeildir ýmissa fremstu háskóla Bandaríkjanna og kennir um þessar mundir
við lagadeild Santa Qara háskólans í Kalifomíu. Fyrsta bók hans, The Machineiy
of Freedom, kom út árið 1971 og hafa skrif hans vakið mikla athygli allt ffá þeim tíma.
Dr. David Friedman hefur ritað fjölmargar greinar og sent ffá sér bækur,
ekki síst um hagffæðileg efhi, þar sem hann hefur meðal annars fjallað mikið um
vhkni hins fijálsa markaðar og hvemig markaðurinn starfar án opinberra afskipta.
í ræðu sinni á fundinum á Hótel Sögu mun hann ræða rökin með og á móti
ríkisvaldi, hvemig ríkisafskipti hafa áhrif á hagkerfið og hinn fijálsa markað og
svara spumingum á borð við þá hvers vegna einokun ríkisfyrirtækja sé skaðlegri
heldur en einokun einkaaðila.
V__________________________________________________________________
Fundargjald (hádegisverður innifalinn) kr. 2.000,-
Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er
að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100
eða bréfasíma 568 6564 eöa meö tölvupósti
mottaka @ chamber.is.
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS
Morgunblaðið/Sverrir
Lokaverkefni kynnt
OPIN kynning- á lokaverkefnum
útskriftarnema í kerfisfræði við
tölvunarfræðideild Viðskiptahá-
skólans í Reykjavík hófst í gær og
stendur tii 19. maí. Að sögn Guð-
finnu S. Bjarnadóttur, rektors
skólans, útskrifast að öllum lík-
indum tæplega sextíu nemendur
sem kerfisfræðingar eftir tveggja
ára nám við skólann í vor, en stór
hluti þeirra mun halda áfram í
skólanum og ljúka BS-gráðu í
tölvunarfræðum.
Guðfinna segir að verkefnin séu
unnin í samvinnu við fyrirtæki, og
telur hún að þau séu almennt
framsækin. Hafi komið fram
mörg áhugaverð viðfangsefni á
undanförnum árum. Að sögn Guð-
finnu á hún von á því að allir
nemendurnir séu komnir með
vinnu í faginu.
Á myndinni sést Hilmar Vil-
hjálmsson kynna verkefnið „IXP
Mail Exchange-úrvinnsla úr tölvu-
pósti fyrir IKEA-verslanir sem
notar Navision Financials". Verk-
efnið vann hann ásamt Bergljótu
Sigurðardóttur, en alls eru 18
lokaverkefni kynnt á kynningunni.