Morgunblaðið - 18.05.1999, Page 27

Morgunblaðið - 18.05.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999 27 ERLENT Franska stjórnin enn í vom vegna Korsíku-hneykslisins Stjórnarandstaðan hyggst bera upp vantrauststillögu í vikunni París. AFP, Reuters, Daily Telegraph. FRANSKA íikisstjórnin hefur enn ekki bitið úr nálinni vegna hneykslisins sem upphófst fyrir um hálfum mánuði, þegar upp komst að sérsveitarmenn lögregl- unnar á Korsíku hefðu gerzt sekir um íkveikju í síðasta mánuði, að skipan yfírmanns síns. Stjórnar- andstaðan hefur krafízt afsagnar bæði innanríkisráðherrans Jean- Pierres Chevenements og forsæt- isráðherrans Lionels Jospins, á þeirri forsendu að þeir bæru póli- tíska ábyrgð á lögleysunni. í gær, mánudag, höfðu að sögn netútgáfu Le Monde hægriflokkarnir þrír á franska þinginu ákveðið að bera upp vantrauststillögu á ríkis- stjórnina vegna málsins; aðeins ætti eftir að semja um hvenær hún yrði tekin á dagskrá. „Það fer að koma tími til að okkur beri að lýsa vantrausti á þessa ríkisstjórn, sem neitar að axla pólitíska ábyrgð,“ sagði Nicolas Sarkozy, leiðtogi Gaullistaflokksins RPR og öld- ungadeildarþingmaður, í sjón- varpsumræðum á sunnudag, en á föstudag fór hann til Korsíku í því skyni að hefja rannsókn á bak- grunni málsins í nafni þingsins. Er hörðust hríðin var ---------- gerð að Jospin vegna málsins í neðri deild þingsins sl. þriðjudag svaraði hann árásunum með því að vísa til þess að Bernard Bonnet - héraðsstjórinn á Kor- síku sem handtekinn var vegna gruns um að hann hefði fyrirskip- að íkveikjuna á ólöglega byggðu veitingahúsi skammt utan við Ajaccio, höfuðstað eyjarinnar - hefði verið skipaður í embættið með samþykki Jacques Chirac forseta. Gaullistinn Chirac hefur þurft að una því að stjórna landinu í fé- lagi við vinstristjórn Jospins frá Stjórnarand- staðan krefzt afsagnar Jospins for- sætisráðherra því í júní 1997, eftir að hægrimenn töpuðu kosningum. Með því að minna stjórnarand- stöðuþingmenn hægrimanna á samábyrgð forsetans á Bonnet vildi Jospin reyna að kveða niður kröfu um vantrauststillögu á stjómina og formlega þingrann- sókn á því að hve miklu leyti ráð- herramir hefðu verið upplýstir um aðgerðir umboðsmanns þeirra á Korsíku. í gær höfðu hægriflokkarnir þrír sem sæti eiga í neðri deild þingsins, UDF, RPR og Frjáls- lyndir demókratar (DL), komið sér saman um orðalag vantrausts- tillögu, en áttu eftir að fá á hreint hvenær hún yrði tekin á dagskrá. Samkvæmt stjórnarskránni verða að líða a.m.k. tveir heilir sólar- hringar frá því vantrauststillaga er lögð fram þar til hefja ber um- ræðu um hana. Munu aðstandend- ur tillögunnar telja vænlegra að umræðan hefjist ekki fyrr en eftir hvítasunnu og vilja því bíða með að bera hana upp fram yfir miðja vikuna. Vinstriflokkarnir sem að stjóm- inni standa eiga tryggan þing- meirihluta, og því mun stjómar- -------- andstaðan að öllum lík- indum ná því einu fram með tillögunni að rætt verði opinskátt á þingi um ábyrgð stjórnarinn- ar á stefnu og aðgerð- um umboðsmanns hennar á Korsíku. Francois Hollande, framkvæmda- stjóri sósíalistaflokksins, sakaði í gær hægrimenn um að „nota Kor- síku“ í kosningabaráttunni íyrir Evrópuþingkosningarnar 13. júní nk. Sverja Bonnet af sér Bonnet var skipaður í embætti æðsta fulltrúa franska ríkisvalds- ins á Korsíku í febrúar í fyrra, eft- Reuters NYRÁÐINN héraðsstjóri Korsíku, Jean-Pierre Lacroix, (til vinstri) er hér með Gerard Remy, sem nýlega var ráðinn yflrmaður lögreglunnar á Korsíku. Lacroix tók við starfi af Bemard Bonnet, sem rekinn var úr starfi vegna gmns um aðild að íkveikju í veitingahúsi á eyjunni. ir að fyrirrennari hans, Claude Erignac, hafði verið myrtur, að líkindum af hryðjuverkamönnum. Bonnet voru falin viðtæk völd til að reyna að koma á röð og reglu á eynni, þar sem glæpatíðni var gíf- urlega há og almennt stjórnleysi og spilling áberandi. Eftir að Bonnet var tekinn til starfa hældi innanríkisráðherrann honum sem „réttum manni á rétt- um stað“ og fagnaði því opinber- lega þegar sett var á fót 95 manna sérsveit lögreglunnar á Korsíku, kölluð GPS, sem var ætlað að beita óhefðbundnum aðferðum til að setja nýjan kraft í rannsóknina á morðinu á Erignac. Aðeins 15 mánuðum síðar er báðum ráðherrum mikið í mun að sverja af sér hvers kyns tengsl við Bonnet vegna þess sem komið hef- ur í ljós um starfsaðferðir hans. Henri Mazeres, yfirmaður vopnuðu lögreglunnar á Korsíku (La Gendarmerie Nationale), bar við yfirheyrslur í lok síðustu viku að héraðsstjórinn hefði sjálfur heimtað að kveikt yrði í hinum ólöglega byggðu veitingahúsum, í því skyni að „styrkja ríkisvaldið" á eynni. Samkvæmt vitnisburði ann- arra undirmanna Bonnets ein- blíndu hann óg Mazeres í herför sinni gegn glæpum og lögleysu á Korsíku æ meir á það hlutverk sem nokkrir slíkir ólöglegir veit- ingastaðir gegndu. I fyrsta lagi áleit Bonnet þá tákn um vanvirðu við þau grundvallarvið- mið laga og reglu sem hann taldi sig standa fyrir. Hann grunaði þar að auki að í gegnum starfsemi þessara veit- ingahúsa væri fé og upplýsingum komið í hendur hryðjuverkamanna skilnaðarsinna. Hinn 6. apríl sl. tryggði Bonnet sér dómsúrskurð um niðurrif tveggja ólöglegra veitingahúsa. Andstaða embættismanna sveitar- félagsins hindraði að niðurrifsliðið kæmi verkinu í framkvæmd, en Bonnet fékk skriflegar yfírlýsing- ar frá eigendum sjö sh'kra staða um að þeir myndu rífa húsin að lokinni sumarferðamannavertíð- inni. Bonnet fannst, samkvæmt vitnisburði aðstoðarmanna, eig- endurnir hafa snúið á sig og vildi „kenna þeim lexíu“. Að sögn Bertrands Cavalliers, næstráð- anda Mazieres lögreglustjóra, hafði GPS-sveitin lagt a:i;ráðin um að kveikja í mörgum ólöglegum veitingahúsum. „Chez Francis" átti að vera það fyrsta. Sex GPS-menn fóru að- faranótt 20. apríl með gúmbát að húsinu, búnir benzíni og öðru sem til íkveikjunnar þurfti. Ekki fórst þeim verkið betur úr hendi en svo, að einn þeirra kveikti í sjálf- um sér og brann í andliti og á höndum. Við það brást flótti í mannskapinn og á vettvangi urðu sönnunargögnin eftir, þar á meðal svört lambhúshetta og lög- reglutalstöð. Árangur að engu gerður Það kaldhæðnislega við þessa atburði er að þessi hrópandi lög- leysuaðgerð, sem sögð er hafa verið framkvæmd að skipan hér- aðsstjórans, stefnir í að gera að engu þann árangur sem hann hafði náð í baráttunni gegn hinni landlægu lögleysu á Korsíku frá því Bonnet tók við stöðunni fyrir 15 mánuðum. Hann var einkar stoltur af því að skæruliðaárásum hafði fækkað úr 602 árið 1995 í 198 á síðasta ári. Málið kemur stjórn Jospins einnig sérlega illa, þar sem hún hafði tekið við völdum undir slagorðum heiðarleika og aukins gegnsæis. Fyrstu dagana eftir að nýr hér- aðsstjóri tók við embætti á Kor- síku í síðustu viku, Jean-Pierre Lacroix, sprungu sprengjur á tveimur stöðum á eynni. Önnur sprakk á skrifstofu hafnarstjóm- -------- arinnar í bænum Macinaggio aðfaranótt uppstigningardags og hin skemmdi yfir 10 bíla syðst á eynni fyrr í vik- unni. Bonnet, sem nú er haldið föngnum í fang- að- elsi í París, og Gerard Pardini, Hægrimenn sakaðir um að „nota Korsíku“ í kosningabar- áttunni sem var yfirmaður starfsliðs hér- aðsstjórans, munu eftir því sem fram kemur í Le Monde koma saman fyrir rannsóknardómara í París á fimmtudag, hinn 21. maí. Er þess nú beðið með allnokkurri eftirvæntingu í Frakklandi hvort vitnisburður þeirra muni íþyngja frekar ráðherrunum Jospin og Chevenement. LIFSSTILL '99 - STORSYNING I LAUGARDALSHÖLL 28. TIL 30. MAÍ ¥3 % ^7 - £;ií/vfi £>tj Jtyiiyil vs rc 'WW / L I T s S T I L L Draumaíbúð fegurðardrottningar íslands '99 verður á Lífsstíl. Fjölmiðlar keppa um flottustu borðskreytingu ársins. Rúmlega 70 fyrirtæki hafa tilkynnt þátttöku á glæsilegustu sýningu ársins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.