Morgunblaðið - 18.05.1999, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
fsraelar gengu að kjörborði í gær eftir fjöruga kosningabaráttu
Kosningaáróður sagður
besta sjónvarpsefnið
GYÐINGUR í Jerúsalem kyssir mynd af Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra ísraels.
Auglýsingar gegna
stöðugt mikilvægara
hlutverki í kosninga-
baráttu. Sigrún Birna
Birnisdóttir kynnti
sér hvernig staðið hef-
ur verið að þessum
------------7------------
málum í Israel, þar
sem kosningar fóru
fram í gær, en óvænt-
ur sigur Benjamins
Netanyahus forsætis-
ráðherra fyrir þremur
árum var meðal ann-
ars rakinn til vel
heppnaðrar auglýs-
ingaherferðar.
ÞAÐ hefur lengið verið eitt helsta
einkenni ísraelskrar kosningabar-
áttu að hún fer að miklu leyti fram á
götum úti. Stuðningsmenn hinna
ýmsu frambjóðenda hengja gjaman
slagorð og myndir af þeim utan á
hús sín auk þess sem hópar fólks eru
gerðir út af örkinni til að hengja
myndir af þeim hvar sem hægt er að
koma því við þrátt fyrir að slíkt sé að
mestu ólöglegt. Þá er ekki óalgengt
að þeir staðir sem stuðningsmenn
annarra frambjóðenda hafa þegar
helgað sér verði fyrir valinu og að
átök blossi upp í kjölfar þess að
myndir af frambjóðendum eru
hengdar yfír myndir af öðrum fram-
bjóðendum. Einnig helga stuðnings-
menn sér ákveðin götuhom þar sem
þeir koma upp áróðri sínum og það-
an sem þeir hlaupa út á milli bílanna
í von um að fá að merkja þá með
slagorðum sínum.
A sama tíma og fólk hefur á orði
að óvenju mikið hafi verið um áróður
af þessu tagi í kosningabaráttunni
nú hefur lítið farið fyrir málefnaleg-
um umræðum um stefnumál flokk-
anna. Þannig hafa umræðuþættir
með frambjóðendum varla sést í
sjónvarpi eða heyrst í útvarpi og
mun ein ástæða þess vera tregða
frambjóðenda til að mæta á slíka
fundi. Benjamin Netanyahu forsæt-
isráðherra og Yitzhak Mordechai,
leiðtogi Miðjuflokksins, mættu þó til
slíks fundar í síðasta mánuði og telja
margir að forsætisráðherrann hefði
betur setið heima þar sem þátturinn
markaði upphaf fylgistaps hans í
skoðanakönnunum.
Það er þó ekki þar með sagt að
kosningaáróðri hafi ekki verið gerð
skil í útvarpi og sjónvarpi því undan-
famar vikur hefur öllum frambjóð-
endum verið skammtaður ákveðinn
auglýsingatími að loknum kvöld-
fréttum. í þessum auglýsingatímum,
sem The Jerusalem Post segir hafa
verið besta sjónvarpsefni vetrarins,
hafa frambjóðendur haft frjálsar
hendur um það hvemig þeir hafa
komið boðskap sínum á framfæri án
þess að eiga á hættu að standa
skyndilega frammi fyrir óþægilegum
spumingum fréttamanna eða ann-
arra frambjóðenda.
Árásir drógu úr
áhrifamætti
Þetta hefur þó ekki komið í veg
fyrir að Likud-bandalagið hafi
freistað þess að koma höggi á höfuð-
andstæðing sinn, Verkamannaflokk-
inn, í þessum dýrmætu auglýsinga-
tímum. Tilburðir flokksins til þess
að draga fram veikleika Verka-
mannaflokksins hafa hins vegar ein-
ungis orðið til þess, að mati sérfræð-
ings The Jerusalem Post, að gera
auglýsingaherferð þeirra áhrifa-
minni en herferðir flestra annarra
SIEMENS
*,
SIWAMAT XL hefur litið dagsins Ijós eftir þriggja ára þróunarstarf
færustu hönnuða og verkfræðinga Siemens. Útkoman er ein
alskemmtilegasta og besta þvottavél sem framleidd hefur verið.
Komið og kynnist þessari frábæru þvottavél að eigin raun.
Á frábæru kynningarverði.
SMITH &
NORLAND
Umboðsmenn um land allt,
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Simi 520 3000
www.sminor.is
frambjóðenda. Þar sem aðstandend-
ur Verkamannaflokksins virtust vel
undirbúnir og svöruðu árásunum
Likud-bandalagsins jafnharðan
neyddist Likud-bandalagið til að
breyta áherslum herferðar sinnar
hvað eftir annað en að mati sérfræð-
inganna dró það upp ákaflega óhag-
stæða mynd af skipulags- og stefnu-
leysi innan flokksins.
Þannig svaraði Verkamannaflokk-
urinn staðhæfingum Likud-banda-
lagsins um að Ehud Barak, leiðtogi
flokksins, væri reiðubúinn til að
veita Palestínumönnum yfirráð yflr
hluta Jerúsalemborgar með yfiriýs-
ingu Ehud Olmerts borgarstjóra um
stuðning Baraks við einingu borgar-
innar og staðhæfingum um stuðning
Baraks við stofnun sjálfstæðs ríkis
Palestínumanna með brotum úr ræð-
um hans þar sem hann mælir með
því að gengið verði til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um málið. Þá hefur
Verkamannaflokkurinn svarað öllum
aðdróttunum um linkind með því að
minna á að enginn hermaður hafi
verið sæmdur fleiri heiðursmerkjum
innan Israelshers en Ehud Barak
auk þess sem sýndar hafa verið
myndir af honum þar sem hann
stendur yfir líki fallins hryðjuverka-
manns. Til að ýta enn frekar undir
ímynd Baraks sem hins sterka leið-
toga hefur harðjöxlum á borð við
Yossi Peled og Matan Vilna’i verið
hampað í kosningabaráttu Verka-
mannaflokksins á meðan mönnum á
borð við Shimon Peres og Yossi Beil-
in hefur algerlega verið ýtt út úr
sviðsljósinu.
Áróður Mordechais
vanhugsaður
Sérfræðingar telja einnig að aug-
lýsingaherferð Yitzhak Mordechais,
sem dró framboð sitt til forsætisráð-
herraembættisins til baka á síðustu
stundu, hafi verið ákaflega vanhugs-
uð, eins og reyndar öll kosningabar-
átta hans, þar sem hún gekk lengst
af út á það eitt að Mordechai einn
hefði burði til að sigra Netanyahu í
seinni umferð kosninganna. Stað-
hæfingar af þessu tagi áttu við í upp-
hafi kosningabaráttunnar er hægt
var að benda á niðurstöður skoðana-
kannana þeim til stuðnings. Er líða
tók á kosningabaráttuna urðu stað-
hæfingar af þessu tagi hins vegar
marklausar þar sem skoðanakannan-
ir sýndu svart á hvítu að ekkert væri
hæft í þeim.
Kannanir benda hins vegar til
þess að auglýsingaherferð Shinui-
flokksins, þar sem áhersla var fyrst
og fremst lögð á mikilvægi þess að
draga úr áhrifum heittrúaðra, hafi
verið sérstaklega árangursrík en við
gerð auglýsinganna fékk flokkurinn
Joseph Tommy Lapid, sem árum
saman hefur getið sér orð fyrir
harkalegar árásir á vinstrimenn og
minnihlutahópa, til að ráðast að heit-
trúuðum.
Stöðvið tónlistina
Þá hefur ein af auglýsingum Mer-
etz-flokksins sem sýnir Netanyahu
dansa við hljóðfæraleik öfgasinnaðra
hægrimanna vakið mikla kátínu en í
niðurlagi hennar er bent á nauðsyn
þess að tónlistin verði stöðvuð.
Auglýsingamar eru ýmist á hebr-
esku, rússnesku eða arabísku auk
þess sem margar sjónvarpsauglýs-
inganna eru textaðar eftir því til
hvaða hópa þeim er ætlað að höfða.
Þá hafa þær gjarnan endurspeglað
margbreytileika ísraelsks þjóðfélags
í fjölbreytni sinni en ekki er óalgengt
að svipmyndir frá spilavítum og
dansstöðum hafi fylgt í kjölfar aug-
lýsinga frá flokkum heittrúaðra, þar
sem dregnar eru upp myndir af alda-
gömlum hefðum gyðinga undir
bæna- og þjóðlagatónlist.
Frambjóðendur hafa einnig staðið
fyrir stórum og smáum kosninga-
samkomum víðs vegar um landið auk
þess sem allsérkennileg kosninga-
barátta hefur farið fram innan sam-
félaga trúaðra, þar sem fólk er vant
því að fylgja leiðsögn ákveðinna
rabbína. Þannig hafa flokkar heittrú-
aðra keppst um að tryggja sér stuðn-
ing ákveðinna rabbína sem síðan
heita kjósendum gulli og grænum
skógum fylgi þeir í kjölfarið. Þá hafa
flokkar heittrúaðra reynt að telja
kjósendum trú um að þessi eða hinn
rabbíninn hefði kosið viðkomandi
flokk væri hann enn á lífi.