Morgunblaðið - 18.05.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999 33
LISTIR
Reuters
Strauk af geðsjúkra-
húsi til að skemma
Picasso-verk
Áhugalj ósmy ndarar
RALPH Hannam; Konur í mjólkurbúð.
STJÓRNENDUR Stedelijk-ný-
listasafnsins í Amsterdam eru mið-
ur sín eftir að einn gesta safnsins
tók sig til um helgina og skar víð-
frægt málverk eftir Pablo Picasso í
ræmur. Tvö þúsund og fimm hund-
ruð gestir voru í safninu þegar at-
burðurinn átti sér stað en svo
snöggur var skemmdarvargurinn,
sem ekki gengur heill til skógar, að
ekki var hægt að bregðast við fyrr
en of seint.
Hollenska lögreglan yfirheyrði í
gær skemmdarvarginn en hann
mun hafa strokið af geðsjúkrahúsi í
Utrecht, sem er um sextíu kfló-
metra suðaustur af Amsterdam, á
sunnudag, stokkið upp í lest til höf-
uðborgarinnar hollensku og keypt
sér miða í Stedelijk-safnið með það
eitt í huga að skera gat í miðju
verksins „Nakin kona í garðinum",
sem Picasso málaði árið 1956. Mál-
verkið er metið á um 7,5 milljónir
Bandaríkjadala, rúmlega fimm
hundruð milljónii- ísl. króna.
Talsmenn listasafnsins sögðust í
gær ekki vissir um að hægt væri að
bjarga málverkinu. Þeir lýstu harmi
sínum vegna ódæðisins og sögðu
nauðsynlegt að bæta öryggisvörslu
um verðmæt listaverk, eins og það
sem hér var um að ræða. Rudi
Fuchs, forstjóri Stedelijk-safnsins,
var hins vegar ekki viss um að koma
mætti í veg fyrir slíka atburði. „Hér
er opið, hingað geta menn komið til
að horfa á málverk, og því miður
geta þeir einnig kippt hníf upp úr
vasa sínum og valdið óbætanlegum
skemmdum."
Safnið, sem keypti málverkið árið
1981, er tryggt fyrir skaðanum, en
Fuchs sagði hins vegar ekki hægt
að bæta slík listaverk með fjármun-
um.
MYNDLIST
Þjnðarbúkhlaðan
LJÓSMYNDIR
Freddy Laustsen, Gunnar Pétursson,
Hjálmar R. Bárðarson, Kristinn Sig-
uijónsson, Óttarr Kjartansson, Rafn
Ilafnfjörð, Ralph Hannam. Opið á
tíma Þjóðarbókhlöðunnar. Til 28.
maí. Aðgangur ókeypis.
HUGTAKIÐ áhugaljósmyndari
verður í ýmsum tilvikum að teljast
misvísandi, því hér eru mörkuð skörp
skil á milli þeirra sem hafa að atvinnu
að taka myndir og þeiiTa sem gera
það fyrir lífsnautnina og eða fjöl-
skyldualbúmið. Og iðulega eru léleg
vinnubrögð afsökuð með því, að hér
sé einungis áhugamaður á ferð, alls
ómenntaður í faginu, ekki atvinnu-
ljósmyndari. En í sannleika sagt geta
áhugaljósmyndarar haft til að bera
víðtæka þekkingu, aflaðrar með
bókalestri og sjálfstæðum rannsókn-
um, jáfnvel á stundum langt út fyiir
ramma þeirra sem hafa fagið að lifi-
brauði. Alþekkt eru dæmin um sjálf-
lærða myndlistarmenn, sem búa yfir
jafn mikilli og meiri þekkingu en
þrælskólaðir, og einn slíkur, J.J.
Deyrolle í Frans, var viðurkenndur
sem einn helsti rökfi’æðingur í nú-
tímalistum í París eftir stríð og allt til
andlátsins 1967, þá prófessor við
listaakademíuna í Munchen.
Þetta er sett á blað vegna þess að
sett hefur verið lítil sýning á Ijós-
myndum sjö valinkunnra áhugaljós-
myndara er spannar tímabilið
1950-70 í anddyri Þjóðarbókhlöðunn-
ar, sem rétt og skylt er að víkja
nokkrum orðum að. Ljósmyndafélag
Reykjavíkur var stofnað 1953, og
voru stofnfélagar 36 talsins, en árið
1957 voru félagar orðnir hátt á þriðja
hundrað. Ari áður hafði nafninu verið
breytt í Félag áhugaljósmyndara
vegna þess að ruglings hafði gætt við
Ljósmyndarafélag Islands, samtök
faglærðra atvinnuljósmyndara. Ýmsh-
klúbbar áhugamanna í ljósmyndum
hafa verið stofnaðir í áranna rás og
þeir haldið sýningar sem athygli hafa
vakið. Samkvæmt sýningarskrá er til
þessarar sýningar stofnað í því skyni
að vekja athygli á þeirri grósku sem
var að finna á meðal áhugaljósmynd-
ara á þessu tímabili, eins og það heitii-
í sýningarskrá. En kveikjan að sýn-
ingunni var þó rannsóknarverkefni
um ljósmyndun á íslandi 1050-1970
sem unnin var við myndadeild Þjóð-
minjasafnsins með tilstyrk frá Ný-
sköpunarsjóði námsmanna.
Framtakið er í lagi, en það skal
strax tekið fram, að sýningin er alltof
lítil til að geta gefið nýjum kynslóðiim
raunsanna hugmynd um nefnda
grósku og svo eru sýnendur misjafn-
lega kynntir og á full einhæfan hátt.
Sérstaka athygli mína vakti hve opnir
þeir hafa verið fyrir nýhugmyndum í
Ijósmyndum og þannig má greina
áhrif frá súrrealistanum Man Ray,
sem þó var hvergi nærri eins nafn-
kenndur á þessu tímaskeiði og hann
er í dag, sér þess helst stað í myndum
Hjámai’s R. Bárðarsonar. Sumir fara
jafnvel í smiðju núlistamanna tím-
anna og bregða upp óhlutlægum
myndheildum líkt og Rafn Hafnfjörð.
Raunsannar myndir eins og af strák-
um í leik eftir Ottar Kjartansson skila
sér þó sýnu best á þessari samantekt,
einkum vegna þess hve þær bregða
skýru Ijósi á tímana og þeim miklu
hvörfum er áttu sér stað í Reykjavík
á sjötta áratugnum, eru að auk það
vel teknar að faglærðir atvinnuljós-
myndarar væru fullsæmdir af. Þau
eru hér vissulega ógreinileg mörkin,
og sumir, eins og Hjálmar og Rafn,
hafa unnið umtalsverð afrek á sviði
ljómyndunar á síðustu ái’atugum,
sannað það með bókum og sýningum.
í heild er ekki hægt að gefa sjálfri
framkvæmdinni háa einkunn, er lík-
ust snubbóttri skýrslugerð, en sýn-
ingin er þó vel þess virði að menn
leggi leið sína í Þjóðarbókhlöðuna.
Bragi Asgeirsson
Vel syngjandi kór
TOJVLIST
Seltjarnarneskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Arnesingakórinn undir stjórn Sigurð-
ar Bragasonar flutti íslensk og er-
lend söngverk. Einsöngvarar voru:
Árni Sighvatsson, Ingibjörg Mar-
teinsdóttir, Karl Jóhann Jónsson,
Kristín Sædal Sigtryggsdóttir og
Þorsteinn Þorsteinsson. Undirleikari
var Bjarni Jónatansson. Laugardag-
inn 15. maí.
ÁRNESINGAKÓRINN hefur í
mörg ár starfað með miklum blóma
og undir stjórn Sigurðar Bragasonar
sífellt verið að bæta sig, þótt ára-
skipti séu á því hversu tekst til að
manna slíka áhugamannakóra. Það
gefur augaleið, að val viðfangsefna
fyrir sönghópa áhugamanna hlýtur
ávallt að vera nærri alþýðulaginu,
þótt einstaka sinnum sé seilst til erf-
iðari tónhöfunda. Söngmátinn og
mótun viðfangsefna er verk söng-
stjórans og þar er Sigurður Braga-
son vel til verks búinn og mátti
merkja það í hreinum og oft sérlega
fallega mótuðum söng, eins og t.d. í
Smávinir fagrir eftir Jón Nordal, Þú
fagra blómið, þýsku þjóðlagi radd-
settu af Jóhannesi Brahms, Ö, undur
lífs eftir Jakob Hallgrímsson og
tveimur söngverkum eftir meistara
Mozart, Kvöldkyrrðin og Ave verum
corpus, en í því lagi lék Bjami
Jónatansson undir á nýtt orgel kirkj-
unnar. Þarna féll allt að einu; falleg
og vel flutt lög, þótt sérstaklega hafi
flutningurinn á þjóðlagaraddsetning-
unni eftir Brahms verið fallega mót>
aður. Varðandi hrynbreytingar á
söngverkum, eins og t.d. mátti heyra
í Litla kvæðinu um litlu hjónin eftir
Pál Isólfsson, er það að segja, að
svona mikil breyting, eins og hér átti
sér stað, fer út fyrir þau mörk, sem
skilgreina má sem túlkun.
Af öðrum söngverkum ná nefna
Jón granna, hollenskt lag, Búðarvís-
ui-nar eftir E_mil Thoroddsen, Frið á
jörðu eftir Ái-na Thorsteinsson og
Háfjöllin eftir Elsu Sigfúss, allt
klassísk viðfangsefni, sem öll voru
ágætlega flutt. I Búðarvísunum kom
einn kórfélagi, Þorsteinn Þorsteins-
son, fram sem einsöngvari og skilaði
sínu vel og smekklega. Ingibjörg
Marteinsdóttir söng fallega einsöng-
inn í Frið á jörðu. Eftir söngstjórann
voru sungin tvö lög og það fyrra
nefnist Vorstemmning, áheyrilegt
lag, er var ágætlega sungið af Ingi-
björgu Mai-teinsdóttur, þrátt fyrir að
á köflum væri það á of lágu tónsviði
fyrir söngkonuna. Síðasta lag tón-
leikanna er einnig eftir Sigurð og
nefnist Kveðja úr fjarlægð. Það er
di-amatískt lag og söng Kristín Sædal
Sigtryggsdóttir lagið með kómum af
töluverðri reisn.
Tvö ágæt lög eftir Björgvin Þ.
Valdimarsson voru _ á efnisskránni,
Sólskinsbam, sem Árni Sighvatsson
söng með kómum, og seinna lagið,
Bikarinn, töluverð tónsmíð og
dramatísk lag, er var ágætlega sung-
ið af Karli Jóhanni Jónssyni. Sofðu
litla lýra eftir Sigvalda Snæ Kalda-
lóns er lítið og elskulegt lag, sem, ein-
kennilegt nokk, var í raun eina lagið
þar sem heyra mátti bregða fyrir of
lágri tónstöðu hjá kómum þar sem
sungið var veikt, t.d. í upphafi lagsins,
sérstaklega hjá sópraninum, sem
annars var sérlega góður. O bone
Jesu eftir Palestrina átti ekki heima á
þessum tónleikum en þá er aðeins að
geta eins lags frá norðanmönnum,
sem er Rósin eftir Friðrik Jónsson,
raddsett af Páli H. Jónssyni, er var
mikilvirkur í söngstarfi norðanmanna
á fyrri hluta aldarinnar, ágætt lag,
sem Ami Sighvatsson söng fallega og
af tilfinningu. Undirleikari á tónleik-
unum var Bjami Jónatansson, er skil-
aði sínu af fagmennsku, og sama má
segja um söngstjórann, Sigurð
Bragason, er mótaði sönginn af
smekkvísi og hefur náð að byggja upp
vel syngjandi kór, með hreint og sér-
lega gott jafnvægi á milli radda.
Jón Ásgeirsson
Vinsældum Alfa 156 á íslandi og í Evrópu má fyrst og fremst
þakka glæsilegri hönnun og frábærum aksturseiginleikum.
Kynntu þér þennan gullmola frá Alfa Romeo.
Eigum bíla til afgreiðslu fljótlega.
Verð: 1.6 T.S. 120 hestöfl. Kr.1.790.000
Istraktor