Morgunblaðið - 18.05.1999, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Boðið upp á kennslu í
fiðluleik í fyrsta sinn
Skagaströnd. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/ÓB.
BJORN Jóhannsson og Eyþdr Egilsson leika á gítara ásamt kennara
sínum, Guðmundi Karli Brynjarssyni.
Wiley Moss og
liðið í Galveston
FIÐLULEIKUR heyrðist í fyrsta
sinn á lokatónleikum Skagastrand-
ardeildar Tónlistarskóla A-Hún.
Nokkrir nemendur hafa stundað
nám í fiðluleik við skólann í vetur en
þetta er í fyrsta sinn sem boðið er
upp á kennslu á fiðlu við skólann.
Tónlistarskóli A-Hún. starfar á
þremur stöðum, Skagaströnd,
Blönduósi og á Húnavöllum. Sex
kennarar starfa við skólann, þrír í
fullri stöðu og þrír stundakennarar.
Aka kennaramir á milli staðanna til
að kenna en 112 nemendur hafa
stundað þar nám nú á vorönninni og
taka 34 þeirra stigspróf á hljóðfæri
sín.
18-20 manna lúðrasveit er starf-
andi við skólann undir stjóm skóla-
stjórans, Skarphéðins Einarssonar.
Fara æfingar sveitarinnar fram á
Blönduósi þar sem skólinn á sitt
eigið húsnæði. Lokatónleikar
Skagastrandardeildar fóru fram í
kirkjunni 7. maí og komu þar fram
13 nemendur skólans og léku á
hljóðfæri sín. Allir léku nemarnir af
innlifun og stóðu sig vei, allt frá
BREF fra hinum einræna nthöfundi
J.D. Salinger munu verða til sölu á
uppboði, sem halda á í júní, en við-
takandinn var átján ára stúlka sem
Salinger átti í ástarsambandi við um
tíma.
Um fjórtán bréf er að ræða og rit-
aði Salinger þau á tímabilinu apríl
1972 til ágúst 1973 þegar ástarsam-
band hans og stúlkunnar Joyce Ma-
ynard stóð. Maynard hyggst selja
bréfasafnið í heild sinni og er því
spáð að fyrir safnið muni fást á milli
sextíu og áttatíu þúsund dollarar,
eða um fjórar milijónir ísl. króna.
Salinger, sem nú stendur á átt-
ræðu, er helst þekktur fyrir tíma-
mótaverk sitt „Catcher in the Rye“,
Bjargvætturinn í grasinu, en sögu-
hetja bókarinnar er uppreisnargjarn
unglingur. Salinger hefur hins vegar
ekki sent frá sér bók síðan 1965 og
margsinnis átt í málaferlum til að
koma í veg fyrir að birtar séu á
byrjendum upp í fólk sem er orðið
vant að spila á tónleikum. Lokatón-
leikar Tónlistarskóla A-Hún. verða
prenti sögur af einkalífi hans, eða
gerðar séu kvikmyndir eftir bókum
hans. Sérfræðingar segja hins vegar
ólíklegt að Salinger geti komið í veg
fyrir sölu bréfanna sem hann ritaði
til Maynards.
Salinger ritaði Maynard fyrst þeg-
ar hún var átján ára en þá hafði The
New York Times nýverið birt grein
eftir hana á forsíðu blaðsins. Bauðst
Salinger tii að veita henni túsögn við
textasmíð og gefa henni góð ráð um
það hvemig bregðast ætti við ágangi
fjölmiðlanna.
Þau Salinger og Maynard tóku að
skrifast á og endaði með því að þau
hittust og hófu ástarsamband sem
varaði í níu mánuði en á þeim tíma
hætti Maynard námi við Yale-há-
skóla til þess að geta búið með Salin-
ger, sem þá var 53 ára, og helgað sig
honum að fullu. Er síðasta bréfið í
safninu, sem Maynard hyggst selja,
ritað eftir að ástarsambandi þeirra
síðan haldnir á Blönduósi 16. maí.
Þar verður leikið úrval af því besta
sem skólinn hefur upp á að bjóða.
lauk. Efni bréfanna er af ýmsum
toga, en í bréfunum má vel skynja
hvemig Salinger varð æ hændari að
stúlkunni. Jafnframt gefa bréfin vís-
bendingu um daglegt lífsmunstur
skáldsins umdeilda og Salinger við-
urkennir m.a. fyrir Maynard í bréf-
unum að hann horfi reglulega á
sjónvarpsþættina „I Love Lucy“ og
„The Ajidy Griffith Show“, og líki
vel.
í fyrra komu út æviminningar
Maynards, ,At Home in the World“,
en þar svipti hún í fyrsta skipti hul-
unni af ástarsambandi þeirra Salin-
gers. Hún segir ástæðu þess, að hún
ákveður nú að selja bréfin frá Salin-
ger fjárhagslegs eðlis. „Ég vil frek-
ar greiða fyrir menntun barnanna
minna heldur en eiga bunka af bréf-
um frá Salinger,“ var haft eftir
henni í The New York Times.
„Bréfin eru hluti af fortíð minni,
fortíð sem er löngu liðin.“
ERLEMDAR
H/EKIJR
Spennusaga
„SKINNY ANNIE BLUES“
eftir Neal Barrett jr. Kensington
Mistery 1997. 302 síður.
NEAL Barrett yngri heitir
bandarískur sakamálahöfundur
sem skrifað hefur nokkrar bækur
um mann að nafni Wiley Moss. Ein
af þeimer „Skinny Annie Blues“,
sem kom út í vasabroti fyrir tveim-
ur áram hjá Kensington-útgáfunni,
en nafnið á sögunni er dregið af
150 kílóa kvenmanni sem kölluð er
Anna granna, starfar á nektarbúllu
og er fengin til þess að berja dug-
lega á aðalpersónunni, Wiley Moss,
í skuggasundi á bak við búlluna. Að
öðru leyti kemur hún ekki við sögu.
Hins vegar eru margar fleiri
skrautlegar persónur í Önnu
grönnu, sem gerist í Galveston í
Texas, og segir af því þegar faðir
Wileys lætur lífið á heimili sínu við
nokkuð gransamlegar kringum-
stæður og sonurinn, sem býr í
Washington, þrátt fyrir aðvaranir
frá góðu og ekki sérlega góðu fólki,
heldur af stað niður til Texas að
kanna hvað nákvæmlega varð fóð-
ur hans að bana.
Vafasöm viðskipti
Neil Barrett yngri skrifar mjög í
harðsoðnu hefðinni og horfir blá-
kaldur á heiminn með augum hins
kaldhæðnislega og veraldarvana en
þó oft einfeldningslega Wiley
Moss. Moss þessi hefur hugann
talsvert við það kvenfólk sem á
vegi hans verður og fer oft betur út
úr því en í tilfelli Önnu grönnu.
Hann er listagóður teiknari sem
starfar við Smithsonian-safnið og
kærastan hans heitir Gísella; þau
hittust þegar maðurinn sem hún
átti stefnumót við lét ekki sjá sig
og kom síðar í ijós að hann hafði
hlaupist á brott með náunga sem
kenndi íslenskar bókmenntir í Ge-
orgetown (hvað sem það nú þýðir).
Þannig er að Moss fær símtal frá
Galveston og honum er tilkynnt að
faðir hans sé látinn, hafi dottið nið-
ur stigann á heimili sínu og ofan í
risastórt fiskabúr á neðri hæðinni;
hann var alla tíð mikið fyrir fiska.
Wiley Moss flýgur þegar suður eft-
ir. Hann hefur ekki augun af
óborganlegum fótleggjum í næstu
sætaröð og er ekki fyrr lentur en
tekið er að sýna lífi hans umtals-
verða Ktilsvirðingu og þannig
gengur það til söguna á enda.
Hann kemst að því að faðir hans
hafði átt í fremur vafasömúm við-
skiptum eiginlega allt sitt líf og
með ekki síður vafasömu aðilum.
Sumir hverjir era eiginlega morð-
ingjar eins og Pundi, sem sendi
Önnu grönnu til þess að lemstra
aumingja Wiley. Einnig maður að
nafni Halfass, sem er miklum mun
verri en Anna, og fótleggimir í
flugvélinni, sem Wiley veit samt
ekki hvoram megin standa.
Undarlegheit
Það er vegna þess að allir sem
Wiley kemst í tæri við á ferð sinni
um Galveston era að fela eitthvað
fyrir honum. Hann fær aldrei að
vita neitt sem máli skiptir og getur
búist við að hver sem er svíki hann
hvenær sem er og í raun hangir líf
hans alla tíð á bláþræði. Ibúarnir
hafa einstakiega litla þolinmæði
gagnvart utanbæjarfólki nema
auðvitað það sé túristar.
Mest af sögunni fer fram undir
stýri. Wiley hendist úr einni bif-
reiðinni í aðra á leið sinni upp og
niður sögusviðið og við taka löng
og fremur tilgangslaus samtöl sem
endurtaka sig þegar á líður og sí-
fellt minna og minna kemur í ljós.
Þó er Moss ekki leiðinlegur félags-
skapur. Hann segir sjálfur frá og
er hnyttinn oft og skemmtilegur og
þeir sem hann kemst í tæri við allir
athyglisverðir þótt það nægi
kannski ekki í spennandi frásögn.
Kvenpersónumar era litskrúð-
ugastar í hinu undarlega per-
sónsafni sögunnar. Sérstaklega er
varið í Grace, sem er blind en læt-
ur það ekki aftra sér frá að aka bif-
reiðum með hjálp sonar síns, sem
er heymarlaus og mállaus. Þannig
er lífið í Galveston eins og Wiley
Moss upplifir það. Fullt af undar-
legheitum.
Arnaldur Indriðason
Bréf J.D. Salingers
verða seld á uppboði
New York. Reuters.
Vertu
KVIKÍYIYNIHR
Sambíóin
VARSITY BLUES ick'k.
Lcikstjðrn: Brian Robbins. Handrit:
John Gatins og W. Peter IlitT. Aðal-
hlutverk: James Van Der Beek, Jon
Voight, Scott Caan og Thomas F.
Duffy. Paramount 1999.
MYNDIN gerist í smábæ í Suð-
urrikjum Bandaríkjanna, þar sem
stolt bæjarbúa er hafnaboltalið
menntaskólans, Sléttuúlfarnir. Eina
áhugamál miðaldra kynslóðarinnar
er að fylgjast með drengjunum og
pabbamir monta sig hver af sínum
syni. Lance fyrirliði hlýðir í einu og
öllu fyrirskipunum þjálfarans Kil-
mer og þarf að standa undir öllum
þeim væntingum og þrýstingi sem
fylgir því að vera bæjarhetjan. Þeg-
ar Lance slasast og Mox tekur við
fyrirliðastöðunni, ákveður hann að
nota eigin tækni til sigurs, gera
uppreisn gegn hinum yfírþyrmandi
eiginhagsmunaseggi Kilmer og gefa
skít í hetjuímyndina.
Þessi mynd er afskaplega amer-
ísk á allan hátt og þar spilar hafna-
boltinn stórt hlutverk. Hún er
einnig dæmigerð unglingamynd
hetja!
með sínum föstu liðum; kynfræðslu-
atriðinu, feita vininum, sætasta
stráknum og sætustu stelpunni sem
eru saman, fyllirýis- og ælubrönd-
urunum. En mér finnst hún hins
vegar hafa þarfan boðskap sem fáar
unglingamyndir hafa; maður á ekki
að gangast upp í því hvað öðram
finnst um mann, standa á rétti sín-
um og ekki láta kúga sig af þeim
sem þykjast vita betur og fyrst og
fremst að fylgja alltaf eigin sann-
færingu og nota skapandi hugsun
sína hvar sem maður kemur því við.
Þótt myndin sé oft og tíðum klisja
er hún býsna vel unnin, spennandi
leikir þótt maður skilji ekkert
hafnabolta og leikaramir alveg
ágætir. Jon Voight leikur Kilmer og
er mjög góður og ógeðfelldur í því
hlutverki. James Van Der Beek
leikur víst í bandarískri sjónvarps-
þáttaröð sem við höfum ekki fengið
að sjá enn, en hann er býsna geð-
þekkur og traustvekjandi náungi
sem Mox.
Fín unglingamynd sem er reynd-
ar um sveitalúða í íþróttum, í stað
síðbrókarappara í eiturlyfjum eða
aðrar tildurrófur í tískufötum, en
hefur líka eitthvað uppbyggjandi
fram að færa.
Hildur Loftsdóttir
Þrír snillingar
TOALIST
Múlinn á Sóloni
f slandusi
SVARTFUGL
Sigurður Flosason altósaxófón,
Bjöm Thoroddsen gítar og Gunnar
Hrafnsson bassa. Söngdansar eftir
Bítlana og fleiri.
Sunnudagur 16. maí.
EINHVERNTÍMANN var ég
að ræða um djasstónlist við Niels-
Henning og lét ekki í ijósi mikla
hrifningu á dúóleik hans og Joe
Pass. Þá leit hann á mig ívið alvar-
legum augum og sagði: „Þegar
tveir virtúósar hittast eina kvöld-
stund og leika saman alþekkt lög
ætlast enginn til þess að þama sé
frumleg tónlist á ferðinni - en hún
er einlæg og leikin af fullum heil-
indum.“ Mér komu þessar sam-
ræður í huga er ég hafði hlustað á
Svartfugl leika Waves eftir Jobim.
Þama var allt vel gert og þeir fé-
lagar báru virðingu hver íyrir öðr-
um og tónlistinni sem þeir léku.
í auglýsingu frá Múlanum stóð
að lög eftir Bítlana yrðu á efnis-
skránni. Það var sosum rétt, en
Bítlakvöldið hófst ekki fyrr en eft-
ir hlé og þangað til var leikið sitt
lítið af hverju. Það hefur verið
óvenju mikið um tónskáldakvöld í
íslandsdjassinum í vetur. Ámi
Scheving og félagar léku Stray-
hom í Hafnarfirði, Pétur Grétars-
son og félagar Brubeck í Kópavogi
og Svartfugl Cole Porter i Reykja-
vík. Eitt af Porter-lögunum fluttu
þeir þarna: It’s allright with me,
og ef minnið svíkur mig ekki lifn-
aði sveiflan betur nú en þá og sóló
Bjöms Thoroddsens algjört
konfekt. Síðasta lagið fyrir hlé var
þúsundspilaði ópusinn hans Dizzy:
Night in Tunisia. Dálítið latínu-
skotinn í upphafi og svo kom riffið
og Bjössi og Gunni Hrafns trylltu
a la Django og Siggi blés breikið
og á eftir fylgdi ljúf sveifla með
boppbragði.
Bítladagskráin hófst á ballöðu:
Fool on the hill og síðan kom ein-
staklega skemmtileg útfærsla á
Back in the USSR. Þessi tryllti
rokkari var kominn í siðfágaðan
blúsbúning með kammersniði og
hefði Brubeck-kvartettinn getað
verið stoltur af slíkri útfærslu.
Norwegian woods var í stjörnu-
merki Bjössa Thor og lék hann af
miklum næmleika. Þá kom Here
and everywhere og loks Come to-
gether. Alls staðar var Gunnar
Hrafnsson traustur í bassaleik
sínum og einleikskaflar Bjöms og
Sigurðar ljómandi. Sér í lagi var
gaman að tóni Sigurðar á altóinn.
Hann var stundum jafn blásturs-
kenndur og hjá Ben Webster, en
hvort blaðið var Rico númer þrjú
og hálft eins og Ben notaði veit ég
ekki.
Það verður þó að segja að þetta
kvöld minnti dálítið á þrjá virtúósa
sem mætast eina kvöldstund og
leika alþekkt lög án þess að hafa
unnið lengi að verkefninu. En af
því að þeir eru snillingar hver á
sínu sviði fá þeir áheyrendur til að
gleyma stund og stað. Við vonum
bara að þeir haldi áfram á þeirri
braut sem mörkuð var með Cole
Porter kvöldinu og við fáum
kannski Waller kvöld eða hver
veit hvað.
Þetta vora góð lok á góðum
Múlavetri, en það er furðulegt að
eina djassklúbbi bæjarins sé lokað
þegar sumrar og bærinn fyllist af
lífi - og ferðalöngum. Að vísu
verður djass á Jómfrúartorginu á
laugardögum í sumar, en það
kemur ekki í staðinn fyrir Múlann.
Vernharður Linnet