Morgunblaðið - 18.05.1999, Page 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
Um pólitík
og ímyndir
„En heimur ímyndanna er óstöðugur. Þeir
sem náðu mestum árangri í kosningunum
voru þeir sem áttuðu sig á óstöðugu eðli
táknanna sem sífellt taka á sig nýjar
myndir og finna sér jafnvel ný mið. “
að fór væntanlega
ekki framhjá neinum
að nýafstaðin kosn-
ingabarátta snerist
ekki um hugmyndir.
Ef það er einhver óyggjandi
niðurstaða af þessari uppá-
komu, svo að viðeigandi orð sé
notað, þá er hún sú að hug-
myndafræðin er nú endanlega
liðin undir lok. Flestum er þetta
algjörlega sársaukalaust en hið
póstídealíska landslag sem blas-
ir við er kannski ekki beinlínis
glæsilegt. Hin pólitíska grunn-
skipting í
VIÐHORF °s
----- vinstri hefur
Eftir Þröst verið leyst upp
Helgason 0g [ staðinn er
komin einhver
óskilgreind miðja sem enginn
veit hvað stendur fyrir. I raun
hlýtur miðjan að vera tóm
vegna þess að pólamir sem hún
hefur miðað sig við eru ekki
lengur til staðar. Réttara væri
að tala um eyðu enda fara
stjómmál samtímans fram í
tómarúmi þar sem engin viðmið
em fyrir hendi, þar sem hug-
myndir eiga sér engan bak-
grann, ekkert upphaf og era
bara eins konar eftirlíkingar af
því sem einu sinni vora hug-
myndir. Hugmyndir hafa með
öðram orðum breyst í tákn eða
ímyndir sem era endurfram-
leiddar aftur og aftur í líki
stjómmálamanna og ýmiss kon-
ar kerfa og reglna sem menn
þykjast deila um en era staðfest
með skipulaginu sem við lýði er.
Fiskveiðistjómunarkerfið er
gott dæmi um mál þar sem
ímyndir hinna gömlu hugsjóna
til hægri og vinstri hafa verið
enduríramleiddar. Ákveðin
spenna hefur myndast en henn-
ar hefur einkum orðið vart á yf-
irborðinu, það er að segja í opin-
berri umræðu, svo sem í fjöl-
miðlum. En þessi spenna hefur
aldrei náð neitt undir yfírborðið
enda aðeins verið tákn um liðna
tíma, um baráttu sem einu sinni
átti sér stað milli andstæðra
fylkinga. í raun og vera er
stjómun fiskveiða fastákveðin af
flóknum hagsmunatengslum
sem stýra flæði peninga og valda
í þjóðfélaginu og breytast ekki
nema einhver hlekkur í því kerfí
bresti. Og það gerist ekki þó að
vatnið gárist í heimi ímyndanna.
Ein skýrasta birtingarmynd
heims ímyndanna vora auglýs-
ingamar sem dundu á kjósend-
um vikumar fyrir kosningar. Líf
pólitíkusanna og lífslíkur byggj-
ast á því að tákngera sjálfa sig í
fjölmiðlum, að búa til mynd af
sér. Og það var athyglisvert að
þeir frambjóðendur sem ekki
vora áberandi í auglýsingum og
fjölmiðlum yfirleitt, svo sem Jó-
hanna Sigurðardóttir og Finnur
Ingólfsson, þóttu ekki hafa tekið
neinn þátt 1 baráttunni. í aug-
lýsingunum var hin hugmynda-
lega kreppa augljós. Meginefni
þeirra var framleiðsla eða end-
urframleiðsla á ímyndum.
Stjómmálamenn birtust ekki
sem þeir sjálfír heldur sem eft-
iriíkingar af sjálfum sér eða
kannski öllu heldur sem eftirlík-
ingar af ímynd stjómmála-
mannsins. Þetta vora und-
urfurðuleg myndskeið. Póli-
tíkusar að leika pólitíkusa, að
fara með ralluna sína eins rétt
og þeir höfðu hæfíleika til, svið-
settir sem þeir sjálfir í leikriti
um þá sjálfa. Vitaskuld gerði
handritið aldrei ráð fyrir því að
þeir væra bara þeir; það var
þvert á móti þaulskrifað með
það fyrir augum að móta við-
komandi að hinni réttu ímynd
sem er svo margtuggin að hún
rennur fyrirhafnarlaust ofan í
múginn. Þama vora ábyrgðar-
fullu landsfeðurnir sem lofuðu
áframhaldandi góðæri og aukn-
um framlögum til góðra mál-
efna. Og þama vora uppreisnar-
og umbyltingarmenn sem sögðu
að góðærið hefði ekki náð til
allra og lofuðu réttlæti og jafn-
rétti. Allt eftir bókinni.
En heimur ímyndanna er
óstöðugur. Þeir sem náðu mest-
um árangri í kosningunum vora
þeir sem áttuðu sig á óstöðugu
eðli táknanna sem sífellt taka á
sig nýjar myndir og finna sér
jafnvel ný mið. Sjálfstæðisflokk-
urinn virðist hafa áttað sig, að
minnsta kosti fór hann varlega í
að leita á ný mið. Kosningabar-
átta hans var lengst af þögul en
þögnin lýsti ótta við upplausn
ímyndarinnar sem flokkurinn
hafði á sér eftir átakalitla
stjómarsetu. Þetta var skyn-
samleg afstaða. Tímamir ein-
kennast af óstöðugleika og upp-
lausn. Ef menn hafa fundið ein-
hvem stað til að standa á, eitt-
hvert orð sem heldur eða virðist
í það minnsta merkingarbært þá
er skynsamlegt að hanga á því.
Framsóknarmenn fóra flatt á
nýjungagiminni. Hinar stóra,
glitfögra og heillavænlegu
ímyndabyggingar sem reistar
vora í kringum flokkinn og for-
mann hans skyggðu algerlega á
traustlegt útlit hans. Merking
flokksins fór á flot. Fyrir hvað
stendur framsókn eiginlega?
Baráttu gegn eiturlyfjum?! Hver
vill ekki beijast gegn þeim?
Imyndarkreppan var sömu-
leiðis algjör í umfangsmikilli
auglýsingaherferð Samfylking-
arinnar. Það var eins og allt
sem hún sagði væri innan
gæsalappa, tilvitnun í einhvem
Annan eða „annað sjálf* flokks-
ins. Kjósandinn var svo skilinn
eftir með spuminguna um það
hvað væri þama á milli, - hugs-
anlega einhver saga, hugsan-
lega einhver samtími; hann gat
byggt og rifíð að vild.
Vinstri-grænir fóra kannski
byltingarkenndustu leiðina og
höfðuðu þannig til uppreisnar-
gjamra kjósenda. Þeir reyndu
að endurvekja hugmyndafræð-
ina og hafna upplausninni. Hug-
myndafræðin sem þeir boðuðu
var hins vegar gömul og úr sér
gengin. A síðustu dögum fyrir
kosningar var raunar hægt að
fá á tilfinninguna að vinstri-
grænum væri engin alvara með
þessu uppbroti, þetta hefði bara
virst nýstárlegur leikur í
ímyndastríðinu.
TUTTUGU nemendur stunduðu nám á hrossabraut á Hólum í vetur og er ekki að efa að þar á meðal eru
mjög efnilegir reiðmenn sem vafalítið eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinni.
Skeifukeppnin á Hólum
Stúlknaveldið stendur
enn í Hólaskóla
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
MORGUNBLAÐSSKEIFAN er það sem málið snýst fyrst og fremst um
á skeifudaginn. Hana hlaut Sandra Maria sem hér hampar skeifunni á
Spóa, næst henni er Viðja Hrund á Skerplu sem hlaut viðurkenningu
FT fyrir góða reiðmennsku og lengst til hægri er Lisa Rosell á Hvati
með Eiðfaxabikarinn.
Upprennandi tamn-
ingamenn þreyttu síð-
asta prófið sem tekið er
inn í keppnina um
Morgunblaðsskeifuna í
Hólaskóla á uppstign-
ingardag. Flestir nem-
enda, þar sem stúlkur
eru í miklum meiri-
hluta, kepptu í fjór-
gangi en tveir kepptu í
fimmgangi. Valdimar
Kristinsson brá sér
norður með skeifuna
eftirsóttu og myndavél
og fylgdist með
spennandi keppni.
FORKEPPNIN hafði farið fram
um morguninn og það vora niður-
stöður hennar sem giltu í skeifu-
keppninni. Úrslitin voru nemendum
og gestum til skemmtunar því boðið
var upp á B-úrslit þar sem kepp-
endur í 6. til 10. sæti leiddu saman
hesta sína, en alls voru nemendur á
hrossabraut 20 í vetur og allir
skráðir til leiks. Fljótlega beindist
athyglin að Höllu Eiríksdóttur sem
keppti á hryssunni Flugu sem hún
kom með að heiman frá Skúfslæk í
Arnessýslu. Vakti hryssan strax at-
hygli blaðamanns á hægatöltinu og
hin atriðin reyndust einnig góð
nema fetið sem var lélegt. Fór svo
að lokum að þær Skúfslækjarstöllur
sigraðu í B-úrslitum og unnu sér
keppnisrétt í A-úrslitum.
Þar vora fyrir Ágúst Ágústsson á
Fjallaljóna frá Sauðanesi, Birna
Ti-yggvadóttir á Rispu frá Syðri-
Úlfsstöðum, Sandra Maria Marin á
Spóa frá Fjalli, Svanhildur Stefáns-
dóttir á Hólmsteini frá Syðri-Gróf
og Viðja H. Hreggviðsdóttir á
Skerplu frá Langholti. Einn piltur á
móti fímm stúlkum undirstrikaði vel
kynjahlutfall nemenda á hrossa-
braut en tveir piltar vora í B-úrslit-
um. Keppnin var mjög jöfn en Viðja
og Skerpla höfðu þó vinninginn að
mati þriggja dómara, þeirra Elvars
Einarssonar, Ingimars Ingimars-
sonar og Antons Níelssonar. Jafnar
í öðra til þriðja sæti urðu svo Halla
World rank-mót Geysis
Landsliðseinvaldurinn
gerir það gott
GEYSISMENN héldu um helgina
sitt árlega íþróttamót sem var um
leið opið mót og viðurkennt sem
World rank-mót sem þýðir að ár-
angur einstakra knapa fer inn á af-
rekalista FEIF. Mótið var afgreitt á
einum degi sem sýnir vel hvað hægt
er að afkasta miklu með stóra móts-
svæði og fleiri en einum knapa inni á
velli í senn í forkeppni.
Að sögn Steinunnar Gunnarsdótt-
ur mótsstjóra var nokkur óánægja
með hversu mikið misræmi var á
köflum á milli þriggja dómara en
slíkt getur verið bagalegt þegar
keppendur eru að reyna að ná lág-
markseinkunn (5,5) inn á Islands-
mótið sem verður einmitt haldið á
Gaddstaðaflötum í sumar. Af úrslit-
um mótsins vekur athygli að lands-
liðseinvaldurinn Sigurður Sæmunds-
son sem gerði það gott, vann fjór-
ganginn á heimaræktuðum stóð-
hesti, Esjari frá Holtsmúla, og stóðu
þeir einnig vel uppi í hárinu á Vigni
Siggeirssyni og Ofsa frá Viðborðsseli
sem sigruðu í töltinu. Þá varð Sigur-
bjöm Bárðarson þriðji í töltinu - nei,
ekki á Oddi, heldur Hyl frá Efri
Múla. Sigurbimi gengur allt í haginn
með nýja fimmgangshestinn sinn,
Byl frá Skáney, en þeir sigraðu þar
en þurftu þó að hafa sig alla við á
móti Katrínu dóttur Sigurðar. Og
hún var líka á heimafæddu hrossi,
Sögu frá Holtsmúla, sem er hálfsyst-
ir Esjars. Og svo er þess að geta að
Sigurbjöm sigraði í gæðingaskeiði á
Byl með himinháar tölur, 9,39. Má
nú víst telja að Sigurbjöm sé kominn
með alvöru HM-kandídat enda alltaf
stórtíðindi ef Sigurbjöm kemst ekki
í landsliðið þegar hann á annað borð
reynir það. Slíkt hefur ekki gerst
síðan 1983 og er það eina skiptið sem
honum hefur ekki tekist að vinna sér
sæti í íslenska liðinu.
Opið íþróttamót Geysis (World
rank-mót) Tölt - 1. flokkur
1. Vignir Siggeirsson Sleipni, á Ofsa
frá Viðborðsseli, 7,9/8,9
2. Sigurður Sæmundsson Geysi, á
Esjari frá Holtsmúla, 7,6/8,4
3. Sigurbjöm Bárðarson Fáki, á Hyli
frá Efri Múla, 7,7/8,3
4. Einar Ö. Magnússon Sleipni, á
Glampa frá Kjarri, 7,2/8,2
5. Fríða Steinarsdóttir Geysi, á Hirti
frá Hjarðarhaga, 6,9/7,2
Verðlaunahafar á Geysismóti
3. Marjolyn Tiepen á Viljari frá
Skarði, 6,6
4. Jóhann Þ. Jóhannesson á Skugga
frá Dalsgarði, 6,6
5. Hallgrímur Birkisson á Hasari frá
Þykkvabæ, 6,4
Fjórgangur - 1. flokkur
1. Sigurður Sæmundsson Geysi, á
Esjari frá Holtsmúla, 7,1/8,2
2. Einar Ö. Magnússon Sleipni, á
Glampa frá Kjarri, 6,9/6,9
3. Fríða Steinarsdóttir Geysi, á Hirti
frá Hjarðarhaga, 6,5/7,6
4. Hallgrímur Birkisson Geysi, á
Hasari frá Þykkvabæ, 6,7/7,6
Geysi 5. Sigurbjörn Bárðarson
Fáki, á Hyli frá Efri Múla 6,1/6,7
Verðlaunahafar á Geysismóti
4. Guðmundur Guðmunds. á Védísi
frá Lækjarbotnum, 5,0
5. Katrín Sigurðardóttir á Stráki frá
Grímsstöðum, 5,7
Fimmgangur - 1. flokkur
1. Sigurbjörn Bárðarson Fáki, á Byl
frá Skáney, 6,9/7,12
2. Katrín Sigurðardóttir Geysi, á
Sögu frá Holtsmúla, 6,4/7,11
3. Marjolyn Tiepen Geysi, á Viljari
frá Skarði, 5,7/6,9