Morgunblaðið - 18.05.1999, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999 65
I
I
I
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnaríjarðar
opin alla daga nema þriðjud. frá kl, 12-18.___
KJARVALSSTAÐIR: Opiö daglega frá kl. 10-18. Safna-
leiðsögn kl. 16 á sunnudðgum. __________
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.-fimmtud. kl. 8.15-22, föst. kl. 8.16-19. Laugd.
9-17. Sunnud. kl. 11-17. Handritadeild er lokuð á laug-
ard. og sunnud. S: 525-5600, bréfs: 525-5615._
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggíagötu 28, SeHossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703.__________
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Hoggmyndagarflur-
inn er opinn alia daga. Safnið er opið laugardaga og
sunnudaga frá kl. 14-17.______________________
LISTASAFN ÍSLANDS, FríkirKjuvegi. Sýningarsalir, kaffi-
stofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað mánu-
daga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Op-
ið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið þriðjud.-fóstud.
kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á miðvikudögum. Uppl. um
dagskrá á internetinu: http/Avww.natgall.is___
LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12-18 nema mánud. ________________________
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga milli kl. 14 og 17. Tekið á
móti gestum skv. samkomulagi. Upplýsingar í síma 553-
2906._________________________________________
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið
alla daga frá kl. 13-16. Slmi 563-2530._______
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. í sumar
verður opið á sunnud., þriöjud., fimmtud. og laugard.
milli kl. 13 og 17.___________________________
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. scptember. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með mii\jagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhorn.is.______________________
MINJASAFN RAFMAGNSVEITU Reykjavíkur v/rafstöð-
ina v/Elliðaár. Opið sunnudaga kl. 15-17 eða eftir sam-
komulagi. S. 567-9009.________________________
MINJASAFN SLYSAVARNARFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garöi. Opið á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 13-16. Hægt er að panta á öðrum
tímum í síma 422-7253.________________________
MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI: Aðalstræti 68 er lokað I
vetur vegna uppsetningar nýrrar sýningar sem opnuö
verður sumarið 1999. S. 462-4162, bréfs: 461-2562.
ÍÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI verður opið framvegis
á sunnudögum kl. 14-16 í vetur. Að auki geta gestahóp-
ar og bekKjardeildir skóla haft samband við safnvörð í
síma 462-3550, sem opnar þá fúslega samkvæmt nánara
umtali._______________________________________
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 569-9964. Opiö virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tima eftir samkomulagi.____________________
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630.__
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýníngarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30-16._____________________________________
NESSTOFUSAFN, Yfir vetrartímann er safnið einungis
opið 8amkvœmt samkomulagi.____________________
NORRÆNA IIÚSIÐ. Bókasafniö. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Slmi 555-4321.
SAFN ÁSGRlMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
651-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl.
13.30- 16.____________________________________
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17 og eftir sam-
komulagi fyrir skólanema og aðra hópa. S: 565-4242,
bréfs. 665-4251.____________________
SJÓMINJA- OG smidjusafn jósafats
HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard.
frá kl. 13-17, S. 681-4677._______________
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl.ís: 483-1165,483-1443.
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
_ 13-18 nema mánudaga. Sími 431-5566._________
SÖGU- OG MINJASAFN Slysavarnafélags íslands,
Garðlnum: Opið um helgar frá kl. 13-16._______
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Oplð alla daga nema
mánudagakl. 11-17.____________________________
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga tii föstu-
dagakl. 10-19. Laugard. 10-15.________________
LÍSTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið aiia daga frá kl.
14—18. Lokað mánudaga. _______________________
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ Á AKUREYRI: Lokað í vetur
nema eftir samkomulagi. Simi 462-2983.________
NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
arfrákl. 11-17._______________________________
ORÐ PAGSINS ________________
Reykjavík a'ml 661-0000. ~
Aknreyri s. 462-1840._________________________
SUNDSTAÐIR
SÚNDSTADIR I REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið 1 bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl.
8-22. Kjalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-15. þri.,
mið. ogföstud. kl. 17-21._____________________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin mád.-fdst. 7-21. Laugd. og
sud. 8-18. Sölu hætt hálftíma iyrir lokun.____
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima iyrir lokun._
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll HafnarQarðar: Mád.-
föst. 7-21. Laugd. 8-12. Sud. 9-12.___________
VARMÁRLAUG 1 MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl.
6.80-7,46 og kl. 16-21. Um helgar kl. 8-18.
SUNÖLAUGIN ( GRINDAVlK:Opið alla virka daga kl. 7-
21 og ki. 11-16 um helgar. Simi 426-7656._____
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.46-8.30 og 14-22,
helgar 11-18.__________]______________________
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-föstud. kl.
7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. ki. 9-16._____
SUNDLAUGIN ( GARÐI: Opin mán.-föst. kl. 7-8 og 16.30-
21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opln v.d. kl. 7-21. Uugard.
og sunnud. kl. 8-18. Sími 461-2532.___________
SUNÐLAUG SELTJARNARNESS: Opln mád.-róst. 7-
20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30._______
ÍÁÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-fóst. 7-
21, laugd. og sud. 8-18. S: 431-2643._________
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21.
ÚTIVISTARSVÆÐI _______________________________
Í JOLSKYLDU- OG HÚSDYRAGARÐURINN cr opinn alla
daga kl. 10-17, lokaö á miðvikudögum. Kaffihúsið opið á
_ sama tlma. Simi 5757-800.___________________
SORPA_________________________________________
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.16. Endur-
vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaöar á
stórhátíðum. Aö auki verða Ánanaust, Garðabær og Sæv-
arhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. UppLsími 520-2205.
Fréttagetraun á Netinu
S' mbl.is
--*\LLTAf= ŒITTHXSAÐ A/ÝTT
Fyrirlestur
um siðfræði
og erfða-
upplýsingar
HILLARY Rose, vísindafélagsfræð-
ingur, flytur opinberan fyrirlestur í
hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla
Islands fimmtudaginn 20. maí kl. 18.
Fyrirlesturinn, sem nefnist „Sið-
fræði og erfðaupplýsingar", er í boði
Siðfræðistofnunar og Siðaráðs land-
læknis og er öllum opinn.
í fréttatilkynningu segir: „Erfða-
vísindi vekja æ flóknari og erfiðari
siðferðisspurningar. Mun getan til
að greina sjúkdóma halda áfram að
aukast hraðar en getan til að með-
höndla þá? Erum við sem einstak-
lingai- og samfélag undir það búin að
takast á við erfðafræðilegar upplýs-
ingar? Geta þjóðríki og alþjóðastofn-
anir stjórnað beitingu erfðatækninn-
ar í þeim tilgangi að vernda friðhelgi
einstaklinga og trúnaðarsamband
sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks?
Hversu langt er rétt að ganga í að
gera náttúruna að verslunarvöru?
Eru hin hefðbundnu markmið vís-
indarannsókna, sköpun auðs og bætt
mannlíf, samrýmanleg þegar erfða-
vísindi eru annars vegar?“
Dr. Hilary Rose er prófessor em-
erítus við háskólann í Bradford á
Englandi. Hún hefur verið gistipró-
fessor við fjölda háskóla bæði í Evr-
ópu og Bandaríkjunum og er nú
gistiprófessor í félagsfræði við City-
háskóla í London. Hún hefur eink-
um stundað rannsóknir á sviði vís-
indafélagsfræði og kvennafræði og á
síðustu árum hefur hún sérstaklega
rannsakað erfðavísindi í ljósi þess-
ara fræðigreina.
Ferða- og árbók-
arkynning FI
FERÐAFÉLAG íslands verður í
kvöld, þriðjudagskvöldið 18. maí,
með ferða- og árbókarkynningu í
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ný hárgreiðslu-
stofa í
Kópavogi
NÝ HÁRGREIÐSLUSTOFA hef-
ur verið opnuð í Hlíðarsmára 9,
Kópavogi, Hárstofan Xit. Eig-
endur stofunnar eru f.v.: Ingi-
björg Sveinsdóttir og Svava Guð-
mannsdóttir. Með þeim á mynd-
inni er Alda Kristinsdóttir starfs-
maður. Hárgreiðslustofan býður
upp á alla hársnyrtiþjónustu fyr-
ir dömur og herra.
Ferðafélagssalnum í Mörkinni 6 kl.
20.30.
Leifur Þorsteinsson sýnir myndir
og segir frá „Laugavegi" og Kjalvegi
hinum forna. Kristján M. Baldurs-
son kynnir ýmsar sumarleyfisferðir
og hvítasunnuferðirnar á Snæfells-
nes og í Þórsmörk. Ennfremur verð-
ur kynnt ný árbók Ferðafélagsins er
nefnist: Firðir og fólk 900-1900,
Vestur-ísafjarðarsýsla, en sýndar
verða myndir Björns Þorsteinssonar
af árbókarsvæðinu en hann lagði
einmitt til litmyndir í bókina.
Allir eru velkomnir meðan húsrými
leyfir og aðgangseyrir er enginn.
Kynnis- og undirbúningsferð
vegna hvítasunnuferðir á Öræfajökul
verður í kvöld kl. 19 og er mæting
við Mógilsá og gengið á Esju.
Mikið spurt
um Austur-
landaferðir
„HEIMSKLÚBBUR Ingólfs &
Príma hafa sérhæft sig í ferðum til
Austurlanda, sem vakið hafa mikla
athygli. A sunnudag birtist auglýs-
ing um sumarleyfi, sumarauka í
Malasíu og Taílandi með nýju sniði.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa
því að á þriðja hundrað manns hafði
samband samdægurs og skrifstofan
fylltist strax út úr dyrum, um leið og
opnað var kl. 13 á sunnudag," segir í
fréttatilkynningu frá Heimsklúbbi
Ingólfs.
„I sértilboði Heimsklúbbsins er
um þrjár mismunandi ferðir að ræða
til Malasíu og Taílands í september
nk. Flogið er með Flugleiðum til
London og samdægurs áfram án
millilendingar með breiðþotum af
vönduðustu gerð, Boeing 747 eða
777. Flogið er yfir nótt, þannig að
farþegarnir vakna upp í annarri
heimsálfu næsta dag. Síðan skiptist
dvölin milli þekktustu áfangastaða í
Malasíu, höfuðborgarinnar Kuala
Lumpur og Penangeyju en í Ta-
flandi milli Bangkok og Pattaya, eða
hins vegar Norður-Taflands með af-
ar sérstæða menningu og fagurt
landslag í Chiang Mai og Chiang
Rai, en endað á eyjunni Phuket, sem
nú nýtur feiknavinsælda.
Ferðir þessar seldust upp í gær
svo að Heimsklúbburinn hefur
ákveðið að fjölga sætum og bæta við
fleiri ferðum í haust. Fólk er jafnvel
farið að panta vetrarferðirnar árið
2000,“ segir þar ennfremur.
Aðalfundur FOK
Breiðholtsskóla
FORELDRA- og kennarafélag
Breiðholtsskóla heldur aðalfund í
kvöld, þriðjudaginn 18. maí kl. 20.
Allir foreldrar/forráðamenn barna í
Breiðholti eru í FOK.
Þetta verður sérstakur fundur í
tilefni 30 ára afmælis skólans. Fund-
urinn verður haldinn í Breiðholts-
skóla, hátíðarsal. Fundarstjóri verð-
ur Einar Þorsteinsson og gestir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir til að
svara spurningunni um hverfið og
stöðu mála og framtíðarsýn þess og
Sigrún Magnúsdóttir til að svara
spurningum um skólann, skólamál,
þróun þeirra og hvað er framundan.
Einnig munu kennarar sýna aðrar
hliðar á sér með uppákomu fyrir for-
eldra.
Fræðslufundur
Foreldrafélags
misþroska barna
SÍÐASTI fræðslufundur vetrarins
verður miðvikudaginn 19. maí kl.
20.30. Umræðuefnið verður: Of-
virkni, greining og lyfjameðferð.
Fyrirlesari verður Steingerður Sig-
urbjörnsdóttir barnalæknir.
Foreldrafélagið hvetur alla for-
eldra, ekki síst þá sem þurfa að hug-
leiða lyfjagjöf handa barni sínu
vegna vandans, en einnig þá sem ný-
lega hafa fengið greiningu eða ei-u
að bíða eftir henni, til að mæta, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Fundurinn verður haldinn í Safn-
aðarheimili Háteigskirkju. Athugið
að gengið er inn frá bflastæði bak
við kirkjuna. Allir eru velkomnir og
aðgangur er ókeypis.
LEIÐRÉTT
Frumkvöðlar - texta ofaukið
ÞAU mistök urðu í greininni
„Frumkvöðlum ungað út“ sem birt-
ist sl. sunnudag, að texti sem var
framar í gi-eininni birtist einnig í
miðri setningu í lok greinarinnar.
Rétt er setningin þannig:
„Þegar í lokin spinnast umræður
og vangaveltur um hvaða áhrif
þessi nýsköpunarkennsla hafi á
framtíðina, bæði fyrir nemendur og
fyrirtækinu í landinu, segir Agnar,
að eins -og fram hafi komið séu þau
ekki sammála viðteknum viðhorfum
um að ekki sé hægt að kenna ný-
sköpun..."
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Ályktanir aðalfundar Yerkalýðsfélags Húsavíkur síðastliðinn sunnudag
Breytingar
á skattkerfinu
brýnar
MORGUNBLAÐINU hafa borist
eftirfarandi ályktanir, sem sam-
þykktar voni á aðalfundi Verkalýðs-
félags Húsavíkur síðastliðinn sunnu-
dag:
„Aðalfundur Verkalýðsfélags
Húsavíkur telur að ekki megi drag-
ast lengur að hefja gagngera endur-
skoðun á skattakerfinu með það að
markmiði að auka tekjuöflun,
tryggja að kjarabætur skili sér til
launafólks og gera fjölskyldufólki
kleift að bæta stöðu sína með því að
auka ráðstöfunartekjur sínar.
Aðalfundurinn telur ekki viðun-
andi að skattkerfið skuli auka þann
mismun sem orðið hefur í kjaraþró-
un hér á landi eins og gerst hefur á
undanfórnum árum. Þeir sem hafa
hæstar tekjur fyrir hafa fengið mest
út úr breytingum á tekjuskattskerf-
inu á meðan hinir tekjulægstu fá lít-
ið sem ekkert í sinn hlut.
Þróun skattleysismarka er sá
þáttur sem mestu skiptir fyrir hina
tekjulægstu. Skattleysismörkin hafa
hins vegar verið fiyst og þannig
lækkuð að raungildi sem hefur
þyngt skattbyrði þeirra sem hafa
lægstar tekjur. Það er algerlega
óviðunandi að frysting skattleysis-
marka verði áfram notuð til að láta
hina tekjulægstu fjármagna lækkan-
ir á tekjuskattshlutfallinu sem koma
fyrst og fremst hinum tekjuhærri til
góða.
Skattkerfið er flókið og ógagn-
sætt og það hlutfall sem launafólk er
í raun að greiða í skatt er mjög mis-
munandi eftir félagslegum aðstæð-
um. Þeir hópar sem hafa þyngsta
framfærslubyrði, barnafjölskyldurn-
ar, verða langverst fyrir barðinu á
jaðaráhrifum skattkerfisins. Tekju-
tengingar bóta hafa í för með sér að
umsamdar kjarabætur eða tekju-
auki til handa þessum hópum skilar
sér í stórkostlegum sparnaði fyrir
rikissjóð vegna skertra bóta.
Aðalfundurinn leggur til að skatt-
kerfinu verði breytt þannig að fjöl-
skyldur með þunga framfærslubyrði
eigi þess kost að bæta stöðu sína
með því að auka ráðstöfunartekjur
sínar, ekki síður en aðrir hópar.
Breyta verður skattkerfinu þannig
að fólk með lágar tekjur og meðal-
tekjur njóti að minnsta kosti jafn-
mikilla kjarabóta og aðrir.
Á vettvangi ASÍ og BSRB fer nú
fram mikil vinna að skattamálum.
Aðalfundur Verkalýðsfélags Húsa-
víkur fagnar því framtaki og væntir
þess að niðurstöður þeirrar vinnu
geti orðið leiðarljós í umræðum um
skattamál og stefnumótandi við
nauðsynlegar breytingar á skatt-
kerfinu."
Endurreisa þarf starfsemi
Kaupfélagsins
„Aðalfundur Verkalýðsfélags
Húsavíkur lýsir yfir þungum
áhyggjum vegna slæmrar fjárhags-
stöðu Kaupfélags Þingeyinga.
Kaupfélag Þingeyinga hefur allt
frá stofnun verið mjög mikilvægur
hlekkur í atvinnulífi á félagssvæði
Verkalýðsfélags Húsavíkur og verið
einn af stærstu og öflugustu at-
vinnurekendum á svæðinu. Takist
ekki að endurreisa starfsemi fyrir-
tækisins mun það hafa í för með sér
mjög alvarlegar afleiðingar fyrir
Þingeyinga, sérstaklega þó starfs-
menn, bændur og þau fyrirtæki sem
byggja afkomu sína á viðskiptum við
kaupfélag Þingeyinga.
Kaupfélag Þingeyinga hefur
einnig í gegnum tíðina látið gott af
sér leiða til alls konar góðgerðar-,
æskulýðs- og íþróttamála. Áhrifa
fjárhagserfiðleika Kaupfélags Þing-
eyinga kemur því til með að gæta
víða.
Aðalfundur Verkalýðsfélags
Húsavíkur skorar á forsvarsmenn
Kaupfélags Þingeyinga að leita allra
leiða til að finna viðunandi lausn á
málefnum Kaupfélagsins með það að
markmiði að starfsemi fyrirtækisins
verði endurreist á nýjum grunni eða
undir öðrum formerkjum.
Aðalfundurinn skorar jafnframt á
alla Þingeyinga að taka höndum
saman í þeim erfiðleikum sem blasa
við þingeysku samfélagi.“
Hvatt til sameiningar
verkalýðsfélaga
„Aðalfundur Verkalýðsfélags
Húsavíkur skorar á Landssamband
iðnverkafólks að óska þegar í stað
eftir viðræðum við Verkamanna-
samband Islands um sameiningu
sambandanna.
Nú þegar mikil umræða fer fram
um sldpulagsmál innan verkalýðs-
hreyfingarinnar og stefnt er að sam-
einingu Iðju, félags verksmiðjufólks
í Reykjavík og Eflingar - stéttarfé-
lags um næstu áramót telur aðal-
fundurinn rökrétt framhald að
Landssamband iðnverkafólks og
Verkamannasamband íslands sam-
einist í eitt sterkt samband. Með
sameiningu sambandanna myndast
öflugt amband sem yrði góður
málsvari verkafólks og væri þannig
betur í stakk búið til að berjast fyrir
bættum kjörum verkafólks."
LEGSTEINAR
f rúmgóðum sýningarsölum okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða.
Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsl;
Verið velkomin til okkar,
eða fáið myndalista.
ii
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410