Morgunblaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Hafrabaka
og hafrabrauð
Kristín Gestsdóttir þakkar „einni
65 ára“ fyrir hlýjar kveðjur í Vel-
vakanda 7. maí sl. og sendir henni og
öllum mæðrum kveðju í tilefni nýliðins
mæðradags. Hann féll örlítið í skugga
kosninganna, jafnvel blómabúðir
auglýstu minna en venjulega.
ÞETTA er skrifað sunnudaginn
9. maí á mæðradaginn. Yfir höfði
mínu gargar krían, hrossagaukur-
inn lætur hvína í stélfjöðrunum,
spóinn vellir og smáfuglamir tísta
allt um kring. Já, sumarið er svo
sannarlega komið.
Mæðradagurinn er upprunninn
í Bandaríkjunum árið 1907.
Bandarísk kona, Anna M. Jarvis,
missti móður sína 9. maí, 1905.
Hún minntist árstíðar hennar
næstu árin og hvatti aðrar dætur
og syni til að tileinka mæðrum sín-
um sérstakan dag. Anna M. Jarvis
hélt upp á dánardag móður sinnar,
en dætur og synir dagsins í dag
minnast nú jafnt látinna sem lif-
andi mæðra sinna á alþjóða
mæðradaginn. Talsverður rugl-
ingur hefur verið með dagsetn-
ingu mæðradagsins, fyrst var
hann haldinn fjórða sunnudag í
maí, síðar einhvem sunnudag í
maí en loks árið 1980 var hann
endanlega færður til annars
sunnudags í maí. Þar á hann sinn
fasta sess þó einhverjir hér á landi
hafi kannsld gleymt honum núna í
hasar kosninganna. Nú em mín
böm búin að stofna heimili og þarf
ég því ekki lengur að aðstoða þau
við matargerð og bakstur „handa
mömmu,“ en uppskriftir á ég frá
þeim tíma, t.d. eina böku sem þau
skreyttu með nýsprottnum fífla-
blöðum og höfðu mjög gaman af.
Hafrabaka mömmu
2 dl haframjöl
3 dl hveití
1 tsk. lyftiduft
___________'/2 tsk, salt______
2 msk. matarolía
2 dl súrmjólk, hrein jógúrt
eða AB mjólk
1. Setjið allt í skál og hnoðið
saman.
2. Smyrjið stórt bökumót eða
álmót eða notið 2 minni.
3. Þrýstið deiginu á botn og upp
með börmum mótsins.
4. Hitið bakaraofn í 210° blást-
ursofn í 190°, setjið í ofninn og
bakið í 12-15 mínútur.
Fylling
3 meðalstórir tómatar, nota mó
niðursoðna
__________1 stórt grænt epli_________
fersk steinselja (mó sleppg)
2 dl rifinn mjólkurostur, sú tegund
_________sem ykkur hentar____________
1 '/2 dl smótt saxað beikon
nýsprottin ung fíflablöð,
ef þau eru tiltaek
1. Skerið tómatana í þunnar sneið-
ar og raðið ofan á hálfbakaðan
bökubotninn. Klippið steinselju
yfir. Afhýðið eplið, stingið úr því
kjamann, skerið í þunn rif og rað-
ið yfir tómatana.
2. Rífið ostinn og stráið yfir,
klippið beikonið smátt og stráið
jafnt ofan á. Setjið í heitan ofninn
og bakið í um 15 mínútur eða þar
til beikonið hefur brúnast.
3. Raðið fíflablöðum ofan á.
Hafrabrauð
500 g hveiti
225 g haframjöl
1 '/2 tsk. salt
1 msk. sykur
1 msk. þurrger
1 dl matarolía
5 dl fingurvolgt vgtn úr krananum
1 eggjarauða + 2 tsk. vatn
til að pensla með
sesamfræ eða valmúafræ ofan
1. Setjið allt nema eggjarauðu og
fræ í skál, t.d. hrærivélarskál og
hnoðið deig. Látið lyfta sér á eld-
húsborðinu í um 2 klst. eða í kæli-
skáp í hálfan sólarhring eða leng-
ur.
2. Skiptið deiginu í tvennt, fletj-
ið hvorn hlut örlítið út með köku-
kefli, vefjið saman og setjið á bök-
unarpappír, samskeyti snúi niður.
3. Penslið brauðið með eggjar-
auðu/vatni, notið pensil eða eld-
húspappír til að pensla með. Sker-
ið stafi í brauðið, sjá meðf. teikn-
ingu og stráið fræi í stafina.
4. Hitið bakaraofn í 70°C, setjið
brauðið í hann um leið og þið
kveikið á honum, látið lyfta sér í
15 mínútur í ofninum, aukið þá
hitann í 210°C, blástursofn í 190C
og bakið í 30-40 mínútur. Leggið
stykki ofan á brauðið meðan það
er að kólna.
Athugið: Alls konar stafi og
nöfn má skera í brauðið, t.d.
fangamark ykkar.
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Póstur í lúgiim
EG hef árum saman þurft
að standa í stríði bæði við
póstburðarfólk og blað-
bera (líka þá sem bera út
auglýsingasnepla), sem af
einhverjum mér alveg
óskiljanlegum ástæðum
virðast hafa þá alveg óvið-
ráðanlegu áráttu að skilja
póst og blöð eftir í
bréfalúgunni, þannig að sé
enginn heima, til dæmis
yfir helgi, þá trónar sú
auglýsing á útihurðinni að
hér sé enginn heima núna.
Bréfalúgan hjá mér er
bæði stór og lipurt að opna
hana, svo það er ekki
vandamálið.
Eg hef óteljandi sinnum
kvartað bæði við pósthúsið
og eins við blaðburðar-
deildina, þá lagast þessi
plága í einhverja daga og
svo kemur þessi árátta upp
aftur - að skilja blöð og
póst eftir í lúgunni. Mér er
hulin ráðgáta hvemig
þessi fíkn er til komin og
er reyndar farin að velta
fyrir mér hvort einhver
samtök væru ekki tilbúin
að taka þetta fólk í ein-
hvers konar meðferð gegn
þessari plágu !
Eg bar út Moggann fyr-
ir nokkuð mörgum ámm
og veit að í fyrsta lagi er
þetta mun seinlegri aðferð
við útburð heldur en að
skutla blaðinu inn um lúg-
una og eins að ef blaðið er
mjög þykkt er hægt að
brjóta það eftir endilöngu.
Það era engin lög sem
segja að blaðið skuli brotið
saman á hinn veginn,
þannig að það verði sem
þykkast og jafnvel of
þykkt til að komast inn um
venjulega bréfalúgu.
Það er ekki nóg að læsa
gluggum og hurðum ef
svona auglýsing frá út-
burðarfólki trónar á úti-
dyranum.
Með þökk og kveðju,
Guðrún Jóhannsdóttir.
Svona gerir
maður ekki
R-LISTINN hefur á einu
ári afrekað þvílíkt að
maður hefur ekki séð
annað eins. Ef hægt væri
að koma með vantrausts-
yfírlýsingu í borgarstjórn
(sem ég veit ekki hvort er
hægt) þá er kominn tími
til. Gerðir R-listans hefðu
gefið Jóhönnu Sigurðar-
dóttur ærið tilefni til að
skammast og skammast
ef annað eins hefði átt sér
stað á Alþingi. Og hvað
hefur R-listinn afrekað á
þessu ári? Hækkað út-
svar um tæp 7%. Dagvist-
unargjöld hækkuð um allt
að 14%. Sérstakt sorp-
gjald. Stakar sundferðir
barna hækkaðar um 54%.
Gjald fyrir lengda viðveru
barna í skólum um allt að
36%. Heilbrigðisgjald
hækkað um 16%. Nýtt
þjónustugjaid á íbúðum
aldraðra allt að 6.500 kr.
Gerir maður svona? Jú,
R-listinn sem lofaði fyrir
kosningar engum hækk-
unum á Reykvíkinga. Síð-
an dettur þessum „snill-
ingum“ hjá R-listanum í
hug að leyfa byggingar
fyrir bíó. Já, bíó í Laug-
ardalnum. Ég man eftir
því þegar Laugardalurinn
var að byggjast upp,
Laugardalsvöllurinn,
höllin, laugarnar, fjöl-
skyldugarðurinn, tennis-
höllin. Er eitthvert vit í
því að koma með bíó sem
tilheyrir eflaust öðru, t.d.
spilasal? Nei, svona gerir
maður ekki, jafnvel þótt
nafnið sé Ingibjörg Sól-
rún.
Guðjón Sigurðsson,
Hátúni lOa, Reykjavík.
Dýrahald
Kisa óskar
eftir heimili
7 mánaða læða óskar eftir
heimili. Hún er bröndótt í
hvítum sokkum. Upplýs-
ingar í síma 554 2698 og
698 2720.
Kanínur
óskast gefins
Kanínur óskast gefins.
Upplýsingar í síma
587 7339.
Hlutavelta
ÞESSIR duglegu krakkar söfnuðu með tombólu kr.
4.780 til styrktar Heimahlynningu Krabbameinsfó-
lagsins. Þau heita Inga Hjaltalín, Magnús Hjaltafín,
Jórunn Sif, Kristjana Þura og Brynjar.
ÞESSAR duglegu stúlkur söfnuðu kr. 3.023 til
styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Elva Dögg
Pálsdóttir og Tara Sverrisdóttir.
Víkverji skrifar...
FRÍDAGAFARGANIÐ fer á
stundum í taugamar á Víkverja.
Hver fimmtudagurinn á eftir öðrum
á vormánuðum er frídagur. Þessir
lögboðnu frídagar gera lítið annað en
slíta vinnuvikuna sundur með til-
heyrandi kostnaði fyrir fyrirtækin
og þjóðfélagið í heild og skila sér í
litlu til fólksins. Lítil framleiðni hef-
ur lengi verið galli í íslenzku at-
vinnulífi og er mikill fjöldi frídaga
umfram sumarleyfi hluti af því
dæmi. Annar hluti þess er mikill
fiöldi „pása“, sem orðnar eru að
hefð, einkum í fiskvinnslu, án þess að
vera samningsbundnar. Nýting á
vinnutímanum er því minni hér en
víðast hvar annars staðar.
Það er eðlilegt að fólk vilji bæði
hátt kaup og gott frí, en þetta tvennt
fer ekki vel saman. Það ættu að vera
sameiginleg markmið launþega og
vinnuveitenda að leggja sig fram um
að góður árangur náist í rekstri fyr-
irtækjanna þannig að allir aðilar
njóti góðs af því. Krefjist launþegar
hækkandi launa verða þeir að gefa
eitthvað á móti. Að mati Víkverja
mætti fækka lögboðnum frídögum
og eða færa þá til til að þeir nýtist
launþegum betur og dragi minna úr
afköstum í atvinnulífinu. Rétt er þó
að taka fram, að við þjóðhátíðardeg-
inum má ekki hrófla.
XXX
ÍKVERJI hefur átt í sérkenni-
legu „stríði" undanfama daga.
Um síðustu mánaðamót var samn-
ingsbundinni áskrift hans að Degi og
DV sagt upp. Laugardaginn fyrsta
maí áttu þessi blöð ekki að berast
inn um bréfalúguna hjá honum. Það
stóð með DV, en Víkverji hringdi um
morguninn og endumýjaði áskriftina
og fékk blaðið sent heim um hádegis-
bilið. Síðan skilaði DV sér vel þar til
síðustu daga að mikill misbrestur
hefur orðið á skilum blaðsins og
þrátt fyrir reglubundnar kvartanir
fékk Víkverji aldrei síðasta helgar-
blað DV.
Um Dag gildir allt öðra máli. Dag-
ur hefur komið reglulega með góðum
skilum hvem einasta útgáfudag frá
því blaðinu var sagt upp. Einu gildir
þótt Víkverji hafí hvað eftir annað
hringt til að ítreka uppsögn blaðsins.
Nú verður framhaldið líklega það að
Víkverji verður rakkaður fyrir
áskrift að blaði, sem hann hefur sagt
upp, en fengið þrátt fyrir að vilja það
ekki. Hver framvindan verður síðan
er ekki gott að segja.
XXX
KEPPNI í ensku úrvalsdeildinni í
knattspymu lauk í gær með
sigri Manchester United eftir
æsispennandi kapphlaup við Arsenal
um enska meistaratitilinn. Þessi
keppni hefur stigmagnast á undan-
fömum vikum og hefur verið gaman
að fylgjast með henni. Það er ís-
lenzka útvarpsfélagið, Stöð 2 og Sýn,
sem hefur sýningarréttinn að ensku
knattspymunni hér á landi og hafa
þessar sjónvarpsstöðvar verið ötular
við að sýna leiki frá þessari spenn-
andi keppni beint. Oftast hafa
íþróttafréttamennimir haft íslenzka
knattspyrnuþjálfara sér til halds og
trausts í þessum útsendingum. Það
eykur skilning áhorfandans á leikn-
um veralega, þegar sérfræðingarnir
greina leikinn jafnóðum og hann er
spilaður og velta fyrir sér þróun
hans og framhaldi. Því miður var það
ekki svo er leikir Arsenal og Aston
Villa og Manchester United og
Tottenham vora sýndir síðastliðinn
sunnudag. Víkverji telur að spennan
í keppninni hefði ekki aðeins réttlætt
að svo hefði verið, heldur hefði
einnig mátt hafa svolítinn spjallþátt
á samtengdum rásum fyrir leikina, í
hálfleik og eftir leik. Svo var ekki og
líklega hefur það verið máttur
mammons, það er auglýsingatekj-
urnar, fremur en metnaðarleysi
stjómenda íþróttadeildar félagsins,
sem réð því. Víkverji hefur fullan
skilning á nauðsynlegri tekjuöflun,
en hann saknaði engu að síður meiri
metnaðar við þessar útsendingar.
Víkverji er engu að síður þakklátur
íslenzka útvarpsfélaginu fyrir að
sýna báða þessi leiki beint. Félagið
hefur sinnt þessu verkefni vel.
XXX
YRST íþróttir eru á dagskrá er
vert að geta frábærs árangurs
litla liðsins Genk í Belgíu. Það varð
nú meistari í efstu deild knattspyrn-
unnar í því landi og hampaði bikar-
meistaratitlinum í fyrra. Einn burða-
rása liðsins er Skagamaðurinn Þórð-
ur Guðjónsson og tryggði hann liði
sínu sigur með marki að áliðnum
seinni hálfleik. í sama liði era bræð-
ur hans Bjarni og Jóhannes og er
það líklega einsdæmi að í leikmanna-
hópi meistaraliðs séu þrír bræður.
Þetta sýnir og sannar getu íslenzkra
knattspyrnumanna, sem era að gera
það gott víða um heim. Víkverji ósk-
ar þeim bræðrum til hamingju með
árangurinn.