Morgunblaðið - 25.03.2000, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 D 19
Rakel Ýr og Björg Ýr Guömundsdætur
Morgunblaöiö/Ásdís
Björg Ýr og Rakel Ýr Guðmundsdætur voru alltaf eins fram að fermingu.
Fermingardagur-
inn var ákveðinn
vendipunktur
'\he\masaU'
FERMINGARDAGUR
tvíburasystr-
anna Rakelar
Ýrar og Bjargar
Ýrar Guðmunds-
dætra átti eftir
að verða ákveð-
inn vendipunktur
í lífi þeirra. Hann
rann upp bjartur
og fagur í Arbæn-
um í apríl árið 1986
og var athöfnin og
veislan þar á eftir í
ósköp hefðbundnu
formi að sögn þeirra
systra. Arbæjarkirkj-
an var enn í smíðum og
fór athöfnin því fram í safnaðar-
heimilinu. „Þar var heldur þröng á
þingi og því var settur kvóti á það
hvað hvert fermingarbarn mátti
bjóða mörgum í athöfnina. En þar
sem við vorum tvær máttum við
bjóða helmingi fleiri ættmennum en
aðrir,“ segir Rakel og tekur undir
að þarna hafi komið sér vel að vera
tvíburi.
Systrunum var haldin vegleg
matarveisla heima að lokinni at-
höfninni í safnaðarheimilinu þar
sem í boði voru tvær kransakökur
og fleira góðgæti. Rakel rifjar upp
að þær hafi fengið marga skartgripi,
hvor sinn demantshringinn, hvor
sitt gullarmbandið, hvor sinn lamp-
ann og margt fleira en þær fengu
aldrei gjafir saman heldur var alltaf
keypt tvennt af hverju. „Ættingj-
arnir hafa kannski fengið magn-
afslátt af gjöfunum," segir Rakel
hlæjandi og bætir því síðan við að
þær hafi fengið Mallorka-ferð frá
foreldrum sínum. Hvorki meira né
minna.
En þótt dagurinn hafi verið hefð-
bundinn að mörgu leyti segja þær
systur að hann hafi samt sem áður
verið svolítil tímamót fyrir þær. „A
þessum degi breyttumst við mjög
mikið sem tvíburar. Fram að honum
höfðum við alltaf verið eins; eins
klæddar og með eins hárgreiðslu.
Til dæmis þurftum við að beita mikl-
um málamiðlunum á morgnana áður
en við fórum í skólann því við þurft-
um að koma okkur saman um fötin
sem við ætluðum að vera í. Hvort við
ætluðum að vera í rauðu peysunni
eða þeirri grænu. Aldrei kom annað
til greina en að vera alveg eins.
Meira að segja sokkarnir okkar
voru eins.“
Urðum sjálfstæðari
eftir ferminguna
En strax eftir ferminguna breytt-
ist þetta. „Daginn eftir ferminguna
fórum við í bæinn með fermingar-
peningana þar sem önnur keypti sér
síðan skærgrænan jakka með mikl-
um herðapúðum en hin keypti sér
hljómflutningstæki,“ segir Björg og
bætir því við að aukinheldur hafi
önnur þeirra klippt hár sitt stutt og
litað það ljóst. „Eg veit ekki hvað
varð til þess að við fórum að ganga í
ilW»ðU
1lnga*fötunUm'
öðruvisi fötum.
Kannski urðum við sjálf-
stæðari eftir ferminguna," segir
Rakel ennfremur, „og kannski vor-
um við líka orðnar leiðar á því að
láta rugla okkur saman.“
Síðan þá hafa þær systur gert út á
að vera eins ólíkar og þær geta. Þær
klæða sig ólíkt og passa upp á að
vera með hvor með sinn háralitinn.
„Það er óskrifað samkomulag okkar
í milli að ein liti ekki á sér hárið án
þess að hafa samráð við hina. Annað
er stranglega bannað,“ segir Rakel
og Björg tekur undir. Sú síðar-
nefnda segir að hún hafi verið Ijós-
hærð nánast alla tíð frá fermingu og
Rakel segist aðspurð aldrei hafa
þorað að nefna það við Björgu hvort
hún mætti lita á sér hárið ljóst.
Snoðaði systur sína
í hárgreiðsluleik
Rakel og Björg segjast alla tíð
hafa verið góðar vinkonur og taka
fram að því eldri sem þær verði því
betri vinkonur verði þær. Þær eiga
sömu æskuvini og búa í sömu blokk-
inni. „Aðeins þrjár hæðir skilja okk-
ur að,“ segir Björg og hlær við. Þær
hafa þó valið sér ólíkan starfsvettv-
ang. Björg er hárgreiðslukona eins
og móðir þeirra en Rakel er rekstr-
arfræðingur og vinnur hjá Stöð 2.
Að lokum eru þessar skemmti-
legu systur beðnar um að segja frá
einhverjum prakkarastrikum í
æsku. Björg tekur orðið og segir svo
frá: „Þegar við vorum fimm ára ák-
váðum við um sexleytið einn sunnu-
dagsmorgun að fara í hárgreiðslu-
leik. Mamma var hárgreiðslukona
og rak litla stofu heima í Breiðholt-
inu þannig að við vissum vel hvað
fram fór á slíkum stofum. Skemmst
er frá því að segja að þegar mamma
vaknaði um áttaleytið sat Rakel á
pínulitlum baststól inni á baði með
dönsku blöðin fyrir framan sig og
rauðan lit í munninum sem átti að
vera sígaretta. Ég stóð við stólinn
með skærin og var búin að klippa
allt hárið af Rakel.
Við þessa sjón fékk mamma áfall
því hún hafði látið okkur safna hári
frá því við fæddumst enda vorum
við komnar með hár niður á bak.
Þessi leikur endaði hins vegar á því
að mamma snoðaði mig líka því hún
vildi hafa okkur eins. Við vorum
þannig báðar orðnar krúnurakaðar
um fimm ára aldur.“
Fermingar
Litir: Beige, grátt, svart
Stærðir 36-41
Verð 5.900
Litir: Grátt, svart
Stærðir 36-41
Verð 5.900
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
HAMRABORG 3 • SÍMI 554 1754
Litir: Svart, grátt
Stærðir 36-41
Verð 5.900
2 gpðar fémiingargjafir
SINGER 4662
Góð heimilissaumavél
með tíu sporum
þ.m.t. overlock spor.
Fermingartilboð:
21.300.- Afsláttur:
19.885? 7.000.-
Verð áður: 28.300.- 26.885.- sgr.
PFAFF hobby 309
Heimilissaumavél
með fímmtán sporum,
þ.m.t. overlock spor.
Fermingartilboð:
26.700.- Afsláttur:
24.865? 10.000.-
36.700.- 34.865.-«
PFAFF
cHeimilistœkjaverslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222
Veffang: www.pfaff.is