Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 D 2^
Ágústa Kristjánsdóttir snyrtifræóingur
Gloss og glansandi augn-
skuggar fyrir mömmurnar
LÍTIÐ er um að unglingsstúlkur
farði sig eða fari í sérstaka förðun
fyrir ferminguna en mæður þeirra
gera sér frekar þann dagamun þegar
fermingardagurinn rennur upp. Til
þess að fá hugmynd um helstu liti í
heimi farða var haft samband við
Agústu Kristjánsdóttur, eiganda
Snyrtistofu Ágústu i Reykjavík.
Agústa byrjar á því að segja frá
helstu straumum og stefnum í heimi
varalita og segir að þar séu pastellit-
ir og ljósbleikir varalitir alls ráðandi.
Ahersla virðist vera á glansandi
varaliti til að mynda gloss og segir
Ágústa að nú eigi línur eftir varalita-
blýanta ekki að sjást. Séu varalita-
blýantar á annað borð notaðir eigi
þeir að vera í svipuðum lit og varalit-
urinn sjálfur.
Ágústa bendir reyndar á að erfitt
sé að tala um eina ákveðna stefnu
sem nú ríki í förðun en sé hægt að
tala um einhverja megi segja að
glansandi útlit sé mikið í tísku. Til
dæmis sé vinsælt að nota pínulítið
glansandi púður sem setja megi á
allt andlitið eða á hið svokallaða
t-svæði, þ.e. svæðið á hökunni, nef-
inu og öllu enninu. Slíkt púður komi
afar vel út í kvöldförðun en þá glitrar
aðeins á húðina og það geíúr henni
ferskari blæ.
Glansandi augnskuggar
Sömu sögu er að segja um augn-
skuggana. Þeir eru aðeins glansandi
eða með smáglimmer. Litimir á
skuggunum geta þó verið margs
konar, segir Ágústa, og er bæði í
tísku að nota ljósa augnskugga og
dökka. Kinnaliturinn er yfirleitt
Morgunblaðið/Golli
Ágústa Kristjánsdóttir gefur mimmunum ráð um förðunina.
bleikur, rauður eða brúnn. Hingað til
hefur kmnaliturinn oftast verið sett-
ur undir kinnbeinin en nú er hann
borinn undir og á kinnbeinin sjálf til
að fá svolítinn roða í kinnamar og
honum dreift nær nefinu en áður.
Hvað á að
gefa ferming-
arbarninu?
FLESTIR hafa sjálfsagt einhvern
tíma verið í þeirri stöðu að vera á
leið í fermingarveislu en hafa ekki
hugmynd um hvað þeir eigi aö gefa
fermingarbarninu. Sumir brjóta jafn-
vel heilann dögum saman en fá enga
hugmynd sem þeim þykir nógu góð.
Ástæðurnar geta verið margar,
sum börn eiga allt sem hugurinn
girnist, þótt þau séu enn ekki
fermd, kannski þekkir maður barnið
ekki alveg nógu vel til þess að vita
hvar áhugi þess liggur, gjöfin má
ekki kosta allt of mikið - og kannski
heldur ekki of lítiö... og þar fram eft-
irgötunum.
Hjá mörgum verður þrautalend-
ingin sú að leggja peningaseðla í
umslag og stinga því að fermingar-
barninu með þeim orðum að kaupa
sér nú eitthvað fallegt, eitthvað
gagnlegt eða eitthvað skemmtilegt.
Umfram allt að eyða ekki peningun-
um í einhverja vitleysu. Þetta þykir
mörgum þó klénn kostur og heldur
ópersónulegur. Það eru heldur ekki
allir svo sköpunarglaðir að þeir geti
búið gjöfina til sjálfir.
Fyrir þá sem vilja gefa skemmti-
lega og gagnlega gjöf skulu hér tínd-
ar til nokkrar hugmyndir að gjöfum
sem ekki sjást svo oft í pakkaflóði
ferminganna en standa þó fyliilega
fyrir sínu og munu eflaust gleðja
margan fermingardrenginn og ferm-
ingarstúlkuna. Víða er hægt að fá
gjafakort eða ávísanir á hluti, við-
burði, þjónustu eða afþreyingu. Því
ekki að gefa fermingarbarninu...
► gjafakort í leikhús?
► áskrift að tímariti um
aðaláhugamálið?
► sundkort?
► kort í líkamsræktarstöð?
► ávísiin á fjallgöngu eða
útreiðartúr?
► ávísun á tungumála- eða
myndlistarnámskeið?
Hver sem niðurstaðan verður er
eitt sem aldrei má gleyma: Það er
hugurinn á bak við gjöfina sem máli
skiptir - en hvorki verð hennar,
stærð né litadýrð umbúðanna!
NíNA
LJÓSMYNDARI
GRETTISGATA 46 101 REYKJAVlK
SlMI: 551-4477
400 MHz PowerPC G3 örgjörvi Airport hæf Staðfært MacOS 9.0 stýrikerfi
15,1" skjár USB tengi Apple Works á íslensku, „með
64 Mb vinnsluminni Innbyggðir Harman Kardon öllu“, ritvinnsla, töflureiknir,
10 Gb harðdiskur stereo hátalarar teikniforrit, málun og
2 Firewire tengi DVD drif gagnagrunnsforrit. FaxSTF,
512 L2 flýtiminni ATI RAGE 128 VR 2D/3D 8 Mb skjáfax, Bugdom leikur, Acrobat
56 K mótald grafískt hröðunarkort með Reader, alfræðiorðabók, vafri,
10/100 Ethernettengi SDRAM minni AGP 2X stuðning tölvupóstur o.fl.
Ekkert mál að klippa heimamyndböndin með iMac DV
ACO ■ Skipholti 21 ■ Sími 530 1800 • Fax 530 1801
www.apple.is