Morgunblaðið - 01.04.2008, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
ÞINGMENN og mótmælendur, ráð-
herrar og öryrkjar, trúboðar og trú-
leysingjar, vinstri- og hægrimenn:
hægt er að finna allan pakkann eins
og hann leggur sig á Blog.is, eða
Moggablogginu eins og flestir kalla
þennan vinsælasta bloggvef landsins,
sem í dag á tveggja ára afmæli.
Nýjar leiðir til skoðanaskipta
Ingvar Hjálm-
arsson, netstjóri
Mbl.is, segir
bloggvefinn ekki
aðeins hafa skap-
að nýjan vett-
vang, heldur líka
nýjar leiðir fyrir
lesendur til að
skiptast á skoðun-
um og upplýsing-
um. Bloggið leyfir
ekki aðeins að nota myndir og texta
með einföldum hætti, heldur einnig
hljóð og myndskeið: „Innan Mogga-
bloggsins hefur svo myndast tengsla-
net bloggvina, sem vísa hver í annan
á síðum sínum og fylgjast vel með
hópnum. Við vitum til þess að slíkir
bloggvinahópar hafa tekið sig til og
hist til að ræða saman, svo vefurinn
er að verða meira en bara andlit og
orð á skjá, hefur breyst í stórt og lif-
andi samfélag,“ segir Ingvar um þá
þróun sem átt hefur sér stað á
bloggvefnum.
Skráðir notendur Moggabloggsins
eru í dag tæplega 14.000 talsins og í
hverri viku eru um 130.000 heim-
sóknir á bloggvefi Blog.is. Meðalald-
ur skráðra notenda er rösklega 34 ár
og alls höfðu verið skrifaðar á blogg-
vefinn 392.471 færsla seinni part
dags í gær, eða um 28 færslur á hvern
notanda. Við færslurnar hafa svo ver-
ið skrifaðar 1.186.465 athugasemdir!
Lesendur taka virkan þátt
Bloggvefurinn tengist öðrum miðl-
um Morgunblaðsins með margvísleg-
um hætti: Á bls. 10 í prentútgáfu
Morgunblaðsins er fastur liður að
birta brot úr því besta sem bloggað
hefur verið, á forsíðu Mbl.is er vísað í
áhugaverða bloggara, og einnig hafa
skráðir notendur þann möguleika að
tengja blogg sín við einstakar fréttir:
„Lesendur frétta eru ekki lengur að-
eins í því hlutverki að taka við upplýs-
ingum, heldur geta nú tekið þátt í
umfjölluninni og umræðunum, sent
okkur viðbótarupplýsingar um fréttir
og tjáð sig um innihald þeirra í blogg-
um sínum,“ segir Ingvar. „Í blogg-
unum spinnast svo iðulega langar
umræður milli lesenda, þar sem þeir
skiptast á skoðunum.“
Nýjar stjörnur í sviðsljósið
Þann stutta
tíma sem Blog.is
hefur starfað hafa
þar orðið til marg-
ar blogg-stjörnur:
margar þeirra
fólk sem fáir
þekktu áður en er
í dag þekkt í þjóð-
félaginu fyrir
skoðanir sínar og
lífsreynslu.
Ein þessara bloggstjarna er Jóna
Á. Gísladóttir (jonaa.blog.is) sem
bloggar um fjölskyldulíf sitt og uppá-
tæki einhverfs sonar síns: „Bloggið
hefur breytt heilmiklu,“ segir Jóna
um nýfundna frægð. „Ég byrjaði að
blogga til að reka sjálfa mig út í að
skrifa, en ég hafði alltaf ætlað mér að
gerast rithöfundur. Í gegnum bloggið
hef ég skrifað fullt af smásögum sem
ég hefði aldrei gert annars. Þökk sé
blogginu hafa tímarit fengið mig til
greinaskrifa og fyrir jól er ég vænt-
anlega að fara að gefa út bók.“
Eftirsóttur álitsgjafi
Stefán Friðrik
Stefánsson
(stebbifr.blog.is)
er annar mikið
lesinn Mogga-
bloggari, en hann
segist hafa byrjað
að blogga af ein-
skærri löngun til
að tjá sig um þjóð-
félag, mannlíf og
margt fleira. Eftir
að blogg hans fór að vekja athygli
hefur Stefán orðið var við að fólk á
förnum vegi kannist við hann: „Þetta
fólk er oft búið að lesa skrifin, og gef-
ur sig gjarna á tal til að ræða inni-
haldið,“ segir Stefán, sem einnig er
reglulega fenginn til að deila skoð-
unum sínum í útvarpi sökum blogg-
frægðarinnar.
Hjálpar sér og öðrum
Vinsælasti
bloggarinn í dag
er Áslaug Ósk
Hinriksdóttir (as-
laugosk.blog.is),
sem bloggar m.a.
um baráttu dóttur
sinnar við krabba-
mein: „Það hefur
hjálpað mér ótrú-
lega mikið að
blogga, og hafa
stuðningur og fallegar orðsendingar
reynst ómetanleg,“ segir Áslaug.
„Einnig fæ ég reglulega póst frá for-
eldrum langveikra barna sem eru
þakklátir fyrir skrifin, eða einfald-
lega frá fólki sem lesið hefur bloggið
og í kjölfarið byrjað að líta lífið öðrum
augum en áður.“
Hefur skapað nýja vídd
í umfjöllun og miðlun
Tvö ár liðin frá því
Moggabloggið,
Blog.is, var opnað
Morgunblaðið/Eggert
Stefán Friðrik
Stefánsson
Jóna Á. Gísladóttir
Áslaug Ósk
Hinriksdóttir
Ingvar
Hjálmarsson
LÖGREGLAN á Selfossi tók aðfara-
nótt laugardags mann sem ók á 194
kílómetra hraða. Maðurinn, sem
staðinn var að hraðakstrinum á
Suðurlandsvegi, er að auki grun-
aður um að hafa ekið undir áhrifum
áfengis umrædda nótt.
Ökumaðurinn var sviptur öku-
réttindum til bráðabirgða, en að
sögn Svans Kristinssonar, varð-
stjóra í lögreglunni á Selfossi, verð-
ur hann ákærður vegna brotsins.
Ákæran á hendur manninum er
nú í vinnslu hjá fulltrúa lög-
reglustjórans á Selfossi.
Svanur segir að í tilfellum þar
sem fólk er gripið við athæfi sem
talið er geta valdið samborgurum
stórhættu sé ávallt ákært. Brot sem
þetta valdi væntanlega missi bíl-
prófs í allt að tvö ár.
Ákærður fyrir
að aka á 194
km hraða
ÍSLENZKA sjáv-
arútvegssýn-
ingin verður
haldin í Kópa-
vogi í haust, en
sýningin hefur
verið haldin
reglulega síðan
1984 á þriggja
ára fresti. Búið
er að selja um
80% sýningar-
svæðis. Sýningin
verður eins og síðustu skiptin í
Smáranum og Fífunni í Kópavogi
og á útisvæði þar við hliðina.
Framkvæmdastjóri sýningar-
innar, Marianne Rasmussen-
Coulling, segir að sýningin verði
af sömu stærð og síðast. Sýningin
er nú haldin í byrjun október og
er það gert til að fá hagstæðara
verð á hótelgistingu. Samdráttur í
þorsk- og loðnuveiðum virðist ekki
hafa dregið úr áhuga manna á
sýningunni, hvorki hér heima né
erlendis.
Mikill áhugi
á sjávarút-
vegssýningu
Marianne Rasmus-
sen-Coulling
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
„HAGSMUNAAÐILAR á markaði
þurfa að fara gætilega í opinberri um-
fjöllun um verðhækkanir. Í slíkri um-
fjöllun kunna að felast brot á sam-
keppnislögum.“ Þetta segir Páll
Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppn-
iseftirlitsins, en að undanförnu hafa
m.a. forsvarsmenn Bændasamtak-
anna og framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra stórkaupmanna fjallað opin-
berlega um nauðsyn verðhækkana.
Samkeppniseftirlitið óskaði fyrir
helgi eftir gögnum frá Bændasam-
tökunum sem tengjast búnaðarþingi
svo og gögnum sem tengjast umfjöll-
un um verðlagningu á svína-, ali-
fugla-, hrossakjöti og grænmeti. Páll
Gunnar sagði að þarna væri verið að
óska eftir skýringum og upplýsing-
um. Um væri að ræða hefðbundna at-
hugun sem væri liður í eftirliti stofn-
unarinnar. Engin niðurstaða lægi
fyrir.
Páll Gunnar sagði að þegar samtök
fyrirtækja fjölluðu um verðlagningu
þá vekti það alltaf athygli Samkeppn-
iseftirlitsins. „Við munum fylgjast
mjög vel með því að það sé ekki verið
að nýta aðstæður og fjölmiðla til þess
að koma af stað verðhækkunum sem
grundvallast á samráði og eiga sér
ekki eðlilegar forsendur.“
Að því er varðar yfirlýsingar Andr-
ésar Magnússonar, framkvæmda-
stjóra Félags íslenskra stórkaup-
manna, um að fram undan væru
20–30% hækkanir á matvöruverði,
sagði Páll Gunnar að Samkeppniseft-
irlitið hefði tekið þau ummæli til at-
hugunar og óskað upplýsinga og
skýringa.
Er verið að gefa
keppinautum skilaboð?
Páll Gunnar lagði áherslu á að
breytingar á verði vöru yrðu að
byggja á sjálfstæðri ákvörðun við-
komandi fyrirtækis. Samtök fyrir-
tækja mættu með engu móti vinna
gegn þessu sjálfstæði félagsmanna
sinna með því t.d. að hvetja til eða
réttlæta verðhækkanir. „Það er at-
hugunarefni hvort verið sé að gefa
keppinautum skilaboð um hvað gera
skuli.“
Páll Gunnar sagði að forsvarsmenn
samtaka fyrirtækja hefðu að þessu
leyti takmarkað svigrúm til að tjá sig
um verðbreytingar. Hann tók fram
að Samkeppniseftirlitið legðist ekki
gegn almennri umræðu um verðlags-
mál, en þarna væri ákveðin lína sem
forsvarsmenn fyrirtækja og samtaka
þeirra mættu ekki fara yfir.
Eiríkur Blöndal, framkvæmda-
stjóri Bændasamtaka Íslands, sagði
að bréf Samkeppniseftirlitsins hafi
komið sér á óvart. Forsvarsmenn
bænda hefðu verið að koma á fram-
færi við fjölmiðla upplýsingum um
hækkanir á aðföngum og hvaða af-
leiðingar þær myndu hafa á búvöru-
verð. Hann sagðist ekki vera sam-
mála Samkeppniseftirlitinu sem
skilgreinir Bændasamtökin sem sam-
tök fyrirtækja. Þeim athugasemdum
yrði komið á framfæri við stofnunina
ásamt umbeðnum gögnum. Hann
sagði að stjórn Bændasamtakanna
myndi ræða þetta mál og hvort at-
hugasemdir Samkeppniseftirlitsins
kölluðu á einhverjar breytingar hjá
samtökunum.
Erum að leggja út
af staðreyndum
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra stórkaup-
manna, sagði í samtali við RÚV um
helgina að verð á matvörum myndi
hækka um 20-30% á næstunni í kjöl-
far gengisfalls krónunnar.
Andrés sagðist gera sér grein fyrir
þeim lagaákvæðum sem gilda um
samtök eins og FÍS. Hann sagði að í
viðtalinu hafði hann verið að ræða um
afleiðingar þeirra miklu gengisbreyt-
inga sem orðið hefðu frá áramótum.
Þessir aðalgjaldmiðlar hefðu frá ára-
mótum styrkst gagnvart krónu um
30-35%. Þá hefði hráefni á heims-
markaði á mörgum vöruflokkum
hækkað. „Ef við megum sem hags-
munasamtök ekki leggja út af þess-
um staðreyndum í opinberri umræðu
þá erum við algjörlega múlbundin,“
sagði Andrés og bætti við að það væri
auðvitað alltaf umdeilanlegt hvort
ætti að nefna prósentur í sambandi
við hækkanir.
Eysteinn Helgason, framkvæmda-
stjóri Kaupáss, segir að miklar hækk-
anir á matarverði séu komnar til
framkvæmda nú þegar og meira sé í
pípunum. Hækkanirnar séu af mis-
munandi rótum. Gengislækkun krón-
unnar hafi mikil áhrif á verð á inn-
fluttum vörum. Síðan sé heims-
marksverð á ýmsum framleiðslu-
vörum að hækka og ennfremur hafi
kostnaðarhækkanir dunið yfir land-
búnaðinn sem hafi leitt til verðhækk-
ana. Eysteinn segir mismunandi
hversu hratt hækkanirnar komi
fram. Hækkanir á áburðarverði fari
t.d. ekki að hafa áhrif á verð á lamba-
kjöti fyrr en í haust. Hann segir hins
vegar dæmi um að birgjar hafi til-
kynnt um hækkanir tvisvar í viku.
Hann segir útilokað að segja fyrir um
hversu mikið verð á matvörum komi
til með að hækka. Það ráðist m.a. af
þróun gengis á næstu mánuðum. Það
sjái hins vegar allir að verslunin geti
ekki tekið á sig stórfellda lækkun á
gengi krónunnar.
Krefst upplýsinga frá FÍS
Samkeppniseftirlitið gerir athugasemdir við yfirlýsingar forsvarsmanna fyrirtækja og samtaka
fyrirtækja um verðhækkanir sem séu fram undan Það krefst skýringa frá Félagi stórkaupmanna
Páll Gunnar
Pálsson
Eiríkur
Blöndal
Eysteinn
Helgason
Andrés
Magnússon
♦♦♦
SKRIF Moggabloggara hafa oft komið hreyfingu á samfélagið. Það var í
gegnum Blog.is sem sagan af hremmingum Erlu Óskar Arnardóttur á
JFK-flugvelli komst í sviðsljósið. Fjölmiðlar hófu í kjölfarið að fjalla um
málið, sem fljótlega varð að hápólitísku deilumáli. Á myndinni kemur
sendiherra Bandaríkjanna til fundar við utanríkisráðherra vegna málsins.
Miðill sem hefur mikil áhrif