Morgunblaðið - 01.04.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 11
FRÉTTIR
Með vaxandi verðbólgu eru verðtryggðir skuldabréfasjóðir góður og traustur fjárfestingakostur. Glitnir býður fjóra slíka sjóði sem
fjárfesta bæði í ríkistryggðum sem og öðrum skuldabréfum. Kynntu þér kosti skuldabréfasjóða Glitnis. Hver þeirra hentar þér best?
Árleg nafnávöxtun m.v. sl. 12 mánuði skv. www.sjodir.is. Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð.
Sjóður 1, 5, 7 og 11 eru verðbréfasjóðir skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfa- og fjárfestingasjóði. Glitnir
sjóðir er rekstrarfélag sjóðanna. Nánari upplýsingar er að finna á www.glitnir.is.
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á WWW.GLITNIR.IS/SJODIR EÐA HJÁ EIGNASTÝRINGU GLITNIS Í SÍMA 440 4900
NÚ ERU TÆKIFÆRI
Í VERÐTRYGGÐUM SKULDABRÉFUM
11,0%
MEÐALLÖNG
SKULDABRÉF
Fjárfestingatími 1-3 ár
SJÓÐUR 1
13,1%
MEÐALLÖNG
RÍKISSKULDABRÉF
Fjárfestingatími 1-3 ár
SJÓÐUR 5
11,9%
LÖNG
RÍKISSKULDABRÉF
Fjárfestingatími 2-4 ár
SJÓÐUR 7
9,4%
LÖNG
FYRIRTÆKJABRÉF
Fjárfestingatími 2-4 ár
SJÓÐUR 11
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
AÐGERÐIR vörubílstjóra í Ártúns-
brekku og á Reykjanesbraut í gær-
morgun töfðu ökumenn og farþega á
fimmta þúsund bíla allt upp í um
klukkustund. Ekki var tilkynnt um
alvarleg slys eða bruna á tímabilinu
og höfðu aðgerðirnar því væntan-
lega lítil áhrif á starfsemi neyðarbíla
eins og lögreglu, slökkviliðs og
sjúkrabíla, að sögn lögreglu.
Helsti álagstíminn
Um 90.000 til 92.000 bílar aka um
Ártúnsbrekkuna að meðaltali á sól-
arhring, samkvæmt mælingum
framkvæmda- og eignaráðs Reykja-
víkur. Álagið er mest á virkum dög-
um frá klukkan 7.30 til 9 á morgnana
og aftur frá kl. 16.30 til 17. Umferðin
er mest þegar skólarnir byrja starf-
semi sína á haustin.
Síðastliðinn fimmtudag mældist
6.181 ökutæki á ferð um Ártúns-
brekku milli klukkan 7.00 og 8.00 f.h.
Sambærileg tala á sama tíma í gær-
morgun var 2.828 ökutæki. Fyrst
eftir að aðgerðunum lauk eða frá
klukkan 8.00 til 8.10 f.h. fóru 1.465
bílar um Ártúnsbrekkuna.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni fara að meðaltali um
11.260 ökutæki um Reykjanesbraut
við Strandarheiði á sólarhring. Síð-
astliðinn fimmtudag fóru 579 öku-
tæki á hægri akrein í átt til Reykja-
víkur og 200 ökutæki á vinstri akrein
klukkan 7.00–8.00 f.h. Sambærilegar
tölur á sama tíma í gærmorgun voru
504 og 221. Á vinstri akrein frá
Reykjavík mældust 27 ökutæki á
fyrrgreindum tíma sl. fimmtudag en
3 ökutæki í gærmorgun. Á hægri ak-
rein voru 228 ökutæki sl. fimmtudag
en 70 í gærmorgun.
Vegagerðin er með umferðar-
greini á Strandarheiði og er hann
staðsettur um 1,1 km vestan brúar
yfir Vatnsleysustrandarveg. Kúa-
gerði er hins vegar aðeins austan við
vegamót Reykjanesbrautar og
Vatnsleysustrandarvegar. Aðgerðir
vörubílstjóra við Kúagerði hafa
greinilega haft mikil áhrif á umferð-
ina á leið frá Reykjavík, en umferð á
leið frá Keflavík hafði náð því að fara
framhjá umferðargreininum áður en
ökumenn urðu að stöðva vegna að-
gerða vörubílstjóranna.
Ólöglegar aðgerðir bestar
Sturla Jónsson, talsmaður vörubíl-
stjóranna, sem stöðvuðu umferðina í
Ártúnsbrekku, segir að aðgerðirnar
nú og fyrir helgi séu til að þrýsta á
ráðamenn þjóðarinnar til að gera
eitthvað í málum þessara bílstjóra.
Hann segir að samkvæmt reglugerð
sé búið að fella hvíldarlögin úr gildi
og bílstjórar vilji sjá það í verki.
Þessi lög bitni illa á mönnum og
nefnir hann að vinni maður sjö mín-
útum of lengi fái hann 80.000 kr. sekt
og fjóra punkta í ökuferilsskrá. Far-
ið sé með þá sömu höndum og menn
sem aki undir áhrifum áfengis og það
gangi ekki. Samgönguráðherra hafi
haft samband á föstudag og að lokn-
um fundi á laugardag hafi verið
hringt í hann og honum sagt að bíl-
stjórarnir vildu einfaldlega að hann
tæki af skarið í sambandi við hvíld-
arlögin svo menn þyrftu ekki að ótt-
ast mótaðgerðir vegna vinnu sinnar.
Boltinn væri því hjá honum. Róbert
Marshall, aðstoðarmaður samgöngu-
ráðherra, segir að bílstjórum hafi
verið boðið að mæta á fund ráðherra
en þeir hafi ekki enn óskað eftir þeim
fundi. Hins vegar standi boðið.
Í öðru lagi segir Sturla að menn
séu að berjast fyrir lækkun elds-
neytis- og þungaskatts á bílana og
það heyri undir fjármálaráðherra.
Að sögn Sturlu verður aðgerðum
haldið áfram þar til gengið verði að
kröfunum. Spurður hvort mótmælin
hafi verið gerð í samráði við lögreglu
segir hann að það hafi verið gert fyr-
ir þremur árum og þá hafi bílstjór-
arnir verið leiddir um Reykjavík eins
og sýningardýr. Af því mætti ráða að
þetta væri stétt sem mætti troða á
rétt eins og almenningi. Lögreglan
hefði því ekki verið látin vita fyrir
fram af aðgerðunum nú. Allir vissu
að þær væru ólöglegar, en svo virtist
sem grípa þyrfti til slíkra ráða til að
fá einhverju framgengt.
Kristján Ó. Guðnason aðstoðaryf-
irlögregluþjónn segir að lögreglan
hafi ekki þurft að grípa til þess að
láta draga bíla í burtu. Bílstjórum
hafi verið gert að færa bíla sína og að
endingu hafi þeir farið að þeim fyr-
irmælum um klukkan átta. Fljótlega
eftir það hafi greiðst úr umferðinni,
en ljóst sé að aðgerðirnar hafi tafið
marga og lögreglan sé ekki sátt við
framgang bílstjóranna.
Á fimmta þúsund ökutækja
komst hvorki lönd né strönd
Morgunblaðið/Júlíus
Hingað og ekki lengra Egill Bjarnason, yfirlögregluþjónn umferðardeildar, gerir Sturlu Jónssyni vörubílstjóra
grein fyrir alvöru málsins í Ártúnsbrekkunni í gærmorgun. Skömmu síðar lauk aðgerðunum.
Vörubílstjórar
vilja hvíldarlögin
úr gildi nú þegar
Berjast fyrir
lækkun eldsneytis-
og þungaskatts
FERÐAKLÚBBURINN 4x4 lýsti í
gær yfir fullum stuðningi við þær
kröfur atvinnubílstjóra að álögur
ríkisins á eldsneyti verði lækkaðar
verulega. Boðuð voru frekari mót-
mæli almennra borgara, áhuga-
félaga og félaga atvinnubílstjóra
gegn Alþingi og olíufélögunum á
Austurvelli klukkan 16 í dag.
„Það er okkar mat að það sé al-
gerlega út í hött að álögur ríkisins
skuli vera hlutfall af verði elds-
neytis og margfaldi því áhrif ann-
arra þátta er hækka eldsneyti,“
segir klúbburinn. „Það er því eðli-
leg krafa allra þeirra sem þurfa að
nota eldsneyti, hvort sem er við
vinnu eða í sínum frítíma, að ríkið
sýni sanngirni í skattlagningu á
eldsneyti og komi jafnframt til
móts við bíleigendur þegar kreppir
að með því að lækka sínar álögur
nú þegar.“
Klúbburinn hvetur alla til að
mæta fyrir framan Alþingi klukkan
16 í dag. Í tilkynningu eru þeir sem
ætla að mæta akandi beðnir um að
koma á planið hjá R. Sigmundssyni
að Klettagörðum 25 og aka þaðan
saman að Alþingi klukkan 15.30.
Mótmælum
haldið áfram
á Austurvelli
Morgunblaðið/Júlíus
Lokað Vörubifreiðastjórar lögðu bílum sínum í Ártúnsbrekkunni í gær-
morgun og stöðvuðu þannig umferð í báðar áttir.