Morgunblaðið - 01.04.2008, Side 44
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 92. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Rannsókn hætt
Lögreglan hefur hætt rannsókn á
því þegar dýrmætum sýnum, eink-
um af fuglum, í eigu Náttúrufræði-
stofnunar Íslands var kastað vorið
2006. Sýnin voru varðveitt í frysti-
geymslu sem stofnunin hafði þá leigt
í um 16 ár. » 2
Vildi Ísland gjaldþrota
Hugh Hendry, eigandi bresks
vogunarsjóðs, hefur hagnast mjög á
falli íslensku krónunnar, en hann
sagði í blaðaviðtali árið 2006 að hann
vildi verða þekktur sem maðurinn
sem gerði Ísland gjaldþrota.
» Forsíða
Doði í borgaryfirvöldum
Fulltrúar minnihluta í borg-
arstjórn segja doða í borgaryf-
irvöldum og að athygli veki það
ráðaleysi sem einkennt hafi um-
ræðuna um vanda miðborgarinnar,
þegar fyrir liggi vandlega rök-
studdar tillögur um úrbætur. » 8
Blog.is tveggja ára
Skráðir notendur Moggabloggs-
ins eru í dag tæplega 14.000 talsins
og í hverri viku eru um 130.000
heimsóknir á bloggvefi Blog.is., sem
er tveggja ára í dag. Meðalaldur
skráðra notenda er rösklega 34 ár og
alls höfðu verið skrifaðar á bloggvef-
inn tæpar 393 þúsund færslur seinni
part dags í gær. Við færslurnar hafa
svo verið skrifaðar 1.186.465 at-
hugasemdir. » 6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Til hvers að þegja?
Forystugr.: Stríð og friður í Írak |
Eftirlit með fjármálafyrirtækjum
Ljósvakinn: Samansafn gullmola
UMRÆÐAN»
Formaður Sf. og klækjastjórnmál …
Forðumst alhæfingar
Héðinsfjarðargöngin koma
Unga kynslóðin og jafnréttismál
3
3"
3
3#
3 3""
#3
#3"
4
5%& /
%,
6
'
%%$% %
##
3 3
3#
3" 3
#3#
3
3#
.
71 &
3"
3 3
"
3" #3
3
89::;<=
&>?<:=@6&AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@&7%7<D@;
@9<&7%7<D@;
&E@&7%7<D@;
&2=&&@$%F<;@7=
G;A;@&7>%G?@
&8<
?2<;
6?@6=&2,&=>;:;
Heitast 6 °C | Kaldast -1 °C
Norðaustan 5-13
metrar á sekúndu og
víða bjart veður en
stöku él norðan- og
austanlands. » 10
Kraumur úthlutar
milljónum til ís-
lenskra tónlistar-
manna í dag. Meðal
styrkþega er vinsæl
strengjasveit. » 36
TÓNLIST»
Innspýting í
tónlistarlífið
TÓNLIST»
Sigtryggur dæmir
heimstónlist. » 38
Félagarnir Ólafur
Jóhannesson og
Stefan Schaefer eru
með sjónvarpsþætti
um lágt setta engla í
bígerð. » 36
KVIKMYNDIR»
Eftir Stóra
planið
KVIKMYNDIR»
Gael García Bernal lýkur
tökum í dag. » 43
FÓLK»
Einangrar sig og skrifar
myrka texta. » 37
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Handalögmál í Ártúnsbrekku
2. Sekt ef ekki er mætt í ræktina
3. „Ráðamenn vakni, Íslendingar …“
4. Lögregla kallar eftir kranabílum
Íslenska krónan styrktist um 2,9%
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
KÁRI Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagrein-
ingar, segir að Stefán Hjörleifsson, læknir og
heimspekingur, hafi framið lögbrot, er hann fram-
kvæmdi rannsókn sína um íslenska fjölmiðlaum-
fjöllun um erfðavísindi án þess að fyrir hefði legið
upplýst samþykki þátttakenda.
Kári bendir á að Stefán hafi í samtali við Morg-
unblaðið í fyrradag greint frá niðurstöðum rann-
sóknar sinnar og þar á meðal hafi hann veitt upp-
lýsingar um afstöðu starfsfólks og þátttakenda í
rannsóknum hjá ÍE.
„Þá rannsókn gerði hann án þess að hafa leyfi
Vísindasiðanefndar, án þess að hafa leyfi Persónu-
verndar og án þess að leggja fyrir fólk upplýst
samþykki,“ segir Kári m.a. í samtali við Morg-
unblaðið í dag.
Hann segir að þetta sé ekki bara brot á hefð,
„heldur er þetta brot á lögum. Stefán hefur ekki
heimild til þess að gera svona rannsókn án þess að
leggja fyrir þátttakendur upplýst samþykki,“ seg-
ir Kári.
Kári kveðst axla ákveðna ábyrgð á því hvernig
fór, því hann hafi hleypt Stefáni inn í Íslenska
erfðagreiningu. „Ég viðurkenni nú að það var
barnaskapur af minni hálfu, sem ég ber ábyrgð á,“
segir Kári.
Aðspurður hvort viðtalið við Stefán muni hafa
eftirmál í för með sér segist Kári munu benda Vís-
indasiðanefnd, Persónuvernd, Háskólanum í
Bergen og Háskóla Íslands á að rannsókin hafi
verið gerð án þess að fyrir þátttakendur hafi verið
lagt upplýst samþykki.
Rannsóknin er lögbrot
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, mun benda Vísindaráði,
Persónuvernd og Háskólanum á vankanta rannsóknar Stefáns Hjörleifssonar
Í HNOTSKURN
»Fellst á nauðsyn eftirlits til að tryggja aðfarið sé að lögum og reglum við rann-
sóknir.
»Hver á að hafa eftirlit með þekkingarsam-félaginu, sem hefur eftirlit með okkur?
»Kári Stefánsson vísar því á bug, að Íslenskerfðagreining njóti vilhollrar umfjöllunar
íslenskra fjölmiðla, og kveður engan fót fyrir
því að sífellt sé verið að hlaða ÍE lofi.
Morgunblaðið/Kristinn
Vísindi Kári segir umfjöllun alltaf vera jákvæða.
Stöndum klofvega | Miðopna
„ÞAÐ á aldrei að
vera fyrsta ráð-
stöfun hjá neinu
fyrirtæki að
hækka verðið,“
segir Þórarinn
Ævarsson, fram-
kvæmdastjóri
IKEA. Athygli
hefur vakið að
IKEA lofaði í auglýsingu um helgina
að verð í vörulista fyrirtækisins
myndi haldast óbreytt þar til nýr listi
kemur út í ágúst nk., þrátt fyrir geng-
isfall. „Það má ekki velta öllu beint út
í verðlagið. Íslenski neytandinn er
bara því miður vanur því að láta valta
yfir sig,“ segir Þórarinn.
Ástæðuna fyrir því að IKEA þarf
ekki að hækka verðið segir hann að
þegar verð í vörulistanum er ákveðið
að vori sé reynt að reikna út líklegt
miðgengi. Við óbreyttar aðstæður
muni þó einhverjar hækkanir verða
hjá IKEA í næsta vörulista. „Það sem
verra er er að allt heimsmarkaðsverð
er að hækka sem þýðir að allur fram-
leiðslukostnaður hækkar.“ Þórarinn
segir verðbólguna fara upp úr öllu
valdi ef allir hækki nú verð um 30%.
„Það er ábyrgðarleysi hjá öllum að
spila með í þessari vitleysu.“ | 4
„Ábyrgð-
arleysi að
spila með“
IKEA telur verð-
hækkanir óþarfar
HEIMILISFÓLKIÐ á Öndólfsstöðum í Reykjadal rak
upp stór augu þegar það kom í fjárhúsin á páskadag
því öðruvísi jarm heyrðist í einni krónni og greinilegt
að það hafði fjölgað í húsunum. Guðrún Emilía
Höskuldsdóttir er hin kátasta með þessa kærkomnu
vorsendingu, gimbrarnar Drottningu og Prinsessu.
Drottning og Prinsessa boða vorið
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Fyrirmálslömb í fjárhúsunum á Öndólfsstöðum