Vikan - 25.11.1971, Blaðsíða 21
NAR 500 VINNINGAR
3. HLUTI
Já, hvar skyldi nú karlinn
hann Gissur gullrass hafa
gloprað niður vindlinum
sínum? Það er ekki gott
að vita, og þið finnið hann
aldrei, fremur en Gissur
sjálfur. Hins vegar birtum
við tvær myndir af Gissur
gullrass að leita að vindl-
inum sínum. 1 fljótu bragði
virðast þær báðar eins, en
ef betur er að gáð, kemur
í ljós, að þrjú atriði vant-
ar á neðri myndina. Get-
raunin er einmitt fólgin í
því að finna þau og skrifa
þau á meðfylgjandi get-
raunaseðil.
ATHUGIÐ:
Getraunin verður í fjórum
blöðum. Þegar öll fjögur
blöðin eru komin — ekki
fyrr — sendið þið lausnirn-
ar til VIKUNNAR, PÓST-
HóLF 533, REYKJAVlK,
og merkið umslagið með
„Jólagetraun S“, ef send-
andi er stúlka, en „Jóla-
getraun D“, ef sendandi er
drengur. Athugið, að lausn-
ir verða því aðeins teknar
til greina, að þær séu skrif-
aðar á getraunaseðilinn í
blaðinu sjálfu. Haldið öll-
um seðlunum saman, þar
til keppninni lýkur.
*