Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2012
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Snyrting
Babaria-snyrtivörur loksins á
Íslandi.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem er
unnin úr náttúrulegum hráefnum og
hentar þörfum allrar fjölskyldunnar
fyrir alla daglega umhirðu húðar.
Vörurnar fást í netversluninni
www.babaria.is
Sumarhús
Vaðnes - eignarlóðir
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í
kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes-
og Grafningshreppi. Allar nánari
upplýsingar í síma 896 1864.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
TILBOÐ - TILBOÐ -TILBOÐ
Flottir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stakar stærðir.
Tilboðsverð: 5.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
TILBOÐ - STAKAR STÆRÐIR.
til dæmis þessi á kr. 4.500,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-föst. 10-18,
opið á laugardögum kl. 10-14.
Þú mætir - við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Bílar
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bílar óskast
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
Kebek-Nama-heilsársdekk
165 R 13 kr. 6.900
195/65 R 15 kr. 13.900
205/55 R 16 kr. 15.900
215/55 R 16 kr. 16.900
205/50 R 17 kr. 18.900
235/45 R 17 kr. 21.390
225/65 R 17 kr. 21.890
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 544 4333.
Húsviðhald
Laga ryðbletti á þökum,
hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk-
efni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Þjónustuauglýsingar 569 1100
Teg 50397 - frábærar, mjúkar og
flottar mittisbuxur á kr. 3.550,-
Teg 54590 - mjúkar og góðar í
S,M,L,XL,XXL á kr. 3.990,-
Teg. 73394 - aðhaldsbuxur upp að
BH í S,M,L,XL á kr. 5.880,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-föst. 10-18,
opið á laugardögum kl. 10-14.
Þú mætir - við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Landsst. 6012100613 IX laugar-
dag á Akureyri kl. 13.
Félagsstarf
- Með morgunkaffinu
Fyrir um aldarfjórðungi
kynntumst við vinkonurnar þeg-
ar við hófum nám við Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á Sauð-
árkróki. Við komum alls staðar
að af landinu en Agnes var
fulltrúi Húnvetninga í vinkon-
uhópnum, glettin og brosmild.
Seint þreyttist hún á að dásama
sinn heimabæ, Blönduós, okkur
hinum oft til armæðu.
Á þessum tíma brölluðum við
vinkonurnar margt, prjónuðum
heimsins lengsta sokk, smyrnuð-
um mynd af skólameistaranum,
vorum með útvarpsþátt auk þess
sem við tróðum upp á sviðinu í
Bifröst eða bara í Búnaðarbank-
anum á öskudeginum. Fyrir
flesta þessa viðburði okkar var
yfirleitt haldinn skipulagsfundur
og oftast var Agnes ritari enda
með bestu skriftina af okkur. Við
kölluðum okkur Glaðbeittar
glamurpíur og þurfti að leysa
Agnes Drífa
Guðmundsdóttir
✝ Agnes DrífaGuðmunds-
dóttir fæddist á
Blönduósi 23. októ-
ber 1970. Hún lést á
Sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 21. sept-
ember 2012.
Útför Agnesar
Drífu var gerð frá
Blönduóskirkju 28.
september 2012.
hinar ýmsu þrautir
til að komast inn í
hópinn. Agnes hafði
alltaf gaman af tón-
list og sungum við
vinkonurnar mikið
og færðum oft lög
og texta í betri bún-
ing að því er okkur
fannst. Margar
minningar eigum
við frá þessum árum
og alltaf var Agnes
með og til í ýmis furðuleg uppá-
tæki. Þegar Agnes veiktist fyrir
rétt um 19 árum þjappaði það
vinahópnum enn betur saman.
Hún hvarf alltof ung frá okkur og
skildi eftir stórt skarð í vinahópn-
um.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem)
Ástvinum Agnesar vottum við
okkar dýpstu samúð. Hvíl í friði,
kæra vinkona, minningin um þig
hvílir í hjörtum okkar allra.
Fyrir hönd Glaðbeittra
glamurpía,
Theodóra Hauksdóttir.
Elsku Agnes mín.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Takk fyrir allt, elsku systir,
Guð veri með þér.
María og fjölskylda.
Við hlökkuðum
alltaf til þegar hún
Guðný, góð vinkona
okkar frá því við
vorum í barnaskóla, mætti á
svæðið. Þá var hlegið, rifjað upp
og gert að gamni sínu. Guðný
átti auðvelt með að segja brand-
ara og koma okkur til að hlæja,
var létt og skemmtileg með góð-
ar gáfur og góðan húmor.
Guðnýju var annt um vini og
fjölskyldu og var fjölskyldan
hennar stoð og stytta í gleði og
sorg. Þau systkinin, Þórunn,
Guðrún, Bergur, Guðný og Páll,
á meðan hann var á lífi, hafa
ætíð haldið mjög vel saman svo
eftir er tekið. Guðný tók mjög
nærri sér veikindi í fjölskyldu
sinni og syrgði bróður sinn Pál,
sem dó fyrir aldur fram, mjög.
Systkinabörn Guðnýjar voru
öll börn hennar. Hún dáði þau
mjög, talaði um þau eins og
væru þau hennar eigin og fylgd-
ist alltaf með af áhuga – mikil
fjölskyldumanneskja og frænd-
rækin.
Guðný
Bergsdóttir
✝ Guðný Bergs-dóttir fæddist í
Reykjavík 2. apríl
1944. Hún lést í
Kaupmannhöfn 25.
júlí 2012.
Útför Guðnýjar
fór fram í kyrrþey.
Við skólasystkin-
in, 44 árgangurinn
á Akureyri, höfum
haldið vel saman og
hittumst reglulega.
Að sjálfsögðu kom
hópurinn saman
þegar Guðný kom í
heimsókn sl. sum-
ar. Það var
ánægjulegt að hitt-
ast í nýja Menning-
arhúsinu okkar,
Hofi, sem við erum mjög stolt
af. Við áttum yndislegar stundir
saman og einn skólabróðir úr
hópnum færði Guðnýju rauða
rós, sem endurspeglar hug okk-
ar til hennar. Þetta segir mikið
og er okkur huggun í söknuðin-
um eftir Guðnýju, nú þegar við
vitum að hún kemur ekki aftur.
Takk skólabróðir.
Góður fjölskyldumeðlimur
sagði: „Hún gerir allt með stæl
þessi elska.“ Það var engin
lognmolla í kringum vinkonu
okkar og hún sá ætíð spaugilegu
hliðina á tilverunni. Stundum
brosti Guðný elskan í gegnum
tárin.
Guðný átti auðvelt með
skriftir, var menntaður blaða-
maður og starfaði á árum áður
sem slíkur hér heima. Síðar
vann Guðný sem blaðamaður í
Danmörku og sem ritstjóri hjá
Blindrafélaginu í Kaupmanna-
höfn. Það var alltaf gaman að fá
bréf frá Guðnýju, svo vel og
skemmtilega skrifuð og tók hún
sjálfa sig ekki of alvarlega.
Guðný fékk oft hvatningu til að
gera meira úr sínum hæfileikum
á rithöfundasviðinu, en tíminn
leyfði það ekki.
Birgit, sambýliskona og lífs-
förunautur Guðnýjar, dó árið
1996 og var það mikill missir
fyrir Guðnýju. Þær höfðu búið
saman í nokkur ár og nú hvíla
þær saman í Söndermark-
kirkjugarði, Roskildevej 54,
Kaupmannahöfn. Ósjaldan tal-
aði Guðný um Birgit við okkur
vinina og söknuðurinn leyndi
sér ekki. Nú eru þær saman,
tveir englar, í okkar huga.
Við, nokkrar vinkonur, vorum
svo heppnar að kynnast Birgit
þegar hún kom til Íslands með
Guðnýju um árið. Það geislaði
af þeim gleðin og við áttum
saman ógleymanlegar stundir
yfir mat og drykk í hugguleg-
heitum. Guðný var þakklát fyrir
þann tíma sem hún átti með
elsku Birgit sinni.
Guðný, elsku vinkona okkar,
var góð stelpa og var alltaf svo
nálæg, þrátt fyrir að hún byggi
lengi í Danmörku. Við kveðjum
hana með söknuði. Hvíl í friði
hjartans, Guðný okkar. Blessuð
sé minning þín.
Við, ásamt skólasystkinum í
44 árganginum, þökkum sam-
fylgdina með yndislegri konu.
Megi ljós og kærleikur vísa
fjölskyldu Guðnýjar veginn.
Ásdís Þorvaldsdóttir,
Ásrún Baldvinsdóttir,
Sigurbjörg Pálsdóttir.